Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 124
124 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000
1913 2R*«0iiiiftI*feifr 2000
Að hlusta
með sjóninni
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
19 7 0
Hve oft verður þess ekki vart, að
fólk lætur sér nægja að sjá hlutina
einu sinni - það hefur séð málverkið
k fyrr, komið á staðinn áður, svo að
' óþarft er talið að eyða dýrmætum
tíma í annað sinn. Enn svo eru aðr-
ir, sem vilja kafa dýpra, því að þeir
sjá jafnan eitthvað nýtt í hafi og
hauðri, og við alla hluti, jafnvel þá
hversdagslegustu, þeim veitast ný
áhrif og alls staðar sprettur fram líf
í nálægð þeirra.
Við lærum að lesa, og þegar við
lesum, birtast okkur í lesmálinu
margvíslegar myndir, er formast
hið innra með okkur. Skáld geta
verið blind og tónskáld, sem misst
hafa heym hafa skapað stórfengleg
tónverk. Og því skilst, að hugtakið
AÐ SJA er miklu víðtækara en að
horfa eða stara á hlutina. Þegar við
lærðum að lesa, lásum við, að grasið
væri grænt, hafið blátt, himinninn
blár, moldin brún o.s.frv. Gegnum
slík orðtákn lærðum við heilmikið,
sem við síðar notum ósjálfrátt á
sjónrænan hátt án þess að aðgæta
réttmæti kenninganna með aðstoð
sjónarinnar. Slík samblöndun orða
og sjónrænna tákna sljóvga vissu-
lega upplifunarhæfileika þann, sem
felst í því að uppgötva endumýjun-
argildi hluta. Fólk horfír af vana á
hlutina - hefur skapað sér ákveðnar
fastmótaðar hugmyndir um um-
*+ hverfi sitt og þar með lokað að sér
fyrir öðram möguleikum. En grasið
er ekki ævinlega grænt, himinninn
er ekki ætíð blár, það er alveg eins
víst, og að hafið skiptir um lit, eftir
þvi hvemig ljósið fellur á það og eft-
ir hita og kuldastigi, og svo hefur
moldin marga liti. Allt þetta er auð-
velt að sanna með athugunum í
náttúmnni.
En þótt hægt sé að sanna svo
áþreifanlega víðfeðmi sjónarinnar í
fáum línum, þá er það staðreynd, að
mögulegt er að ljúka næstum hvaða
langskólanámi sem er, án þess að
|Um
I myndlist
log listrýni
hinn dýpri tilgangur sjónarinnar
verði viðkomandi ljós. Því að þessar
staðreyndir má viða lesa, en eitt er
að lesa og annað að skiija, eins og
það er tvennt ólíkt að sjá og horfa.
Að horfa samkvæmt reynslu vanans
er t.d. að laðast að hlut, sem maður
þekkir í málverki, málverkið verður
gott sem staðfesting á reynslutákni.
Að sjá er að uppgötva og upplifa
eitthvað í málverki, sem er utan við
venjulega sjónreynslu áhorfandans.
A þann veg notar maður augað til
að endumýja skynjanir manns á
hinu þekkjanlega umhverfi. Eftir-
líkingin höfðar ekki til skapandi
kennda, en getur haft tilgang í um-
hverfi fólks, sem á ekki slíkar
kenndir til. „Blinda er ekki það
versta," mælti hin heimskunna
Helen Keller, „heldur náttmyrkur
fáfræði og tilfinningaleysis.“ - Barn
fæðist, það er endumýjun lífsins,
því neitar enginn, en ótalmargir
neita öllum staðreyndum, sem era
fyrir utan reynslutákn þeirra.
... „Eg skil ekki nútímalist,“ er
orðtak margra í dag, en þeir era
ekki hinir fyrstu er þannig kveða,
því að hver kynslóð hefur sagt það
sama um aldir. Hvað vill fólk skilja?
