Morgunblaðið - 04.04.2000, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Dánarvottorð á fram-
kvæmdir ekki gefíð ut
Morgunblaðið/Halldór
Valgerður Sverrisdóttir í ræðustól. Þorvaldur Jóhannsson, Smári Geirsson og Halldór Ásgrímsson hlýða á.
Fjölmenni var á opnum
kynningarfundi um nýja
stöðu í orku- og stór-
iðjumálum á Austur-
landi sem fram fór á Eg-
ilsstöðum á sunnudags-
kvöld. Björn Ingi
Hrafnsson fylgdist með
líflegum umræðum, þar
sem því var m.a. velt
upp hvort gefa ætti út
dánarvottorð á fram-
kvæmdir af þessu tagi í
fjórðungnum.
NÁLEGA þrjú hundruð
manns sóttu fundinn í
íþróttahúsinu á Egilsstöð-
um, en til hans boðaði iðn-
aðarráðuneytið í félagi við Samtök
sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi.
Fundarefnið var vitaskuld hin
breytta staða sem komin er upp í
virkjunar- og stóriðjumálum á Aust-
urlandi eftir að fjárfestar lýstu eftir
könnun á hagkvæmni þess að reisa
240 þúsund tonna álver á Reyðarfirði
strax í fyrsta áfanga í stað 120 þúsund
tonna álvers, eins og hingað til hefur
verið miðað við, og fyrirhuguð Fljóts-
dalsvirkjun átti að sjá fyrir raforku.
Dugir vart
yfírlýsingin ein
Smári Geirsson úr Neskaupstað,
forseti bæjarstjómar Fjarðabyggðar,
setti fundinn og skýrði tilefni hans.
Sagði hann að ný afstaða fjárfestanna
sem mynda Reyðarál ylli breytingu í
fjölmörgum þáttum sem snertu Aust-
urland, Austfirðinga og landsmenn
alla. Vísaði hann til þess að yrði af
hugmyndum um stærra álver þyrfti
líkast til að virkja við Kárahnúka og
slíkt þýddi um leið frestun fram-
kvæmda í tvö ár hið minnsta. Það
væri Austfirðingum mikið áhyggju-
efni, enda væri umræðan um stóriðju
á Austurlandi ekki ný af nálinni, held-
ur hefði hún skotið upp kollinum með
reglulegum hætti síðan 1980 og upp-
skeran hingað til hefði verið von-
brigðin ein.
Lagði Smári því áherslu á að Aust-
firðingum væri algjör nauðsyn nú að
fá á hreint hvort alvara væri að baki
hinum nýju hugmyndum fjárfest-
anna. Sagði hann að þar dygði vart yf-
irlýsingin ein; ný framkvæmdaáætl-
un þyrfti að vera mun meira
afgerandi en Hallormsstaðaryfirlýs-
ingunni frá í júm' í fyrra - henni yrði
að vera unnt að treysta.
Ennfremur lagði forseti bæjar-
stjómar í Fjarðabyggð áherslu á að
aðilar málsins sýndu viljann í verki
með því að halda fast við fyrri áform
um ýmiskonar uppbyggingu í tengsl-
um við stóriðju og orkuver. Nefndi
hann sem dæmi uppbyggingu í vega-
málum, jarðgangagerð og hafnar-
framkvæmdir í tengslum við álver á
Reyðarfirði.
Kom fram í máli hans að nýjar hug-
myndir lýstu uppbyggingu álvers
sem kosta myndi um 50 milljarða
króna og orkuvers á um 90 milljarða.
Áður hefði verið gert ráð fyrir 250
starfsmönnum við álver og öðru eins í
afleiddum störfum. Nýjar hugmyndir
fælu í sér þörf á meiri mannafla; lík-
lega 400 manna starfsliði við álver og
annað eins í tengdum störfum. Hér
væru því gríðarleg tækifæri fyrir
Austfirðinga.
„Það er því Ijóst að verði af fram-
kvæmdum við svo stóra virkjun og
svo stórt álver verða sveitarfélögin á
Austurlandi að taka öll sín skipulags-
mál og áætlanir til gagngen-ar endur-
skoðunar,“ sagði Smári Geirsson.
Treyst á gott veganesti
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagðist í sinni ræðu gera sér
grein fyrir því að nýleg tíðindi væru
ekki öllum að skapi. Hins vegar æli
hún sér þá von í brjósti að á fundinum
gætu menn farið kalt og yfirvegað yf-
ir þá stöðu sem við blasti og þannig
gæti fundurinn orðið liður í því að
leggja grunn að farsælli niðurstöðu í
þessu mikilvæga máli fyrir Austur-
land.
