Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sjald-
gæf
sjón í
sveitum
Laxamýri - Hrífumar hafa víð-
ast hvar verið lagðar af sem
heyskapartæki til sveita en oft
getur verið gott að grípa til
þeirra þegar vanda þarf til
verks.
Um helgina var verið að slá
rýgresi hjá Jóni Gústafssyni,
bónda á Rauðafelli í Bárðardal,
og þá komu hrífumar að góðum
notum því ekki er talið gott að
fara með stórvirkar rakstrar-
vélar í grænfóðurakra. Þá
blandast mold við fóðrið og það
verður ólystugt.
Ekki var annað að sjá en að
menn Jóns kynnu vel til verks
og á myndinni má sjá þýska
vinnumanninn Christian Jakob
og Hilmar Jakobsson frá Akur-
eyri þar sem þeir raka í flekkn-
um og höfðu þeir gaman af
þessari tilbreytingu í hey-
skapnum.
Hlutu viðurkenn-
ingu fyrir fallegan
garð í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Undanfarin 5 ár hafa
Lionsklúbbur Stykkishólms og Rót-
arýklúbbur Stykkishólms staðið fyiir
því að veita viðurkenningu fyrir fal-
lega garða í Stykkishólmi. Til-
gangurinn er að vekja athygli á því
sem vel er gert og hvetja um leið aðra
bæjarbúa að hafa snyrtilegt í kring-
um sig. Bæjarstæði Stykkishólms er
mjög sérstakt af náttúrunnar hendi
og því skiptir umgengni heimamanna
um bæinn sinn miklu máli. Fallegir
garðar setja svip á bæinn og hafa já-
kvæð áhrif á augu heimamanna og
ferðafólks.
Að þessu sinni hlutu viðurkenning-
una hjónin Ólafía Gestsdóttir og
Þórður A. Þórðarson að Amatúni 7.
Þau hafa búið þar í 15 ár og haft
mikla ánægju af að sinna garðinum
og hafa margar vinnustundir farið í
hann. Þau sjá ekki eftir þeim tíma því
að þeirra sögn hefur hlýjan frá garð-
inum góð áhrif á líðanina og gaman er
að sitja úti í garði með kaffibollann í
skjóli trjánna.
Þeim var afhentur skjöldur á
dönskum dögum þar sem á stóð Við-
urkenning fyrir fallegan gai'ð í
Stykkishólmi árið 2000. Garðurinn
var svo til sýnis á dönskum dögum og
lögðu margir leið sína til þeirra hjóna.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þórður A. Þórðarson og Ólafía Gestsdóttir í garði sínum að Arnatúni 7 í
Stykkishólmi. Þau fengu viðurkenningu frá Lion og Rótarý fyrir fal-
legan garð.
Að lokinni messu buðu kvenfélagskonur upp á heitt súkkulaði, pönnukök-
ur og kleinur sem gestir nutu í veðurblíðunni á bæjarhlaðinu á Hellum.
Morgunblaðið/Aðaiheiður Högnadóttir
í messu í Hellnahelli á Hellum í Landsveit predikaði biskup íslands, hr.
Karl Sigurbjörnsson.
s-
Biskup Islands
messaði í Hellnahelli
Hellu - Um liðna helgi fór fram
allsérstæð messa í stærsta mann-
gerða helli á Islandi, Hellnahelli á
bænum Hellum í Landsveit. Það
var Kristnihátíðarnefnd Rang-
árvallaprófastsdæmis í tengslum
við Töðugjaldahátíðina sem stóð
fyrir messunni, sem allir prestar
prófastsdæmisins tóku þátt í, en
biskup íslands, hr. Karl Sigur-
björnsson, predikaði. Messan er
síðasti viðburðurinn í prófasts-
dæminu í tilefni kristnitökuaf-
mælisins.
Hellnahellir telst með merki-
legri fornminjum hér á landi, en
jörðin Hellar kemur fyrst fyrir í
máldaga Skarðskirkju frá árinu
1332. Hellirinn er um 50 metra
langur og 200 fermetrar að flat-
armáli, en gengt er í hellinn ann-
ars vegar úr hlöðu og hins vegar
um stiga úr forskála. Á bænum
Hellum eru tveir aðrir manngerð-
ir hellar, Lambahellir og Hesta-
hellir.
Það var prófastur Rangárvalla-
prófastsdæmis, sr. Halldóra Þor-
varðardóttir, sem þjónaði fyrir
altari í hellismessunni, en aðrir
prestar prófastsdæmisins fluttu
ritningarorð. Biskup Islands
predikaði og lagði í máli sínu
áherslu á þá tvísýnu stöðu sem
við þjóðinni blasir, rækti hún ekki
trú sína og haldi í heiðri þau gildi
sem kristnum mönnum sæmir. I
lok messunnar var heilögu sakra-
menti útdeilt, sem meginþorri um
200 kirkjugesta þáði, en að þvi
loknu var gengið út í sólskinið
þar sem kvenfélagskonur biðu
með heitt súkkulaði og bakkelsi.
