Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MORGUNFLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Skotfélag Reykjavfkur missir æfíngasvæði sitt f Leirdal við Grafarholt
Borgin frestar ekki fram-
kvæmdum fyrir skotmenn
Grafarholt
EKKI kemur til greina að
fresta framkvæmdum í Graf-
arholtinu við æfingasvæði
Skotfélags Reykjavíkur í
Leirdal þar til nýtt æfinga-
svæði hefur fundist fyrir fé-
lagið. Þetta kom fram í sam-
tali við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, borgarstjóra
Reykjavíkur, en hún sagði að
samningur borgarinnar við
félagið sem kvæði á um afnot
þess af svæðinu hefði runnið
út fyrir nokkru síðan.
„Eg tel ekki fært að stöðva
framkvæmdirnar, en það væri
hægt að haga þeim þannig að
þeir geti verið þama eitthvað
áfram,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Á mánudaginn var vegur-
inn upp í Leirdal og að æf-
ingasvæðinu rofinn vegna
framkvæmdanna í Grafar-
holti. Ingibjörg Sólrún sagði
að fyrirhugað væri að loka
veginum í vikutíma, en að fé-
lagsmenn Skotfélagsins gætu
eftir sem áður gengið að
svæðinu ef þeir vildu æfa sig.
Ekki sama hvar framtíð-
arsvæði er staðsett
I samtali við Guðmund Kr.
Gíslason, gjaldkera Skotfé-
lags Reykjavíkur, í Morgun-
blaðinu á laugardaginn kom
fram að viðræður um framtíð-
arsvæði félagsins hefðu staðið
yfir í fjögur ár án þess að
landsvæði hefði fundist í
borgarlandinu.
„Það er hægara um að tala
en í að komast að leysa mál-
efni Skotfélags Reykjavíkur,"
sagði Ingibjörg Sólrún. „í
fyrsta lagi er alls ekki sama
hvar æfingasvæðið er stað-
sett, en þau svæði sem bent
hefur verið á hingað til hafa
ekki þótt liggja rétt við sólu
eða vindátt. Eins hafa sum
svæði sem bent hefur verið á
þótt vera of langt í burtu, sem
eru nú rök sem mér finnst erf-
itt að fallast á því Leirdalur-
inn hefur verið ansi langt fyrir
utan borgina þegar menn
settu sig niður þar á sínum
tíma.“
Kostnaðarsamt að
byggja upp aðstöðu
Að sögn Ingibjargar Sól-
rúnar er kostnaðarsamt að
byggja upp aðstöðu fyrir
skotfélög.
„Það er náttúrlega alltaf
spurningin um tilkostnaðinn
við að koma þessu upp og hver
á að borga. Við hefðum gjam-
an viljað sjá það gerast að
skotfélögin á höfuðborgar-
svæðinu fengju sameiginlega
aðstöðu, þannig að það væri
ekki verið að byggja upp að-
stöðu í hverju sveitarfélagi
fyrir sig.
Við höfum stundum rætt
það, bæjarstjórarnir á höfuð-
borgarsvæðinu, að þegar um
er að ræða mjög sérhæfða að-
stöðu, hvort sem það er í
íþróttagreinum eða öðru, að
þá reyni menn að sameinast
um slíkt.“
I Hafnarfirði er aðstaða úti
í Kapelluhrauni og sagði Ingi-
björg Sólrún að rætt hefði
verið við þá um sameiningu,
en að ekki hefði verið hljóm-
grunnur fyrir því hjá Skotfé-
lagi Reykjavíkur.
Hólmsheiðin kemur
helst til greina
Ingibjörg Sólrún sagði að
það svæði sem helst kæmi til
Morgunblaðið/Golli
Skotfélag Reykjavíkur mun bráðlega missa æfingaaðstöðu
sína í Leirdal vegna uppbyggingar í Grafarholti.
greina sem æfingasvæði fyrir
skotfélagið væri uppi á
Hólmsheiði.
Hún sagði að upphaflega
hefði það svæði ekki talið
henta þar sem menn hefðu
talið það vera of nálægt hest-
húsabyggðinni, en að nú væru
blikur á lofti.
