Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 125

Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 125
1913 2000 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 125 gang alheimsins og bresti ekki inn- sýn í hann, er varla sá hlutur til, sem ekki virðist á vissan hátt geta veitt ánægju. í þessum skilningi er hinn opni skoltur villidýranna, engu ógirnilegri til fróðleiks en eftirlík- ingar hans í heimi listarinnar. Þar sem fer öldungurinn, mun honum gefast að sjá hinn fulla þroska og útlit, er honum sæmir, og hinn ljúfa blóma æskunnar getur hann virt fyrir sér, án þess að lostafull ástríða dragi ský á augu hans. Þessu líkt mun honum farast um fjölmargra hluti, sem ekki kunna í allra augum að sýnast viðfelldnir, en mun vissu- lega gleðja hvem þann mann, sem er sannur skoðari náttúrunnar og handverka hennar." Málverk er hugverk og hefur í kjarna sínum þann höfuðtilgang að miðla áhorfandanum upplifun þess, er skóp verkið. Hann er því meiri af sjálfum sér sem list hans er einstak- lingsbundnari. í allri sögu listarinn- ar hefur það hvergi verið skráð til mikilla afreka að þjóna hinum óþroskuðu almennu kenndum. Hellamálverkin fornu voru ekki gerð fjöldanum tii unaðssemdar, píramídamir því síður. Michaelang- elo bjó ekki út myndir sínar fyrir hið óþroska auga. Leonai'do da Vinci horfði með stóiskri ró á her- menn eyðileggja mesta listaverk hans, hina miklu riddarastyttu af Lorenzo di Medici. Listin hefur ver- ið sögð guðsdýrkkun í línum, litum og formi, einnig verið túlkuð með svo einföldu orði sem miðlun. Víst er, að fjöldinn getur menntað sig í gegnum listina sem önnur þrosk- andi meðul, er byggjast á lífs- reynslu, menntun og innsýn, en hann getur ekki gripið fram fyrir hendur listamannsins frekar en hendur skurðlæknisins. Og þótt al- menningur sé svo mjög andsnúinn listamönnum, er það víst, að engin stétt þjóðfélagsins hefur haft jafn ríka samkennd með honum og einmitt listamennirnir, og engir hafa lýst honum betur í reisn hans og lægð. Heimurinn hló, þegar heims- pressan skýrði frá amerískum mál- ara, sem málaði eingöngu svartar myndir, en seldi þó allt. - Hefðu þeir, sem skoðuðu sýninguna og komu fréttinni út, rýnt lengur á hvert einstakt málverk hefðu þeir uppgötvað marga liti og margvísleg form, og einmitt þessi hárfina og merkilega yfirferð gaf myndunum ómetanlegt gildi. Heimurinn hló einnig er upp komst, að api hefði fengið verðlaun á listasýningu. Ap- ar geta skynjað að marki og hægt er að kenna þeim ýmsan verknað, hreyfingar þeirra eru mýkri en mannsins og hafa yfir sér vissan þokka. Ekki skyldi það koma nein- um á óvart, þótt hjá þeim væri feg- urð að finna í myndrænum skiln- ingi. En því miður, apans vegna, náði geta hans yfir mjög þröngt svið, en tilraunimar voru engu að síður athyglisverðar. Mörgum þyk- ir það fráleitt, að geðveikir geti málað fallegar, tjáningarríkar myndir. Margur hló, er hann las um geðveiku stúlkuna í Englandi, er hlaut fyrstu verðlaun á alþjóð- legri sýningu þar og mikið lof list- gagnrýnenda. I ljós kom, að faðir hennar var myndlistarkennari, mjög góðum listgáfum gæddur, og væntanlega láta þeir menn til sín heyra, sem haida því fram, að van- gefnum og geðveikum giepjist sýn á öllum sviðum. Sænski málarinn Ernst Josephson, sem er einn af brautryðjendum sænskrar listar, var með annan fótinn á geðveikra- hælum og gerði meira að segja frægar teikningar, eftir