Morgunblaðið - 03.01.2000, Qupperneq 87
1913 2000
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 87
Með starf
fyrir þig
Fagmennskan í fyrirrúmi
Nýtt starf á nýju
árþúsundi ?
Ef svo er bióðum við þér að skrá þig í gagnabanka
STRA ehf. og höfum samband jafnskjótt og áhugavert
starf berst, sem þú kynnir að hafa áhuga á að kanna
nánar.
Sérstaða okkar er fyllsti trúnaður við umsækjendur,
gögn eru ekki sýnd né upplýsingargefnarnema að höfðu
samráði við viðkomandi. Jafnframt er enginn fyrningar-
tími á umsókn því fólk í störfum getur jú leyft sér þau
hlunnindi að leyfa tímanum að vinna með sér.
STRA ehf. hefur umsjón með öflugum gagnabanka og
þarf Jdví lítiðsem ekkert að auglýsa lausstörf til umsóknar.
STRA auglýsir störf, sem eru afar sérhæfð eða ef kanna
þarf ákveðinn markhóp jafnframt ef vinnuveitendur óska
eftir að þeirra umbeðnu störfverði auglýstsérstaklega.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni,
sem er opin frá kl. 10-16. Ráðgjafar eru með viðtöl alla
morgna frá kl. 10-13. Einnig eru fyrirliggjandi
umsóknareyðublöð á heimasíðu félagsins, www.stra.is.
Áhersla er lögð á að umsækjendur komi til viðtals
þegar gögn eru innlögð og kynni sig og sínar væntingar.
Ráðgjafar hjá STRÁ eru Björk Bjarkadóttir,
Jóna Vigdís Kristinsdóttir og Guðný
Harðardóttir. Fulltrúar hjá STRÁ eru þær
Pálína Hinriksdóttir og Ellen H. Haraldsdóttir.
Sérþjónusta STRÁ
Sérþjónusta STRÁ býður þeim aðilum sem hafa
sérhæfða menntun og reynslu af stjórnun að skrá sig í
gagnabanka Sérþjónustunnar. Ahersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og upplýsingar ekki gefnar nema
að höfðu samráði við viðkomandi.
Meginmarkmið Sérþjónustunnar er að gæta
hagsmuna þeirra aðila, sem skráð sig hafa og vekja
athygli þeirra á áhugaverðum störfum í íslensku
atvinnulífi. Jafnframt að samræma óskir þessarra aðila
og stjórnarmanna þeirra fyrirtækja sem hlut eiga að máli
hverju sinni. Ahugaverðustu sérfræði- og/eða stjórnunar-
störfin eru sjaldnast auglýst og ferli þeirra ráðninga er
unnið fremur "í kyrrþey" og án umtalsverðrar umfjöllunar
útá við.
Enginn fyrningartími er á umsóknum skráðum [
gagnabanka Sérþjónustunnar og er þjónustan við
umsækjendurþeim að kostnaðarlausu.
Sérfræðingum og stjórnendum er vinsamiega
bent á að hafa samband við Guðnýju
Harðardóttur, gudny@stra.is og/eða hafa
samband við fulltrúa STRÁ, stra@stra.is og
panta viðtalstíma.
í \
STRA
STARFSRÁÐNINGAR
RATSJARSTOFNUN
Ratsjárstofnun annast samkvæmt milliríkjasamningi
rekstur og viðhald fjögurra ratsjárstöðva ásamt
stjórn- og hugbúnaðarstöð Loftvarnarkerfis íslands.
Hjá Ratsjárstofnun starfa u.þ.b. 70 starfsmenn um
land allt.
Áhugaverð störf
hjá Ratsjárstofnun
Rekstrarfulltrúi (System
Operations Specialist)
Rekstrarfulltrúi tekur þátt í að tryggja samhæfðan og
áreiðanlegan rekstur hugbúnaðarkerfa Loftvarnarkerfis Islands
(lceland Air Defence System), hann samhæfir störf ýmissa
þjónustusviða kerfisins til að tryggja samfelldan rekstur þess.
Jafnframt annast hann samskipti milli vinnustaða og
utanaðkomandi aðila við lausn kerfislegra vandamála.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu menntaðir á sviði verk-
og/ eða tölvunarfræði. Reynsla í kerfisrekstri er nauðsynleg.
Áhersla er lögð á fagmannleg vinnubrögð, sjálfstæði og
skipulagshæfni auk góðrar íslensku- og enskukunnáttu í töluðu
og rituðu máli. Gengið verður frá ráðningu skv. nánara
samkomulagi.
ÞjónustufuIItrúi kerfismála
(System Configuration
Coordinator)
Þjónustufulltrúi annast eftirlit með breytingum á
hugbúnaðarkerfi Loftvarnarkerfis íslands þ.á.m. er umsjón með
verkferlum, samhæfingu og framkvæmd kerfisbreytinga, eftirlit og
stöðumatframkvæmda og samskipti við verktaka.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu menntaðir á sviði
kerfisfræði og hafi reynslu í kerfis- og netrekstri. Áhersla er lögð á
fagmennsku, skipulagsgáfu og metnað til að gera vel í starfi.
Viðkomandi þurfa að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu.
Gengið verðurfrá ráðningu skv. nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur vegna ofangreindra starfa er til og
með 14. janúar n.k. Gengið verður frá ráðningum
fljótlega. Vinsamlega athugið að nánari upplýsingar
eru eingöngu veittar hjá STRA ehf. Nauðsynlegt er að
sakavottorð og prófskírteini fylgi umsóknum.
Guðný Harðardóttir og Björk Bjarkadóttir veita
nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl. 10-13.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni,
sem er opin frá kl.10-16 alla virka daga. Einnig er
hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu
www.stra.is.
ehf.
áratugs
reyrisla
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Mörkinni 3-108 Reykjavík - sfmi 588 3031 - bréfsími 588 3044