Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
TDPP EB
i —Vinsældalisti þar sem
þú hefur áhrif!
■
á uppieið ^ á niðurleíð
M^stenúur í stað • nýtt á lista
Vikan 23,08 - 30.08
t1 Take a Look Around
Limp Bizkit
t2 Lucky
Britney Spears
3 Real Slim Shady
Eminem
sa| 4 Try Again
Aaliyah
t5 I Disappear
Metallica
6 Falling Away From Me
Korn
^ 7 Rock DJ
Robbie Williams
8 Oops...l did it again
Britney Spears
, 9 The One
Backstreet Boys
1 ÍO Ennþá
Skítamórall
-JL 11 Big in Japan
Guano Apes
1 12 Make me bad
W Korn
tl 3 Carmen Queasy
Maxim
14 Rock Superstar
Cypress Hill
15 Shackles
Mary Mary
16 Dánarfregnir og jarðarfarir
Sigur Rós
■kl7 Crushed
Limp Bizkit
18 ExGirlfriend
No Doubt
19 Lets Get Loud
Jennifer Lopez
20 Þærtvær
Land & Synir
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
® mbl . í S TÖPP 2D
tnuAneiNN
ÚR VERINU
Fiskaflinn
jókst í júlí
FISKAFLI landsmanna síðastliðinn
júlímánuð var 178.496 tonn saman-
borið við 129.274 tonn í júlímánuði
árið 1999. Botnfiskaflinn dróst lítil-
lega saman milli ára, fór úr 39.380
tonnum í júlí 1999 í 38.716 tonn nú.
Þó jókst þorskaflinn úr 15.289 tonn-
um í fyrra í 16.045 tonn nú. Ýsuaflinn
jókst einnig lítillega eða um 255 tonn
en ufsa- og karfaaflinn var lítillega
minni. Loðnuaflinn eykst hins vegar
á sama tíma um um rúm 26.000 tonn
og kolmunnaaflinn ríflega tvöfaldast.
Skel- og krabbadýraafli dróst sam-
an, fór úr 4.516 tonnum í júlí 1999 í
3.291 tonn nú.
Sem fyrr skýrist aukinn heildar-
afli það sem af er árinu af auknum
loðnu- og kolmunnaafla samanborið
við árið 1999. Skel- og krabbadýra-
afli hefur aftur á móti dregist veru-
lega saman, eða um tæp 6 þús. tonn
frá árinu 1999 og rúm 18 þús. sé mið-
að við árið 1998. Botnfiskafli dregst
einnig saman milli ára, eða um rúm
16. þús tonn frá árinu 1999. Sam-
drátturinn kemur fram í flestum teg-
undum botnfisks nema úthafskarfa.
Campylobakter í vatnsbólum Patreksfjarðar og Bfldudals
Fiskvinnslum lokað
vegna sýkingarinnar
FISKISTOFA hefur lokað tíma-
bundið fískvinnslum á Patreksfirði
og Bíldudal eftir að campylobakter
gerill greindist í vatnsbólum byggð-
anna. Fiskvinnslum í byggðarlögun-
um hefur verið lokað vegna þessa og
dreifing á afurðum verið stöðvuð.
Fiskistofu barst beiðni frá heil-
brigðisnefndum Patreksfjarðar og
Bíldudals um að sýni yrðu tekin í
fiskvinnslum á stöðunum eftir að í
ljós kom að greinst hefði campyl-
obakter mengun í neysluvatni. Að
sögn Grétars Hannessonar, hjá
gæðasviði Fiskistofu, hafa starfs-
menn Fiskistofu þegar tekið sýni úr
vatni í viðkomandi vinnslum og þeim
birgðum sem þær kunna að eiga.
Jafnframt hefur vinnslu verið hætt
tímabundið í vinnslunum og dreifing
afurðanna stöðvuð. Hann segir að
vænti megi niðurstöðu úr sýnatök-
unum innan viku. Verði þær jákvæð-
ar verði frekari vinnsla í húsunum
bönnuð uns búið sé að koma í veg
fyrir allt mögulegt smit og búa
þannig um hnútana að ekki fari
mengað vatn inn í húsin. Eins verði
afurðum þá væntanlega fargað.
Fiskistofa hefur eftirlit með
vinnsluleyfishöfum og þurfa þeir að
senda vatnssýni til Fiskistofu á 12
mánaða fresti. Heilbrigðisnefndir á
viðkomandi stöðum hefur auk þess
ítarlegra eftirlit með heilnæmi vatns
1 vinnslunum.
