Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 112

Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 112
112 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 2000 Söngur til Jesú Þjóöarsorg t Bandaríkjunum á Pálmasunnudag „Eg á mér draum“ 19 6 3 9 Martin Luther King Jr. er einn merkasti blökkumannaleið- togi aldarinnar. „Ég á mér draum," sagði King í frægri ræðu við Lincoln minnismerkið í Washington 28. ágúst 1963 þegar hann iýstl draumsýn sinni um bandarískt þjóðfélag. Myndin var einmitt tekin við það tækifæri. Þessi bandaríski baptistaprestur, sem hlaut Friðar- verðiaun Nóbels 1964, var myrtur í Memphis 1968. Hann barðist mjög fyrir réttindum blökkumanna, en lagði ætíð áherslu á friðsamlegar aðgerðlr á leiðinni að því markmiði að afnema kynþáttamisrétti. eftir GUÐMUND DANÍELSSON 1938 I útjaðri hins litla fjarðarþorps und- ir fjallshlíðinni, sem enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi, bjó roskin kona í fomfálegum tjörguð- um timburskúr. Hún bjó þar ein síns liðs og hreppurinn annaðist framfæri hennar. Hún hjet Rósa- linda. Rósalinda hafði auknefnið „brjál“; hún var nefnilega ekki með öllum mjalla konan sú. Jeg mætti henni einn dag á götunni í desember byrjun og það var snjór í fjallshlíðinni og á milli húsanna í þorpinu. Fjörðurinn var grænn og ólgandi, það stóð nístandi rok utan af hafinu, og bátamir ragguðu á legunni og ryktu í festamar. Jeg þekti ekki konuna, því að jeg var nýkominn í þetta pláss og jeg leigði mjer h'tið hús undir brekkunni, jeg var á leið þangað frá miðdegisverði mínum sem jeg keypti á öðrum stað. Jeg bauð víst góðan daginn eða eitthvað þessháttar og hjelt hik- laust áfram, mig næddi gegnum þykkann frakkann, og jeg vissi af hlýju, upphituðu herberginu mínu, þegar heim kæmi, þar sem mín kæra hálfleystu störf biðu eftir mjer - Jeg var ekki kominn nema nokkur skref fram hjá konunni, þegar jeg heyrði kallað á eftir mjer: „Benjamín! Benjamín!" Jeg snjeri mjer við og þarna stóð manneskjan á miðri götunni - mjög svo einkennileg manneskja að mér fannst, og starði á mig með svo mik- illi eftirvæntingu og svo átakanlega biðjandi, að jeg fann þegar í stað, að eitthvað mjög óvenjulegt var að mæta mjer. „Fyrirgefðu, vinur minn,“ sagði konan og kom nú bagsandi gegn rokinu til móts við mig. „Fyrirgefðu, vinur minn, að jeg sný mjer til þín og ónáða þig. Jeg vildi aðeins mega taka í hönd þína og fá að horfa eitt augnablik inn í augu þín. Jeg þóttist sjá það, þegar þú gekkst framhjá mjer, að þú vær- ir bróðir minn og loksins stæði jeg þá ekki lengur ein uppi í þessu plássi. Vertu velkominn, bróðir minn í þetta fátæka pláss.“ Hún rjetti mjer langa magra hönd, ís- kalda viðkomu. „Vertu velkominn," sagði hún aft- ur, og handtak hennar var svo fast og innilegt, að mjer hnykkti við. Jeg horfði á hana hissa og spyrjandi, án þess að skilja hið minnsta í fram- komu hennar. Hún var áberandi há vexti, en grönn og lítið eitt bogin í herðum. Andlitið var langt og þunt; bláleitur roði á vöngum og kinnum, en augun vora annað hvort mjög dökkblá eða brún og leiftruðu ein- kennilega. Það var einhver ofsi og hiti falinn í þeim, brjálæðis kent, hrópandi lífshungur, eða hamfara leiftrandi þrá - og hún brosti. Svart- ur, ritjulegur hárlokkur flaksaðist til og frá um andlit hennar ens og reik- ull skuggi. Hún brosti stöðugt, leit- aðist við að sjá sem best inn í augu mín, og alt andlit hennar, blakt og horað, brosti. Það var eins og hún sæi nú alt í einu hina stóra ósegjan- legu ósk lífs síns ganga til uppfyll- ingar, eftir þúsund nátta svefnlausa bið. „Jeg vil ekki tefja þig lengi núna, elsku vinur,“ hjelt hún áfram. „Jeg veit hvar þú býrð, og þú veist hvar ég bý. Nú getum við talast við hvenær sem er fyrst við höfum loks- ins fundð hvort annað. Jeg skal biðja almáttugan guð að stýra hönd þinni og hugsun í þínu háleita starfi, eins og hann styður mig í mínu. Vertu nú sæll á meðan.