„Það liggur fyrir að taka stefnu-
mai-kandi ákvarðanir í þessum efnum
á næstu vikum og ég treysti á að fá
gott veganesti á þessum fundi til
þeirrar ferðar sem framundan er áð-
ur en komið er að næstu vegamót-
um,“ sagði Valgerður.
Valgerður sagði að hugmyndir
fjárfestanna hefðu verið til skoðunar
hjá sér og ríkisstjóminni undanfama
daga og hefði hún fallist á að þær
verði útfærðar nánar á næstu vikum.
Sagði hún að í byijun næsta mánaðar
ætti að verða unnt að meta gildi
þeirra. „Ef þessi kostur verður talinn
betri og hagkvæmari en fyrri áætlan-
ir, verður gerð ný yfirlýsing byggð á
Hallormsstaðaryfirlýsingunni og þar
verður meðal annars lýst viðskipta-
hugmyndinni, skuldbindingum hlut-
aðeigandi aðila og helstu dagsetning-
um. Endumýjuð yfirlýsing fæli í sér
vinnuferli, þróunarvinnu og útfærslu
á umræddum hugmyndum sem hefði
það að markmiði að lokaákvörðun um
að ráðast í framkvæmdir yrði tekin
fyrri hluta árs 2002, ef raunhæfar for:
sendur reynast fyrir álverinu. í
kjölfarið hæfust virkjunarfram-
kvæmdir og áætlað er að raforku-
framleiðsla gæti hafist á árinu 2007,
hugsanlega 2006,“ sagði hún.
Enn ein frestunin sem
ekki leiðir til neins?
Valgerður viðurkenndi að nú kynni
einhver að spyrja í ljósi reynslunnar,
hvort þetta væri ekld aðeins enn ein
frestunin sem ekki leiddi til neins.
Slík spuming væri eðlileg, en hins
vegar væri ekki við henni einhlítt svar
á þessari stundu. Enginn væri í þeirri
stöðu að geta gefið loforð um að þessi
áform gengju upp. Hins vegar væri
ljóst að mikill áhugi væri á verkefn-
inu, sem lýsti sér m.a. í því að aðilar
máls væm reiðubúnir að taka á sig
verulegar siðferðilegar og fjárhags-
legar skuldbindingar til að Ijúka
þeirri þróunarvinnu sem nauðsynlegt
væri að lægi til grundvallar endan-
legri ákvörðun um að ráðast í fram-
kvæmdir. Það lýsti mikilli trú á að
umrætt álver og virkjanir gæti orðið
arðsöm og skynsamleg fjárfesting.
Undir lok ræðu sinnar upplýsti iðn-
aðarráðherra að stjómvöld mundu
fylgjast vel með framvindu áliðnaðar í
heiminum og hugsanlegum áhuga
slíkra fyrirtækja á fjárfestingu hér á
landi. Nauðsynlegt væri að hafa góða
yfirsýn yfir það sem er að gerast í
greininni á hveijum tíma til að
tryggja að Islendingar missi ekki af
áhugaverðum tækifærum. Við bætt-
ist að ef áhugi þeirra fjárfesta í álveri
sem nú ættu í samningum við rílrið
dvínaði, væri nauðsynlegt að hafa
aðra möguleika. Eftir að þróunar-
vinnu væri lokið ætti að vera til reiðu
mjög áhugaverðan kost fyrir álfyrir-
tæki í heiminum.
„Sumir hafa haft á orði að 240 þús-
und tonna álversáfangi með 120 þús-
und tonna viðbót síðar væri alltof stór
biti fyrir samfélagið á Austurlandi,
það réði ekkert við svona fyrirtæki.
Þessu sjónarmiði er ég algerlega
ósammála og lýsi reyndar furðu
minni á þeirri vantrú á Austfirðinga
sem það felur í sér. Þetta er fyrirtæki
með 500-600 starfsmenn og að halda
því fram að svona samfélag geti ekki
tekið vel á móti slíku fyrirtæki á
nokkrum árum er að mínu viti frá-
leitt. Aðrir halda því fram að þjóðar-
búið ráði ekki við svona stóra fram-
kvæmd. Það er einnig rangt að mínu
viti og nægir í því sambandi að benda
á að þessar framkvæmdir eru ekki
umfangsmeiri að tiltölu við þjóðarbú-
skapinn en framkvæmdimar við Búr-
fellsvirkjun og ísal á sínum tíma,“
sagði Valgerður Sverrisdóttir.
Fimm sumur til
gerðar Kárahnúkastíflu
Helgi Bjamason, skrifstofustjóri í
iðnaðarráðuneytinu, fór í erindi sínu
yfir útfærslu virkjunar við Kára-
hnúka. Benti hann á að þegar hefðu
talsverðar rannsóknir átt sér stað á
þessu svæði, fyrir um tvö hundrað
milljónir króna, en jafnframt væri
Ijóst að ítarlegra rannsókna væri þörf
á næstunni í ljósi nýjustu atburða.
