Morgunblaðið - 03.01.2000, Síða 78

Morgunblaðið - 03.01.2000, Síða 78
<8 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 2000 Morgunblaðiö/RAX Hvað er existensíalismi? eftir JOHANN HANNESSON Í96Ö „Sú heimspeki vorra daga, sem er mest umtöluð og minnst skiiin" seg- ir dr. Winsnes, sem lengi hefir kennt heimspekisögu við Oslóarhá- skóla, um þessa hreyfingu. Það sem hér fer á eftir, byggir að verulegu leyti á framsetningu þessa mæta manns, sem góðfúslega hefir veitt undirrituðum leyfi til að hagnýta það, sem hann hefir um þetta mál T'jitað. Hér verður þó aðeins rætt um fáein frumatriði, eins og gefur að skilja í svo stuttu máli. Auk þess er stuðzt við nokkur verk existensí- alistanna sjálfra. Jean Paul Sartre kvartar einnig undan misnotkun á nafni stefnunn- ar. Stafar þetta e.t.v. af því að ex- istensíalistar hafa komið af stað hreyfingu, sem borizt hefir inn á mörg svið andlegs lífs V-Evrópu og inn í hana hafa dregizt margir, sem hafa litla hugsjónalega þjálfun og geta því aðeins óljóst rakið ættemi hugmyndanna, einkum hafa sumir ungir menn brugðizt við af meira kappi en forsjá og getur slíkur áhugi orðið spaugilegur. Nauðsynlegt er að taka þegar fram að stefnan greinist margvís- lega, einnig meðal leiðtoganna. Telja sumir sig til trúleysingja, enda engin ástæða til að efast um að þeir eru það, en þar fyrir eru þeir ekki eins og þeir trúleysingjar, sem vér eigum að venjast. - Aðrir eru menn trúhneigðir og sumir eru trú- aðir kristnir menn. I I Hvað er þá þessum ólíku mönn- um sameiginlegt? Til ráðningar þeirrar gátu verður þá fyrst á vegi vorum sjálft nafn stefnunnar. Orðið existens, af lat. existentia, er yfir- leitt þýtt á vora tungu með orðinu tilvera. En sú þýðing nær ekki leng- ur hinni réttu merkingu orðsins. Essentia, sem er náskylt hugtak, af sögninni esse, að vera til, að vera fyrir hendi, þýðir einnig á sinn hátt tilvist eða tilveru, í sumum sam- böndum kjarni máls, innihald. Segja má að hugmyndir séu til og daglega gerum vér ráð fyrir tilveru hluta, eins og t.d. steina. Nú segja ex- istensialistar að tilvera hugmynda, hluta og manna sé svo ólík að vill- andi hljóti að vera að segja að þessi tilvera sé öll eins. Tilvera steina og manna er svo ólík að óhæft er að nota sama heiti um hvora tveggja að dómi existensialista. Orðið ex- istens á hjá þeim eingöngu við virka og ábyrga tilveru mannlegra per- sónuleika. Steinar eru fyrir hendi, hugmyndir lifa í hugum manna, en aðeins mannlegar verur geta haft existens. I hugsjónafræði existensí- alista kemst maður næst því að skýra existensinn svo sem virka til- veru ábyrgra mannlegra persónu- leika. En með þessu er þó ekki rún- in ráðin, því existensinn er „óskil- greinanlegur". Þótt vér segjum að hann sé hinn upplifaði mannlegi raunveruleiki, „la realité humaine" gagnstæður og aðgreindur frá til- vist hluta, verkfæra, þá er hér ekki um tæmandi skilgreiningu að ræða, heldur aðeins lýsingu á einu af þeim frumatriðum sem existensíalistar flytja í boðskap sínum. En það skiptir meginmáli að maðurinn geri sér grein fyrir því að mannleg til- vera er annars eðlis en önnur til- vera. Þetta kann að virðast sjálfsagt og hugsandi alþýðumenn skilja það. En það kann að gleymast valdhöf- um og leiðtogum, forstjórum og öðrum, sem fást við menn í stórum stil. Fyrstur manna notar Sören Kierkegaard (1813-1855) orðið ex- istens 1 þessari nýju merkingu. Jafnframt hugtakinu subjectivitet (einstaklingseðli, einstaklingsskoð- un) er existens eitt af hinum nýju baráttustefnu-orðum hans gegn Hegel og kenningum hans. Hegel taldi að einstaklingurinn skipti mjög litlu máli, en áleit aftur á móti að stofnanir þjóðfélagsins og þá einkum ríkið, væru mjög þýðingar- mikil fyrirbæri, með því að í þeim birtist „hinn mikli eilífi Andi“. Marx aftur á móti talar um hið mikla eilífa efni, sem skiptir öllu máli í tjáningu þess í þjóðfélaginu. Þannig geta tvær gjörólíkar skoðanir verið sam- mála um að einskisvirða einstak- linginn. Hér