Morgunblaðið - 04.04.2000, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Forsætisráðherra Japans í dái eftir að hafa fengið heilablóðfall
Leit hafín að eftir-
manni Obuchis
AP
Japanir fylgjast með sjónvarpsávarpi Mikios Aokis, sem tilkynnti að hann hefði tekið við forsætisráðherra-
embættinu til bráðabirgða af Keizo Obuchi, er var í dái í gær eftir að hafa fengið heilablóðfall um helgina.
Tókýó. AFP, AP.
KEIZO Obuchi, forsætisráðherra
Japans, var í dái í gær eftir að hafa
fengið heilablóðfall um helgina og
hugsanlegt er að nýr forsætisráð-
herra verði skip-
aður. Læknar
sögðu að Obuchi
væri í lífshættu
og honum var
haldið á lífi með
öndunarvél.
Mikio Aoki,
aðalritari stjórn-
arinnar, tók við
forsætisráð-
herraembættinu
til bráðabirgða.
Hann sagði að Obuchi kynni að verða
leystur frá störfum og fjölmiðlar
sögðu að leitin að eftirmanni hans
væri þegar hafin.
Lög kveða á um að leysa verði
stjórnina upp ef forsætisráðherrann
fellur frá eða er ófær um að gegna
embættinu og þingið á að velja eftir-
mann hans.
Ryoichi Ishikawa, sérfræðingur í
heilaskurðlækningum, sagði að dáið
gæti leitt til heiladauða. Keiji Sano,
prófessor í taugasjúkdómafræði við
Tókýó-háskóla, sagði að það gæti
ráðist í dag hvort hægt yrði að
bjarga lífi forsætisráðherrans.
Stjórnin gagnrýnd fyrir að
leyna veikindunum
Obuchi var fluttur á sjúkrahús
klukkan 1 f.h. á sunnudag að staðar-
tíma (kl. 15 á laugardag að íslenskum
tíma). Stjórnin hélt því leyndu í 22
klukkustundir að forsætisráðherr-
ann væri á sjúkrahúsi og sagði í
fyrstu að hann væri þar vegna
„þreytu“. Tólf klukkustundir til við-
bótar liðu þar til tilkynnt var að hann
hefði fengið heilablóðfall.
Margir Japanir gagnrýndu stjóm-
ina fyrir að skýra ekki fyrr frá
ástandi forsætisráðherrans og Aoki
viðurkenndi að sú gagnrýni væri
„líklega réttmæt". „Þegar forsætis-
ráðherrann var fluttur á sjúkrahús
sagði hann aðeins að sér liði illa,“
bætti Aoki við. „Það hvarflaði ekki
að okkur að svona færi.“
Japanska dagblaðið Asahi Shimb-
ua segir að þessi langa bið eftir upp-
lýsingum um veikindi forsætisráð-
herrans komi ekki á óvart vegna
þess að í Japan sé „þegjandi sam-
komulag" um að það sé „í lagi að
ljúga um heilsufar stjórnmálamanna
þar sem alvarleg veikindi geta oft
þýtt að stjómmálaferli þeirra sé lok-
ið“.
Verði Obuchi leystur frá störfum
getur flokkur hans, Frjálslyndi lýð-
ræðisflokkurinn (LDP), og tveir
samstarfsflokkar hans valið nýjan
forsætisráðherra án þess að efnt
verði til kosninga þar sem þeir em
með meirihluta á þinginu.
Nýr stjórnarflokkur stofnaður
Obuchi var önnum kafinn síðustu
dagana áður en hann var fluttur á
sjúkrahús, einkum vegna eldgoss í
fjallinu Usu á eyjunni Hokkaido og
klofnings innan samsteypustjómar-
innar.
Obuchi tók þátt í löngum samn-
ingaviðræðum um helgina til að
reyna að koma í veg fyrir að minnsti
stjórnarflokkurinn, Fijálslyndi
flokkurinn, gengi úr stjórninni
vegna ágreinings um stefnu hennar.
