Morgunblaðið - 04.04.2000, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐJÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Deiliskipulag verslunarlóðar á afhafnasvæði á Gleráreyrum verði samþykkt
Bygging verslunarmiðstöðvar
eykur verðmæti fasteigna
SKIPULAGSNEFND Akureyrar samþykkti á
fundi sínum á föstudag að leggja til við bæjar-
stjórn að tillaga að deiliskipulagi verslunarlóðar
og athafnasvæðis á Gleráreyrum yrði samþykkt.
Athugasemdir bárust frá þremur aðilum við til-
löguna og sagði Vilborg Gunnarsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, að við afgreiðslu tillögunnar í
nefndinni hefði verið tekið tillit til ýmissa þeirra
athugasemda sem bárust.
„Við teljum okkur hafa komið til móts við at-
hugasemdirnar eins og frekast var unnt og því
uppfyllt það samkomulag sem gert var á milli lóð-
areigenda á Gleráreyrum og bæjarins," sagði Vil-
borg.
I bókun skipulagsnefndar er jafnframt bent á
aukið aðdráttarafl svæðisins og meiri umferð
vegna byggingar verslunarmiðstöðvarinnar getur
falið í sér ákveðna verðmætaaukningu fasteigna á
svæðinu. Húseignir á svæðinu gætu á þeim for-
sendum fengið annað og verðmætara hlutverk en
mögulegt hefði verið að óbreyttu. Mætti því
álykta að óhagræði sem fasteignaeigendur á
svæðinu verða fyrir og umdeildar breytingar frá
ástandi, sem í sjálfu sér hefur ekki verið til fyrir-
myndar, sé vegið upp með breyttu umhverfi og
Morgunblaðið/Kristján
Á Gleráreyrum er byrjað að rífa niður hús-
eignir sem þurfa að víkja í tengslum við upp-
byggingu nýrrar verslunarmiðstöðvar á svæð-
inu, þar sem íjölmargar verslanir verða til
húsa.
þróunarmöguleikum svæðisins, segir ennfremur í
bókun nefndarinnar.
Athugasemdir bárust frá nokkrum eigendum
fasteigna við Dalsbraut 1 þar sem fram kemur að
þeir telji að um of sé gengið á rétt þeirra til hags-
bóta fyrir hina nýju verslun sem rísa á á austur-
enda lóðarinnar. Einnig vilja þeir að aðkeyrslu
verði breytt þannig að unnt verði að koma að
byggingunum bæði að vestan og austan og að
komið verði upp hringtorgi við austurendann.
Jafnframt að svokallaður Verksmiðjuvegur verði
ekki færður meira en 5 metra til vesturs.
Góðan aðgang fyrir
gangandi og hjólandi
Fyrir hönd Bakarísins við brúna er mótmælt að
færa Verksmiðjuveg til vesturs og skerða aðkomu
að fyrirtækinu. Einnig er mótmælt flutningi á að-
komu úr norðri og austri þannig að aðkoma að
bakaríinu gerbreytist og verður óviðunandi.
Pétur Halldórsson leggur til að gert verði ráð
fyrir bílastæðahúsi í tengslum við verslunarmið-
stöðina þar sem bflastæði séu of fá, jafnvel þótt
ekki verði ráðist í slíkt hús í fyrsta áfanga. Einnig
bendir hann á að leggja þurfi áherslu á góðan að-
gang gangandi og hjólandi vegfarenda að versl-
unarmiðstöðinni, bæði með góðum stígum og
hjólastæðum með vönduðum hjólafestingum.
Stórtónleikar Kórs
Tónlistarskólans á Akureyri
Yinsæl söng-
leikjalög flutt
KÓR Tónlistarskólans á Akur-
eyri ásamt _ hljómsveit efnir til
tónleika í Iþróttaskemmunni á
Akureyri annað kvöld, miðviku-
dagskvöldið 5. apríl, kl. 20.30.
