Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný dráttarbraut í slipp Stálsraiðjunnar getur tekið þrjú skip í einu þannig að nú er hægt að vinna við fjögur skip í sömu andrá í stað eins áður.
Kaffeini ekki bætt í
drykki vegna bragðsins
BALDVIN Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá Sól-Víkingi, segir það alveg
ljóst að kaffeini sé ekki bætt í orku-
drykki vegna bragðsins. Verið sé að
sækjast eftir áhrifunum. Hreint kof-
fein sé nefnilega nánast bragðlaust.
Baldvin segir það fráleitt að framleið-
endur gosdrykkja hér á landi laumi
kaffeini í drykki, eins og bandarísk
læknasamtök telja að þarlendir fram-
leiðendur geri samkvæmt frétt Morg-
unblaðsins s.l. þriðjudag.
í fréttinni eru kynntar niðurstöður
bandarísks læknis sem telur að koff-
eini sé bætt við í gosdrykki til að fá
fólk til að ánetjast þeim. „Ég þekki
þetta ekki í Bandaríkjunum en finnst
reyndar það sem haft er eftir banda-
ríska lækninum, Roland Griffiths,
bera merki um athyglissýki í fjölmið-
lum af verstu bandarísku gerð. Það er
reyndar líka hæpið að byggja mikið á
könnun sem gerð er á 25 manns.“
Undir þetta tekur Amar Haukur
Ottesen, markaðsstjóri hjá Agli
Skallagrímssyni. Hann segir einnig
hæpið að setja níkótín í sígarettum í
sama samhengi og kaffein í drykkj-
um. „Það hefur engin rannsókn sýnt
að það sé lífshættulegt að drekka
koffein."
I máli Magnúsar Jóhannssonar
læknis, í fréttinni á þriðjudag, koma
fram áhyggjur hans af neyslu orku-
drykkja, sem innihalda kaffein, eink-
um meðal yngri aldurshópa.
Elín Guðmundsdóttir, matvæla-
fræðingur hjá Hollustuvemd ríkisins,
segir að þar á bæ hafi verið tekið eftir
greinilegri aukningu á innflutningi á
orkudrykkjum. Einnig segir hún að
innflytjendur orkudrykkja hafi oft
beðið um leyfi til að flytja inn drykki
sem innihalda meira magn af kaffeini
en 135 mg á lítra sem er það magn
sem leyft er hér á landi. „Við höfum
engar undantekningar gert á þessari
reglu. Það er hins vegar ekki sam-
ræmd stefna í Evrópu um leyfilegt
magn kaffeins í drykkjum og því selja
sum lönd í Evrópu drykki sem inni-
halda allt að 320 mgr á h'tra af koff-
eini. Þessa drykki er einnig hægt að
fá í Bandaríkjunum. Við höfum hins
vegar haldið okkur á svipuðu róli og
hins Norðurlöndin."
Samkvæmt skilgreiningum er kaff-
ein ekki aukaefni, enda til í náttúm-
legum afurðum. Það er hins vegar
leyft að blanda því í gosdrykki, sem
bragðefni allt að 135 mg/1. Þetta era
sömu viðmiðanir og Svíar og Finnar
hafa en viðmiðun Dana og Norð-
manna er eilítið hærri. Svíar og Finn-
ar hafa hins vegar gert undantekn-
ingar þegar um orkudrykki er að
ræða og leyft íblöndun allt að 320 mg/1
að því tilskildu að vamaðarmerking
fylgi. Engin viðmiðunarmörk era um
innihald kaffeins í afurðum jurta sem
innihalda náttúralegt kaffein, eins og
kaffi, te og súkkulaði.
Samkvæmt upplýsingum Hollustu-
vemdar vora viðmiðunarmörkin hér
á landi tekin til skoðunar fyrii- tveim-
ur árum. Þá komst Lyfjanefnd að
þeirri niðurstöðu að koffeininnihald
yfir 135 mg/1 teldist lyf. Vegna þessa
hefur Hollustuvemd ekki falhst á
meira magn kaffeins í drykkjum.
Það hefur verið gagnrýnt að orku-
drykkjum sé beint að bömum og
unglingum. Elín segir að ekki hafi
verið rannsakað sérstaklega hér á
landi hvar neysla orkudrykkja lendi
en hennar tilfinning sé að kaffein í
orkudrykkjum bætist ekki við kaff-
einneyslu kaffidrykkjufólks.
„Þetta hefur ekki verið rannsakað
en mér sýnist að orkudrykkir hafi
annan markhóp en kaffið."
Óvönduð umræða
um orkudrykki
Baldvin hjá Sól-Víkingi segir um-
ræðu um orkudrykki hafa verið afar
óvandaða hér á landi til þessa. Ekki
síst hafi fagfólk eins og næringar-
fræðingar leitt umræður á villigötur.