“ Nú fyrst slepti hún hönd minni, en bros hennar og augu hvíldu enn á mjer óhuggnanlega gegnumþrengj andi og hrollvekjandi. Jeg hefði nú, satt að segja, helst kosið að láta þessari óvenjulegu við- ræðu lokið og sleppa við frekari götuæfintýri af þessu tagi, bæði nú og framvegis, því mér stóð blátt áfram hálfgerður beigur af mann- eskjunni, en forvitnin rjeði þó meira ogjeg sagði: „Það er ánægjulegt að fá að kynnast þjer, en hver ert þú þá?“ Bros hennar hvarf á svipstundu, augun myrkvuðust og sársauka- drættir komu í svipinn. „Afneitar þú mjer þá líka, Símon Pjetur?" stundi hún. „Jeg er systir þín, - systir þín í söng og Ijóðum, - systir þín í guð- legri gáfu listarinnar, - systir þín í sorg heimsins og gleði, - systir þín í Jesú Ki’isti. Þekkir þú mig ekki?“ Jeg vissi ekki hverju jeg skyldi svara. Jeg fann, að ef til vill í fyrsta skifti á æfi minni, var jeg staddur á þeim stað, þar sem orð mín dæmd- ust ekki dauð og ómerk og jeg stóð ábyrgur fyrir hverju þeirra - að skyndilega hafði mjer veist vald orðsins til að græta og gleðja, synja og veita eftir mínum eigin geðþótta. Jeg tók síðari kostinn. „Misskildu mig ekki, góða kona,“ sagði jeg. „Jeg finn það auðvitað, að við eram andlega skyld, en jeg Qamlir siðir eftir ARNA ÓLA 1965 „Þá var það uppsaga Þorgeirs, að allir menn skyldu vera skírðir á íslandi og trúa á einn guð, en um bamaútburð og hrossakjötsát skyldu haldast hin fomu lög. Menn skyldu blóta á laun, ef vildi, en varða fjörbaugsgarð, ef vitnum kæmi við. Sú heiðni var af tekin nokkram vetram síðar.“ Þannig er sagt frá því í Kristnisögu með hvaða skilyrðum Islendingar köstuðu Asatrú og tóku við kristni árið 1000. Og samkvæmt frásögninni giltu þau skilyrði ekki nema nokkur ár, þá vora þau af tekin. Þetta virðist ákaflega einfalt. Hin kristna kirkja hefir hér sem annars staðar orðið að gera nokkrar tilslakanir, svo að menn tæki við trúnni. Þær tilslakanir, sem hér vora gerðar, hafa í rauninni ekki orðið annað en bráðabirgðaákvæði, meðan hinn nýi aldur var að festa rætur hér, eftir þessari frásögn Kristnisögu. En þetta er villandi. Hér er aðeins átt við þau lagaákvæði, sem nefnd hafa verið í alþingissamþykkt um kristnitökuna. En ótal fleira kom til greina, sem hvergi var skráð, því að kristnin hefir orðið að slá af kröfum sínum á mörgum sviðum hins daglega lífs. Það sést bezt á því hvað heiðnar venjur, siðir og hugmyndir urðu lífseigar í landinu. En einna skýrast kemur þetta fram í því, að blótsiðirnir héldust við með dálitlum breytingum, og hafa haldizt við allt fram á þessa öld. Frá blótsiðunum segir svo í Heimskringlu: „Sigurður Hlaðajarl var hinn mesti blótmaður, og svo var Hákon faðir hans; hélt Sigurður jarl uppi blótveizlum öllum af hendi konungs þar í Þrændalögum. Það var fom siður, þá er blót skyldi vera, að allir bændur skyldi þar koma sem hof var, og flytja þangað föng sín, þau er þeir skyldu hafa meðan veizlan stóð. Að veizlu þeirri skyldu allir menn öl eiga; þar var og drepinn allskonar smali og svo hross, en blóð það allt, er þar kom af, þá var það kallað hlaut, og hlautbollar það, er blóð það stóð í, og hlautteinar, það var svo gert sem sökklar, með því skyldi rjóða stallana öllu saman, og svo veggi hofsins utan og innan, og svo stökkva á mennina, en slátur skyldi sjóða til mannfagnaðar; eldar skyldu vera á miðju gólfi í hofinu og þar katlar yfir; skyldi full um eld bera, en sá er gerði veizluna og höfðingi var, þá skyldi hann signa fullið og allan blótmatinn, skyldi fyrst Oðins full - skyldi það drekka til sigurs og ríkis konungi sínum - en síðan Njarðar full og Freys full til árs og friðar. Þá var mörgum mönnum títt að drekka þar næst Braga full, menn drakku og full frænda sinna, þeirra er heygðir höfðu verið, og vora það minni kölluð." Eimir ekki eftir af þessu enn