Berst líklega með fugli
Anton Helgason, heilbrigðisfull-
trúi Vestfjarða, segir að verið sé að
taka og skoða ný sýni úr vatnsbólun-
um og vonandi liggi niðurstaða fyrir
ó föstudag. Hann segir ekki ljóst
hvernig campylobakter barst í
vatnsbólin en vanalega fylgi sýking-
in fugli eða fugladriti. Þá sé verið að
skoða hvaða möguleikar eru á úrbót-
um. Á fréttavef Bæjarins besta kem-
ur fram að við reglubundið eftirlit
Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða í síð-
ustu viku hafi m.a. verið tekin sýni
úr vatnsbólunum á Patreksfirði og
Bíldudal og síðan fengist staðfest að
um campylobakter mengun væri að
ræða. Á stöðum þar sem yfir þúsund
manns búa eru sýni tekin mánaðar-
lega við reglubundið eftirlit, en á
smærri stöðum, eins og Patreksfirði
og Bíldudal, aðeins ársfjórðungs-
lega. Neysluvatn Bílddælinga er
tekið á tveimur stöðum og svo er
einnig á Patreksfirði.
Um er að ræða geril að nafni
campylobakter lari en það afbrigði
er talið skaðminna og ekki eins sýkj-
andi og önnur afbrigði af campyl-
obakter, sem hafa verið í umræðu
hérlendis á síðustu misserum. Anton
nefnir á frétta vef Bæjarins besta
nokkra möguleika til úrbóta. í fyrsta
lagi komi til greina að ganga betur
frá vatnsbólum, þannig að mengun
komist síður í þau. Einnig geti verið
um að ræða klórblöndun eða geislun
með útfjólubláu ljósi til að drepa
bakteríur. Til þess þurfi sérstakan
tækjabúnað sem nokkurn tíma tek-
ur að fá og koma upp. Einnig drepist
bakteríurnar sé vatnið soðið.
Tiltölulega væg baktería
Ægir Guðmundsson, verksmiðju-
stjóri Rækjuvers ehf. á Bíldudal,
segir að búið sé að loka vinnslunni
og verið sé að leita leiða til úrbóta.
Væntanlega verði sett upp geisla-
tæki en það taki nokkra daga. „Þessi
tegund bakteríu er tiltölulega væg
og drepst líklega bæði í frosti og
salti. Varan ætti því að vera í lagi.
Okkur er engu að síður ljúft og skylt
að grípa til viðeigandi ráðstafana,“
segir Ægir.
Fiskvinnslan Oddi hf. á Patreks-
firði hefur verið lokuð undanfarnar
vikur og hefur campylobakter
mengunin því ekki áhrif á starfsemi
fyrirtækisins nú. Þá hefur Fiski-
stofa heimilað Fiskmarkaði Vest-
fjarða á Patreksfirði að halda uppi
starfsemi með klórblöndun í vatns-
kerfi.
Morgunblaðið/Hafþór
Nýi gámalyftarinn á ferðinni.
Nýr gáma-
lyftari á
Húsavík
Húsavfk. Morgunblaðið.
SKIPAAFGREIÐSLA Húsavíkur
ehf. hefur tekið í notkun nýjan
gámalyftara sem keyptur var frá
Svíþjóð. Lyftarinn er svokallaður
skotbómulyftari og er af gerðinni
Kalmar DRD450-70s5x. Að sögn
Hannesar Höskuldssonar, eiganda
SAH, er nýi lyftarinn tveggja ára,
eigin þyngd 80 tonn og lyftigetan
45 tonn, og getur lyft í fimm
gámahæðir og þrjár gámaraðir út
frá sér.
Helgi Pálsson framkvæmda-
stjóri segir að það sé gríðarlega
mikilvægt fyrir starfsemina að
hafa alltaf tækjabúnað í sem full-
komnustu lagi, ekki sé hægt að fá
svona tæki lánuð á næsta bæ ef
eitthvað bregst og þvf sé reynt að
endurnýja tækin reglulega, gamli
lyftarinn hafi verið orðinn 13 ára.
Skipaafgreiðsla Húsavíkur ehf.,
sem var stofnuð 1984, hefur um-
boð fyrir Eimskip og afgreiðslu
fyrir Samskip auk þess að þjón-
usta Kísiliðjuna. Þá er fyrirtækið
stærsti framleiðandi vörubretta á
landinu með framleiðslu á Húsa-
vík, Akureyri og í Reykjavík og
sölu um allt land. Hjá fyrirtækinu
starfa 14 manns.