Baldvin segir orkudrykki mjög mis-
munandi að gæðum. Góðir orku-
drykkir geti sannarlega komið í góðar
þarfir undir vissum kringumstæðum,
eins og í langtímakeyrslu og í próf-
lestri.
„Það hefur allt sína kosti og galla
og það er sama gildir um orkudrykki
sem eins og allt annað era slæmir í
óhófi. En magnið af koffeini í orku-
drykkjum er ekki meira en svo að
hver venjulegur heilbrigður einstakl-
ingurþolirþað.
Baldvin segir orkudrykki vitaskuld
ekki ætlaða bömum og unglingum.
Það fari eftir líkamlegum þroska ein-
staklinga hvenær þeim sé óhætt að
neita orkudrykkja. Baldvin segir að
því miður hafi ekki allir hagað sér
jafnvel í markaðssetningu á orku-
drykkjum en hans fyrirtæki hafi lagt
sitt af mörkum til að koma í veg fyrir
neyslu bama og unglinga með því að
setja viðvöranartexta á orkudrykkinn
Batterí.
Arnar Haukur segii- aðalmarkhóp
orkudrykksins Egils orku vera karl-
menn á aldrinum 18 tíl 25 ára. Aldrei
hafi verið ætlunin að beina þeim að
unglingum. „Við mátum það hins veg-
ar svo að það myndi gera drykkinn
meira spennandi ef við settum á hann
viðvöran og gerðum það því ekki. En
við eram ekki að bijóta neinar reglur
með framleiðslu drykksins því við
fylgjum innihaldsreglum Hollustu-
verndar.“
Ný drátt-
arbraut í
slippnum
Tekur þrjú
skip í einu
STÁLSMIÐJAN hf. í Reykjavík hef-
ur tekið nýja dráttarbraut í notkun
samhliða þeirri, er fyrir vai-. Að sögn
Valgeirs Hallvarðssonar fram-
kvæmdastjóra getur nýja brautin
tekið þrjú skip í einu, fi’á minnstu
bátum upp í 1.200-1.500 tonna skip.
Sú gamla er öflugri og getur tekið
2.200 tonna skip en einungis eitt í
einu.
Aukning verkefna er því fyrirsjá-
anleg með tilkomu nýju brautarinn-
ar. Áður þurfti iðulega að vísa verk-
efnum frá vegna skorts á upptöku-
getu. „Þetta auðveldar okkur að
mörgu leyti að taka langtímaverk-
efni. Við höfum oft átt í erfiðleikum
með að binda dráttarbrautir undir
slík verkefni í lengri tíma en þetta
auðveldar það,“ sagði Valgeir.
Hann segir að með tilkomu nýju
brautarinnar muni vinnutími starfs-
manna nýtast betm-. Áður hafi það
t.d. getað gerst að eitt eða jafnvel tvö
verkefni hafi verið í vinnslu, þeim
hafi báðum verið lokið sama dag og
þá hafi starfsmenn þurft að bíða eftir
næsta verki. Það hafi sem sagt mynd-
ast dauðir tímar. Með nýju brautinni
á að vera hægt að tryggja að næg
verkefni séu fyrir hendi fyrir menn
að ganga inn í. Nú getur fyrh’tækið
einnig farið að sinna litlu skipunum,
trébátum og slíku, að sögn Valgeirs.
Uppsetning hreinsistöðvar
við álver í Noregi
Fyrirtækið fær ekki aðeins verk-
efni við skipasmíðar erlendis frá. Að
sögn Valgeirs er Stálsmiðjan nýbúin
að gera samning um uppsetningu á
hreinsistöð við álver í Noregi. Leitað
var eftír tilboði frá Stálsmiðjunni og
var þvi tekið þrátt fyrir að það hafi
verið þriðja lægsta tilboðið í verkið.
Tvö lægstu tilboðin komu frá portú-
gölsku og norsku fyrirtæki.
.Ástæðan fyrir því að til okkar var
leitað er sú að við höfum unnið mjög
hliðstæð verkefni þrisvar sinnum áð-
ur, bæði hjá ÍSAL og Norðuráli. Það
er farið að fréttast að við gerum þetta
vel og eram fljótir að því og nú er ver-
ið að gera tilboð í aðra svona stöð í
Noregi," sagði Valgeir.
Samningurinn hljóðar upp á 80-
100 milljónir króna og á verkinu að
ljúka næsta vor. Stálsmiðjan hefur
ráðið norska undirverktaka til að
sinna þessu verkefni en héðan verða
sendir tæknimenn og verkstjórar.