Hann var lagður inn á sjúkrahús að-
eins fimm klukkustundum eftir að
tilkynnt var að viðræðumar hefðu
farið út um þúfur og Fijálslyndi
flokkurinn hefði ákveðið að slíta
stjórnarsamstarfinu. Stjómarand-
staðan krafðist þess að boðað yrði
strax til þingkosninga vegna klofn-
ingsins.
26 þingmenn úr Frjálslynda
flokknum sögðu skilið við hann og
stofnuðu nýjan flokk í gær, íhalds-
flokkinn, sem gengur í stjómina. Að-
eins 24 þingmenn em enn í Frjáls-
lynda flokknum undir forystu Ichiro
Ozawa sem hafði hafnað tillögum
Obuchis um efnahagslegar umbæt-
ur.
Nýi flokkurinn er undir forystu
Chikage Oogi, 66 ára þingkonu.
Kosningum flýtt?
Obuchi er 62 ára og varð forsætis-
ráðherra í júlí 1988. Stjórn hans hef-
ur átt undir högg að sækja að undan-
fömu vegna efnahagssamdráttar,
pólitískra hneykslismála og deilna
stjómarflokkanna.
Atvinnuleysið var 4,9% í febrúar,
meira en nokkm sinni fyrr frá síðari
heimsstyrjöldinni, og vinsældir
stjórnarinnar hafa minnkað vegna
hneykslismála sem urðu til þess að
tveir ráðherrar sögðu af sér.
Verði Obuchi leystur frá störfum
er talið líklegast að Yoshiro Mori,
framkvæmdastjóri Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins, verði fyrir valinu
sem eftirmaður hans. Yohei Kono ut-
anríkisráðherra er einnig talinn
koma til greina, að sögn japanska
stjórnmálaskýrandans Shigenoris
Okazakis. „Þeir eru þó báðir veikir
stjórnmálamenn," bætti hann við.
„Það er enginn óumdeildur leiðtogi L
innan Frjálslynda lýðræðisflokksins
þannig að þetta gæti leitt til langrar
valdabaráttu milli fylkinganna innan f
flokksins."
Nokkrir stjórnmálaskýrendur
sögðu hugsanlegt að Aoki yrði for-
sætisráðherra fram að næstu þing-
kosningum sem eiga að fara fram
ekki síðar en 19. október. Þeir töldu
líklegt að stjórnin héldi velli í kosn-
ingunum.
Forystukreppan innan Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins gæti þó orð-
ið vatn á myllu stjórnarandstöðunn- {
ar sem sniðgekk þingið fyrr á árinu f
til að knýja á um að kosningunum
yrði flýtt. „Hún þarf þó að vera var-
kár því japanskir kjósendur hneigj-
ast til að kjósa flokka til að láta í ljós
samúð sína við slíkar aðstæður. Ef
forystumenn Frjálslynda lýðræðis-
flokksins eru klókir ættu þeir að
flýta kosningunum til að færa sér
veikindi Obuchis í nyt,“ sagði Okaz-
aki.
Sérfræðingar í stjórnmálum Jap-
ans hafa spáð því að kosningarnar I
verði eftir leiðtogafund átta helstu
iðnríkja heims sem ráðgert er að
halda á japönsku eyjunni Okinawa í
júlí. Okazaki sagði að veikindi
Obuchis gætu orðið til þess að kosið
yrði fyrir leiðtogafundinn og þá lík-
lega í byrjun júní.
Aðrir stjómmálaskýrendur töldu
þó líklegt að kosningarnar færu fram
síðar, einkum vegna klofningsins
innan stjórnarinnar.
Japönum
vottuð samúð
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
kvaðst vonast til þess að Obuchi
fengi skjótan bata. „Hugsanir og
bænir bandarísku þjóðarinnar eru
með honum, fjölskyldu hans og jap-
önsku þjóðinni."
Jiang Zemin, forseti Kína, og Zhu
Rongji forsætisráðherra vottuðu
Japönum samúð sína og Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði veikindi Obuchis valda
sér „miklum áhyggjum".
