Morgunblaðið - 24.08.2000, Side 33

Morgunblaðið - 24.08.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 33 ERLENT * > „Oði hundur“ aftur bak við rimla á N-Irlandi Branson Mandelson álítur vopnahlé munu halda Belfast. AP, The Daily Telegraph. LEIÐTOGI einnar af vopnuðum hreyfingum sambandssinna á Norður-Irlandi, Johnny „Oði hundur“ Adair, sem látinn var laus úr fangelsi til reynslu í fyrra, er aftur kominn í fangelsi og segja stjórnvöld hann hafa notað frelsið til að kynda undir óeirðir. Var náð í hann með þyrlu á heimili hans á þriðjudagskvöld og hann flutt- ur í Maghaberry-fangelsið. Peter Mandelson, ráðherra Norður-írlandsmála, sagðist í gær ekki óttast að handtakan yrði til að grafa und- an vopnahléi sambandssinna og kaþólskra í héraðinu, sem staðið hefur í tvö ár. Auknefnið hlaut Adair er hann stóð fyrir fjölda morðtilræða skömmu eftir 1990. Inn- byrðis átök hreyfingar Adairs, UDA, við önnur samtök sambandssinna, UVF, hafa verið blóðug síðustu dagana og valdið ótta um að friðurinn sem tókst í héraðinu með samningum sam- bandssinna og kaþólikka væri úti. Adair er tal- inn hafa verið helsti hvatamaðurinn að átökun- um við UVF. Hann var í fararbroddi hávaðasamrar göngu stuðningsmanna UDA er gengu upp Shankill-götu um síðustu helgi, í kjölfarið var ráðist á krá sem tengist UVF og heimili nokkurra leiðtoga samtakanna. Er Adair var handtekinn á þriðjudag veittu nokkrir dyggir stuðningsmenn hans mála- myndamótspyrnu, en þeir eru í svonefndum „C- hópi“, vopnaðri deild UDA í vesturhluta Bel- fast. Reuters Adair er hann var leystur úr haldi í fyrra. Adair var árið 1994 dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir glæpi sína. Mo Mpwlam, fyrrverandi ráð- herra málefna Norður-írlands í bresku stjórn- inni, var mótfallin því að hann yrði látinn laus í fyrra, þar sem hún taldi hann of hættulegan til að hægt væri að láta hann ganga lausan. Stjórnmálaleiðtogar sambandssinna þvinguðu hana til að sætta sig við að hann fengi eins og margir aðrir hryðjuverkamenn frelsi. Var álitið að með slíkum aðgerðum yrði auðveldara að fá ákafa sambandssinna til að sætta sig við mála- miðlun í deilum vi_ð kaþólikka. Mandelson N-írlandsmálaráðherra varði í gær ákvörðunina um að handtaka Adair, sem tekin var eftir samráð við ráðamenn öryggis- mála í héraðinu. „Fyrst og fremst verð ég að sinna öryggi al- mennings og ég get ekki veitt einstaklingi sem ógnar því frelsi," sagði Mandelson. „Fólk í Belfast vill ekki lifa undir járnhæl glæpamanna og rudda sem nota gamlar aðferðir skæruliða til að verja eigin hagsmuni.“ Billy Hutchinson, talsmaður hins pólitíska arms UVF, sagðist óttast að átökin myndu magnast. UVF hefndi árása helgarinnar á mánudag með því að myrða tvo menn í Belfast og liðsmenn beggja aðila töldu ósennilegt að samið yi’ði um vopnahlé. Bresk stjórnvöld hafa á ný sent hermenn út á götur Belfast til að reyna að kæfa átök í fæðingu. fær „lottó- vinning“ Lundúnum. Reuters, AFP. SIR RICHARD Branson, eigandi Virgin-fyrirtækjasamsteypunnar, virtist í gær næiri því að fá einstaka afmælisgjöf; það er réttinn til að reka brezka lottóið í sjö ár frá og með október á næsta ári. Stjórn brezka lottósins frestaði í gær ákvörðun um hverjum yrði fal- inn reksturinn en tilkynnti að geng- ið yrði til frekari viðræðna við „The People’s Lottery", félag sem Bran- son veitir forstöðu. Hann varð fimm- tugur í síðasta mánuði. Camelot Group Plc., félagið sem fram að þessu hefur staðið að rekstri brezka lottósins, er í raun dottið úr leik, aðallega vegna shug- búnaðarbilana sem leiddu til þess að vinningshafar voru snuðaðir. Til hafði staðið að stjórn lottósins veitti rekstrarleyfið fyrir næsta tímabil í gær, en þess í stað sendi hún