Greinargerð borgarlögmanns vegna fyrirætlana Orkuveitu Reykjavíkur
Stofna þarf sérstakt
félag um bestu kjör
til viðskiptavina
BORGARLÖGMAÐUR telur að
Orkuveita Reykjavíkur þurfi að
stofna sérstakt fyrirtæki hyggist
fyrirtækið afla viðskiptavinum sín-
um bestu kjara á margvíslegri vöra
og þjónustu en stjórn þess sam-
þykkti í síðasta mánuði að leita
leiða til þess. Jafnframt þurfi að
gæta að fjárhagslegum aðskilnaði
slíkrar starfsemi og þeirrar starf-
semi fyrirtækisins sem nýtur
einkaleyfis eða verndar samkvæmt
lögum.
I júlí sl. samþykkti stjórn Orku-
veitunnar tillögu þess efnis að
kanna skyldi hvort unnt væri að ná
samningum við fyrirtæki um sértil-
boð til viðskiptavina orkuveitunnar
gegn því að vörar yrðu kynntar í
reglulegum útsendingum fyrirtæk-
isins til viðskiptamanna sinna og
greiðslan innheimt í gegnum inn-
heimtukerfi þess. Ennfremur hvort
beita mætti útboðum til að ná hag-
kvæmustu kjöram á vöra og þjón-
ustu við viðskiptavini orkuveitunn-
ar, svo sem á sviði fjarskipta, og
nýta þannig markaðsstöðu og inn-
heimtukerfi fyrirtækisins til að
auðvelda nýjum og smærri fyrir-
tækjum aðgang að markaðnum og
örva með því frjálsa samkeppni.
í framhaldi af þessu óskaði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfull-
trúi eftir því að Hjörleifur B. Kvar-
an borgarlögmaður gæfi álit sitt á
því hvort þessi áform væra í sam-
ræmi við reglugerð fyrir Orkuveitu
Reykjavíkur og samkeppnislög.
Gert ráð fyrir
annarri starfsemi
í greinargerð borgarlögmanns
sem lögð var fyrir borgarráð á
þriðjudag segir að í reglugerð um
Orkuveitu Reykjavíkur sé gert ráð
fyrir að orkuveitan geti haft með
höndum aðra starfsemi en þá sem
tengist beinlínis rekstri rafveitu og
hitaveitu en hin nýju viðfangsefni
orkuveitunnar falli þó væntanlega
ekki innan heimildar 1. greinar
reglugerðarinnar. Hins vegar sé
Orkuveitunni heimilt að eiga önnur
fyrirtæki að öllu leyti eða með öðr-
um, þ.m.t. hlutafélög, til að vinna
að framgangi verkefna sem tengd
eru starfssviði félagsins, eins og
raunin sé um þátttöku orkuveit-
unnar í Línu.Neti hf.
Þá bendir borgarlögmaður á að
samkvæmt ákvæði 4. mgr. 5. gr.
reglugerðarinnar skuli þess gætt
við rekstur orkuveitunnar að sam-
keppnisrekstur sé ekki niður-
greiddur af þeirri starfsemi sem
nýtur einkaréttar eða verndar.
„Með hliðsjón af framangreindu er
það niðurstaða mín að Orkuveita
Reykjavíkur hafi ekki heimild til
rekstrar hinna nýju viðfangsefna
innan starfsemi sinnar. Samkvæmt
nýgildandi reglugerð hefur Orku-
veitan hins vegar heimild til þess
að stofna fyrirtæki um fyrirhuguð
verkefni,“ segir í greinargerð borg-
arlögmanns.
Skilyrði samkeppnislaga
Þá segist borgarlögmaður ekki
telja að séð verði að hin nýju við-
fangsefni brytu £ bága við sam-
keppnislög, svo framarlega sem
skilyrði laganna yrðu uppfyllt,
einkum 17. gr. og 2. mgr. 14. gr. I
síðari greininni er fjallað um fjár-
hagslegan aðskilnað þannig að
samkeppnisrekstur sé ekki niður-
greiddur af starfsemi sem nýtur
einkaleyfis eða verndar. í 17. grein
samkeppnislaga segir að sam-
keppnisráð geti gripið til aðgerða
til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif
á samkeppni. „Erfitt er að fullyrða
með vissu hvort fyrirhuguð starf-
semi Orkuveitunnar bryti í bága
við 17. gr. samkeppnislaga á því
upphafsstigi sem hugmyndin er,“
segir í greinargerð borgarlög-
manns.
„Ljóst er að Orkuveitan hefur
markaðsráðandi stöðu á núverandi
starfsemi sinni. Hin nýju viðfangs-
efni era hins vegar óskyld núver-
andi starfsemi en lúta einkum að
því að nýta innheimtukerfi Orku-
veitunnar betur. Ýmsir aðilar eru
starfandi á því sviði sem Orkuveit-
an hyggst nú hasla sér völl á. Mið-
að við fyrirliggjandi upplýsingar
brýtur fyrirhuguð starfsemi ekki í
bága við 17. gr. samkeppnislaga nr.
8/1993 enda verði fyrirhuguð starf-
semi fjárhagslega aðskilin öðrum
rekstri Orkuveitunnar,“ segir loks.