Markaðurinn ekki einfær
um að útrýma fátækt
LEIÐTOGAR ríkja heims munu í
september næstkomandi sækja sér-
stakan árþúsundaskiptafund á veg-
um Sameinuðu þjóðanna (SÞ). A
fundinum verður rætt um stöðu
Sameinuðu þjóðanna á nýrri öld og
þau verkefni sem blasa við í náinni
framtíð. í gær kynnti Kofi Annan,
framkvæmdastjóri SÞ, nýja skýrslu
sem mun verða grundvöllur um-
ræðna á fundinum. Skýrslan er í
raun áskorun til leiðtoga heimsins
um að takast á við þau vandamál sem
við er að etja og setja sér skýr
markmið í því sambandi. Fram kem-
ur að með samstilltu átaki væri unnt
að fækka þeim íbúum jarðarinnar
sem búa við fátækt um helming á
fimmtán árum. Einnig eru leiðtogar
ríkja heims hvattir til að beita sér
fyrir aðgerðum til að draga úr fjölda
þeirra sem smitast af eyðni á hveiju
ári. Er lagt til að stefnt verði að því
að á næstu 10 árum muni nýjum
eyðnismituðum í heiminum fækka
um fjórðung frá því sem nú er og að
árið 2015 standi öllum börnum heims
til boða að fá grunnmenntun, svo
dæmi séu tekin.
í gær var staddur hér á landi að-
stoðarframkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna á sviði efnahags- og fé-
lagsmála, Nitin Desai, sem kpm
hingað til lands í boði Halldórs As-
grímssonar utanríkisráðherra. Desai
hélt erindi á vegum utanríkisráðu-
neytisins og Félags Sameinuðu þjóð-
Ríki heims þurfa að
setja sér raunhæf
markmið til að sigrast á
skorti o g fátækt í heim-
inum. Þetta segir Nitin
Desai, einn yfírmanna
Sameinuðu þjóðanna,
sem var staddur hér á
landi í gær.
anna á íslandi. Þar kynnti hann m.a.
skýrslu Annan vegna árþúsunda-
skiptafundarins og fjallaði um hlut-
verk smærri ríkja innan SÞ.
Hvernig geta smáríki tryggt
hagsmuni sína irinan SÞ?
„Eitt megineinkennið á ákvörðun-
um innan Sameinuðu þjóðanna er að
sérhvert aðildarríki hefur eitt at-
kvæði, óháð stærð þess eða styrk.
Ekki skiptir máli þótt ríki sé lítið,
það hefur sömu áhrif á ákvarðanir og
þau ríki sem eru stærst. Þessar að-
stæður gera það að verkum að jafn-
vel smæstu ríkin geta haft raunveru-
leg áhrif á stefnu samtakanna, meira
en þau eru fær um innan annarra
fjölþjóðastofnana.
Mörg minni ríki hafa áttað sig á
því að Sameinuðu þjóðimar gera
þeim kleift að hafa áhrif á alþjóðlega
stefnumótun í málum sem varða
mikilvæga hagsmuni þeirra. En til
að hafa áhrif verða ríki að sýna starf-
seminni áhuga og hafa þekkingu á
málefnunum. Áhrifin leiða af getunni
til að láta í ljósi skoðun sína, koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
Stærri ríkin þurfa síður á vett-
vangi eins og Sameinuðu þjóðunum
að halda til að hafa áhrif, þau hafa
þegar áhrif í krafti stærðar sinnar.
Sama má segja um ríki sem eiga að-
ild að heimshlutasamtökum, eins og
t.d. Evrópusambandinu. Þau njóta
þeirra áhrifa sem aðild að ríkjahópn-
um veitir þeim á alþjóðavettvangi.
Það eru sérstaklega smærri ríki sem
ekki tilheyra ríkjahópum sem þurfa
á Sameinuðu þjóðunum að halda.“
Því hefur verið haldið fram að
Sameinuðu þjóðirnar og aðrar al-
þjóðastofnanir hafi brugðist því
hlutverki sínu að stuðla að framþró-
un í fátækari hlutum heimsins.
Hvernig ber að svara gagnrýni af
þessu tagi?