koma fram andmæli Kierkegaads gegn Hegel. „Hinn ex- istensielli hugsuður leitast ávallt við að meðhugsa það í allri sinni hugs- un að hann er existerandi“ - það er að segja virkur þátttakandi. Menn hafa jafnan talið að Kierkegaard sé ekki við alþýðu skap. En hvenær sem vér biðjum einhvem að mega tala við hann einslega (Talaðu við mig eitt orð) þá notum vér hans að- ferð. Menn skyldu hér einnig minn- ast Sókratesar. I I I Vér erum nú komnir að öðru meg- in einkenni exístensíalismans. Ex- istensíalistinn er virkur, hann hef- ► 7\ndlegar afurðir eftir ÁRNA THORSTEINSSON 1923 Tileinkað hr. próf. Svbj. Sveinbjörnsson. I kvöld kl. VA eru hljómleikar prófessors Svbj. Sveinbjömssonar og langar mig til að hripa af því tilefni stutta hugleiðingu fyrir lesendur Morgunblaðsins. Land vort er oft, alt of oft, talið eitt hið fátækastaí Norðurálfunni og þó víða væri 'jfc leitað á hnettinum og daglega talið snýst oftast um afurðabasl og fjárskort þegar ekkert selst. Þetta kann vel að vera rjett athugað og mikill fótur fyrir því að minsta kosti, þegar átt er við blessaðan þorskinn og sauðkindina, sem gefa af sjer einatt nokkrar kringlóttar. En það era til aðrar afurðir sem framleiddar era af þessari , fátæku og fámennu þjóð og sem ekki eru * þýðingarminni en hinar áður nefndu, þótt þær gefi lítið af sjer í aðra hönd. Það eru afurðimar á listasviðinu, sem meðal allra menningar þjóða eru taldar þýðingarmeiri, og bera betri ávöxt í menningaráttina en hinar. Afurðimar á listasviðinu meðal vor era margskonar, og furðanlega miklar hjá ekki stærri þjóð. En vilja menn nú almennt líta við þeim hjer? Nei, jeg held nú ekki. Þeir eru því ver og miður teljandi, sem nokkurn verulegan áhuga hafa fyrir því hvað er framleitt á Iistasviði vora, því, sem nær yfir hljóm- og sönglist. Hvað er framleitt á því sviði? Flestum hjer mun verða erfitt um svar, því venjulega hafa menn einhvern ímugust, nokkurskonar hálfgerða fyrirlitningu á því sem innlent er á musik-sviðinu. Menn vilja heldur líta við því útlenda á þessu sviði eins og á hinum sviðunum. Margt er ágætt af erlendri musik, en menn ættu að varast, að láta þá staðreynd blinda sig svo, að ekki vilji þeir líta við hinu innlenda. Þó mönnum finnist ekki hið innlenda í muskinni jafn glæsilegt og snoturt eins og hið erlenda, þá ætti þó að vera sá snefill af þjóðlegri ræktarsemi hjá mönnum að þeir reyndu til að kynna sjer gæði þessara íslensku listaafurða, hvenær sem tækifæri býðst. í kvöld verður eitt af þessum tækifærum: þá heldur Nestor íslenskrar tónlistar, prófessor Sveinbjörn Sveinbjörnsson hljómstefnu með löndum sínum í Nýja Bío, heldur þar undir skírn, ef svo mætti að orði komast, fjölmörgum tónsmíðum sínum og setur það hámark á hinu innlenda músik-sviði, sem aðrir munu keppast um að ná; en það skulu þeir góðu hálsar vita, að þegar þeir eru þangað komnir, í fótspor gamla - nei unga Sveinbjörnssons, þá er hann þotinn langt fram úr þeim svo þeir verða að sækja í sig nýtt kapp og herða sig betur. Eins og kunnugt er, er Sveinbjömsson elstur allra þeirra Islendinga, sem gefið hafa sig við tónlist og afurðir hans á því sviði flestar, mestar og bestar, tónsmíðar hans era hreimfagrar, eðlilegar og lausar við tilgerð og smekkleysur, og óhætt mun vera að segja hinum vandlátu að ekki brýtur hann nein af boðorðum hinnar helgu listar, tónlistai'innar, eins og sumum af okkur hinum sem í þessu hafa „fúskað", er gjarnt. Sveinbjömsson hefir lagt, og er enn að leggja, grundvöllinn undir alla innlenda musik; hve langt er komið með grundvöllinn geta menn sannfært sig um í kvöld og glatt sig yfir árangrinum; - undirstaðan sem Sveinbjömsson hefir lagt mun reynast ábyggileg fyrir þær íslensku kynslóðir sem óbornar eru, og sem síðar leggja fram andlega krafta sína á tónsviðinu til þess að fullgera verkið. En verður það þá nokkurntíma fullgert? Nei - því tónlistin er ódauðleg og brautin óendanleg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.