Morgunblaðið - 15.06.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 41
LISTIR
Innhverfan út
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is,
I* v e r h o 11 i
MÁLVERK BJARNI
SIGURBJÖRNSSON
Til 18. júní. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18
BJARNI Sigurbjömsson heldur
áfram að snúa innhverfunni út og
mála aftan á plexiglerið. Nú er frá-
gangurinn hins vegar vandaðri en
nokkru sinni því hann lokar mál-
verkið inn í plexikassanum, sem
hann leyfír náttúrubirtunni að lýsa
upp.
Það sem gerist við þessi umskipti
er að allt í einu öðlast málverk
Bjama þann þunga sem þau skorti
eilítið áður fyrr. Sá stimpill að Bjami
sé ekki annað en eftirlegukind
expressjónískrar abstraktlistar á sér
ekki lengur neina stoð því nú blasa
við ómældir möguleikar í allar áttir.
Koonísk vinnubrögð frá fyrri sýn-
ingum fara þverrandi því nú er eins
og Bjami leyfi sé þynnri áferð og
mýkri pensilsveiflu. Fyrir bragðið
öðlast myndir hans allt í einu aust-
rænan svip, eitthvað sem finna má í
japanskri málaralist, svo sem hjá
Jiro Yoshihara og öðmm Gutai-lista-
mönnum, ellegar jafnvel hjá ung-
verska málaranum Simoni Hantai'.
Ef til vill er það tómið í plexikass-
anum þegar það fangar sólarljósið
sem kveikir þessa austrænu ásýnd.
Alltént horfa umskiptin mjög til bóta
því þó svo málverk Bjama róist mjög
við þessa þróun og öðlist vissulega
heimspekilega dýpt á kostnað
augnablikskenndrar og snarprar yf-
irborðsleikni - og fjarlægist um leið
samtímadeigluna sem stundaræðið
færði því fyrram - getur Bjami ef-
laust omað sér við þá staðreynd að
list hans hefur allt í einu öðlast miklu
persónulegri svip.
Málaralist getur hvort sem er
aldrei þróast til lengdar sem sam-
tímakennd og deigluskotin. Stefnur
hennar spretta að sjálfsögðu fram
sem stundarafl líkt og flest annað í
fjörmiklum heimi listarinnar, en
jafnskjótt draga málarar sig inn í
skel sína og fara að fást við smábylt-
ingarnar sem blasa við þeim í smá-
heimi flatarins. Að því leytinu til er
málaralist skyldust ljóðagerð, og það
er einmitt sá þáttur í ferlinu sem við
tengjum gjarnan við austrænt tíma-
leysi.
Með þeim fáeinu verkum sem
hann sýnir við Hlemm sannar Bjami
Sigurbjömsson að hann hefur fundið
útgangspunkt úr fremur þröngri
stöðu sem getur fleytt honum langt
og víða. Hvers gætu listmálarar ann-
ars óskað sér, ég bara spyr?
Halldór Björn Runólfsson
Náðu jafnvægi
Við kynnum
Body Power
Jafnvægi hugar og líkama
Komdu og uppgötvaðu Lifting Body Spray, Foam-Up
Body Wash og Smooth Down Body Lotion.
ESTEE LAUDER
|||p!|||
WM____
' 'Sip.
wmwSlfWSBKSmSBa
:í%
í '■ ■ - <! v •
s
2
5
3
É
ALLT ANNAR BILL
Ford Focus
MUNAR 240.000 KR. Á VERÐI
OG ÖLLU EF ÞÚ LENDIR í SLYSI
Þér er óhætt að bera nýjan Accent saman við bíla af svipaðri stærð.
Hann gefur þeim ekkert eftir og er betur búinn ef eitthvað er. Þegar
þú lítur á verðið hefur Accent alltaf vinninginn.
Vél 1,5 1,4
Hestöfl 102 75
Dyr 5 5
Lengd mm 4200 4150
Breidd mm 1670 1702
Hæð mm 1395 1440
Skottrými 480 350
ABS Já Nei
Loftpúðar 2 0
CD Já Nei
Álfelgur Já Nei
Samlitir stuðarar Já Já
Fjarstýrðar samlæsingar Já Já
Rafmagn í rúðum Já Já
Verð 1.195.00 1.435.00
g
“
■
t;,
IHI
Hyundai söludeild, stmi 575 1280
Grjóthálsi 1, stmi 575 1200