Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 38
38 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 JltagtiiiINbifeife 2000 ert væri. En það er ekki sama og halda dauðahaldi í misskilda ein- angrun. Við vitum öll, að einangrun landsins er rofin. Hver mundi vilja kalla yfir okkur landfastan hafís til að spyi-na gegn þessari þróun? Og innan fárra ára er alheimssjónvai-p möguleg staðreynd. Hvar stöndum við þá, ef rétt er sem haldið er fram af sumum, að við séum nú þegar hætt komnir? Heimurinn er að verða ein heild, vísindin brjóta nið- ur landamærin á sama tíma og skammsýnir pólitíkusar reisa múra. Ekki er ég í neinum vafa um að vís- indin gangi með sigur af hólmi í þessari viðureign, mér er nær að halda sem betur fer. Og þá hættum við máski þessu einhæfa og enda- lausa bardúsi okkar, að taka við menningu annarra og vinza úr henni - eða mundi ekki sá tími eiga aftur eftir að renna upp yfir þessa fámennu þjóð að hún flytji út menningu eins og gert var á þeim tíma í sögu landsins sem einn er verður eftirbreytni frá því land byggðist? Um þetta atriði og fleiri má skeggræða fram í rautt myrkur, en eitt er víst: Við lifum nú íslenzk- an renesans, og erum bærilega bólusettir við ýmsum erlendum menningarkvillum. Tungan er sterk og ég fæ ekki séð að hún láti á sér biibug finna. t>ó mætti aðhaldið í þessum efnum vera meira í skólum landsins, áhuginn lífrænni - en það er annað mál. Að lokum langar mig að bæta þessu við: Israelsmenn eru fámenn þjóð eins og við og ekki síð- ur stolt af að gegna því hlutverki í samfélagi þjóð- anna að varðveita og end- urreisa hebrezka menn- ingu og tungu, þ.e. hlutverk þeirra er hið sama og okkar, sem höfum af einhverri ástæðu verið kjörin til að varðveita og blása nýju lífi í þúsund ára gamla gei'manska tungu og menningu. Israelsmenn hafa ekki enn, frekar en við, komið sér upp eigin sjónvarpi. En viti menn, í ísr- ael er fjöldi sjónvarpstækja, ekki vegna þess að stjórnarvöldin hafi hvatt fólk til að kaupa tækin vegna tolla í ríkiskassann eða af öðrum annarlegum ástæðum - heldur er skýringin sú, að ísraelsmenn eru ekki síður haldnir mannlegum breyzkleik en við hér norður frá: þeir horfa semsé á sjónvarp frá ná- grannalöndum sínum, Arabalönd- unum, þ.e. erkióvininum. Af þessu má sjá, að sjónvarpið er mann- skepnunni ekki lítil freisting - og hræddur er ég um að bæði við og ísraelsmenn hefðum syndgað upp á náðina, ef sjónvarp væri bannað í Móselögum. Samt er áreiðanlega óhætt að bæta því við, að engum Israelsmanni dettur í hug að ný- hebreskan verði útlæg ger í landi þeiira og arabíska upp tekin af völdum sjónvarpsins. Og stjórnin er ekki hræddari við áróðursgildi sjón- varpsins en svo, að hún lætur þetta ástand viðgangast. Vafalaust eiga ísraelsmenn sína sextíumenninga og fylgismenn þeirra - og er það vel. Aðhald og ár- vekni beztu manna er hverri þjóð - og þá ekki sízt smáþjóð - lífsnauð- syn, en það merkir ekki sama og að þeir hafi allan sannleikann á sínu bandi. Kjarnorkuofnar til raf- magnsframleiðslu, sem nú eru á reynslustigi, hafa reynzt hinir mestu kjör- og kostagripir og orka þeirra á eftir að koma eins og ylhlý sól inn á mörg heimili, en þeir eru ekki með öllu hættulausir. En ef farið er út í langsóttan samanburð, má geta þess að löngu áður en hætta er á ferðum, berast umsjón- armönnum þessara kjarnorku- stöðva varnaðarmerki; þannig mætti einnig líta á hlutverk þeirra menningarfrömuða, sem standa á varðbergi í litlum þjóðfélögum eins og okkar. Þeir eru hættumerkið, en okkur berst það til eyrna löngu áður en veruleg hætta er á ferðum. Þannig lít ég á hlutverk sextíu- menninganna og annarra varð- bergsmanna í þjóðfélagi okkar. Þegar við hættum að hlusta - þá, og þá fyrst, er okkur hætta búin. Þess vegna ber okkur skylda til að skella ekki skollaeyrum við orðum þeirra manna, sem bezt vilja þjóð sinni, þó við séum í bili á annarri skoðun. Af orðum mínum hér að framan má marka, að ég er síður en svo sammála sextíumenningunum í öll- um greinum. En um eitt höfuð- atriði er ég þeim sammála, þ.e. að íslenzk menning geti ekki átt til- veru sína undir slysum eða óhöpp- um, eins og því þegar sjónvarpinu var dengt á innlendan markað, augsýnilega að mjög vanhugsuðu máli, og einnig: að það hlýtur að vera sjálfstæðri þjóð prinsipmál, að hún sjálf, að yfirveguðu máli - og engar tilviijanir - ráði því, hvaða sjónvarp eða önnur fjölmiðlunar- tæki séu