að hann var orðinn algjör hælissjúklingur. Van Gogh afrekaði það að mála 50 myndir á einu sumri, sem er máski ekki svo mjög mikið í sjálfu sér, en þó einsdæmi í listsögunni fyrir það, hvílík listaverk þetta voru. Hann var þá í umsjá geðlæknis. Allir geð- læknar vita, að ekki er til neitt, sem heitir „hinn normali maður“, því að hér vantar viðmiðun, nema meðal- mennsku. Eru þá ekki allir, sem skara fram úr ónormal? Myndlistin hefur vissulega mikil- vægu hlutverki að gegna í þjóðfé- laginu sem uppeldismeðal og ekki síður til þess að varpa Ijósi inn í hugi þess fólks og skynjanir, sem annaðhvort getur ekki tjáð sig með öðrum hætti (vangefnir, mállausir, geðveikir), eða vill ekki, t.d. þver- lynd og erfið böm með innibyrgð vandamál. Myndlistin veitir í þess- um tilvikum geðlækninum, sálfræð- ingnum og kennaranum mikilsverð- ar upplýsingar, sem hann gæti ekki aflað sér eftir öðrum leiðum. Þá get- ur myndlistin, og það verður að skoðast mikilsverðast almennt, kennt fólki að sjá í stað þess að horfa, svo sem áður var vikið að, og þar með opnað ný lífssvið... Það má vera augljóst, að myndlist er sízt alls það, sem nefnt er „lúx- us“, í almennum skilningi, en vissu- lega eru það forréttindi og „lúxus“ að fá að lifa og hrærast í umhverfi sínu og njóta þess að skynja það með vakandi tilfinningum. I-----------------------1 Regn eftir ÓLAF JÓHANN SIGURÐSSON 1940 Andvarinn stráunum vaggar vægt, veltist þokan um fjallsins skörð. Fyrstu droparnir falla hægt, falla mjúklega á þurra jörð. Mistrað var loft, úr melum rauk, móinn og túnin biðu þyrst, þegar andvarinn stráin strauk - og strjálu droparnir komu fyrst. Regnið niðar um grund og gil, glaðir lækirnir stíga dans. - Og sál mín veitist í vorsins hyl og verður hreyfing í bylgjum hans. Barn Þú komst eins og kvikur geisli og kunnir þjer engin læti. Þú leist ekki á lúna gestinn, en Ijekst þér á öðrum fæti. Og áður en varði jeg undi í yndisríkari heimi. - Og mjúku lófana htlu í leynum hugans jeg geymi. Því gullin þín voru gleðin og glóbjartar líðandi stundir. Og enga veröld þú áttir og engar sorgir þú mundir. Og þjer fanst lífið sem ljómi og leikur að gyltum baugum. - Og þá var mjer þungt fyrir brjósti, og þokumóða í augum... Það fólst bæði sólskin og söngur ísaklausabrosinuþínu, eins og draumur um alt, sem var dáið og druknað í hjarta mínu. I________________________________I WZ m fy. í tilefni aldamótanna viljum við hjá Skóverslun Kópavogs óska öllum Íslendingum til hamingju með tímamótin. (Vonurn að árið verðijjcefurífe fyrir (andsmenn a((a. Þar sem verslunin fagnar 35 ára afmæli sínu, vonum við að sem flestir sjái sér fært að líta við og fagna með okkur á þessum merku tímamótum. SKÚUERSLUN KOPAVOGS ‘Þjónusta Í35 ár HAMRABORG 3 • SfMl 554 1754 ■K KVÉilTABANKINN Kvótabankinn sendir viðskiptavinum sínum bestu kveðjur og árnaðaróskir við árþúsundamót. Þakka ánægjuleg viðskipti á liðnum árum. Jón Karlsson Sími 565 6412, fax 565 6372. Möguleíkhúsíð óskar íandsmönnum gleðílegs árs og þakkar frábærar móttökur á þeím 10 árum sem tíðín eru frá því leíkhúsíð tók tíl starfa. Framundan er 10 ára afmælisár með fjölbreyttum sýningum fyrir börn á öllum aldri Langafi prakkari mætir galvaskur til leiks 23. janúar MÖGULEIKHÚSIÐ VIÐ HLEMM sími 562 5060 Glæsilegur kvenfatnaður frá Þýskalandi og Ítalíu, Stærðir 36-52 sími 581 2141. r *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.