Morgunblaðið - 17.06.2000, Side 40

Morgunblaðið - 17.06.2000, Side 40
40 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ég er bara að breyta um áherslur Rannveig Fríða Bragadóttir mezzósópran 7 ~~ er að hætta hjá Operunni 1 Frankfurt til að geta betur sinnt fjölskyldunni. Hún ræðir við Súsönnu Svavarsdóttur um þessa stóru --------------------------7----------------- ákvörðun, drauma sína og Islensku óperuna. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Rannveig Fríða Bragadóttir Mezzósópransöngkonan Rann- veig Fríða Bragadóttir gerir yfírleitt stuttan stans þegar hún kemur til landsins til að syngja á tón- leikum og nú síðast þegar hún tók þátt í Stórsöngvaraveislunni í Laug- ardalshöll í lok Listahátíðar í Reykja- vík. Stansinn var ekki nema þrír dag- ar en nægði þó til þess að Morgunblaðið náði að króa hana af í viðtal til að forvitnast um hagi hennar úti í hinum stóra heimi. Rannveig Fríða hefur verið fast- ráðin við Óperuna í Frankfurt síðast- liðin þrjú ár, var áður við Vínaróper- una í fjögur ár en segist núna ætla að söðla um og vinna í lausamennsku. Hún er búsett í Vín í Austurríki og hefur þvi verið fjarri eiginmanninum og sonunum tveimur, sex og átta ára. Þegar Rannveig er spurð hvort hún hræðist ekki óöryggið sem því fylgir segist hún hafa verið í lausamennsku á þeim árum sem hún var að eignast synina, svo hún sé ekki alveg óund- irbúin því sem koma skal. „Þá söng ég mikið á tónleikum í Austurríki, Belgíu og á íslandi," segir hún. „A tímabili var ég farin að fljúga einu sinni í mánuði til íslands og eftir þetta tímabil fannst mér gott að fara á samning í Frankfurt.“ í Frankfurt hefur Rannveig Fríða sungið fjölda hlutverka, byrjaði á Rosinu í Rakaranum frá Sevilla og segir það hafa verið mjög skemmti- legt vegna þess að aðalmótsöngvari hennar var Gunnar Guðbjömsson. „Við vissum ekkert hvort af öðru fyrr en rétt áður en æfingar hófust og það urðu vissulega fagnaðarfundir." Fúlegg og æstir áhorfendur En hvað er eftirminnilegast frá ár- unum í Frankfurt? „Það er nú svo ótal margt. Einni uppfærslu mun ég þó aldrei gleyma. Það var gamanóperan La Pericole eftir Jacques Offenbach. Það var leikhússtjóri Leikhússins í Frankfurt sem setti hana upp en hann hafði staðið í miklu rifrildi við gagnrýnend- ur og blaðamenn. Hann var svo óvin- sæll í borginni að það lá við að það væri fleygt fúleggjum á sviðið í lokin. í sýningunni var líka einn þekktasti alþýðuleikari Þjóðverja frá því á ár- um áður þegar hann var með vinsæl- an sjónvarpsþátt. í sýningunni var hann með kabarettískt innlegg í sýn- inguna. En það gekk ekki alveg snurðulaust fyrir sig, því áhorfendur fóru að rífast við hann og síðan að ríf- ast hver við annan úti í sal. Sýningin fékk alveg ferlega dóma, að minnsta kosti allir nema við söngvaramir. Við sluppum með skrekkinn og þetta var athyglisverð reynsla. Við vissum reyndar fyrirfram að sýningunni yrði ekki vel tekið en það var mjög sér- stakt að upplifa þessi ósköp.“ I Frankfurt segist Rannveig Fríða hafa sungið þvers og krass í gegnum lýríska mezzófagið. „Þetta hefur ver- ið mjög skemmtilegur og lærdóms- ríkur tími og ég kynntist mörgum góðum leikstjóram og leikuram sem ég veit að ég á eftir að vinna meira með í framtíðinni en það var mál að hætta. Ég réð mig upphaflega bara til tveggja ára en framlengdi svo samninginn um ár og var ekki til í að framlengja aftur.