Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 9 Hæstiréttur um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum Lögmæt gjaldtaka vegna umframafla HÆSTIRETTUR sýknaði á fimmtudag ríkissjóð af kröfum Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna- eyjum sem taldi gjaldtöku vegna umframafla úr norsk-íslenska síldar- stofninum hafa verið ólögmæta. Héraðsdómur hafði áður dæmt ríkið til að endurgreiða Vinnslustöðinni gjaldið, tæpar 5 milljónir króna. Skip Vinnslustöðvarinnar, Sig- hvatur Bjarnason VE 81, hafði leyfi til veiða úr norsk-íslenska síldar- stofninum á grundvelli reglugerðar nr. 190/1997 sem sett var með stoð í Fólk Varði doktors- ritgerð um flöguþekju- krabbamein • Baldur Tumi Baldursson varði 5. maí sl. doktorsritgerð sína við húð- lækningaskor læknadeildar Karol- inska Institutet í Stokkholmi. Ritgerðin, sem ber nafnið „Squ- amous Cell Carcinoma in Venous Ulcers“, fjallar um svokölluð flögu- þekjukrabbamein, sem geta mynd- ast í langvarandi fótleggjarsárum. I fréttatilkynningu segir: „Að öllu jöfnu er flöguþekjukrabbamein auð- læknanlegt húðæxli. I ritgerðinni er gerð grein fyrir rannsóknum á far- aldursfræði flöguþekjukrabbameins í langvarandi fótarsárum og sýnt fram á að hættan á að fá þetta krabbamein í sárið er mjög aukin hjá þessum sjúklingum. Þar næst er hópi sjúklinga með flöguþekju- krabba í fótleggj- arsárum lýst, sjúkdómsferli og dánarorsökum, sem reyndist vera flöguþekju- krabbamein að stórum hluta, og meinafræði æxlisins. I síðasta hluta ritgerðarinnar er lýst rannsóknum á tilurð krabbameinsins og nokkur krabbameinsvaldandi ferli rannsök- uð í sýnum frá ofannefndum sjúkl- ingum. Baldur Tumi tók stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1979 og útskrifaðist frá læknadeild HÍ 1985. Hann starfar sem yfir- læknir við húðdeild Sjúkrahússins í Gávle, Svíþjóð. Hann er kvæntur dr. Sólveigu Onnu Bóasdóttur, sem starfar sem lektor í siðfræði við guð- fræðideild Uppsalaháskóla. Foreldrar Baldurs Tuma eru: Baldur Þorsteinsson skógfræðingur og Jóhanna A Friðriksdóttir fv. menntaskólakennari. Dr. Baldur Tumi hyggur á heim- ferð og mun væntanlega hefja störf í Reykjavík með haustinu. lögum um stjórn fiskveiða og lögum um fiskveiðar utan lögsögu Islands. I 4. gr. reglugerðarinnar kom fram að skipum, sem leyfi hefðu til veiðanna, væri heimilt að veiða 233.000 lestir af síld á árinu. Þá sagði í reglugerðinni að Fiskistofa myndi, þegar áætlað leyfilegt heildarmagn væri að nást, fella úr gildi öll leyfi til síldveiða. Sjávarútvegsráðherra breytti reglugerðinni með reglugerð nr. 323/ 1997 og þar var kveðið á um að við fyrstu löndun eftir 31. maí féllu úr gildi veiðileyfi þeirra skipa, sem áður hefðu landað sfld úr stofninum. Síðar setti ráðherra reglugerðir nr. 339/ 1997 og 478/1997, en í síðastnefndu reglugerðinni segir að landi skip ekki fullfermi í fyrstu löndun eftir 31. maí 1997 megi það fara í fleiri veiðiferðir enda færi samanlagður afli þess eftir 31. maí ekki yfir það magn sem mest hefði verið landað úr því skipi á sfldarvertíðinni fyrir það. Sighvatur Bjarnason YE 81 veiddi 5.283 lestir á vertíðinni. Mestur afli í einni veiðiferð var 1.634 lestir. Eftir 31. maí fór skipið tvær veiðiferðir og landaði alls 2.443 lestum, sem var 809 lestum umfram heimild. í janúar 1998 tilkynnti Fiskistofa Vinnslu- stöðinni um þetta og að til stæði að leggja á sérstakt gjald vegna um- framaflans. Mótmælti Vinnslustöðin gjaldinu og taldi það ekki eiga sér fullnægjandi lagastoð, en greiddi það með fyrirvara og höfðaði síðan mál til endurgreiðslu á fjárhæðinni. Hæstiréttur telur meginregluna vera þá að öllum íslenskum skipum séu heimilar veiðar utan lögsögu íslands með þeim takmörkunum, sem settar séu að lögum. í 4. