Morgunblaðið - 04.04.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000 49
HESTAR
frjálslega til að hljóta náð dómar-
anna en ganglag folans og fótaburð-
ur er sérlega athyglisverður. Einum
leynihesti og knapa var boðið til
leiksins og kom sá síðarnefndi fram
með grímu. Um var að ræða frægan
hest, Valíant frá Heggstöðum, en
knapinn var Erlingur Erlingsson
sem flestir þekktu en verr gekk að
bera kennsl á Valíant þar sem litað
hafði verið yfir hvíta nös hestsins.
Þetta uppátæki setti nokkra spennu
í keppnina fyrirfram og mikið spáð í
hvaða leyninúmer væri á ferðinni.
Nýstárlegi nafn á hnakki
Hver aðgöngumiði gilti að venju
sem happdrættismiði og voru fimm
vinningar í boði. Nýr hnakkur sem
ber nafnið Sleipnir 21,16 sem er
heimsmetstíminn sem Sigurbjörn
setti í 250 metra skeiði á HM í fyrra
en hann hefur hannað hnakkinn.
Einnig var í vinning nýtt hjálpar-
beisli sem hægt er að nota í reið
framan við hnakkinn og þá voru að
síðustu þrír folatollar í verðlaun.
Var það hjá þeim feðgum Svarti frá
Unalæk og syni hans Núma frá Þór-
oddsstöðum og Þengli frá Kjarri
sem áður var minnst á og voru þeir
allir sýndir þarna. Vakti sá síðastn-
efndi mesta athygli fyrir ýmissa
hluta sakir. Hann hefur í fyrsta lagi
aldrei komið fram áður og er mjög
litfagur og góður á tölti og brokki.
Þeir feðgar hafa oft komið fram áð-
ur og þeirra aðalnúmer, skeiðið, er
ekki hægt að sýna í skautahöllinni
sökum þrengsla.
Þaulsetudraugurinn
kominn á kreik
Nú er ístöltið búið að tryggja sig
vel í sessi, þetta er viðburður sem
hestamenn sýna mikinn áhuga, að-
stæður afar sérstakar og skemmti-
legar. Nánd áhorfenda er mikil, þeir
taka virkan þátt í keppninni og
ósparir að láta ljós sitt skína. Eitt
skyggði þó örlítið á stemmninguna.
Var þar kominn á kreik gamall
draugur sem lengi hefur viljað loða
við hestamenn og samkomur þeirra,
draugur sem lengi hefur til dæmis
leikið lausum hala í Reiðhöllinni í
Víðidal. Hér er átt við þaulsetu-
drauginn. Það virðist vera svo að
hestamenn geti ekki haldið sam-
komur án þess að ofhlaða þær dag-
skrá og breyta því sem vel getur
verið hóflega löng samkoma í
margra klukkustunda þaulsetu.
Fólk var mætt á staðinn hálfátta og
ístöltinu lauk um miðnættið. Um
leið og ljóst var hverjar urðu lyktir
mála í keppninni byrjaði fólk að
streyma út, búið að fá nóg af langri
setu og nennti ekki að horfa á verð-
launaafhendinguna. Það er löngu
sannað mál að ekkert vinnst með of-
hlaðinni dagskrá og því þarft að
kveða draug þennan niður með
harðri hendi og koma honum út úr
þessum ágætu samkomum og það
sem fyrst. Þá þótti mörgum sem
annars ágætur þulur keppninnar
færi yfir strikið í gríni sínu um ýmsa
keppendur og fleiri aðila. Er í því
sambandi gott að hafa í huga hin
fleygu orð Einars Benediktssonar
aðaðgát skuli höfð í nærveru sálar.
Annars var þetta góð samkoma í
Skautahöllinni, að mörgu leyti sú
best heppnaða til þessa.
ERÐU
DANSSYEIFLU
Á TVEIM
DÖGUM!
æstu
námskeið
um helgina
557 7700
Áhugahópur
um almenna
dansþátttöku
á íslandi
hringdu núna
BarnaP0851"1
Netfang: kod@simnetis
Heimasíða: www.simnetis/kod
„ Viðbrögð áhorfenda veittu
mér aukið öryggi“
„ÞAÐ var rosalega skemmtileg til-
finning að upplifa þessa stemmn-
ingu og það fyllti mig auknu öryggi
að fá þessi sterku viðbrögð strax í
upphafi keppninnar," sagði Magnús
Au-ngrímsson eftir hinn frækilega
sigur á hryssu sinni Filmu í Skauta-
höllinni á laugardag, „ég átti alveg
eins von á því að geta unnið ef allt
gengi upp eins og það hafði gert hjá
okkur í vetur á ís. Mér fannst hún
eiga nokkuð inni því ég keyrði hana
ekki alveg eins og hún getur. Það
getur verið áhættusamt á litlum og
hálum velli í Skautahöllinni og ég
var alltaf svolítið smeykur um að
hún kynni að detta. Eg frumtamdi
hana veturinn 96 en síðan tók Gylfi
Gunnarsson við henni og sýndi
hana á fjórðungsmótinu sem haldið
var það ár og síðan hefur henni ver-
ið haldið tvisvar þannig að ég hef
ekki notið hennar mikið sjálfur. Ég
hef ákveðið að stefna með hana í
keppni B-flokks gæðinga hjá Fáki í
vor og á landsmótið í framhaldinu ef
allt gengur eftir sem að er stefnt.
Þá mun ég halda henni í vor en hef
nú ekki ákveðið endanlega hvaða
hestur verður fyrir valinu. Það eru
nokkrir sem koma til greina en það
kemur í ljós síðar hver verður fyrir
valinu og því best að vera ekki að
nefna nein nöfn að svo komnu máli.
Þá var ekki síður gaman að bera
sigurorð af Sigurbirni Bárðarson
þeim mikla keppnismanni og fyrr-
um læriföður mínum og vinnuveit-
anda,“ segir Magnús.
Magnús var kampakátur að
keppni lokinni og ánægður
með Filmu sína.
7
dac 1 jar í...
...r 'n íæsta bíl
verður hann þinn?
907 2000
Við drögum ut glæsilegan
Toyota bíl 1 hverri viku!
SimaLottoið er ótrúlega einfalt. Eitt símtal
-og þú ert með!
Vinningarnir eru storkostlegir. Hvorki meira
né minna enbíll á viku!
Hringdu 1907 2000 - auktu vinningslíkurnar
með því að hringja oft!
Þu gætir eignast draumabilinn - hringdu strax!
'xœmSv
SímaLottó DAS