Morgunblaðið - 11.02.2000, Síða 77
morgunblaðið
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 77
Sjónvarpsþáfturinn *Sjáðu hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld
Erum orðnir
síamstvíburar
AU Andrea Róbertsdóttir
og Teitur Þorkelsson eru á
þönum úti um allan bæ
þessa dagana. Vinnutíminn er út-
bólginn og dagskráin orðin æði
þétt. Stefnumót hér og fundur þar.
Brjálað að gera.
Astæða þessa umstangs er nýr
og ferskur menningar- og dægur-
málaþáttur, *Sjáðu, sem hefur
göngu sína á Stöð 2 í kvöld.
Þegar blaðamaður mælti sér
mót við sjónvarpstvíeykið önnum
kafna fyrr í vikunni var auðséð að
föstudagurinn örlagaríki nálgaðist
óðfluga.
Grömsum í draslskúffunni
Eftir kurteisar kveðjur sagði
Andrea að tími væri kominn á
kaffi og tóku Teitur og blaðamaður
undir það. Kaffidrykkurinn hefur
kannski farið halloka í heilsubylt-
ingunni en því fær enginn breytt
að fátt skerpir betur einbeitinguna
þegar svo liggur við.
„Þetta er þáttur sem sýnir fólki
fjölmargt sem það hefur ekki séð
MYNDBÖND
Gamaldags
ævintýri
Múmían
(The Mummy)
Æ vintýramynd
★★★
Leikstjóri: Stephen Sommers.
Handrit: Stephen Sommers. Aðal-
hlutverk: Brendan Frasier, Rachel
Weiz, John Hannah. (124 min.).
Bandaríkin. Cic-myndbönd. Bönn-
uð börnum innan 12 ára.
MÚMLAN með Boris Karloff var
fyrst gerð árið 1932 þegar Univers-
al-kvikmyndaverið sendi frá sér
hverja klassísku
hrollvekjuna á fæt-
ur annari. Drakúla,
Frankenstein og
varúlfurinn voru öll
kvikmynduð á
þessum gullaldar-
árum hrolivekjunn-
ar og hafa þau ver-
ið sett í nýjan
búning á undan-
fömum árum. Eng-
an ætti því að undra að múmían
fylgdi á eftir. í gömlu myndinni
börðust rykugir fræðimenn við
óhugnaðinn sem var að reyna að ná
saman aftur við ástmey sína, en í út-
gáfu Stephen Sommers, sem blandar
saman Indiana Jones og Gunga Din,
eru það byssuglaðir harðhausar með
Brendan Frasier fremstan í flokki.
Sommers hefur gaman af því að
blanda saman nokkrum kvikmynda-
hefðum eins og hin oft misskilda
„Deep Rising" sýnir vel fram á.
Brellumar em stundum kauðalega
gerðar og leikurinn ekki upp á
marga físka, Amold Vosloo er eng-
inn Boris Karloff. Kevin J. O’Connor
stelur auðveldlega senunni sem
tækifærissinni af verstu gerð. Fras-
ier er hin ágætasta hetja þótt ekki
reyni mikið á leikhæfileika hans, en
þeir sem viija sjá hvers hann er
megnugur ættu að kíkja á „Gods and
Monsters". Ætlun Sommers er ekki
að gera viðfangsefni sitt að einhveiju
meira en það er heldur reynir hann
að gera góða afþreyingu sem rennur
' gegnum annað eyrað og út um hitt.
Þetta tekst prýðilega hjá honum og
þeir sem horfa á myndina með ekki
°f miklum væntingum ættu ekki að
verða sviknir.
Ottó Geir Borg
Það er mikið um nýjungar á siónvarps-
skjánum þessa dagana. I kvöld birtist á
Stöð 2 nýr íslenskur þáttur sem hlotið hefur
nafnið *Sjáðu. Skarphéðinn Guðmundsson
náði naumlega taki á stjórnendum hans.
áður. Baksviðs í leikhúsum, hljóm-
sveitir í hljóðverum og listmálara
á vinnustofunni.
Við ætlum að reyna að velta upp
fleiri hliðum á skemmtana- og
menningarlífinu en hingað til hef-
ur verið gert. Reyna jafnframt að
fylgjast með því markverðasta
sem er að gerast; hvort sem er að
degi, kvöld- eða næturlagi," byrjar
Teitur af ákafa. Andrea er hálfnuð
með kaffibollann og hann svínvirk-
ar: „Við ætlum að sýna áhorfend-
um inn í ísskápinn og leyfa þeim
að gramsa í draslskúffunni hjá
þeim sem eru á vörum manna
hverju sinni.“ Teitur heldur áfram:
„Með öðrum orðum þá verður um-
fjöllun okkar með öðru og pers-
ónulegra sniði, ekki bara sýnis-
hom úr leiksýningum, bíómyndum
og frá málverkasýningum heldur
reynum við líka að draga upp
mynd af þeim sem að baki standa.