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Islands komi skýrt fram að sjávarútvegsráð- herra skuli binda veiðar íslenskra skipa á úthafinu sérstökum leyfum við ákveðnar aðstæður. Ekki sé um- deilt að slíkar aðstæður hafi verið fyrir hendi um norsk-íslenska sfldar- stofninn við setningu reglugerðar nr.190/1997. Þá telur Hæstiréttur ótvírætt að ráðherra hafi verið heimilt að setja nauðsynleg skilyrði fyrir útgáfu leyf- anna. Heimildir skips Vinnslu- stöðvarinnar til frekari veiða en gert var ráð fyrir í reglugerð nr. 323/1997 hafi verið ívilnandi ráðstöfun útgerð- inni til handa. Veiðar skipsins eftir 31. maí 1997 umfram það magn, sem mest hafði verið landað úr einni veiðiferð á vertíðinni, hafi farið í bága við skilyrði, sem sett voru sam- kvæmt 4. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögunnar og því verið ólögmætar. Dómararnir Guðrún Erlendsdótt- ir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein kváðu upp dóminn. Hjörtur skilaði sératkvæði, en var sammála niðurstöðu meirihlutans. Flutniyigur skrifstofu jafnréttismála Enginn starfsmað- ur flytur með ENGINN starfsmanna á skrifstofu jafnréttismála hefur hug á að flytja út á land með nýrri Jafnréttisstofu en gert hefur verið ráð fyrir að skrifstof- an, sem tæki við starfsemi skrifstofu jafnréttismála, hafi aðsetur á lands- byggðinni. Elsa Þorkelsdóttir, fram- kvæmdastjóri á skrifstofu jafnréttis- mála, segir starfsmennina hins vegar hafa orðið sammála um að beita sér ekki gegn fiutningi skrifstofunnar. Sex manns starfa á skrifstofu jafn- réttismála og segir Elsa að allir hafi þeir látið í það skína að aðstæður þeirra séu með þeim hætti að flutn- ingur komi ekki til greina af þeirra hálfu. Segir hún að hvað sig varði persónulega þá sé ljóst að hún muni ekki flytja með stofnuninni út á land. Starfsfólk skrifstofunnar hefur aftur á móti orðið sammála um að beita sér ekki gegn ákvörðun um flutning. „Ég hef hins vegar leyft mér að tjá mínar skoðanir ef spurð,“ segir Elsa. „Ég tel þennan málaflokk ekki með mjög sterka stöðu innan ís- lenska stjórnkerfisins, og að það gæti því þýtt að málaflokkurinn veiktist ef skrifstofan yrði flutt út á land.“ Slíkt væri þó auðvitað ekki óhjá- kvæmilegt, að mati Elsu, því vissu- lega skipti máli hvemig að mála- flokknum er búið og hvar Jafnrétt- isstofan hefur aðsetur. Elsa segir það hins vegar grundvallaratriði í sínum huga að skrifstofa sem þessi, sem fyrst og fremst beitir fræðslu og ráð- gjöf í vinnu sem á að miða að því að jafna rétt kynjanna, sé nærri hjarta stjórnkerfisins. Á Norðurlandi vestra hefur að undanförnu verið rekin jafnréttisráð- gjöf sem hluti af eins konar tilrauna- verkefni á vegum félagsmálaráð- herra. Elsa segir að í Ijósi þess áhuga sem landsbyggðin hafi sýnt á því að fá til sín Jafnréttisstofuna hljóti sú spuming að vakna hvort ekki sé rétt að stjórnvöld láti fara fram mat á verkefninu á Norðurlandi vestra, og ennfremur hvort ekki sé ástæða til að setja niður fleiri slík verkefni á lands- byggðinni. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Beita þurfti klippum til að ná ökumanninum úr bifreiðinni en hann er ekki talinn alvarlega slasaður. Einn á slysadeild eftir umferðarslys UNGUR maður var fluttur á slysa- deild eftir allharðan árekstur á Reykjanesbraut á fimmtudagskvöld. Slysið varð með þeim hætti að bifreið sem var á leið suður Reykjanesbraut var skyndilega ekið til hliðar, en öku- maður hennar ætlaði sér að taka U- beygju og snúa við. Skall þá bifreiðin sem á eftir henni kom inn í hlið henn- ar með þeim afleiðingum að ökumað- urinn festist í bflnum. Kalla þurfti til tækjabfl Slökkviliðsins í Reykjavík til að losa manninn úr bílnum, en hann er ekki talinn alvarlega slasað- ur. Okumaður og farþegar hinnar bifreiðarinnar sluppu ómeiddir. Brotist inn í grunnskól- ann á Sauðárkróki TVEIR ungir piltar bratust inn í Ár- skóla á Sauðárkróki aðfaranótt fimmtudags. Meðal þess sem þeir tóku vora myndbandsupptökuvél og myndbandstæki auk þess sem þeir bratu upp lyfjaskáp. Þýfið er komið í leitimar og telst málið upplýst. Að sögn lögreglunnar á Sauðár- króki era innbrot í skólann býsna al- geng en annar piltanna hafði áður brotist þar inn. Mestur hluti þýfisins fannst heima hjá piltunum en auk þess fundust þar tæki til eiturlyfja- neyslu og telur lögreglan ekki ólíklegt að piltamir hafi ætlað að fjármagna eiturlyfjakaup með sölu á þýfinu. Nokkrar skemmdir urðu á skóla- húsnæðinu þegar piltamir spenntu upp hurðir og hirslur en auk þess klipptu þeir á rafmagns- og hátalara- snúrar. Lögreglan giskar á að tjónið nemi nokkrum hundraðum þúsunda. SUMARÚTSALA Mikil verðlækkun Borðstofusett, sófasett, skápar, skenkar, klukkur, skatthol o.fl. ANTIK GALLERY Vegmúla 2, sími 588 8600. VBM Euro og Visa raðgreiðslur Opið sunnudag kl. 12-16 Eldsvoði í Vesturbænum Læstist úti og maturinn brann UM níuleytið í fyrrakvöld var til- kynnt um eld í fjölbýlishúsi við Meistarvelli í Reykjavík. Húsráð- andi var við eldamennsku en þurfti að fara út með raslið. Ekki vildi bet- ur til en svo að hann læstist úti og komst ekki aftur inn í íbúðina. Brátt sá hann hvar reykur fór að berast út um glugga íbúðarinnar og kallaði til slökkvilið. Talsverðar skemmdir urðu í eldhúsinu af völd- um sóts og reyks auk þess sem brjóta þurfti upp hurðina á íbúðinni til að hægt væri að slökkva eldinn. í fyrstu var talið að um mikinn eld væri að ræða og var því talsvert lið lögreglu og slökkviliðs sent á staðinn en þegar í ljós kom að hann var minni en menn héldu í fyrstu var hluti þess kallaður til baka. Tillaga að umhverfismati Álver vid Reydarfjörð Reyðarál hf. boðar til almenns fundar í Félagslundi á Reyðarfirði mánudaginn 19. júní, kl. 20:00. Þar verður fjallað um byggingu álvers við Reyðarfjörð og kynnt tillaga að áætlun um mat á umhverfisáhrifum. Frummælendur verða fulltrúar Reyðaráls hf., Skipulagsstofnunar og verkefnisstjórnar við mat á umhverfisáhrifum. Almennur kynningarfundur um tillögu að umhverfismati álvers við Reyðarfjörð verður einnig á Grand Hótel í Reykjavík, þriðjudaginn 20. júní, kl 16:00. Austfirðingar og aðrir sem áhuga hafa eru hvattir til að fjölmenna á fundina og kynna sér málið! Reyðarál hf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.