„Menn tóku sig til og gerðu
tilraun þarna. Slepptu hryss-
um út við hesthúsabyggðina
og skutu síðan bæði úr hagla-
byssum og rifflum á fyrirhug-
uðu æfingasvæði og það var
mat þeirra sem stóðu að þessu
að hryssumar hefðu lítið
hreyft sig, þannig að þetta
svæði gæti vel komið til álita.“
í blaðinu á laugardaginn
sagði Guðmundur Kr. að á
svæði félagsins í Leirdal væru
eignir upp á 40 til 50 milljónir.
„Ég reikna með að þeir
flytji þessar eignir," sagði
Ingibjörg Sólrún. „Þetta eru
þannig eignir að hægt er að
flytja þær.“
Skúlatúnsreiturinn seldur á 350 milljónir
Ráðgert að rífa
öll mannvirki
Tún
BORGARYFIRVÖLD hafa
ákveðið að selja byggingar-
fyrirtækinu Eykt ehf. lóð-
irnar Skúlatún 1 og Höfða-
tún 2, fyrir 350 milljónir
króna. Éykt mun eignast
öll mannvirkin á lóðunum,
en að sögn Ágústs Jóns-
sonar, skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, er
ráðgert að rífa þau niður
og byggja ný.
Lóðirnar eru á svoköll-
uðum Skúlatúnsreit, sem
teigir sig frá Höfðatúni,
meðfram Borgartúni og
upp Skúlatún og er heild-
arflatarmál þeirra rúmlega
12.500 m2.
Fyrr á þessu ári sam-
þykkti Borgarráð Reykja-
víkur að kaupa lóðina við
Höfðatún 2, á horni Borg-
artúns og Höfðatúns, ás-
amt tæplega 1.800 m2 húsi
sem á henni stendur.
Kaupverð var 111 milljónir
króna. Reykjavíkurborg
átti aðra lóð á Vélamið-
stöðvarreitnum, lóðina við
Skúlatún 1, ásamt bygg-
ingum, og báðar þessar
lóðir voru boðnar út í maí
sl.
Nýtt deiliskipulag
Eykt bauð 350 milljónir
króna í lóðirnar, eins og
kom fram hér að ofan,
Húsvirki bauð 273 milljón-
ir, ÍAV bauð 263 milljónir
og Istak 263 milljónir.
Ræsir óskaði einnig eftir
tilboði í lóð og húseignir á
Skúlagötu 59 í vor og bauð
Eykt 100 milljónir í lóðina.
Hallgrímur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Ræsis,
sagði að ekki væri búið að
ganga frá neinum samning-
um varðandi eign fyrirtæk-
isins, en að væntanlega
yrði rætt við Eykt á næstu
vikum.
Ágúst sagði að nú yrði
unnið að nýju deiliskipulagi
fyrir reitinn í samvinnu við
Éykt, en einnig væri gert
ráð fyrir því að aðrir fast-
eignaeigendur á svæðinu
kæmu að þeirri vinnu.
Að sögn Ágústs er svæð-
ið skilgreint sem athafna-
svæði á aðalskipulagi og
sagðist hann gera ráð fyrir
því að þarna myndi rísa
verslunar- og skrifstofu-
húsnæði.
Jóhannes S. Kjarval,
hverfisstjóri miðborgar,
sagði að þetta væri nokkuð
ný aðferðafræði, þ.e. að
bjóða landið út án þess að
búið væri að deiliskipu-
leggja það að fullu. Hann
sagði að ef allt gengi að
óskum ætti deiliskipulags-
vinnunni að ljúka fyrir ára-
mót.
Göngu-
ljós viö
Starhaga
Vesturbær
SAMÞYKKT var á fundi
borgarráðs á þriðjudag að
sett verði upp gönguljós við
vegamót Suðurgötu og Star-
haga. Að sögn Olafs Bjarna-
sonar, aðstoðarmanns borg-
arverkfræðings, er reiknað
með að ljósin verði sett upp
á næsta ári.