Efnafræðilega samsetningu litarins
- viðbrögð léreftsins gagnvart hita
og raka, gerð penslanna? Skiljum
við trén, gróðurinn, granítið í fjöll-
unum, tilgang lífsins? Með allri
virðingu fyrir manninum og mann-
legum skilningi þá er það harla lítið,
sem hann raunverulega skilur af
því, sem hrærist umhverfis hann.Til
þess era skilningarvit hans of ófull-
komin og næmleikinn of takmark-
aður. Aftur á móti hefur maðurinn
frá bamsaldri ágætt ímyndunarafl
og hugmyndaflug, sem mjög þarfn-
ast næringar. Við höfum hæfileika
til að upplifa hlutina skynrænt, sem
yfirgnæfir allan skilningarhæfi-
leika. Við skynjum lífið, en skiljum
það síður. A öllum tímum hefur
manneskjan látið sig dreyma langt
inn í heima, sem ekki era til, ímynd-
uðum möguleikum hafa aldrei verið
takmörk sett. Leyndardómurinn
liggur ekki í því að skilja, heldur í
því að upplifa - ekki að horfa, held-
ur að sjá, HLUSTA MEÐ SJÓN-
INNI.
Enginn tónlistarunnandi mundi
fullyrða, að hann skildi tónlist. Hon-
um fellur hún e.t.v. í geð, og hann
upplifir mikilsverða hluti á meðan
hún er leikin, en slíkt gerist ekki, ef
hann stingur fingram í eyran og
horfir á hljómsveitina.
„Ef málari, sem skortii’ sam-
kennd með náttúrunni, líkir eftir
landslagi, er það líkt því að kasta
grómi í hið tæra loft.“ Þessi rökræni
sannleikur var boðaður af kínverska
málaranum Kuo Hsi um árið 1100.
Það er sem sé ekkert nýtt að glap-
sýn og list séu tveir ólíkir hlutir.
Spánski heimspekingurinn Or-
tega y Gasset skrifaði árið 1925 um
list sem andstæðu vaxmyndasafns
madame Taussaud. „Nútímalist
mun jafnan hafa múginn á móti sér,
því að hún er í eðli sínu óvinsæl.
Slík andúð er mjög svipuð þeim
kenndum, sem hinn upplýsti maður
finnur jafnan með sér, er hann
heimsækir vaxmyndasafn madame
Taussaud, en múgurinn hrífst hins
vegar af þessum hræðilega hégóma
úr vaxi.“
Myndlistin á ekkert skylt við eft-
irlíkingar, til þess er mynd náttúr-
unnar of tilviljana kennd. Oft lesum
við í blöðum um menn, sem hafa
blekkt fólk með svikum, en þegar
lögreglan spyr fólkið af hverju það
hafi látið blekkjast, er svarið iðu-
lega: Hann leit út líkt og heiðar-
leikinn sjálfur með blá augu og fal-
legt bros. Rétt var, að þessi virtist
hin ytri mynd þorparans, en hver
var hin innri? Er sú mynd ekki
Góðir draumar rætast
í upphafi ársins 2000 óskum viö öllum íslendingum farsæls, friðsæls og fengsæls
árs og vonum aö á árinu muni margir góðir draumar rætast. Suma hefur alltaf
dreymt um aö geta spilað svolítið á gítar - við getum aðstoðað við að láta þann
draum rætast bæði fljótt og markvisst. Tækifærið gefst núna!
Á árinu 2000 hefur Gítarskóli Ólafs Gauks starfað (25 ár, eða fjórðung aldarinnar
sem leið, og reynslan er því töluverð. Við innritum í byrjendatíma fullorðinna, byrjendatíma unglinga og
sérstaka, létta byrjendatíma hinna yngstu frá og með 5. janúar, klukkan 14:00 til 17:00 daglega á virkum
dögum. Einnig í nokkra framhaldstíma. Síminn er 588-3730. Við sendum líka upplýsinga-
bækling þeim sem þaö vilja. Sami sími til að þanta hann.