„Að mínu mati er sú gagnrýni sem
beinst hefur að Sameinuðu þjóðun-
um eftir ráðstefnuna um viðskipti og
þróun (UNCTAD) í Bangkok á síð-
asta ári ekki réttmæt. En vonbrigðin
eru e.t.v. skiljanleg þegar rætt er um
fund Alþjóða viðskiptastofnunarinn-
ar (WTO) í Seattle síðastliðið haust.
Andrúmsloftið á UNCTAD-ráð-
stefnunni var mun jákvæðara og
engin átök þar milli
ríkja. Meginmarkmið
ráðstefnunnar var að
stuðla að því að
minnka spennu og átök
í samskiptum ríkja og
hvetja til samráðs, fá
ríki til að ræða saman
um vandamálin. Að
mínu mati náði ráð-
stefnan þessu mark-
miði sínu.
Ástand mála í þró-
unarríkjunum er mjög
mismunandi, sumum
ríkjum hefur vegnað
mjög vel á undanförn-
um árum en öðrum síð-
ur. í stórum hlutum Asíu og Suður-
Ameríku hefur mjög margt horft til
framfara síðustu árin en í Afríku er
ástandið víða bágt. í skýrslunni sem
framkvæmdastjóri SÞ hefur lagt
fram vegna árþúsundaskiptafundar-
ins er fjallað sérstaklega um hvernig
glíma má við fátæktina í þróunar-
rílgunum. Þar er meðal annars að
finna raunhæf markmið til umbóta
sem unnt er að ná á næstu fimmtán
árum ef ríki eru reiðubúin að leggja
sitt af mörkum."
Sumir telja að aukið frelsi í
heimsviðskiptum sé ekki nóg til að
hífa fátækustu ríkin upp úr örbirgð
og fleira þurfí að koma til. Hver er
þín skoðun áþessu?
„Eg get að ýmsu leyti tekið undir
þessi sjónarmið. Ekki svo að skilja
að hafna beri hinum frjálsa markaði
eða að varpa eigi skynsamlegri hag-
stjórn fyrir róða. En við verðum að
átta okkur á því að til eru gæði sem
markaðurinn getur ekki útvegað, t.d.
menntun, heilbrigðisþjónusta, að-
gerðir til að bæta stöðu kvenna, um-
hverfismál, skipulagn-
ing búsetu o.s.frv. Að
mörgu leyti má segja að
ráðstefnur SÞ undan-
farinn áratug hafi þjón-
að því hlutverki að I
svara spurningunni um
hvaða hlutverki al- j
mannavaldið eigi að
gegna eftir að efna-
hagslíf heimsins hefur
að miklu leyti verið
markaðsvætt. Eitt
helsta vandamálið sem
blasir nú við er að
tekjustofnar hins opin-
bera hafa víða rýrnað
og ríkisvaldið getur
ekki lengur sinnt þeim verkefnum
sem það ætti að sinna.
Kofi Annan framkvæmdastjóri SÞ
hefur lagt áherslu á að með hnatt-
væðingunni hafi fyrirtæki ákveðnum
félagslegum skyldum að gegna og
geti ekki einvörðungu látið stýrast af
hagnaðarsjónarmiðum. Fyrirtæki
verða að taka tillit til umhverfisins
og virða mannréttindi og réttindi
launþega.
Umfang alþjóðasamvinnu, þar |
sem ríki hafa fallist á að hlíta aga-
valdi sameiginlegra stofnana, hefur j
vaxið mjög á síðustu áratugum. Nú á
dögum er líf okkar í mun meira mæli
mótað af alþjóðlegum leikreglum en
áður fyrr. En fullveldið er enn hjá
ríkisstjórnunum og það sem t.d.
Sameinuðu þjóðirnar geta gert er að
fá ríkin til að ræðast við og sammæl-
ast um reglur og framkvæmdir. SÞ
eru vettvangur þar sem ríkin eru
leidd saman og samtökin hafa, vegna
stærðar sinnar og orðspors, siðferð-
islegt vald. í þessu felst styrkur I
þeirra.“
Nitin Desai