Ráðast þyrfti strax í ýmiskonar
vinnu tengda rannsóknum og áætl-
anagerð, enda væri um mikið og flók-
ið verkefni að ræða. Til að mynda yrði
Kárahnúkastífla ein sú hæsta sinnar
tegundar í Evrópu og upplýsti hann
að hugmyndir væru uppi um að nýta
efni innan lónssvæðisins til gerðar
hennar. Brýnt væri að hefjast handa
sem fyrst, því Landsvirkjun gerði ráð
fyrir að vinna þyrfti að gerð stíflunn-
ar í fimm sumur. Langan tíma myndi
einnig taka að safna vatni í miðlunar-
lónið sjálft. Vinnu við mat á umhverf-
isáhrifum virkjunarinnar þyrfti að
hefja nú þegar, miðað við þann tíma-
ramma sem rætt hefði verið um.
Helgi rakti á fundinum helstu um-
hverfisþætti Kárahnúkavirkjunar,
sem þegar væra ljósir; áhrif á gróður-
far og dýralíf, setmyndun í lóni, eínis-
námur fyrir stíflur, útgröft efnis úr
göngum, breytingu á rennsli, graggi
og vatnshæð Lagarfljóts, áhrif á hita-
stig fljótsins og á strandlengju Hér-
aðsflóa, breytingu á rennsli Jökulsár
á Brú auk áhrifa á ferðamennsku á
svæðinu.
Laxveiði í Jöklu?
í máli hans kom m.a. fram að Nátt-
úrafræðistofnun mundi á þriðjudag, í
dag, kynna skýrslu um gróðurfar og
dýralíf á svæðinu, en rannsóknir á því
hefðu staðið yfir um skeið. Rannsókn-
ir stofnunarinnar á svæðinu væra ný
aðferð í náttúrufarsgreiningu, s.k.
búsvæðagreining og hefði verið unnið
að verki þessu fyrir rammaáætlun um
virkjanir á hálendinu og um leið
vegna undirbúnings fyrir mat á um-
hverfisáhrifum.
Nefndi Helgi sem dæmi að fylgst
hefði verið með hreindýram sem
halda til á heiðinni, m.a. hefðu þau
verið talin með reglubundnum hætti í
nokkur ár. Til stæði að kanna ferðir
þeirra enn frekar með því að koma
fyrir GPS-staðsetningartækjum á
nokkram þeirra.
Nefndi Helgi að líkur væra á að
graggupplausn, þ.e. fíngert set,
myndi allt að þrefaldast í Lagarfljóti,
yrði virkjað til fulls við Kárahnúka.
Um vandamál tengd mikilli setmynd-
un í Hálslóni við stífluna sagði hann
hins vegar að rannsóknir sýndu að
fjögur hundrað ár tæki fyrir setið að
verða til vandræða. Slíkt væri því
ekki veralegt áhyggjuefni nú um
stundir.
Ljóst er að breyting á rennsli Jök-
ulsár á Dal, sem stundum er kölluð
Jökla, gæti orðið athyglisverð. Benti
Helgi á að með aðgerðum mætti
skapa tært rennsli í Jöklu og þar með
myndu skapast kjöraðstæður fyrir
laxfiska; 70 km löng fosslaus á í tign-
arlegu landslagi ætti að geta orðið
gjöful laxveiðiá, slíkt hefði þegar sýnt
sig í tilfelli Blöndu á Norðurlandi.
3.100 ársstörf við
Kárahnúkavirkjun
Helgi sagði Ijóst að miðað við hefð-
bundna afgreiðslu mála vegna um-
hverfismats, mætti gera ráð fyrir að
mál yrðu ákvörðunarhæf á útmánuð-
um 2002, þ.e. þá ættu að liggja fyrir
nauðsynleg umhverfismöt og tilhlýði-
legar rannsóknir. Hugsanlegt væri þó
að þeirri vinnu gæti lokið fyrr. Raun-
hæft væri í framhaldi af því að gera
ráð fyrir að virkjunin sjálf, verði ráð-
ist í gerð hennar, yrði tilbúin árið
2007, kannski ári fyrr miðað við
bjartsýnustu spár, en jafnframt gæti
það orðið ári síðar, eða 2008.
Miðað er við, að sögn Helga, að
virkjun Kárahnúka skapi um 3.100
ársstörf og álagstoppar verði jafnari
en hingað til hefði sést í framkvæmd-
um sem þessum, eða 6-700 manns
þegar mest verður. Sagði hann að
slíkt ætti tvímælalaust að verða til
bóta fyrir byggðarlagið.
