Morgunblaðið - 11.02.2000, Side 1
35. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dregur úr spennu milli ísraela og Líbana
Hizbollah frestar
eldflaugaárásum
Washington, Beirút, Bagdad, Jerúsalem. AP, AFP.
Alaska Airlines
MD-80 vélar
kyrrsettar
Seattle. AFP.
TALSMENN flugfélagsins Alaska
Airlines skýrðu frá því í gær að tvær
af 34 þotum félagsins af gerðinni
MD-80 hefðu verið kyrrsettar vegna
þess að eitthvað væri „athugavert"
við hæðarstýriskamba vélanna.
Hefði þetta komið í ljós við vandlega
skoðun eftirlitsmanna fyrirtækisins
á öllum vélunum og væru fulltrúar
frá Samgönguöryggisráði Banda-
ríkjanna, NTSB, á leið til Seattle til
að kanna málið frekar.
Vél félagsins af umræddri gerð
hrapaði nýlega í sjóinn um 50 kíló-
metra frá Los Angeles og með henni
88 manns. Á miðvikudag fannst hæð-
arstýriskambur hennar á hafsbotni
og reyndist skemmdur. Kamburinn
er hreyfanlegt vængildi í stélinu og
notaður til að halda vélinni stöðugri
þegar flug er hækkað eða lækkað.
ISRAELAR héldu uppi árásum á
búðir hizbollah-skæruliða í Suður-
Líbanon í gær. Dregið hefur þó úr
spennu milli ísraels og Líbanon í
kjölfar tilkynningar skæruliða um
að þeir muni ekki skjóta fleiri Kat-
yusha-eldflaugum á Norður-ísrael í
bili.
AJþjóðlegur eftirlitshópur með
samskiptum Israels og Líbanon mun
síðan funda í dag í von um að draga
enn frekar úr spennunni, en hópur-
inn hafði yfirumsjón með óformlegu
samkomulagi ríkjanna um að draga
úr árásum á óbreytta borgara 1996.
Hópurinn fundar að beiðni
Frakka, Bandaríkjamanna og Sýr-
lendinga. Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði
tilganginn vera að reyna að draga úr
spennu milli ríkjanna, en Bandaríkin
hafa lengi leikið stórt hlutverk í
landamærasamskiptum Israels og
Líbanons.
Ollum árásum verður svarað
Naim Kassem, aðstoðarleiðtogi
hizbollah, sagði að alltaf væri mögu-
leiki á að gripið yrði til vopna á nýj-
an leik til að koma ísraelum burt af
hernumdum svæðum í Líbanon.
„Óvinurinn hefur greitt hátt gjald og
verið afhjúpaður fyrir heimsbyggð-
inni,“ sagði Kassem og átti þar við
að margar þjóðir hafa fordæmt ár-
ásir Israela á Líbanon undanfarna
daga.
Yfirlýsingar hizbollah komu í
kjölfar hótunar David Levy, utan-
ríkisráðherra ísraels, um að árásum
á Líbanon yrði haldið áfram ef skær-
uliðar héldu uppi eldflaugaárásum á
ísrael. ísraelar vörðu þá ákvörðun
sína í gær og sagði Ephraim Sneh
aðstoðarvamarmálai'áðherra að
reglunum hefði nú verið breytt og
framvegis yrði öllum árásum hizboll-
ah á ísraelsk skotmörk svarað af
hörku, hvort sem um væri að ræða
árásir á óbreytta borgara eða her-
menn.
Stoltenberg
til forystu
Ósló. Morgunblaðið.
TORBJ0RN Jagland, leiðtogi
Verkamannaflokksins í Noregi,
verður ekki frambjóðandi flokksins
til embættis forsætisráðherra í
næstu kosningum
árið 2001, heldur
Jens Stoltenberg,
er jafnframt
verður leiðtogi
flokksins á þingi.
Jagland verður
áfram fiokksleið-
togi, a.m.k. fram
að næsta flokks-
þingi í nóvember.
Skoðanakannan-
ir hafa að undanförnu gefið til kynna
að 54% sveitarstjórnarmanna
flokksins vildu að Stoltenberg yrði
forsætisráðherra fremur en Jagland.
Flokkurinn hefur verið með um 30%
fylgi í könnunum en samkvæmt þeim
yrði það um 40% tæki Stoltenberg,
sem er um fertugt, við forystunni.
Jens
Stoltenberg
I
Tjón vegiia óbeinna
reykinga ofmetið?
París. AFP.
HÆTTAN á að óbeinar reyking-
ar valdi lungnakrabbameini hef-
ur verið talsvert ofmetin, ef
marka má niðurstöðu tölfræði-
legrar könnunar sem birt verður
í tímaritinu Brítish Medical
Journal á laugardag.
Tölfræðingar Warwick-há-
skóla í Bretlandi gerðu ítarlega
úttekt á 37 útgefnum rannsókn-
um og að meðaltali var niður-
staða þeirra sú að óbeinar reyk-
ingar ykju hættuna á lungna-
krabbameini um 24%.
