Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 84
C O Y O T E
U O L Y
Frumsýnd á morgun
Siðan 1972
Leitið tilboða!
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBL.lS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Viðræður fulltrúa Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Kópavogs og Bessastaðahrepps
Kanslari
Fyrsti
fundur
um sam-
einingu
FULLTRÚAR Hafnarfjarðar,
Kópavogs, Garðabæjar og Bessa-
staðahrepps héldu fyrsta fundinn
um sameiningarmál í Bessastaða-
hreppi í gær. Akveðið var að funda
aftur eftir mánuð, en þangað til ræða
fulltrúarnir við bæjarstjórnir síns
sveitarfélags.
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir að rætt hafi
verið um framhald málsins.
jrAuðvitað fékkst engin niðurstaða
í þetta mál, enda er það á byrjunar-
stigi auk þess að vera geysilega viða-
mikið. Á þessum fyrsta fundi var
stefnan mörkuð fyrir næstu fundi.
Ég held ég megi segja að vilji sé fyrir
hendi til að skoða málið áfram og
leggja vinnu í það. Það er hins vegar
allt of snemmt að segja hvemig
endapunkturinn verður,“ segir
Magnús.
Hann segir að á næstu mánuðum
muni koma í Ijós hversu stór samein-
ingin verður, eða hvort af henni
verður yfir höfuð.
Guðmundur G. Gunnarsson, odd-
viti Bessastaðahrepps, segir að í
sjálfu sér hafi ekki orðið nein niður-
staða af fundinum, önnur en að menn
hverfi til síns sveitarfélags og kynni
stöðu málsins. „Okkur finnst tíma-
bært að málið sé tekið til alvarlegrar
umræðu og fái afgreiðslu, hvemig
sem hún verður," segir hann.
--------------------
Dollarinn
aldrei hærri
gagnvart
krónu
KRÓNAN veiktist í gær gagnvart
Bandaríkjadal og varð dalurinn dýr-
ari en hann hefur verið áður, eða
80,90 krónur. í lok dags hafði hann
þó veikst aftur gagnvart krónunni og
var kominn í 80,35 krónur.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Eirikur Guðnason, bankastjóri
Seðlabankans, að skýringar á þessu
væra tvær. Annars vegar sú að krón-
an hafi sigið í sumar, sérstaklega í
'júní og júlí. Hún sé þó enn í sterkari
hluta bandsins, þ.e. sterkari en mið-
gengi það sem sett var við gengisfell-
ingu árið 1993, en krónunni er leyft
að víkja 9% frá miðgengi í báðar átt-
ir.
Maestro
Morgunblaðið/Ásdís
Fulltrúar sveitarfélaganna við upphaf fundarins í gær: Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, Guð-
rún Hannesardóttir, Bessastaðahreppi, Einar Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ, Ólafur Briem, bæjarrit-
ari í Kópavogi, Bragi Sigurvinsson, Bessastaðahreppi, Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Guð-
mundur G. Gunnarsson, oddviti Bessastaðahrepps, og Gunnar Valur Gíslason, sveitarstjóri í Bessastaðahreppi.
Þýskalands
til Islands
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, kemur til íslands 5.
september og mun ræða við Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
Schröder mun hafa hér viðkomu á
leið sinni á leiðtogafund Sameinuðu
Þjóðanna, sem stendur frá 6. til 8.
september. Kemur hann á eigin vél
um hádegisbil og heldur af landi
brott síðdegis.
Forsætisráðherra mun taka á
móti Schröder og er að sögn Ólafs
Davíðssonar, ráðuneytisstjóra í for-
sætisráðuneytinu, verið að leggja
drög að því að þeir geti ræðst við á
Þingvöllum.
Þetta verður þriðji fundur Davíðs
og Schröders frá því Schröder varð
kanslari auk þess sem þeir hafa hist í
kringum leiðtogafundi. Einnig hitt-
ust þeh’ þegar Schröder kom hér er
hann var forsætisráðherra Neðra-
Saxlands.
Hugsanlegt er að Joschka Fisch-
er, utami'kisráðherra Þýskalands,
verði með Sehröder í för, en það hef-
ur ekki verið staðfest enn.