Helgi sagði að talan 90 milljarðar
væri ekki fjaiTÍ lagi, þegar rætt væri
um heildarkostnað við virkjun Kára-
hnúka. Þeirri tölu mætti hins vegar
skipta í tvennt, 4-6 milljarðar færu í
lagningu háspennulínu til Reyðai’-
fjarðar og um 84 milljarðar færa í að
reisa virkjunina sjálfa og öll mann-
virki henni tengd.
Arðsemi eykst
með aukinni stærð
Geir A. Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hæfis og stjómai'for-
maður Reyðaráls, kom fram fyrir
hönd fjárfesta á fundinum og kom
skýrt fram í máli hans að tveir þættir
hefðu einkum orðið þess valdandi að
fjárfestar líta nú hýra auga til stærra
álvers strax í upphafi en hingað til.
Annai-s vegar nefndi Geir kröfur
um arðsemi, en fjárfestar hefðu horft
til þess að 120 þúsund tonna álver
væri tiltölulega lítið á heimsmæli-
kvai-ða, eins og hann orðaði það. Upp
að vissu marki væri arðsemin talin
aukast með aukinni stærð slíks álvers
og það hefði brannið mjög á fjárfest-
unum. Lykilatriði væri að álverið yrði
nógu hagkvæmt til að bera sig, jafn-
vel þegar skilyrði væra á ákveðnu
tímabili ekki sérlega hagstæð.
í annan stað var á Geir að skilja að
miklu hefði skipt fyrir fjárfestana,
hversu litlar tryggingai' þeir höfðu
fyrir stækkun álvers í framtíðinni.
Mikilvægt væri að geta stækkað álver
til að það væri samkeppnisfært. 240
þúsund tonn álver, strax í fyrstu
atrennu væri því mun áhugaverðari
kostur og ekki síst yrði að líkindum
auðveldara að fá nýja fjái'festa inn í
verkefnið á seinni stigum, yrði fyrsti
áfanginn svo stór og um leið gert ráð
fyrir stækkun innan tíðar um 120 þús-
und tonn. Benti Geir á að jafnframt
væri enn í myndinni að endanleg
stærð álvers yrði 480 þúsund tonn,
þótt ekki væri nánar kveðið á um það í
nýjustu áætlunum fjárfestanna.
Geir lagði mikla áherslu á að næstu
fimm vikur yrðu nýttar vel til að
kanna hagvæmni þessara hugmynda
og jafnframt skipti miklu að stytta
framkvæmdatímann. I því sambandi
benti hann á að þetta ár myndi fara í
samninga milli Hæfis og Norsk
Hydro um fyrirkomulag Reyðaráls,
auk vinnu við umhverfismöt tengdum
framkvæmdunum. Minntist hann
m.a. á sjálfstæða rannsókn Norsk
Hydro á umhverfisáhrifum, en nið-
urstaða hennar væri að vænta innan
skamms.
Hlutafé Reyðaráls
um 10 milljarðar
Á næsta ári yrði svo væntanlega
unnt að ljúka við umhverfismat vegna
verksmiðjunnar, áfram yrði unnið að
mati vegna virkjunarinnar og samn-
ingum milli ríkis, Landsvirkjunar og
Reyðaráls. Ekki væri heldur lítið mál
að útvega nægilegt fjármagn til fram-
kvæmdanna, en slíkt yrði gert þegar
fyrir lægi endanlegt arðsemismat.
Nefndi Geir að miðað við áætlaðan
kostnað við álver á Reyðarfirði, væri
ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir að
hlutafé Reyðaráls yrði um 10 millj-
arðar. Ljóst væri að íslenskt fjár-
magn yrði þar að meirihluta, líklega
um sex milljarðar króna. Það fjár-
magn sem eftir væri, um 40 milljarðar
kr„ þyrfti að fá að láni.
Geir minnti á að fjárfestamir
tækju þátt í þessu verkefni af fullri al-
vöra, en sinntu því ekki af hálfum
huga. Ljóst væri að hundraðum millj-
óna króna yrði að verja í undirbún-
ings málsins áður en það yrði ákvörð-
unarhæft. Það myndi hins vegar að
öllum líkindum skila sér í betra verk-
efni sem áhugaverðara yrði fyrir aðra
fjárfesta.
Skapa traust milli
fjárfesta og sljómvalda
Fyrsti þingmaður Austurlands,
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanríkis-
ráðherra, var síðastur frummælenda
og hann viðurkenndi í upphafi að mik-
il vonbrigði væra hvemig mál hefðu
nú þróast.
„Fjárfestar hafa nú breytt af leið
og við því er lítið að gera. Næstu vik-
ur fara í að ræða málið og skoða þá
möguleika sem í boði era. Mikilsvert
er að unnt verði að skapa traust milli
stjómvalda og fjárfestanna og ekki
síður fólksins hér í þessum lands-
hluta,“ sagði Halldór og bætti því við