Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 79
1913 2000
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 7^
Léttmeti
frá Ráðgarði
✓ Ráðgjafí er sá sem kemur
til að Ieysa vandamál og er
nógu lengi á staðnum til að
verða hluti af vandamálinu.
✓ Ráðgjafi er maður sem fær
lánað úrið þitt til að segja
þcr hvað tímanum líður og
heldur síðan úrinu.
✓ Sá sem veit, kann og getur,
framkvæmir, sá sem veit og
kann kennir, sá sem bara
veit fer í ráðgjöf.
✓ Ráðgjafi er venjulegur
maður, staddur 50 kin að
heiman án skjalatösku.
✓ Þú veist að það er kominn
tími til að losa þig við
ráðgjafann, þegar þú ferð
að trúa því að það séu eng-
in vandamál í lífi þinu
hcldur einungis „málefni“
og „tækifæri til framfara“.
\/ Þú veist að það er kominn
tími til að losa þig við
ráðgjafann þegar þú ferð
að vorkenna yfirmanni
„Dilberts".
*/ Þú veist að það er kominn
tími til að losa þig við
ráðgjafann þegar þú ert far-
inn að veita hundinum þín-
um uppbyggilega endurgjöf.
Starfslólk Ráðgarðs í höluðstöðvum tyrirtækisins í Furugerði MYnd Erlin9
Auglýsing
Bókvitið verðvir í askana látið
næstu árum og þar erum við með heil-
stæða þjónustu fyrir íslensk fyrirtæki."
Kristján bendir einnig á að einhver upp-
stokkun sé i vændum í stoðkerfum at-
vinnulífsins enda séu þar ýmis verkefhi
sem einkageirinn geti hæglega tekið að
sér.
Bæði Magnús og Kristján eru sam-
mála um að mikilvægi þekkingar muni
aukast enn meira frá því sem nú er. Orð
Karl Marx um að starfsfólkið sé háð
þeim sem eigi verksmiðjumar eru nú að
rætast með öfugum formerkjum þó. Nú
verða það fyrirtækin sem verða háð
starfsfólkinu. „Ég er sannfærður að inn-
an ekki langs tíma verður hægt að mæla
sköpunargáfu í fyrirtækjum þannig að
hægt verði að meta hana til verðs í fyrir-
tækjum," segir Magnús.
Ráðgarður og Gallup hafa nú nýlega
tekið upp samstarf í rekstri og munu
fyrirtækin flytja í sameiginlegt húsnæði
næsta sumar. Fyrirtækin munu þó ekki
verða sameinuð heldur munu þau sér-
hæfa sig enn meira en þau hafa nú þegar
gert. Ráðgarður og Gallup hafa átt i
samkeppni á sumum sviðum þjónust-
unnar en hafa nú ákveðið að snúa bök-
um saman á vaxandi markaði. Bæði fyr-
irtækin hafa verið í örum vexti undan-
farin ár og búið við góða afkomu. Með
þessu samstarfi er stefnt að því að hægt
verði að bjóða viðskiptavinunum upp á
heildarlausnir í rannsóknum og ráðgjöf.
Ráðgarður horfir fram á næstu öld
Þórdís Bjamadóttir hefúr verið
skrifstofústjóri Ráðgarðs frá
upphafi. Hún segir breytingar á
rekstrarumhverfí íslenskra fyrirtækja
hafa verið ótrúlega miklar á ekki lengri
tíma. „Það er skrýtið til þess að hugsa
Þórdís Bjarnadóttir
að það em ekki nema 12 ár síðan fyrsta
faxtækið var tekið í notkun í fýrirtækinu
árið 1987. Þá hópuðust allir starfsmenn-
imir i kringum þessa undramaskínu og
fylgdust með í lotningu þegar fýrsta fax-
ið var sent ffá okkur. Nú finnst flestum
faxið gamaldags og tölvupósturinn
smám saman að taka við hlutverki
faxtækisins," segir hún hlæjandi.
Þegar Ráðgarður var stofnaður árið
1985 var tölvuvæðing fyrirtækja rétt að
byrja. „Það er dálítið skondið að hugsa
til þess að í byijun var keypt ein
ferðatölva fýrir hópinn og var hún jafn
þung og ferðataska full af gijóti. Fljót-
lega var þó keypt tölva
fyrir alla starfsmenn en
það þótti alls ekki sjálf-
sagt að allir starfsmenn
væm með þessi rándým
tæki á borðunum sínum
Þórdís segir að þegar samdráttur varð
í íslensku efnahagslífi upp úr 1990 þá
hafi kostnaðarvitund aukist hjá mörgum
íslenskum fyrirtækjum. Þá tóku menn
upp skilvirkara eftirlit með útgjöldum
og ákveðið vinnuferli var skilgreint
varðandi greiðslu reikninga. Stærri fýr-
irtæki og ríkisstofnanir vom flest með
ákveðið kerfi en það var oft tilviljana-
kennt hvemig var staðið að þessu hjá
minni fyrirtækjum. „Þá gat maður
stundum farið með reikninginn og heij-
að út greiðslu samdægurs en það þýðir
nú ekki í dag. Þessi breyting gleður mig
sem gamla bókhaldsmanneskju en
hryggir mig sem innheimtustjóra,“ sagði
Þórdís sposk á svip.