Samdráttur í þorskneyzlu í Bandaríkjunum um 20%
Töluverðar birgðir
og verð hefur sigið
NEYZLA á þorski í Bandaríkjun-
um hefur dregizt saman um 20%
frá árinu 1998 til 1999, en það svar-
ar til um 24.000 tonna af flökum á
ári. Það er um það bil einn þriðji af
þorskafla íslendinga. Samdráttur-
inn stafar bæði af þorskskorti á ár-
inu 1998 og fram á síðasta ár og
minnkandi eftirspurn vegna hás
verðs, sem reyndar hefur sigið að-
eins.
Töluverðar birgðir era enn af
fiski í Bandaríkjunum, enda dregur
hátt gengi dollarsins fisk í miklum
mæli inn til Bandaríkjanna. Gera
má ráð fyrir minnkandi innflutn-
ingi á haustmánuðum vegna
minnkandi kvóta víða og aukinni
sölu eins og venjulega á þessum
árstíma.
Selur áttundu hverja þorsk-
máltíð í Bandaríkjunum
Jón Friðjónsson, innkaupastjóri
Coldwater, segir að þessi staða hafi
ekki auðveldað fyrirtækinu starf-
semina, enda hafi það flutt inn mik-
ið af þorski frá íslandi fyrir síðustu
áramót.
ÞITT FÉ
HVAR SEM
ÞÚ ERT
„Þetta er engin kreppa, en það
hefur vissulega verið fremur lítill
áhugi á þorski á því verði, sem ver-
ið hefur í gildi. Þrátt fyrir mikinn
samdrátt í heildina hefur Coldwat-
er aukið markaðshlutdeild sína og
við erum nú að selja áttundu
hverja þorskmáltíð í Bandaríkjun-
um. Birgðahald er hluti af góðri
þjónustu, bæði við framleiðendur á
Islandi og kaupendur í Bandaríkj-
unum. Við verðum að eiga fiskinn
þegar hans er þörf og við gerum
ekki ráð fyrir öðru en það lifni
LEIÐANGRI björgunarsveitar-
manna frá breska flughemum í
Skotlandi og Islendinga, alls 12
manns, að flaki breskrar sprengju-
flugvélar _sem fórst í jökli á hálend-
inu milli Öxnadals og Eyjafjarðar,
lauk sfðdegis í gær og náðist það
markmið hans að safna saman lík-
amsleifum mannanna fjögurra sem
fljótlega yfir sölunni á ný og verðið
haldist," segir Jón Friðjónsson.
Engin ástæða til
að örvænta
Jón segir að alvarlegasta málið
sé hve mikilli markaðshlutdeild
þorskurinn hafi tapað á síðustu
misserum, því aðrar tegundir hafi
komið í staðinn, til dæmis eldislax,
sem er næstum því á sama verði og
þorskurinn og aðrar tegundir úr
eldi. Það geti því tekið töluverðan
tíma að vinna þorskinum sína hlut-
með vélinni fórust, að svo miklu
leyti sem það var hægt. Meðal þess
sem fannst við flak vélarinnar var
armbandsúr flugstjórans, Arthurs
Round, en líklegt er að hann hafi
fengið það í afmælisgjöf frá fóður
sinum á 19 ára afmælisdaginn sinn,
en hann var fæddur í febrúar árið
1915.
deild á ný. Hann segir einnig að
með haustinu minnki framboðið,
enda litlar veiðiheimildir eftir hjá
Norðmönnum og Rússum í Bar-
entshafi.
Það sé hins vegar eðlilegt að
fiskurinn leiti til Bandaríkjanna
vegna hins háa gengis dollarans og
slakrar evru, en engin ástæða sé til
að örvænta.
Það sé ekki spurning hvort jafn-
vægi myndast milli framboðs og
eftirspurnar á ný, heldur bara hve-
nær og hvar það jafnvægi myndast.
Vodka í
stað raf-
skauta
LÖGREGLAN í Borgarnesi
taldi sig í fyrradag vera um
það bil að upplýsa umfangs-
mikið smyglmál þegar til-
kynning barst um mikið af
vodka í gámi við álver Norð-
uráls á Grundartanga.
Þegar lögreglumenn könn-
uðu málið nánar reyndust
hafa orðið mistök við upp-
skipun. Gámurinn átti að ber-
ast innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík en var af einhverj-
um ástæðum settur á land á
Grundartanga. Þegar starfs-
menn álversins opnuðu gám-
inn, sem þeir hugðu innihalda
rafskaut, blasti við þeim full-
ur gámur af vodka og létu
þeir lögregluna þegar vita.
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Armbandsúr breska
flugstjórans