Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 MGRGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fólk úr flestum verkalýðsfélögum komið á rútur: ' Skúringakona í okkar starf íGtfUrt P- Þið eruð í öruggum höndum, elskurnar mínar, ég er búin að vinna við skúringarí30 ár. Hæstiréttur um spilasali Háspennu Afskipti lögreglunnar af lokunartíma eðlileg HÆSTIRETTUR hefur sýknað ís- lenskra ríkið og lögreglustjórann í Reykjavík af kröfum Háspennu ehf. um rúmlega 7 milljón króna bætur vegna þeirra fyrirmæla lögreglunn- ar að loka bæri stöðum Háspennu, þar sem reknar voru spilavélar Gullnámu Happdrættis Háskóla Is- lands, kl. 23.30 á kvöldin. Háspenna vísaði til þess að fyrirtækið hefði orð- ið af umtalsverðum tekjum vegna þessarar ákvörðunar sem ætti sér ekki stoð í lögreglusamþykkt. Háspenna ehf. rak tvo sölustaði með sjálfvirkum happdrættisvélum í Reykjavík, í Hafnarstræti og við Laugaveg. í upphafi voru staðirnir opnir írá kl. 10 að morgni til 1 eftir miðnætti. í janúar 1994 mælti lög- reglan fyrir um að loka bæri stöðun- um kl. 23.30 samkvæmt ákvæði lög- reglusamþykktar Reykjavíkur. I bréfi lögreglustjóra rúmum tveimur árum síðar, í júní 1996, kom fram að dómsmálaráðuneytið hefði komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði lögreglusamþykktarinnar ætti ekki við um starfsemi Háspennu og teldi embættið því að ekki giltu neinar reglur um opnunartíma stað- anna. Háspenna taldi sig eiga rétt til skaðabóta vegna aðgerða lögreglu. Hæstiréttur vísar hins vegar til þess, að fyrirsvarsmönnum Hápennu hefði verið kunnugt um afstöðu lög- reglustjóra um að rekstur staðanna heyrði undir ákveðna grein lögreglu- samþykktar Reykjavíkur, 28. grein. Afskipti lögreglunar af starfsemi Háspennu hafi verið til að halda uppi reglum sem fram kæmu í þeirri grein samþykktarinnar og hafi verið liður í almennu eftirliti lögreglunnar. Hæstiréttur bendir á að Háspenna hafi ekki látið reyna á þennan skiln- ing lögreglunnar fyrr en í maí 1996 og í framhaldinu hafi lögreglustjóri fallið frá fyrri skilningi sínum. Hins vegar segir Hæstiréttur að starf- semi Háspennu hafi með réttu fallið undir ákvæði 3. mgr. 28. greinar lög- reglusamþykktarinnar þar sem seg- ir: „Rnattborð, spilakassa eða leik- tæki má reka frá kl. 09.00 til 23.30.“ Lögreglu hafi því verið heimilt að hafa afskipti af lokunartíma. Kajakferð, nudd og lúðra- blástur Ísafírði. Morgunblaðið. KVENNAFERÐ í Holt var farin laugardaginn 10. júní í tengslum við Sól- bakkahátíð í Onundar- firði. Umsjónarmenn voru Spessi ljósmyndari og Siggi Björns trúbador. Lagt var af stað úr Flateyrarhöfn og stefnan tekin á Holtsodda. Ferðin var óvenjuleg fyrir þær sakir að far- kostirnir voru kajakar. Þessi kajakróður var sér- staklega ætlaður konum og var haft á orði að þarna væri verið að fleyta kerlingum. í landi beið svo nudd við undirleik lúðrasveitar frá Stokke í Noregi. Lék hún nokkur Morgunblaðið/ Halldór Sveinbjömsson lög við mikla hrifningu Siggi Björns athugar hversu langt er eftir að Holtsodda. áheyrenda. Arsrit KRFI, 19. júní, komið út Öld tækifæra að renna upp? Anna Gunnhildur Ólafsdóttir ARSRIT Kvenrétt- indafélags ís- lands, 19. júní, er komið út. Ritið er 76 blað- síður í A-4 broti og er að hluta til litprentað. Rit- stjóri 19. júní er Anna Gunnhildur Ólafsdóttir blaðamaður. Hún var spurð hvað væri megin- þema blaðsins í ár? „Ritstjóm 19. júní tók þá ákvörðun að hafa ekk- ert sérstakt þema í blaðinu í ár. Við vildum skrifa um það sem okkur þætti áhugavert og öðrum gæti þar af leiðandi þótt áhuga- vert að lesa um. Aðeins var reynt að hafa að leiðarljósi „vídd“ og „breidd“ í efnis- vali. Að talað væri við kon- ur og karla á öllum aldri, hér á landi og erlendis í tengslum við jafnréttisbaráttuna í víðasta skilningi." -Hvað telur þú sjálf áhuga- verðasta efniðíblaðinu? „Nú kemur þú mér í vanda - því að sjálfri finnst mér ekkert endi- lega áhugaverðasta greinin sú lengsta eða sú sem fjallar um það efni sem er mest í brennidepli núna. Persónulega finnst mér hvað forvitnilegust grein eftir Natösu Babic-Friðgeirsson. Hún er fædd og alin upp í Króatíu