“ Ekki hægt að vera móðir í fjarlægð Þegar Rannveig ákvað að láta gott heita í Frankfurt buðu önnur ópera- hús henni fastan samning en hún ákvað að sinna ekki slíku að sinni. Þegar hún er spurð hvers vegna hún hafí tekið ákvörðun um að hætta seg- ir hún persónulegar ástæður fyrir því. „Það er búið að ráða tónlistarstjóra sem leggur áherslu á ítölsku óper- una. Fyrir okkur í lýrísku deildinni þýðir það að það verða ekki nógu mörg spennandi verkefni til að takast á við. Að minnsta kosti ekki nógu spennandi til að ég geti réttlætt það fyrir mér að vera áfram í Frankfurt." Þarftu að réttlæta það? „Bæði og,“ segir Rannveig hugsi. „Það má segja að maðurinn minn hafi verið einstæður faðir í þijú ár og það hefur gengið mjög vel hjá honum. Auk þess að vera myndlistarmaður er hann kennari og hann er mjög hæfur í barnauppeldi. En það má segja að ég hafi fengið að nýta mín tækifæri og hann vill auðvitað fá að nýta sín. Svo er bara ekki hægt að vera móðir í fjarlægð. Það var auð- vitað erfitt að taka þessa ákvörðun en þar sem verkefnavalið sem er fram- undan hjá Operanni í Frankfurt er mér ekki í hag auðveldaði það ákvörðunina.11 Eldri sonurinn, Philip Alexander, er átta ára og hefur verið í skóla í tvö ár, yngri sonurinn, Kristof Maria, byrjar í skóla í haust. Þeir hafa verið í heilsdagsskóla og í dagvist allan dag- inn síðastliðin ár en Rannveig var ekki tilbúin til að láta uppeldi son- anna af hendi í slíkum mæli. „Það var stundum óþægilegt að koma heim í fríum,“ segir hún. „Strákarnir vora alltaf í mjög góðu jafnvægi þegar þeir voru einir heima með pabba sínum en um leið og ég kom heim komust þeir úr jafnvægi. Þá bratust konfliktamir út og vöktu mig rækilega til umhugsunar um for- gangsröðun. Það eru mörg dæmi þess í gegnum tíðina að söngkonur hafi jafnvel hætt í langan tíma að syngja til að geta annast uppeldi barna sinna. Ég vissi að ég yrði að hugsa málið mjög gaumgæfilega. Það eru forréttindi að vera kona og fá að ganga með böm og fjölskyldan mín er það dýrmætasta sem ég á. Það er ekkert þess virði að fóma henni fyrir það og ég hef séð svo mörg dæmi um söngvara og hljóðfæraleik- ara sem eru famir að eldast og sitja einmana og bitrir eftir að hafa fórnað öllu fyrir ferilinn. Ég get ekki hugsað mér slíka framtíðarsýn. Búin að svala vissri þrá Það var ekki alltaf jafn skemmti- legt að vera ein í framandi borg, fjarri fjölskyldunni. Það var vissu- lega gott að geta starfað í friði og ró, en oftar en ekki fann ég til tómleika og stundum sat ég í leikhúsinu öll kvöld vegna þess að mig langaði ekki til að vera ein, sem var auðvitað lær- dómsríkt um leið. Núna gerþekki ég það líf sem fylg- ir því að elta framann og kosturinn sem ég bý við þegar ég sný heim er sá að ég er búin að svala vissri þrá og því finnst mér ég geta svalað móðurþörf- inni betur.“ En þetta er mjög afgerandi ákvörðun? „Já, en það var einkum eitt sem hafði mikil áhrif á þessa ákvörðun. Tengdafaðir minn dó í fyrra og ég fór til Austurríkis til að vera viðstödd jarðarförina hans. Hún var mikil reynsla fyrir mig. Síðustu árin hef ég misst af svo mörgum afmælum, jól- um, páskum og öðram hátíðum í fjöl- skyldunni og það var bara eðlilegur hluti af mínu lífi. En jarðarförin hans fór fram í litlum bæ úti á landi, þar sem tengdafaðir minn hafði verið kaupmaður. Þótt hann hefði verið á eftirlaunum í tuttugu ár komu svo óskaplega margir í jarðarforina hans og það vora allir svo snortnir yfir því að hafa fengið að kynnast honum. Því laust niður í huga mér að það merkilegasta sem maður geti gefið sjálfum sér og öðram í hfinu sé tími og gæði í samskiptum." En þú hlýtur að hafa vitað það fyr- ir. „Ég hugsaði aldrei um það. Ég er alin upp á íslandi og veistu, það er ætlast til svo mikils af íslenskum kon- um að þær vita kannski oft ekki sjálf- ar hvað þær vilja, hvert hlutverk þeirra er og hvað þær geta leyft sér þegar kemur að því að velja stefnu fyrir eigið líf. Ég vil segja við kyn- systur mínar á Islandi: Látið ekki taka tímann með börnunum frá ykk- ur! Við konur þurfum að gíra okkur niður Það er