alls ráðandi í landi henn- ar. Þar skilur milli feigs og ófeigs - milli okkar og Israelsmanna. Þetta sagði ég m.a. við Olof Lagercrantz og endurtek þau orð mín hér, ef það mætti verða til þess að skýra ummæli hans, sem vitnað er í hér að framan. Og loks vil ég taka und- ir þær kvartanir, sem heyrzt hafa, að ekki sé uppbyggilegt til fram- búðar að láta Keflavíkursjónvarpið keppa við innlend menningarfyrir- tæki um okkar þrönga markað. Það þarf ekki mikla sanngirni til að sjá að slíkt ástand getur leitt af sér alvarleg fjárhagsvandamál á menn- ingarmarkaðnum, en hann má ekki við stórum skakkaföllum eins og í pottinn er búið. Þetta atriði ætti þó að vera sæmilega leysanlegt, ef vilji til þess er fyrir hendi. En hinu vil ég mótmæla, að gefnu tilefni, að ég geti smitað Olof Lagercrantz eða aðra af sjúkdómi, sem ég er ekki haldinn, þ.e. vantrú á framtíð íslenzkrar tungu og títtnefndrar menningar. Það er nóg af svartsýn- is- og nöldurskjóðum á íslandi á þessum síðustu og verstu tímum, þó jafnólagvís maður gangi ekki í Samkór bölsýnismanna á unga aldri. Úrval af vönduðum sængurfatnaði fyrir alla fjölskylduna. í 60 ár á sama stað riði* og stendur Ivrir sfnu Skólavörðustíg 21a, sími 551 4050 Fólkið gerði mig frægan Morgunblaöið/Ólafur K. Magnússon Bandaríski trompetsnillingurinn Louis Armstrong kom tii íslands 1965 og hélt tónleika. Hér birtist hluti samtals sem Matthías Johannessen átti við hann. Satchmo var að raka sig, þegar við gengum inn í íbúðina sem hann hefur að Hótel Sögu. Hann stóð á ganginum með kústinn í hendinni. Hann brosti. Tennurnar og hvít sápan runnu saman í andliti hans, sem var eins og hvítur jökull, þangað til maður horfði í augun, þau voru hlý og tilgerðarlaus. Þetta voru ekki frægs manns augu. Og þó. Reynslan kenn- ir blaðamanninum einn hlut: eftir því sem fólk er frægara er það alúðlegra, fasið einlægara; þannig er Satchmo. Þó andlitið á honum væri eins og íslenzkur jökuil, var höndin hiý eins og frumskógarsól. Og brosið falslaust eins og gleði barnsins. „Ertu trúaður, Satchmo?" spurði ég. „Ég er baptisti, geng með gyðingastjörnu í keðju um hálsinn, og hef hlotið blessun páfans, hvað hét hann nú aftur, lítiil karl og feitur, jú ætli það hafi ekki verið Jóhannes 23. Þegar ég borða, bið ég guð alltaf að blessa matinn, og sfvo les ég alltaf bænirn- ar mínar á kvöldin. Þannig var ég alinn upp í New Orleans. Ég breytist aldrei, ég er alltaf sami Louis. Það er margt fólk, sem gerir allt mögulegt, til að komast áfram, það væri jafnvel reiðubúið að háis- brjóta náungann til að ná einhverju marki. Ég hef aldrel átt í neinum slíkum útistöðum. Ég er mjög venjulegur maður, ég borga reikningana mína, lifi fá- breyttu llfi, hvíli mig þegar ég get. Ég á lítið hús - það nægir mér. Mig langar ekkert til að eignast all- an heiminn. Og svo er eitt, sem fólk hugsar of lítið um, heilsuna sína. Sumir eignast peninga og verða ríkir, en missa heilsuna. Til hvers er það? Það eru lltlir hlutir, sem ráða úrslitum í lífinu, við eigum að rækta þá, gæta okkar. Ég er ánægður með það sem ég hef, raka mig rólega, borða hægt, slappa af, og þegar komlð er til mín og sagt: Jæja, nú á konsert- inn að byrja, þá stend ég upp kvíðalaus, tek trompettið mitt... og engum líður betur en Satchmo. Þá er ég fullkomlega rólegur og í essinu mínu.“ „Þegar þú varst drengur, fannst þér þá erfitt að lifa?“ „Nei, ekki mjög. Við sem vorum músikantar, átt- um góða ævi; fólkið sóttist eftir okkur til að hlusta 1965 • „Sumir eignast peninga og verða ríklr, en missa heilsuna. Til hvers er það? Það eru lltlir hlut- ir, sem ráða úrslitum í lífinu, við eigum að rækta þá, gæta okkar.“ á okkur spila, við fengum alltaf nokkrum dollurum meira en hinir. En þeir höfðu lítið, verkamennirnir í þá daga.“ „En hvernig er nú að vera svertingi í Suðurríkjun- um?“ „Ég trúi og veit, að það er allt annað nú en áður. Þá áttum vlð enga framtíð, sem ástæða var að hlakka til. Við fengum að vísu að spila á fínum stöð- um. Fína fólkið klappaði fyrir okkur, við fengum vel borgað. Við vorum hamingjusamir. En við vorum alltaf látnir ganga um bakdyrnar. Samt leið okkur vel, eins og ég sagði. Og miklu betur en öðrum svertingjum. Nú hefur orðið mikil breyting. Ungir svertingjar hafa fulla ástæða til að líta björtum aug- um á framtíðina f Bandaríkjunum. Þetta er allt ann- að en þegar víð vorum ungir."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.