Til þess aðláera að synda verður maður að afklæðast, fara í sundfötin, síðan (snögga sturtu,
demba sér út f laugina og baða út öllum öngum - til að læra svolítið á gítar
þarf ekkert annað en þanta tíma og mæta í þá. Maður getur meira að segja
fengið leigðan heimagítar fyrir 2000 krónur á önn. Einfalt, öruggt, pottþétt.
Hringdu þann fimmta eða virku dagana þar á eftir milli 2 og 5 síðdegis.
Og aftur gleðilegt ár og megi sem flestir góðir draumar rætast.
Gítarskóli Ólafs Gauks
Síðumúla 17, sími 588-3730, fax 588-3731
Nixon segir af sér
19 7 4 0 Richard M. Nixon varð fyrsti forseti Bandaríkjanna til ad
segja af sér, 9. ágúst. í júní 1972 var brotist inn í bækistöðvar
Demókrataflokksins í Watergate-byggingunni í Washington og
snemma árið eftir komu fram ásakanir um að háttsettir embættis-
menn og aðstoðarmenn forsetans tengdust innbrotinu. Þegar í Ijós
kom að það átti við rök að styðjast og allt stefndi í að Nixon yrði
ákærður fyrir embættisbrot sagði hann af sér. Á myndinni veifar hann
tii starfsmanna sinna í Hvíta húsinu áður en hann stígur upp í þyrlu
sem flutti hann á brott þaðan.
einnig hluti af persónuleika manns-
ins? Og ófríð manneskja fríkkar iðu-
lega við nánari kynni, innri yndis-
þokki yfirgnæfir þá ytra gervi.
Sannarlega er ytra gervi hlutanna
ekki persónuleiki þeirra, frekar en
hýðið er aðaleigindi kartöflunnar,
og ekki er unnt að lýsa neinu fyrir-
bæri jarðar án þess að skynja að
nokkru eðli þess. Því meir sem ein-
staklingurinn leitar út frá eigin
sjálfi, því meir nálgast hann sitt
innra sjálf, en ekki því lengur sem
hann snýst í kringum nafla sinn.
Markús Arelíus sagði eitt sinn
um fegurð heimsins: „I augum þess
manns, sem sanna innsýn hefur í
hið rétta eðli alheimsins, er sérhver
tilbreyting sem verður á hverju því
sem í honum er og honum heyrir til,
heppileg og unaðsleg. Brauðhleifur-
inn, sem afbakast hefir, svo að hann
springur og gliðnar sundur, hefur
ekki lagið, sem bakarinn æskti eftir,
en eigi að síður er hann í sjálfu sér
fagur og gimilegur til átu. Fíkjur,
sem rifna fullþroska, ólífur, sem
komnar eru að rotnun, era eigi að
síður sérkennilega fagrar, þótt
sundrazt hafi. Hreykt kornskrýfi
með lafandi punti, fax ljónsins,
hvoftur villigaltarins löðrandi í
froðu, og fjöldi annarra fyrirbæra af
sama tagi auka á fegurð alheimsins
og blása mönnum í brjóst ánægju-
kennd sem óimissandi hluta al-
heimsins, skapaða af hinni guðlegu
vera, þó að í sjálfu sér megi þeir
naumast teljast fagrir. Segja má
því, að kunni maðurinn að meta til-
Herrahárkollur
og toppar.
Mikiö úrval
Háru.
Sérverslun
Áifhelmum 74 •* Glœsibœ « símí 553 2347
Leiöandi, vönduð og
persónuleg þjónusta í 25 ár
Ávallt það nýjasta í gervihári
og öllu því tilheyrandi
Dömuhárkollur
fyrir konur á öllum
aldri, 44 litir,
glœsilegt úrval.