Morgunblaðið - 24.08.2000, Page 6

Morgunblaðið - 24.08.2000, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kennsla að hefjast f framhaldsskólum landsins Kátir að fyrstu kennslu- stund lokinni KENNSLA er hafin í mörgum framhaldsskólum landsins og líkt og vængjaþytur farfuglanna boð- ar vorkomu boðar ungt fólk með skólatöskur á bakinu og bækur í farteskinu gjarnan komu hausts- ins. Blaðamaður Morgunblaðsins brá undir sig betri fætinum og sótti heim nemendur í mennta- skólunum við Hamrahlíð og í Kópavogi. Kátina rfkti meðal nemenda í skólunum og voru ungmennin í óðaönn að ræða stundaskrár sín- ar, nýafstaðin sumarleyfi og framtíðarhorfur. Þeir félagar Benedikt Þórðar- son og Orri Jökulsson, nýnemar við Menntaskólann við Hamrahlið, voru glaðir í bragði að fyrstu kennslustund lokinni, en skólinn var settur í gærmorgun. Benedikt og Orri eru sextán ára og stund- uðu áður nám við Austurbæjar- skóla og Réttarholtsskóla. Fyrsta kennslustundin sem þeir Benedikt og Orri sóttu í nýja skólanum var franska og voru fé- lagarnir allskostar sáttir eftir hana. „MH er eini skólinn sem kom til greina," segir Orri er hann er spurður hví Menntaskól- inn við Hamrahlíð hafi orðið fyrir valinu og er hann augljóslega ánægður með ákvörðun sína. Þrátt fyrir að fjögurra ára nám bíði Benedikts hefur hann nú þeg- ar tekið ákvörðun um hvað tekur við eftir stúdentspróf því hann hyggst læra flugvirkjun. Orri og Benedikt óttast ekki að námið verði þeim ofviða og telja sig vel geta ráðið við aukið álag og breyttar aðstæður sem fylgja því að vera komnir í menntaskóla. í Menntaskólanum í Kópavogi hitti blaðamaður Morgunblaðsins fyrir fjórar stúlkur, Þóru Mar- gréti Sigurðardóttur, Ingibjörgu Eysteinsdóttur, Ingu Dís Richter og Ásdísi Ólafsdóttur, sem allar eru þriðja árs nemar. Þær hyggj- ast leggja land undir fót að loknu námi í Menntaskólanum í Kópa- vogi, ferðast víða og skoða heim- inn. Þær segjast einnig geta hugsað sér að leggja stund á frekara nám, hvort sem það yrði heima eða erlendis. Stúlkurnar eru nú hálfnaðar með nám sitt í skólanum og eru því nokkuð reyndar sem mennta- skólanemar. Þær kunna vel við sig í skólanum og segja félags- skapinn góðan. Þegar þær eru spurðar hvort ekki sé kostnaðar- samt að vera menntaskólanemi segjast þær ekki vera á flæðiskeri staddar. Þær reikna með að bóka- kostur þessa árs verði ódýrari hjá þeim en fyrri ár og giska á um 15.000 krónur. Þær hafa allar unnið baki brotnu í sumar og lagt fyrir. Morgunblaðið/Golli Þóra Margrét, Ingibjörg, Inga Dís og Ásdís hyggjast skoða heiminn að námi loknu. Morgunblaðið/Golli Orri og Benedikt voru ánægðir eftir fyrstu kennslustund sína í Mennta- skólanum við Hamrahlið. Nefnd sem Qallar um tekjustofna Niður- stöður í næsta mánuði JÓN Kristjánsson, formaður nefnd- ar, sem félagsmálaráðherra skipaði til að gera úttekt á skiptingu tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga, segir að stefnt sé að því að nefndin skili félags- málaráðherra skýrslu í næsta mán- uði. Segir hann að of snemmt sé að spá í hvort nefndin komist að sameig- inlegri niðurstöðu eða hver niðurstað- an verður. Jón sagði ljóst að flutning- ur grunnskólans til sveitarfélaganna hefði í för með sér að kröfur um aukin fjárútlát til grunnskólanna lentu á þeim, á móti því bæri hann ekki. Hvað það varðaði, að fjármagns- tekjuskattur rýrði útsvarstekjur sveitarfélaganna, sagði Jón að það lægi fyrir úttekt á því að ýmsar breyt- ingar hafi haft tekjuskerðingu fyrir sveitarfélögin í för með sér upp á einn til einn og hálfan milljarð. Sagði hann að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hefði nefnt 4 milljarða í þessu sambandi. „Við erum að vinna að því hörðum höndum að einangra það hver staða sveitarfélaganna er, hvað hún hefur versnað mikið og hver vöntunin er,‘ sagði Jón. Nefndin hefur einnig til umfjöllun- ar fyrirliggjandi breytingar á lögum, sem kveða á um að fasteignamat á hveijum stað á landinu verði lagt til grundvallar álagningu fasteigna- skatts. Hingað til hefur mat fasteigna á höfuðborgarsvæðinu verið gnmd- völlur álagningar úti á landi. I Flest slys á gatnamótum við Dragháls Á LISTA, sem umferðardeild borgarverkfræðings hefur