Kynnast leikurunum og söngvur-
unum, fá listmálarann til þess að
taka á móti okkur í vinnustofu
sinni með málningarslettumar á
höndunum." Þátturinn eigi í fáum
orðum að sýna alla þá flóra sem
lífið hefur að bjóða á hispurslaus-
an og ágengan máta en þó án þess
að það sé eitthvert markmið út af
fyrir sig að ganga fram af fólki og
ögra.
Stefnt er að því að hinn fimmtán
mínútna *Sjáðu, sem framleiddur
er af Plúton, verði á dagskrá alla
virka daga, strax á undan 19-20 og
bestu brotin síðan endurflutt á
laugardögum.
Hraður og fjölbreyttur
þáttur fyrir alla
Stíllinn verður að sögn þeirra
Teits og Andreu knappur og hrað-
ur. Fjölbreytileikinn verði hafður í
hávegum og þeim muni ekkert
heilagt verða. Aðspurð um það
hvort þátturinn eigi sér einhverja
fyrirmynd eða samlíkingu svara
þau samtaka að svo sé alls ekki.
Hér sé á ferðinni nýtt fyrirbrigði í
íslensku sjónvarpi, eitthvað alveg
ferskt.
Markhópinn segja þau heldur
engan ákveðinn. Hann eigi ekkert
frekar að höfða til ungs fólks þótt
þau sjálf séu ung að árum. Fremur
sé stefnt að því að höfða til allra
aldurshópa á einn eða annan hátt.
Þar komi einmitt sterkt inn hversu
hraður þátturinn verði, áhorf-
andinn hafi ekki tíma til þess að
missa áhugann þótt fjallað sé um
stundarsakir um eitthvað sem
höfði ekki nákvæmlega til þeirra.
„Sextán ára áhugamaður um sí-
gilda tónlist getur því fundið um-
fjöllun um Sinfóníuna í sama þætti
og fimmtugur dauðarokksunnandi
fær eitthvað við sitt hæfi,“ segir
Teitur. „Þar að auki verða engir
fastir liðir heldur einfaldlega það
sem er ferskt hverju sinni,“ læðir
Andrea inn í.
Bakgrunnur þeirra Teits og
Andreu er nokkuð ólíkur. Teitur
er kunnur orðinn fyrir störf sín á
fréttastofu Stöðvar 2 en Andreu
þekkja flestir sem fyrirsætu fyrst
og fremst. Andrea segir sig og
Forvitnilegar plötur
Reykingar, reykingar
Smoke, Smoke, Smoke, that cigar-
ette. Living era.
London
í PLÖTUVERSLUNUM er allt yf-
irfullt af alls kyns safndiskum.
Hægt er að
kaupa sér ýmsar
stemmningar eða
„þemu“ í tónhst-
arformi og fylla
heimili sitt af ást,
slökun eða
stemmningu
sjötta áratugar-
ins. Þema safn-
disksins „Smoke,
smoke smoke
that cigarette"
verður að teljast
nokkuð óvenju-
legra.
Hér er samansafn frábærra laga
sem fjalla um reykingar. Sú nautn
er lofsungin í fjölda laga og eru síg-
arettur, pípur og vindlar í aðalhlut-
verki. Þetta era lög frá því á fyrn
hluta síðustu aldar þegar allir
reyktu og sú iðja var talin holl fyrir
sál og llkama. Að sjálfsögðu sömdu
dægurlagasmiðir Iög um reykingar
sem sum hver nutu mikilla vinsælda.
í þá daga var tóbakið rómantískt
glamúrfyrirbæri. Hvatt var til reyk-
inga og hugsanlegt heilsutjón var
lítið rætt. Hollywoodstjömurnar
reyktu og meira að segja ópera-
söngvarar eins og Caraso létu
mynda sig með sígarettu milli tann-
anna. Það er skondið að heyra þessi
sætu lög í dag, þegar reykingar era
tabú og menn neyðast til að reylqa í
kústaskápum. Þama era textar um
fagrar stúlkur með sígarettur milli
fingranna, ástir er brenna upp sem
tóbak o.s.frv.
Þótt menn séu andstæðingar tób-
aksreykinga er
alveg hægt að
njóta skemmti-
legrar reykinga-
tónlistar. Á
disknum er að
finna ein tuttugu
og þijú lög.
Frægust þeirra
era eflaust
„Smoke gets in
your eyes“ og
„Dont smoke in
bed“ en þarna
eru líka yndisleg-
ar óþekktari ball-
öður eins og „Two cigarettes in the
dark“ með Bing Crosby, er segir frá
ástarævintýri í myrkrinu þar sem
ekkert lýsir nema sígarettuglóðir
elskendanna. Ekki má gleyma
kántrýslöguram eins og „Cigarett-
es, whiskey and wild, wild women“
þar sem sígarettur og ólifnaður era
lofsungin af skrækróma kúrekum.