yndislegt að gefa af sér á leiksviði en í dag segi ég: Við konur þurfum að gíra okkur niður. Ég er ekkert að segja konum að fara aftur inn á heimilin, heldur að reyna frekar að finna leið til að njóta sín án þess að fórna heimilinu. Sjálfsímynd og sjálfsvirðing er að mínu áliti of mikið bundin við starfið og starfsframann. Ég er mjög heppin. Ég er mjög vel gift, manni sem er sérfræðingur í að meðhöndla böm, en ef ég kenni son- um mínum ekki mín lífsgildi núna, get ég engin áhrif haft á það sem ger- ist þegar þeir komast á unglingsárin. Ef ég tek þá áhættu að missa þá lausa niður í bæ í Vín á unglingsárunum jafngildir það því að fara með þá í dýragarðinn og sleppa þeim inn í ljónabúrið. Það era forréttindi að eyða tímanum meö bömunum sínum. Það er staðreynd sem oft er litið framhjá." Hvað með rétt kvenna til að njóta hæfileika sinna í námi og starfi? „Ég er sammála því að það séu sjálfsögð mannréttindi - en ég er ekki til í að fóma réttinum til að njóta barnanna minna. Ég hlakka svo til að geta farið á fætur á morgnana, tekið í höndina á htla kútnum mínum og leitt hann í skólann." En ekki leggurðu sönginn á hill- una? „Nei, alls ekki, ég er bara að breyta um áherslur - og vinna kannski við það sem mig langar meira til að gera. Mig langar til dæm- is til að halda áfram að vinna með Gerrit Schuil og taka upp með honum annan disk. Mig langar ekki til að vinna rútínuvinnu í stóra óperuhúsi og gæti frekar sætt mig við að vinna í litlu óperahúsi með áhugaverðu fólki. Mig langar til að halda utan um ljóða- sönginn, jafnvel kynna íslenska tón- list meira á erlendri grund." Samvinnan við Gerrit Schuil Rannveig Fríða söng síðast í óperu hér heima í febrúar síðastliðnum þeg- ar hún söng titilhlutverkið í óperanni Lucretiu eftir Britten. „Ég fór í óv- issuferð með Gerrit og það var vel þess virði,“ segir hún og bætir við eft- ir smáumhugsun: „Það var mér mikið áfall þegar Gerrit hætti hjá íslensku óperanni. Sumir myndu segja að það hefði verið eðlilegt þegar Gerrit setti upp Lucretiu að ég syngi titil- hlutverkið, aðrir myndu segja að þetta væri klíkuskapur vegna náinn- ar vináttu okkar síðastliðin ár. En sannleikurinn er sá að samvinna okkar Genits varð ekki til fyrir vin- skap, heldur með því að hann hringdi í mig einn góðan veðurdag og bað mig að syngja á glæsilegri Schuberthátíð sem hann hélt í janúar 1997. Við héld- um saman tónleika með Schubert- sönglögum, sem verða alla mína ævi með mínum dýrmætustu stundum sem tónlistarmaður. Eftir þessa tónleika fengum við til- boð um að gera geisladisk með sama efni og síðan höfum við unnið þrenna ljóðatónleika saman. Ut úr þessari samvinnu hefur að sjálfsögu orðið til mjög sterkt og gott vinasamband. Ég ber ótakmarkað traust til Gerrits sem tónlistarmanns. Hann hefur mikla þekkingu á tónlistarvali og mikla þekkingu á söng og söngvur- um, auk þess að vera frábær tónlist- armaður. Mér fannst því mjög stórt og ánægjulegt skref stigið þegar hann tók við sem listrænn stjómandi Is- lensku óperunnar og það var ekki vegna minna eigin hagsmuna. Á þeim tíma átti önnur söngkona að syngja Lucretiu og ég var mjög sátt við það. En svo afþakkaði hann hlutverkið og Gerrit hringdi í mig með fremur htl- um fyrirvara og spurði hvort ég væri til í að syngja Lucretiu. Ég sagði það sem ég hefði ekki sagt við neinn ann- an: „Ef þú heldur að það henti mér er ég tilbúin til að gera það. En þú verð- ur að vera alveg viss, að öðram kosti gerir þú hvorki mér, þér né Islensku óperanni greiða.