Tölfræðingarnir segja hins
vegar að það sem þeir kalla „út-
gáfuhlutdrægni" hafi skekkt
myndina töluvert. Rannsóknir
sem voru viðamiklar eða bentu
til mikillar hættu af völdum
óbeinna reykinga hefðu frekar
fengist gefnar út en þær sem
voru smærri eða gáfu tilefni til
að ætla að hættan væri tiltölu-
lega lítil.
Eftir að hafa skoðað rann-
sóknirnar 37 ofan í kjölinn og
tekið tillit til „útgáfuhlutdrægn-
innar“ var niðurstaða tölfræð-
inganna sú að óbeinar reykingar
ykju líklega hættuna á lungna-
krabbameini um 15%, en ekki
24%.
Tölfræðingarnir segja að þótt
þetta breyti ekki því að fullgild
ástæða sé til að vara við hætt-
unni sem stafar af reykingum
þurfi að túlka niðurstöður útgef-
inna rannsókna á óbeinum reyk-
ingum með varúð.
Gíslamálið á Stansted-flugvelli leystist án blóðsúthellmga
Yfír sjötíu manns biðja
um landvist í Bretlandi
London, Kabúl. The Daily Telegraph, AFP, AP.
FULLTRÚAR stjómar talebana í Afganistan
þökkuðu í gær breskum ráðamönnum fyrir að leysa
mál flugræningjanna á Stansted-flugvelli farsæl-
lega en fóru jaínframt fram á að Boeing 727-þotu
afganska flugfélagsins Ariana yrði skilað aftur til
heimalandsins ásamt farþegum og áhöfn. Hins veg-
ar væri rétt að afbrot flugræningjanna fengi með-
ferð „í samræmi við alþjóðalög eða eins og breska
stjómin ákveður", að sögn utanríkisráðherra taleb-
ana, Wakil Ahmad Mutawakel, í gær.
Málið leystist á fimmtudagsmorgun er flugræn-
ingjamir gáfust upp og slepptu öllum gíslunum og
kom ekki til neinna átaka. Af alls 165 manns sem
vom um borð í vélinni, sem var rænt í innanlands-
flugi í Afganistan á sunnudag, höfðu í gærkvöld 74
beðið um pólitískt hæli í Bretlandi og um 20, þ. á m.
flugræningjamir, verið handteknir. Vaxandi gmn-
semdir era um að sumir farþeganna hafi verið í vi-
torði með ræningjunum og hafi verið um að ræða
samsæri til að komast frá Afganistan.
Afgönsk börn úr röðum gislanna yfirgefa
Stansted-flugvöil í rútu í gærmorgun.
Jack Straw innanríkisráðherra sagði að málið
hefði verið leyst án þess að veita nokkur loforð um
pólitískt hæh í Bretlandi eða aðra fyrirgreiðslu.
Breska stjómin hefði verið staðráðin í að gera allt
sem hún gæti tU að letja aðra sem veltu fyrir sér að
ræna flugvélum. „Uppgjöf ræningjanna var skil-
yrðislaus,“ sagði hann.
Ráðherrann benti á að vélin hefði verið í innan-
landsflugi og því virtist ósennilegt að nokkur um
borð hefði stefnt að því að fá hæU í Bretlandi nema
viðkomandi hefði verið í vitorði með ræningjunum.
Sagðist Straw ætla að fara sjálfur yfir umsóknir
þeirra sem vUdu landvist. Bretar óttast að gerðar
verði fleiri tilraunir tU að ræna farþegavélum og
komast til Bretlands ef fólkið fái að vera.
The Daily Telegraph hefur eftir embættismönn-
um í Afganistan að 35 farþeganna hafi verið í sömu
brúðkaupsveislunni, þ. á m. konur og böm. Hafi
konumar, sem eins og aðrar afganskar konur verða
að skipun talebana að hylja sig efnismiklum kufl-
um, falið á sér byssur og handsprengjur. Allmargar
konur, starfsmenn á flugvöllum í Afganistan, hafi
verið handteknar og yfirheyrðar vegna gmns um
að þær hafi ekki leitað á konum í hópi farþeganna.
Blásýru-
mengun í Tisza
Talsmaður fyrirtækis sem vinnur
gull úr námunni Aurul við Baia
Mare í norðausturhluta Rúmeníu
sagði í gær að ekki væri víst að
blásýrumengun frá vinnslunni
ætti sök á mengun í ánum Szamos
og Tisza í Ungverjalandi, um 75
km frá vinnslustaðnum.
Szamos, sem í Rúmeníu heitir
Somes, rennur í Tisza sem er ein
af þverám Dönár. Um 100 þúsund
rúmmetrar af menguðu vatni láku
í Szamos frá gullvinnslunni; ung-
versk stjórnvöld segja að 95% af
fiski á svæðinu hafi drepist og
neysluvatn 2,5 milljóna manna
hafi spillst. Sérfræðingar segja að
beitt sé aðferðum við gull-
vinnsluna sem ekki yrðu sam-
þykktar í Evrópusambandinu.
Talið er að aldrei fyrr hafi jafn
mikið af fiski drepist vegna meng-
unar í Mið-Evrópu.
MORGUNBLAÐIÐ 11. FEBRÚAR 2000