Þeir sem ætla að hætta að reykja
ættu að forðast þennan disk því ljúf
stemmningin kallar á hlustandann
að kveikja sér í tóbaki, halla sér aft-
ur og njóta reykkófsins. Hvað tón-
listina varðar er þetta svo sem ekk-
ert ægilega merkileg safnplata en
hugmyndin er fyndin og þessi disk-
ur er vinur kúgaðra reykingamanna.
Ragnar Kjartansson
Morgunblaðið/Þorkell
Teit þrátt fyrir það vera fína
blöndu. Þau komi vissulega úr
ólíkum áttum en mætist á miðri
leið í *Sjáðu og smelli glimrandi
vel saman, hafi breyst í nokkurs
konar síamstvíbura á liðnum vik-
um. Teitur er henni sammála: „Ég
held að það sé nokkuð augljóst af
hverju okkur tveimur var stefnt
saman og við ætlum að nýta okkur
þessar andstæður til fulls, tvinna
saman hina ólíku þræði. Verða
góðir og spennandi hlutir ekki oft-
ast til á landamæranum, þar sem
andstæðumar mætast, ólíkir
menningarheimar og lífssýn, allt á
suðupunktinum?" Þau benda jafn-
framt á að allir þeir sem komi að
þættinum með einum eða öðrum
hætti, allt *Sjáðu-gengið, leggi sitt
af mörkum þannig að útkoman
geti ekki orðið annað en fjölbreytt.
Unga
fólkinu treyst
Nú víkur spjallinu að þeim
hræringum sem hafa átt sér stað í
hinum íslenska fjölmiðlaheimi og
blaðamaður veltur vöngum yfir því
hvort áþreifanleg kynslóðaskipti
séu að eiga sér stað. Þau segjast
nokkuð viss um að svo sé. Það ein-
skorðist þó ekki við fjölmiðla held-
ur nái einnig til margra annarra
geira þjóðlífsins. Að verið sé að
leggja aukið traust á ungt fólk og
þá krafta sem það hefur fram að
færa. „Það er magnað að sjá
hvernig ungt fólk streymir fram á
atvinnumarkaðinn og stekkur upp
metorðastigann. Þetta má skýra
að mörgu leyti með örri tækniþró-
un, betri menntun. Ég held t.d. að
margir eldri framkvæmdamenn og
stjórnendur fyrirtækja horfi á
Árna Þór Vigfússon, sjónvarps-
stjóra Skjás eins, með blöndu af
ótta og öfund. Sú stöð er líka um
margt ábyrg fyrir þessum hrær-
ingum, virðist hafa ýtt hressilega
við öðrum fjölmiðlum."
Teljum niður
mínúturnar *
„Við eram bæði spennt og til-
búinn í slaginn," segir Andrea.
Teitur bætir við: „Skrekkurinn fer
samt minnkandi. Hann var mestur
þegar þátturinn var frekar í orði
en á borði. Núna eftir að við höf-
um fært margar hugmyndanna í
framkvæmd er öryggið orðið
meira.“ Síamstvíburamir geð-
þekku viðurkenna þó að þeir séu
famir að telja niður mínúturnar
fram að augnablikinu sem þau
fyrst fara í loftið. ^
-----TH F RAPI Of I UCRK IIA-
LÚKRETÍA SVÍVIRT
B E N j A M1N B RITT E N
„LISTRÆNN SIGURI OPERUNNla
„Frumsýningin á Lúkretíu markar tímamót í óperu-
flutningi á íslandi. Hvereinasti þáttur sýningarinnar
var fullkomlega fagmannlegur og heildarsvipurinn
stílhreinn og óhemju sterkur."
Bergþóra Jónsdóttir, Mbl.
Bodo Igesz hefur „tekist að skapa sterka sýningu
með magnaðri stígandi. [...] Gerrit Schuil [hélt] utan
um allt saman með glæsibrag. “ Jónas Sen, D. V.
„Með þessari sýningu hefur ný yfirstjórn íslensku
óperunnar markað sér metnaðarfulla stefnu sem
íslenskir óperuunnendur eiga vonandi eftir að
láta sér vel líka.“ Gunnsteinn Ólafsson, RÚV.
Aðeins þessar sýningar:
3. sýning fös. 11. feb. kl. 20.00
4. sýning sun. 13. feb. kl. 20.00
5. sýning fös. 18. feb. kl. 20.00
6. sýning lau. 19. feb. kl. 20.00
7. sýning fös. 25. feb. kl. 20.00
8. sýning lau. 26. feb. kl. 20.00
MiAasala ■ síma 511 4200
||jjSLÉNSKA ÓPERAN