Stjórnandi er Michael Jón
Clarke. Tónleikarnir eru haldnir
til styrktar Tónlistarskólanum á
Akureyri, sem mun nýta ágóð-
ann til hljóðfærakaupa en allir
sem þátt taka gefa vinnu sína.
Á tónleikunum verður flutt
söngleikjatónlist, m.a. úr The
Phantom of the Opera og Josep
eftir Andrew Lloyd Webber,
tónlist eftir Rodger og Hammer-
stein, tónlist úr West Side Story
eftir Leonard Bernstein og
Stephen Sondheim og fleiri. Ein-
söngvarar eru Pálmi Gunnars-
son, Sif Ragnhildardóttir og
Margot Kiis ásamt félögum úr
kórnum. Hljómsveitina skipa
Kjartan Valdimarsson, hljóm-
borð, Jaan Alavere, hljómþorð,
Kaldo Kiis, hljómborð, Agn-
ieszka Chelkowska, píanó, Stef-
án Ingólfsson, bassi, Kristján
Edelstein, gítar og Bendikt
Brynleifsson, trommur.
I tilefni tónleikanna heur verið
leigt vandað og öflugt hljóðkerfi
frá Reykjavík og styrkir Akur-
eyrarbær tónleikana með leigu á
kerfinu. Þá styrkja framtakið
einnig; Sparisjóður Norðlend-
inga, Penninn-Bókval, Ásprent,
Fremri, kynningarþjónusta, ís-
lensk verðbréf, KEA, Flytjandi,
Eimskip, TVG Zimsen, Dagur og
Sjóvá-Almennar.
Miðaverð á tónleikana er 1.500
krónur fyrir fullorðna, en 500
krónur fyrir börn innan 12 ára.
Hjalti Jón Sveinsson, skóla-
meistari VMA, ræðir við
nemendur Síðuskóla í nýju
húsnæði tréiðnaðardeildar
skólans.
Fjöl-
menni
ÍVMA
FJÖLMENNI heimsótti Verk-
menntaskólann á Akureyri um
helgina, en þá opnuðu starfsmenn
og nemendur skólans dyr sínar
og kynntu þá íjölbreyttu starf-
semi sem þar fer fram. Sérstök
áhersla var lögð á að kynna
starfsnáms- og verknámsbrautir
skólans og var starfsemi í fullum
gangi þannig að starf deildanna
var gestum sýnilegt.
Þá heimsóttu hátt í fjögur
hundruð grunnskólanemendur,
10. bekkingar, skólann á föstu-
dag og var þeim kynnt starfsem-
in, en gera má ráð fyrir að stór
hópur nemenda mun sækja
framhaldsnám í skólann á næsta
vetri.
Málþing
um stefnumótun Akureyrarbæjar
í menningarmálum
Málþingið verður í Deiglunni,
iaugardaginn 8. aprílkl. 13.30 til 18.00
Dagskrá:
Fundarstjóri Birgir Guðmundsson, aöstoöarritstjóri Dags.
• Kynning á tillögum og framkomnum gögnum.
• Þröstur Ásmundsson, formaður menningarmálanefndar.
• Aðrar hugmyndir eða áhersluatriði:
Valgerður Bjarnadóttir, formaður Leikfélags Akureyrar.
Guðmundur Ármann, myndlistarmaður.
Þórgnýr Dýrfjörð, formaður Gilfélagsins.
• Kaffihlé.
• Umræðuhópar að störfum.
• Skil umræðuhópa og almennar umræöur.
• Málþingi slitið.
Allir velkomnir.
Menningarmálanefnd.
Morgunblaðið/Kristj án
Selir vekja athygli
TVEIR selir sem komu upp úr vök bryggju, hafa vakið óskipta at- inn og annar þeirra lá enn á ísn-
í fjöruborðinu við Drottningar- hygli meðal vegfarenda. Þeir lágu um í gær og virtist ekki á honum
braut, skammt sunnan Torfunefs- þar í makindum allan sunnudag- neitt fararsnið.