Þrátt fýrir að miklar breytingar hafi
orðið á rekstri íslenskra fýrirtækja und-
anfarin 15 ár segist Þórdís alveg eins
búast við að næstu 15 ár verði einnig
mjög spennandi. Hún segist búast við
að fjarvinnsla muni aukast og starfs-
menn vinni störfin meira heima hjá sér.
Það þýði að höfuðstöðvar fýrirtækja
muni breytast og þetta hefðbundna
skrifstofuumhverfi, þ.e. skrifborð, stóll,
tölva og sími, muni breytast í minni
starfsstöðvar þannig að hver og einn
komi með sína nettölvu og setjist þar
sem laust er pláss. „Það er cinnig trú
mín að sveigjanlciki í vinnutíma muni
aukast þannig að viðverutimi á vinnu-
stað muni minnka. Þá reyni hins vegar á
stjómendur að ná upp góðum
starfsanda, því mannleg samskipti eru jú
forsenda þess að hægt sé að ná upp góð-
um kcppnisanda á vinnustað," segir Þór-
dís Bjamadóttir hjá Ráðgarði.
Akureyrd rskrifslofun n i
vex fiskur um hrygg
50 spyrlar starfandi á Akureyri
prentiðnaði. Einnig hefur Ráðgarður
unnið mikið með opinberum aðilum,
meðal annars ráðuneytum, stoðfyrir-
tækjum atvinnulífsins og sjúkrahúsum.
Kristján Kristjánsson framkvæmda-
stjóri segir að netið sé að breyta rekstr-
arumhverfi um allan heim. „fslensk fyr-
irtæki verða að fylgjast með þessari
þróun ef þau ætla ekki að verða undir í
samkeppninni."
Ráðgarður hefur leitast við að koma
með ýmsar nýjungar varðandi þjónustu
við viðskiptavini. Þar má nefna gæða-
kerfín á sínum tíma og núna Evrópu-
ráðgjöf. Ráðgarður var fýrsta fýrirtækið
á íslenska markaðinum sem bauð upp á
sérhæfða ráðgjöf í slíkum málum. Evr-
ópsk samvinnuverkefni eru sífellt að
verða umfangsmeiri hjá íslenskum aðil-
um og má þar til dæmis benda á að frá
því að samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið tók gildi árið 1994 hafa um
200 íslenskir aðilar fengið um 1 /i millj-
arð í styrki ffá Evrópu. Kristján segist
vera þess fúllviss að alþjóðleg tengsl ís-
lenskra fýrirtækja eigi enn effir að aukast
þannig að ráðgjafafýrirtækin verði að
geta boðið upp á þjónustu á þessu sviði.
Kristján segir að þjónusta ráðgjafa-
fyrirtækja eins og Ráðgarðs eigi enn eft-
ir að aukast á markaðinum. „Umhverfis-
mál er liður sem á eftir að vega þyngra i
rekstri margra islenskra fyrirtækja á
Rafrœnn kúluprentari
þótti tœknibylting
Ráðgarður festi kaup
á rafrænum prentara
árið 1985 og þótti hann
stórkostleg tæknifram-
för. Hann var að
sjálfsögðu ekki net-
tengdur og þurfti hver og einn að koma
með diskettu í prentarann til að fá út-
prentun. „Það var óttalegur hávaði í
honum og hafði einhver á orði að þetta
væri eins og rafræn kúluritvél. Ég man
nú ekki hvað hann kostaði en man þó að
hann var rándýr," sagði Þórdís með al-
vöru gjaldkerasvip.
Faxtækið vakti
lotningu starfsmanna
Viðskiptavinir Ráðgarðs koma úr
flestum sviðum íslensks atvinnulífs. Þar
má nefna fýrirtæki i samgöngum og
ferðaþjónustu, framleiðsluiðnaði, orku-
geiranum, sjávarútvegi, fjölmiðlun og
Ráðgarður opnaði skrifstofú á Ak-
ureyri í fýrra og veitir Jón Birg-
ir Guðmundsson henni forstöðu.
Helstu verkefni Ráðgarðs á Akureyri
eru markaðsráðgjöf, námskeiðahald og
ráðningarþjónusta.