frá sér þá óvæntu tilkynningu, að hvorugt boðið væri nógu gott til að hægt væri að ganga frá rekstrar- samningi strax. „The People’s Lott- ery“ yrði gefinn kostur á að betrum- bæta tilboð sitt og endanleg niðurstaða yrði tilkynnt eftir mánuð. Félag Bransons, sem Bill Gates Microsoft-forstjóri er einn aðila að, hét því í tilboði sínu að gera að minnsta kosti 2.500 manns að millj- ónamæringum (í sterlingspundum talið) og að safna yfir 15 milljörðum punda, andvh’ði um 1800 milljarða króna, til góðgerðamálefna. Upplýsingar um rannsókn EgyptAir-slyssins Flugmannasamtök fordæma leka London. AP. ALÞJÓÐASAMBAND stéttarfé- laga flugmanna hefur fordæmt birtingu ásakana á hendur aðstoð- arflugmanni þotu Egypt Air, sem fórst í október í fyrra, um óeðli- lega kynferðishegðun. Segir sam- bandið þessar ásakanir vera einn margra umdeilanlegra þátta sem verði sífellt algengari í rannsókn flugslysa. Meðal skjala, sem bandaríska samgönguöryggisráðið, NTSB, gerði opinber 11. ágúst, en hafði áður verið lekið til bandarísks dag- blaðs, var m.a. að finna skýrslu frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI, er benti til þess að aðstoðar- flugmaðurinn, Gamil El-Batouty, hefði sætt rannsókn af hálfu ör- yggisvarða á hóteli í New York vegna nokkurra tilvika „meintrar, óeðlilegrar, kynferðislegrar hegð- unar“. Mun þar m.a. vera átt við að þann hafi svipt sig klæðum. Ásakanirnar voru hluti af niður- stöðum rannsóknar FBI á ævi áhafnar flugvélarinnar, sem fórst úti fyrir strönd Massachusetts og með henni allir sem voru um borð. Bandarískir rannsakendur hafa sagt líklegt að El-Batouty hafi vís- vitandi flogið vélinni í sjóinn, en egypskir embættismenn hafna þeim möguleika. í þeim eintökum skýrslunnar sem birt voru hafði verið strikað yfir nöfn meintra sjónarvotta. „Það eru engar vísbendingar um að þessar meintu athafnir hafi á nokkurn hátt komið slysinu við og ógerningur er að átta sig á því hvað vakir fyrir þeim sem birta svona upplýsingar,“ sagði í yfir- lýsingu Álþjóðasambandsins. Sambandið lét í ljósi áhyggjur af „tilhneigingum sem eru alvarleg ógn við skilvirkni rannsókna á flugslysum," þ. á m. leka til fjöl- miðla í því augnamiði að hafa áhrif á skilning almennings á flugslys- um. Þá gagnrýnir sambandið einn- ig þá tilhneigingu að gera upp- lýsingar opinberar áður en rannsókn er að fullu lokið, og aukna tilhneigingu til að með- höndla rannsókn á orsökum slysa sem rannsókn á afbroti. Sex simpansar detta í lukkupottinn SEX simpansar sem búa í dýra- garðinum í Kaupmannahöfn duttu í lukkupottinn á dögunum er þeim var tilkynnt að 83 ára göm- ul kona hefði arfleitt þá að hálfri milljón danskra króna, nær fimm milljónum íslenskra króna. Hinsta ósk Elsebeth Christen- sen, sem átti enga nákomna ætt- ingja á lífi, var að fé hennar rynni til dýragarðsins með þeim skilmálum að simpansarnir sem þar búa myndu njóta hagsbót- anna. Christensen gerði þetta til að heiðra minningu dóttur sinnar sem lést eftir langvarandi veik- indi, langt um aldur fram, fyrir um fimmtíu árum. Dóttirin mun hafa eytt siðustu ævidögum sín- um fyrir framan simpansabúrið. „Við munum nota peningana til að endurbæta búrið þeirra," sagði Sören Glud, fjármálastjóri dýra- garðsins í Kaupmannahöfn í gær. Christian Notlevsen dómari las upp úr erfðaskránni fyrir framan búr þeirra Jimmy, Trunte, Fifi, Trine, Grinni og Gigi og fylgdust íbúarnir með forvitnir á svip. Ekstra Bladet greindi þó frá því að þolinmæði þeirra hefði þrotið er á leið. Notlevsen sagði hins vegar eft- ir upplesturinn að erfíngjarnir hefðu hagað sér betur en margir sem hann hefði komist í tæri við. „Þeir fóru ekki að fljúgast á,“ sagði Notlevsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.