í dag? Menn koma saman í þeim einum tilgangi að eta og drekka, á borðum era beztu kræsingar eins og áður, drykkur er borinn um meðal gesta eins og áður, full era drukkin eins og áður og mælt er fyrir minnum eins og áður. Um blótveizlur hér á landi era ekki miklar sögur. En í heiðnulögum var svo ákveðið, að hver maður skyldi gjalda toll til hofs, og skyldi hafa fé það til mannfagnaðar, þar er blótveizlur vora. Munu þær veizlur hafa verið með svipuðu sniði og í Noregi. Með kristnitökunni leggjast þessar blótveizlur niður. I stað hofanna koma þá kirkjur. Síðan verða brúðkaupsveizlur aðalveizlumar, og eru yfirleitt haldnar á kirkjustöðunum, því að hjón skyldi ætíð vígja í kirkju og svo munu að jafnaði hafa verið bezt húsakynni á kirkjustöðum. Sæmundur Eyjólfsson ritaði grein um brúðkaupssiði í Tímariti Bókmenntafélagsins (XVII árg.) og segir þar meðal annars: „Lengi fram eftir öldum var hjúskapur ekki löglegur, nema fram færi festar og brúðkaup. Að vísu var hjúskapurinn stofnaður og lögbundinn með festunum, en þá var það brúðkaupsdrykkjan með hinum heilögu minnum og öðram ákveðnum siðum, er gerði hjúskapinn gildan og löglegan til fullnustu. Það gat verið löglegur hjúskapur án hjónavígslu, en ekki án brúðkaupsdrykkju, og sýnir það hve fastir og rótgrónir vora heiðnir helgisiðir um langan aldur eftir kristni... í kristnirétti Jóns erkibiskups (1267-82) er boðið að öll brúðhjón sé vígð saman í kirkju. En aldrei mátti láta undan bera að drekka brúðkaup við stofnun hjónabandsins; það var jafn stranglega boðið bæði í landslögum og guðslögum." Má því með nokkrum sanni segja, að brúðkaupsveizlurnar tæki við af blótveizlunum og siðirnir vora upphaflega mjög svipaðir. Skipað var svo fyrir, að sérstök full skyldi drakkin í brúðkaupsveislum, nema hvað nú vora ekki drukkin full Ásanna, heldur full dýrlinga. Héldust brúðkaupssiðirnir nokkurn veginn óbreyttir fram undir 1700, nema hvað enn varð breyting á mismunum við siðaskiftin. Var nú fyrst drakkið velkomandaminni, þá heilagsandaminni, þá minni guðs föður, þá Kristsminni, þá Maríuminni. Og síðan rak hvert minnið annað, alveg eins og í blótveizlunum. Brúðkaupssiðir vora mjög margbrotnir, og þess vegna var hafður siðamaður í hveni veizlu, að gæta þess að allt færi fram eftir settum reglum. Hann skyldi og mæla fyrir öllum minnum og stýra söng. Þótti þetta mjög vandasamt starf þegar um stórveizlur var að ræða, og vora fengnir til þess sérstakir menn, þeir er hæfastir þóttu, og varð oft að sækja þá um langan veg. I kaþólskum sið mun brúðkaup venjulega hafa byrjað á sunnudegi, en hjónavígslan var á mánudegi. Eftir siðaskiptin breyttist þetta þannig, að brúðkaup hófst venjulega á laugardegi, og var ekki út af því brugðið á 17. öld og langt fram á 18. öld. Veizlur stóðu venjulegast þrjá daga, en þegar meiri háttar menn áttu í hlut stóð veizlan viku. Og þegar séra Jón Steingrímsson gifti sig 1753 stóð sú veizla í hálfan mánuð. Margt höfðu menn sér til skemmtunar í þessum veizlum. Þar var söngur, hljóðfærasláttur, kveðnar rímur og sungnar „afmorsvísur“, og var sumt af því álíka gróft og verið hafði í fomöld. Áuk þess voru drukkin víti og var mikið um ölvun. Kristjáni konungi VI, sem var mjög siðavandur, gazt ekki að brúðkaupssiðunum hér. Sérstaklega þótti honum hneykslanlegt að menn væra að drekka víti og kveða rímur og syngja sálma sitt á hvað. Lét hann því gefa út lög um hjónabandssakir, og er þar fyrirboðið, að syngja sálma yfir borðum þar sem menn drekka og að drekka vítabikar. Upp frá því fór að dofna yfir hinum gömlu brúðkaupssiðum, enda kom þá fleira til greina, sérstaklega hin miklu harðindi seinni hluta aldai-innar. Það mun hafa haldizt lengst við af hinum gömlu brúðkaupssiðum, að brúðgumi gæfí brúði sinni línfé, eða brúðfé, og svo brúðargangurinn í kirkju.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.