og starfaði sem fréttastjóri við þekkta, frjálsa útvarpsstöð í Zagreb í Króatíu meðan á stríðinu í fyrrverandi Júgóslavíu stóð. í greininni segir hún frá lífshlaupi ömmu sinnar, kjarnakonunnar Zibu Gelev, og varpar með því ljósi á líf kvenna á tímum komm- únismans í fyrrverandi Júgóslav- íu. Greinin sameinar að vera ákaf- lega persónuleg en hafa um leið víðtæka skírskotun - fyrir utan að hún er frábærlega vel skrifuð. Aðrar eftirtektarverðar greinar er t.d. grein undir yfirskriftinni „hinsegin fjölskyldur“. Þar er fjallað um samkynhneigða og barnauppeldi. Löngu er orðið tímabært að varpað sé ljósi á að hundruð íslenskra ungmenna al- ast upp hjá samkynhneigðum. 19. júní vill gera sitt til þess að opna umræðuna um ólíkar fjölskyldu- gerðir til að stuðla að því að þess- ar fjölskyldur, sem og aðrar, njóti tilhlýðilegrar virðingar og þar með sjálfsagðra mannréttinda í þjóðfélaginu. Eins fagnar 19. júní nýjum fæðingarorlofslögum með ítarlegri grein og spjalli við nýbakaðan föður. Annars finnst mér að hafa verði í huga að lögin eru aðeins fyrsta skrefið í átt til nútímalegri fjölskyldustefnu í landinu. Við eigum ótrúlega langt í land á því sviði. Eftir er að leysa úr brýnum vanda í dagvistarmál- um, bæta heilsdagsskóla og leysa vanda foreldra hvað snertir gæslu barna yfir sumartímann. Stað- reyndin er að konur hafa alltaf sinnt umönnunarmálum og því ekki getað beitt sér eins mark- visst að öðrum málum sem þær hafa viljað sinna. Við komum víða við í ritinu, t.d. erum við þar með viðtal við tvær ungar konur sem eru að ljúka sjúkraþjálfa- i'anámi frá H.í. í lokaverkefni sínu rannsökuðu þær hvaða áhrif líkamsrækt hefði á líkamlega og ekki hvað síst andlega heilsu kvenna.“ - Hefur 19. júní mikla þýðingu fyrir íslenskar konur? „Kvenréttindafélag íslands var því miður ekkert sérlega áberandi fyrir nokkrum árum en á síðustu árum hefur þetta verið að breyt- ► Anna Gunnhildur Ólafsdóttir fæddist 7. september 1966 í Reykjavík. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1986, BA-prófí í ís- lensku frá H.í. 1990 og námi í uppeldis- og kennslufræði frá sama skóla 1991. Hún kenndi á námsárunum m.a. í frum- greinadeild Tækniskóla ís- lands. Að námi loknu réðist Anna sem blaðamaður á Morg- unblaðið og starfaði á inn- lendri fréttadeild frá 1991 til 1997, síðan hefur hún starfað á ritstjórn sunnudagsblaðsins. Hún ritstýrði ársriti Kvenrétt- indafélagsins 19. júní í fyrra og í ár. Maður Onnu er Davor Purusic og eiga þau tvær dæt- ur, Halldóru Önu þriggja ára og Valgerði Mariju eins árs. ast. Fleiri ungar konur hafa kom- ið í félagið og núverandi formaður félagsins, Aslaug Dóra Eyjólfs- dóttir, hefur verið mjög dugleg við að vekja athygli á þarfri starf- semi félagsins. Kvenréttindafé- lagið gengst fyrir mikill starfsemi og einn liður í því er útgáfa árs- sritsins 19. júní sem dreift er til allra félagsmanna. Fyrir þær konur sem eru félagar hefur ritið mikla þýðingu - sem og fyrir aðr- ar konur sem ritið sjá og eim með- vitaðar um málstaðinn. Þess má geta að ritið 19. júní verður selt alls staðar þar sem kvennahlaup ISI fer fram á morgun, 18. júní.“ - Hvernig fínnst þér staðan í réttindamálum kvenna vera núna? „Eftir að hafa velt því fyrir mér í tengslum við útgáfu blaðsins geri ég mér grein fyrir að ótrú- lega mikið hefur áunnist á öldinni. Staða kvenna er náttúrulega gjör- breytt frá því sem áður var eins og t.d. kemur fram í viðtali 19. júní við hina 95 ára gömlu Ragn- heiði Jónsdóttur. Við megum samt ekki gleyma því að víða um heima búa konur við ótrúlegar að- stæður. Hræðileg dæmi eru um kynlífsþrælkun eða svokallað mansal í löndum eins og Kósóvó. Og enn er auðvitað iangt í land á sumum sviðum hér heima t.d. í tengslum við launajafnrétti. Engu að síður eru konur í hringborðs- umræðum 19. júní nokkuð bjartsýnar á framtíðina. En helsta ástæðan fyrir því er að þekkingarsamfélag nútímans færir konum ýmis áður óþekkt tækifæri, t.d. með sveigjanlegum vinnutíma og vinnuumhverfi. Öld tækifæranna gæti verið að renna upp.“ Eigum langt I land á sumum sviðum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.