Jim Stroud’s Classic Adventures
Þekktur banda-
rískur veiðiþáttur
tekinn upp hér
Hellu - Hér á landi hafa undanfarið
verið staddir stjómendur og kvik-
i myndatökumaður eins virtasta og
útbreiddasta útivistar- og veiðiþátt-
ar í bandarísku sjónvarpi, Jim
Stroud’s Classic Adventures. Þætti
þessum er sjónvarpað vikulega hjá
TNN og Fox sports net, en fimm
sinnum í viku hjá Outdoor Channel
og nær þannig til um 100 milljóna
heimila um gervöll Bandaríkin.
Jim Stroud hefur 25 ára reynslu
1 af gerð slíkra þátta, en Classic Ad-
\ ventures hefur verið sendur út í
i rúm sex ár og á þeim tíma hafa þeir
| verið kvikmyndaðir um öll Banda-
ríkin, Kanada og Suður-Ameríku.
„Við leggjum mikið upp úr að
| fara á sérstaka staði, beita nýjustu
tækni og nota bestu áhöld og tæki
sem völ er á. Gistingin, öryggi þátt-
takenda og allur aðbúnaður verður
að vera í hæsta gæðaflokki en auk
þess leggjum við áherslu á að þætt-
imir séu fróðlegir og að læra megi
af þeim, t.d. að skipuleggja ferðir.
Reyndar rekum við okkar eigin
ferðaþjónustu í tengslum við þætt-
ina, þannig gerist það oft að fólk
hefur samband við okkur eftir að
hafa horft á þáttinn og segist vilja
komast í einmitt slíka ferð. Fólk
hefur oft verið að safna ámm sam-
an til að eiga fyrir slíkri drauma-
ferð,“ sagði Jim Stroud, en hann
var við veiðar í Eystri-Rangá þegar
fréttaritari náði tali af honum.
Villt dýr og fiskar
í þáttum sínum hefur Jim Stroud
fjallað um alls konar veiðiskap, t.d.
anda- og dúfnaveiðar í Argentínu,
veiði á fiski í Amazon-fljótinu í
Brasilíu, sem heitir á ensku
peacock bass, afar skrautlegur og
grimmur fiskur, en jafnframt ljúf-
fengur, en hann étur m.a. hina al-
ræmdu piranafiska. Þá má nefna
dádýraveiðar, elg og carabou sem
er náskylt hreindýrinu, auk gæsa
og alls kyns fugla.
„Við höfum veitt lax og silung og
margvíslega fiska út um allt og
reynum alltaf að sleppa öllum fiski
sem við veiðum. Það er ekki
markmiðið hjá okkur að veiða eins
mikið og hægt er, heldur skipulagn-
ing ferðarinnar í heild og upplifunin
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Sólin skein glatt á Jim Stroud (t.v.) þegar hann var við veiðar í Eystri-Rangá, sem og leiðsögumann hans, Árna
Baldursson veiðileyfasala og Phil Gregory sem mundar kvikmyndatökuvélina, en alls veiddu þeir félagar 12
laxa í ánni á tveimur dögum.
úti í náttúrunni fyrir hvem ein-
stakling og ekki síður fjölskyldur
sem fá tækifæri til að reyna eitt-
hvað nýtt saman.“
Fyrsta ferðin út
fyrir Bandaríkin
Þegar Jim Stroud er spurður af
hverju hann hafi ákveðið að koma
til íslands, en hann hefur ekki áður
tekið þætti upp utan Bandaríkjanna
og Suður-Ameríku, segist hann
hafa langað til að koma hingað
mjög lengi.
„Eg hef haft þetta á bak við eyr-
að lengi, lesið mér til um landið í
bókum og á Netinu auk þess sem
ég sá þátt Matt Lauers, „Today“, á
NBC-sjónvarpsstöðinni á sínum
tíma. Landið er svo ólíkt öllu sem
ég hef áður kynnst, algjörlega sér-
stakt og kemur stanslaust á óvart
og svo er fólkið mjög vingjarnlegt."
Með Jim Stroud í för var kvik-
myndatökumaður hans Phil Greg-
ory og Chuck Come netstjóri en
þeir vom búnir að kvikmynda í mið-
bæ Reykjavíkur, verslanir og ýmsa
merka staði auk þess sem Bláa lón-
ið var heimsótt. Að lokinni veiði í
Eystri-Rangá var ætlunin að fara á
Norðurlandið, veiða þar silung og
skoða aðstæður til gæsaveiða.