“ Útfararstofnun helsti vinnuveit- andi söngvara á Islandi „Mér fannst Gerrit blása h'fi í ís- lensku óperuna í vetur. Hann var ekki búinn að vera þar nema í mánuð þegar hann hafði skipulagt kammer- óperu með Signýju Sæmundsdóttur, tónleika í október og desember og þessa ópera Brittens. Ég þekki mjög vel þau plön sem hann hafði fyrir framtíðina og ég harma það að hann skuli ekki hafa fengið tækifæri til að framfylgja þeim. Mér finnst Islenska óperan vera í vanda. Hún hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Stærsti vandi Islensku óperunnar er að mínu mati húsakosturinn. Flóra íslenskra söngvara er orðin mjög fjöl- breytt. Hún hefur breyst svo mikið á síðastliðnum tíu áram. Við eigum orðið mikinn fjölda af íslenskum at- vinnusöngvuram, mun fleiri en nokk- urn tímann áður. Og hvar er þetta fólk? Það er í útlöndum, starfandi við mörg þekktustu óperuhús í Evrópu. Hver er svo aðalatvinnurekandi ís- lenskra söngvara sem starfa á Is- landi? Útfararstofnun. Islenskir söngvarar eiga engan samastað á Islandi og Islenska óper- an er ekki samnefnari fyrir íslenska atvinnusöngvara. Operahús er ekki fyrirtæki. Það er listastofnun; það er menntastofnun. Til að koma Islensku óperunni upp úr þeirri lægð sem ég tel hana vera í þarf mjög klóka Ust- ræna stjórnun. Til að blása lífi í svona listastofnun þarf mann sem gerþekk- ir viðfangsefnið. Það er stór munur á því að stjórna óperahúsi og leikhúsi annars vegar og listahátíð hins vegar. Það er svipaður munur og á því og að kaupa tilbúna hluti í verslun sem maður rekur og að selja þar eigin hönnun. Óperan má aldrei snúast um flottheit og uppákomur Ég lít svo á að Gerrit hafi haft allt til að bera til að gefa svona húsi prófíl. Það era svo óskaplega margir þættir í starfsemi svona húss sem fólk sér engan veginn fyiir. Þá er ég bara að tala um listrænu hliðina. Starfsemi óperuhúss þarf að skipu- leggja fram í fingurgóma að minnsta kosti tvö ár fram í tímann. Ef ætlunin er að fá íslenska söngvara - sem áhorfendur eiga rétt á - þá era þeir flestir starfandi erlendis og því þarf að skipuleggja langt fram í tímann, a.m.k. tvö ár, því það eru kannski ekki nema einn eða tveir söngvarar sem passa inn í hvert hlutverk. Það er einmitt þetta sem oft hefur strand- að á hér, hver sem ástæðan kann að vera. Ég vildi óska þess að íslenska óperan fengi listrænan stjómanda sem við getum treyst og erum tilbúin til að fara í óvissuferð með. Óperan má aldrei falla í þá gryfju að snúast um flottheit og uppákomur. Óperan er fyrst og fremst leikhús. Ég sá að minnsta kosti eina uppfærslu í Þjóð- leikhúsinu í vetur, Krítarhringinn, sem mér fannst frábær uppfærsla og dæmi um þau gæði sem ég vil sjá hjá íslensku óperanni. Vonbrigði með viðbrögð kolleganna Ég veit að þetta er skoðun margra en það sem olli mér mestum von- brigðum við fráhvarf Gerrits frá Is- lensku óperanni vora viðbrögð kollega minna sem starfa hér heima. Þeir hafa sennilega ekki þor til að taka afstöðu. Mér finnst dapurlegt að það skuli sitja svo mikið í fyrin-úmi að fá að syngja að það sé sama með hverjum, undir hvaða kringumstæðum og fyrir hvaða smáupphæð sem er. Ég man að það var einu sinni ráðist harkalega að Kristjáni Jóhannssyni fyrir launa- kröfur og til að byija með fannst mér, eins og öðrum, að hann gæti alveg slegið af kröfum sínum fyrir íslenska áhorfendur. En í dag er ég honum þakklát vegna þess að hann náði með þessu að benda íslenskum ráðamönn- um á það hver eru laun toppsöngvara erlendis. Hann hefur riðið á vaðið fyr- ir okkur hin vegna þess að við eram öll brennd því marki að sætta okkur aðeins við hluta af því sem við fáum erlendis þegar við komum heim til að syngja.“ Hvað heldurðu með Islensku óper- una? „Það liggur í hlutarins eðli að ég ber hag íslensku óperannar fyrii- brjósti, en tíminn einn mun Ieiða í ljós hvort ákvarðanir sem teknar hafa verið séu réttar. Mistök gætu reynst dýrkeypt.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.