„Neðan við Þorragötuna
eru skólagarðar en börn úr
Melunum sem fara þangað
þurfa að fara yfir Suðurgötu.
Ljósin eru jafnramt teng-
ing frá Litla Skerjafirði og
þjónustuíbúðum aldraðara
við Þorragötu yfir á göngu-
stíginn við Ægisíðu," segir
Ólafur.
Morgunblaðið/Sverrir
Skipt um auglýsingar
ÞESSI ungi maður skipti lega að og virtist ekki þjak-
um auglýsingar á flettiskilti aður af lofthræðslu þótt
í Reykjavík á dögunum. unnið væri við erfiðar að-
Hann bar sig fagmann- stæður.
Bréf íbúa í Setbergshverfí til bæjaryfírvalda
Morgunblaðið/Golli
Umhverfið við verslunarmiðstöðina er heldur napurlegt.
ft
•í " ■
1! 1 i ,
Aðkoman í hvernð
berangursleg
Hafnarfjörður
BÆJARYFIRVÖLDUM í
Hafnarfirði hefur borist bréf
frá Bemhai’ði Guðmundssyni,
íbúa í Einibergi 11, þar sem
bent er á að aðkoma í Set-
bergshverfið við gatnamót
Reykjanesbrautar og Lækjar-
götu sé berangursleg og úr-
bótaséþörf.
„Ég sendi þetta bréf til þess
að benda á það sem betur
mætti fara þar. Mér finnst að-
koman í þetta fallega hverfi
heldur dapurleg. Þegar fólk
keyrir í gegnum bæinn frá
Keflavík er þetta eitt það
fyi-sta sem það sér af íbúðar-
hverfum í Hafnarfirði sem
annars er mjög fallegt sveitar-
félag,“ segir Bernharður.
Hann lætur vel af samskipt-
um sínum við bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði. „Ég hef búið hér í
ár og bæjaryfirvöld eru alveg
sérstaklega ánægjuleg í sam-
skiptum,“ segir Bemharður.
Meðal þess sem Bernharð-
ur bendir á í bréfi sínu er ber-
angurslegt og ófrágengið
svæði vestan við verslunar-
miðstöð sem stendur við
gatnamót Lækjargötu og
Reykjanesbrautai- en verslun-
armiðstöðin blasir við þegar
keyrt er í gegnum Hafnar-
fjörð eftir Reykjanesbraut.
„Þarna standa nokkrar stakar
aspir en að öðru leyti er þetta
gróðursnautt svæði og rasl frá
verslunarmiðstöðinni fykur
óhindrað yfir götuna. Þama
þyrfti að koma upp einhvers-
konar skjólvegg eða gróðri,“
segir Bemharður.
Svæðið eins og
ljóti andarunginn
Hann bendir einnig á að
frágangi við þann enda Eini-
bergsins sem snýr að Lækjar-
götu sé ábótavant. „Hér þyrfti
að bæta aðkomuna, planta
trjám og laga frágang. Þannig
væri hægt að skýla íbúum
Einibergsins fyrh’ umferðar-
þunga við Lækjargötu og
vindstrekkingi sem ber með
sér rasl frá verslunarmiðstöð-
inni,“ segir Bemharður.
Hann segir að aðkoman í
hverfið yrði mun fallegri ef
þetta yrði lagfært „Hér við
götuna era göngustígar sem
liggja upp í Setbergshverfið
og að undirgöngum undir
Reykjanesbraut en mikið af
fótgangandi fólki og hjólreiða-
fólki fer hér um og mér finnst
aðkoman ekki til sóma,“ segir
Bemharður. Hann segir að yf-
irleitt sé frágangur í hverfinu
til hreinnar fyiirmyndar.
„Það er búið að gera dásam-
legar gönguleiðir hér inn eftir
öllu þar sem allur frágangur
er góður og hér era mörg
skemmtileg græn svæði. Þetta
svæði hefur vafalaust ekki
gleymst heldur er það bara í
bili eins og Ijóti andaranginn
sem verður glæstur svanur
hér við lækinn innan tíðar.‘