Jón er menntaður rekstrarfræðingur
frá Þýskalandi en starfaði áður á skrif-
stofu Ráðgarðs í Reykjavík. Hann á hins
vegar ættir að rekja til Ólafsfjarðar og
lauk m.a. stúdentsprófi ffá VMA árið
1990. Þegar honum var boðið að taka
við rekstrinum á Akureyri þurfti hann
ekki að hugsa sig tvisvar um heldur
flutti með alla fjölskylduna, enda konan
að norðan.
Starfseminni hefur vaxið fiskur um
hrygg og nú eru 3 fastir starfsmenn á
skrifstofunni auk 50 lausráðinna spyrla.
Jón Birgir segir að það sé mikilvægt að
geta boðið upp á svona starfsemi á
landsbyggðinni. „Það er engin launung
að sumir viðskiptavinir okkar skipta við
okkur 'því við erum staðsettir í fjórð-
ungnum. Við höfum hins vegar ekki
Ráðgarður er eitt af elstu og
stærstu ráðgjafafýrirtækjum
landsins. Nú starfa hjá Ráðgarði
hátt í 30 manns við fjölbreytt ráð-
gjafastörf allt ffá starfsmannaráðgjöf til
gæðastjómunar og vottaðra gæðakerfa.
Kristján Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri fýrirtækisins, segir það vera
ákveðin forréttindi að hafa fengið að
fýlgja hinni miklu breytingu á starfsum-
hverfi islenskra fýrirtækja undanfarin 20
ár.
Þrátt fýrir að Ráðgarður sé ekki nema
rúmlega 15 ára gamalt fýrirtæki hafa
orðið gifurlegar breytingar á rekstrar-
umhverfi íslenskra fýrirtækja. Að sögn
Magnúsar Haraldssonar rekstrarráðgjafa
hafa breytingamar einkum orðið á sviði
tækninýjunga og kortlagningu vinnu-
ferla. „Fyrstu árin unnum við mikið í að
tímamæla vinnu og útbúa í ffamhaldi af
því afkastahvetjandi launakerfi. Nú er
þetta smám saman að þróast í endur-
hönnun vinnuferla og í það að gera
starfsfólki kleyft að þróa sjálft sína
vinnu.“
Magnús segir spennandi tíma
framundan í íslensku atvinnulífi. „Við
Þau Kristján Kristjánsson, Magnús Haraldsson, Gunnar H. Guðmundsson
og Þórdís Bjarnadóttir hafa verið starfandi hjá Ráðgarði frá upphafi.
emm alltaf að fá meira og meira af vel
menntuðu fólki til starfa og það er af
hinu góða. Starfsmenn em að verða sér-
hæfðari og samkeppnin um gott starfs-
fólk mun aukast. Það mun einnig þýða
að fyrirtækin verða að bjóða upp á vel
samkeppnishæft vinnuumhverfi, bæði
hvað varðar aðstöðu og kjör starfsfólks.
Það liggur því ljóst fýrir að þekking
starfsfólks verður undirstaða framfara."
Búast má við að verkefúaráðningar
starfsfólks muni aukast þannig að tryggð
við einstök fýrirtæki muni minnka. „Við
sjáum þetta t.d. í hugbúnaðargeiranum
þar sem menn taka að sér einstök verk-
efni í ákveðinn tíma en fara síðan þegar
einu verkefninu lýkur. Bilið milli venju-
legra starfsmanna og ráðgjafa mun því
minnka og það þýðir meiri kröfúr á
hendur okkur ráðgjöfum að bjóða upp á
þá bestu þekkingu sem fýrirfinnst á
markaðinum," segir Magnús.
getað beitt okkur sem
skyldi utan Akureyrar
sökum anna en það
stendur nú vonandi til
bóta,“ segir Jón Birgir.
Hann bætir því við, að
fyrirtækið hafi fengið
góð viðbrögð við ráðn-
ingarþjónustunni og
hafa margir haft á orði,
hve mikilvægt það sé
fyrir atvinnulífið hér
fyrir norðan, að hafa
einhvem sem er með
púlsinn á markaðinum
varðandi launamál og
annað sem tengist
starfsmannamálum.
Þegar Ráðgarður og
Gallup hófu samstarf í
haust var ákveðið að koma upp út-
hringimiðstöð fýrir kannanir í tengslum
við Akureyrarskrifstofuna. Hún var síð-
an tekin i notkun 12. nóvember síðast-
liðin og hefúr gengið mjög vel. Verk-
efnastaðan er á góðu róli og er stefnan
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, klippir
á borðana á nýrri úthringimiðstöð sem Ráðgarður og
Gallup opnuðu fyrir norðan um miðjan nóvember.
Jón Birgir Guðmundsson, forsvarsmaður skrifstofunnar
á Akureyri, fylgist spenntur með.
að ráða enn fleiri spyrla eftir áramótin
til að sinna öllum þeim verkefnum sem
liggja fyrir. Þar að auki er í bígerð að
auka töluvert námskeiðahald í þjón-
ustu- og gæðastjómun í samstarfi við
Gallup.
. ■*&***!»*