Morgunblaðið - 24.08.2000, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.08.2000, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Nú er betra að hafa dönskuna á tæru, því við erum með réttu tískufötin fyrir fólk í þínum klassa. ►Columbia SpcxtswcarQ«pany. Klassaföt fyrir skolafólk. *Þinn bekkur - þinn stíll! cnA& Ii.'Aií'; Mföœ: Opið hjá NAN00 í Kringlunni: Mánud.-miflvd. 10-18.30 • fimmtud. 10-Z1 föstud. 10-19 og laugard. 10-18 • aunnudaga 13-17 _ 'V** 4 NANOQ> - lífið er áskomn! Réttarhöld yfír þýskum skallabullum sem myrtu blökkumann Halle. AFP, AP. Neita að hafa ætl að sér að drepa RÉTTARHÖLD hófust í austur- þýzku borginni Halle í gær fyrir luktum dyrum yfir þremur skalla- bullum, sem er gefið að sök að hafa barið 39 ára gamlan fjölskylduföður frá Mósambík, Alberto Adriano, til bana í almenningsgarði í bænum Dessau í júní sl. Varð atvikið eins og síðasti drop- inn sem fyllti mælinn; það vakti mikla reiði út um allt Þýzkaland og átti sinn þátt í því að koma af stað þeirri miklu umræðu sem þar er komin í gang um hvað sé til ráða til að hamla gegn brölti fámenns en of- beldishneigðs hóps nýnazista í land- inu. Sá elzti hinna ákærðu, hinn 24 ára gamli Enrico Hilprecht, á lífs- tíðardóm yfir höfði sér en hinir tveir, sem eru báðir 16 ára, 10 ára hámarksdóm samkvæmt lögum um afbrot unglinga. Ákvæði þessara laga ráða því, að réttarhaldið er ekki opinbert. Hata útlendinga Þremenningarnir voru drukknir þegar þeir eltu Adriano inn í al- menningsgarð aðfaranótt hins 11. júní og börðu og spörkuðu til óbóta - hann dó á sjúkrahúsi þremur dög- um síðar - og voru handteknir skömmu eftir árásina. Við yfir- heyrslur játuðu þeir á sig verknað- inn og gáfu þá skýringu að þeir höt- uðu útlendinga. Þeir hafa þó allir neitað því fyrir réttinum, að hafa ætlað sér að drepa manninn. Ekkja Adrianos bar vitni fyrir dóminum í gær. Að sögn lögmanns hennar stóð Hilprecht, sem elztur er árásarmannanna, upp að loknum vitnisburði ekkjunnar og lýsti því í mjög stuttum setningum yfir, að sér þætti leitt að maðurinn skyldi hafa dáið og bauðst til að leggja ekkjunni til peninga ef honum yrði fengin einhver vinna í fangelsinu. Ekkjan sagðist ekki vilja sjá peninga frá morðingjum eiginmanns síns. Er þess vænzt, að dómur verði kveðinn upp strax á mánudag, en meðal aðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til í því skyni að taka á þeim þjóðfélagsvanda sem lýsir sér í of- beldi gegn útlendingum er að flýta dómsmeðferð mála af þessu tagi. Viðbúnað- ur vegna fellibyls FELLIBYLURINN Debbý, sem á þriðjudag gerði nokkurn usla við Puerto Rico, var í gær skilgreindur sem hitabeltis- stormur af bandarískum veður- fræðingum. Fellibylsviðvörun er þó enn í gildi á svæðinu. Segja veðurfræðingar að hugsanlega geti stormurinn magnast og herjað á Bahama- eyjar, Kúbu og suðurhluta Bandaríkjanna. Um 21.000 íbúar á Kúbu voru í gær fluttir frá Guantanamo og Holguin í traustari byggingar í fjallahér- uðum, að sögn talsmanna al- mannavarna á Kúbu. Þá köll- uðu stjórnvöld á Bahama-eyjum út varalið her- manna sem reyna að fyrir- byggja eyðileggingu. I Flórída og öðrum ríkjum í suðurhluta Bandaríkjanna bjuggust menn við hinu versta og birgðu sig upp af matvælum og drykkjarföngum. Útgáfa bönnuð KÍNVERSK yfirvöld létu loka á dögunum útgáfuíyrirtæki í Hong Kong vegna bókar þess sem ljóstrar upp um spillingu kínverskra embættismanna og sögðu mannréttindasamtök að aðför að tjáningarfrelsinu sé í uppsiglingu. Prentun bókarinn- ar hefur verið stöðvuð og ekki hefur spurst til eigenda bókaút- gáfunnar, Reform Publishing House, síðan í janúar. I bókinni er greint frá því að stöður innan kínverska stjórn- kerfisins og hersins gangi kaupum og sölum og að menn noti mútur í þeim tilgangi að fikra sig upp valdastigann. Rigningar á Indlandi AÐ minnsta kosti 54 létu lífið á Indlandi í gær vegna gríðar- legra rigninga í suðurhluta landsins. Héraðsstjóri Andhra Pradesh, Chandrababu Naidu, sagði í gær að óvenju djúp lægð yfir Bengal-flóa hefði valdið úr- hellinu og tjón af völdum þess sé afar mikið. Indverski herinn hefur verið kallaður til björgunaraðgerða og kom í gær um 2000 íbúum héraðsins frá hættumestu svæðunum til fjalla. Hauskúpa 14. aldar páfa ÓPRÚTTNIR þjófar, sem fyrir skömmu stálu hauskúpi spánsks páfa sem uppi var á 14. öld úr rústum kastala sem stendur við Sabinan í héraðinu Aragon, hafa nú krafist lausn- argjalds. Borgarstjóri nágrannabæjar- ins Illueca, sem vai- fæðingar- staður Benedicto XIII páfa sem betur var kunnur undir nafninu Papa Luna, sagði í við- tali við blaðið La Vanguardia að honum hefðu verið send tvenn nafnlaus skilaboð þar sem þess er krafist að hann fari með eina milljóna peseta í skemmtigarð í borginni Zaragoza. Borgar- stjórinn hefur fylgt fyrirmæl- unum en þjófarnir sáust hvergi. Segist hann nú óttast að þeir hafi fleygt hauskúpunni. Elle peysa 7.495 kr. Jansport skólabakpoki 3.995 kr. Extreme peysa 3.495 kr. Columbia dömuúlpa 19.909 kr. Adidas skólabakpoki 2.995 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.