tekið saman, kemur fram að á árunum 1994-1998 urðu flest slys miðað við umferð á gatnamótunum Drag- háls-Hálsabraut, sem eru gatna- mót með biðskyldu. Þar urðu 1,34 slys á hverja milljón ökutækja, sem fóru um gatnamótin. Næst- mesta slysatíðnin var á gatnamót- unum Breiðholtsbraut-Suðurlands- vegur, sem eru gatnamót með stöðvunarskyldu. Þar var slysa- tíðnin 1,02. Ef eingöngu er litið á fjölda slysa án tillits til umferðarþunga eru gatnamótin Kringlumýrar- braut-Miklabraut í fyrsta sæti. Þar urðu 45 slys á fimm árum. Næstflest slys urðu á gatnamótun- um Bústaðavegur-Hringbraut eða 33. Hvor tveggja eru gatnamót með Íjósum. í september ár hvert gerir um- ferðardeild borgarverkfræðings athuganir á umferðarþunga á ýms- um stöðum í borginni og er fjöldi bíla á sólarhring talinn. Aukinn umferðaþungi Stefán Agnar Finnsson, verk- fræðingur í umferðardeild borgar- verkfræðings, segir að til að meta breytingar á umferðarþunga í borginni megi helst skoða gatna- mót á Kringlumýrarbraut. Það verði þó að gera með þeim fyrir- vara að talningarnar segja aðeins til um breytingar á þessari til- teknu braut en ekki í borginni sem heild. Til að leggja óyggjandi mat á breytingu á umferðarþunga í borginni þurfi að framkvæma við- amikla könnun á ferðavenjum borgarbúa. Ef litið er á gatnamótin á Kringlumýrarbraut sést að árið 1999 fóru 15.024 fleiri bílar þar um en árið 1990 á einum sólarhring eða 169.749 bflar. Miðað við 1997 er aukningin 8.134 bílar á sólar- hring. Breytingar á öðrum stöðum í borginni eru á sömu lund. Aðeins á einu mælingarsvæði sem liggur vestan Lækjargötu fækkar bílum frá 1997. Árið 1997 fóru 95.294 bflar þar um á sólar- hring en 1999 voru þeir 90.636. Þessar niðurstöður eru þó ekki áreiðanlegar, þar sem talningar- staðir eru færri 1999 en 1997. Landsmenn eiga nú fleiri öku- tæki en áður og er aukinn umferð- arþungi í samræmi við það. Ekki liggja fyrir tölur um fjölda öku- tækja í Reykjavík en samkvæmt tölum frá Skráningarstofunni var skráður heildarfjöldi ökutækja á landinu í fyrra 199.293 en var 175.573 árið 1997. Fólksbifreiðar voru 151.409 í fyrra en 132.468 ár- ið 1997. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði, sem það fær frá lögreglu, hefur óhöppum fjölgað verulega síðan 1990; þó ekki reglu- lega á milli ára. Árið 1997 urðu 2.115 phöpp í umferðinni í Reykja; vík. Árið eftir urðu þau 2.705. í fyrra varð 3.451 umferðaróhapp í Reykjavík. Hættulegustu gatnamótin í Reykjavík O 1-5 m.v. flölda slysa 1994-1998 O 1-5 m.v. slysatíðni 1994-1998 Borgartún/ Kringlumýr. —Dragháls/ 7 HálSabraut Bústaðavegui Isvegur Stefnt að slysalausum degi í umferðinni í höfuðborginni í dag Tvöfaldur fjöldi lög- reglumanna við eftirlit SLYSALAUS dagur í umferðinni í Reykjavík er yfirskrift átaks, sem lögreglan í Reykjavík stendur að í dag. Munu um 50 lögreglumenn á 26 ökutækjum vera á götum borgarinn- ar við umferðareftirlit, sem er nær tvöföldun miðað við það, sem venju- legt er að sögn Karls Steinars Vals- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Hinn 26. ágúst í fyrra voru 25 um- ferðaróhöpp bókuð hjá lögreglunni í Reykjavík. í þremur tilfellum urðu slys á fólki. Fyrir utan óhöpp komu upp 43 mál, sem tengdust umferð- inni eða alls 68 mál. Þessi fimmtudagur var vel yfir meðallagi því að jafnaði voru um- ferðaróhöpp 15 talsins árið 1999 og 13 árið 1998. Það sem af er þessu ári hafa að jafnaði 16 óhöpp verið skráð á degi hverjum. Umræddan fimmtudag fyrir ári voru 39 óhöpp í Reykjavík skráð hjá tryggingafélögunum Sjóvá-Almenn; um, VÍS og Tryggingamiðstöðinni. í þessum tilfellum skemmdust 92 öku- tæki og námu tjónabætur 9,8 mil- Ijónum króna eða 251 þúsund á óhapp. Mismunur á skráningu lög- reglu og tryggingarfélaganna helg- ast af því að ekki eru öll óhöpp til- kynnt til lögreglu. Á öllu landinu, Reykjavík meðtal- in, urðu 67 óhöpp og slösuðust 6. Skemmd ökutækí voru 144 og námu tjónabætur 29,8 milljónum króna eða 444 þúsundum í hverju tilfelh. Þetta sýnir að óhöpp eru að jafnaði alvarlegri úti á landi en í Reykjavík. Átak lögreglunnar í Reykjavík skír- skotar því jafnt til ökumanna a landsbyggðinni sem í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.