Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ert þú líf-
skyssa?
Þar er hún óstöðvandi og minnir mál-
flutningur hennar um margt á það
versta í málflutningi verstu kirkjunnar
manna án þess hún séþar með sett á
bekk með þeim.
Ert þú líffræðileg
skyssa? Þessi
spurning blasir við
þegar farið er inn á
heimasíðu á Net-
inu, sem ber yfirskriftina Stöðvið
doktor Láru og sýnir mynd af
grimmúðlegri konu sveipaðri
bláum bjarma. Lára þessi ber
eftimafnið Schlessinger og sjálf
er hún með ósköp vinalega
heimasíðu á þessu sama Neti,
auk þess sem hún svarar spurn-
ingum útvarpshlustenda í
Bandaríkjunum og er á leiðinni í
sjónvarp í september.
Á heima-
VIÐHORF
Eftir
Karl Blöndal
síðu sinni
birtist doktor
Lára bros-
andi í þágu
barna. Hún vill koma í veg fyrir
kynlíf barna og fullorðinna (sá
málstaður krefst tæplega mikils
hugrekkis) og stuðla að því að
unglingar haldi sig frá kynlífi og
fólk stundi helst ekki kynlíf fyrr
en eftir að það gengur í hjóna-
band. Á heimasíðunni er reyndar
ekkert sem bendir til þess að
ástæða sé til að stöðva doktor
Láru. Þar er boðið upp á ýmsan
varning, boli, ramma utan um
bílnúmer og meira að segja sér-
stakan leik sem snýst um boð-
skap hennar.
Ástæðan fyrir því að upp er
komin hreyfing til að stöðva
doktor Láru er ummæli hennar
um samkynhneigða í útvarpinu.
Þar er hún óstöðvandi og minnir
málflutningur hennar um margt
á það versta í málflutningi verstu
kirkjunnar manna án þess hún sé
þar með sett á bekk með þeim.
Doktor Lára heldur þvi fram að
samkynhneigð sé „líffræðileg
villa“ og „kynferðislega afbrigði-
leg“. Að auki segir hún að sam-
kynhneigðir leiti sérstaklega á
börn og unglinga.
Samtök homma og lesbía í
Bandaríkjunum hafa brugðist
hart við þessum ummælum og
hvatt til þess að almenningur
þrýsti á fyrirtæki um að hætta að
auglýsa í þáttum doktors Láru.
Fyrirtæki á borð við United Air-
lines, Procter & Gamble, Amer-
ican Express og hið opinbera
lotterí Ohio-ríkis hafa snúið baki
við henni.
Doktor Lára segist sæta of-
sóknum og bætir við að hennar
viðhorf til samkynhneigðra séu
ekki frábrugðin viðhorfum
þeirra, sem nú séu í framboði til
forseta og varaforseta í Banda-
ríkjunum. Þá hafi páfinn lýst yfir
því að samkynhneigð stríddi
gegn náttúrunni, en enginn hefði
búið til heimasíðu undir yfir-
skriftinni stöðvið páfann.
Andstæðingar Láru segja hins
vegar að allir hefðu snúið baki
við henni á stundinni ef hún hefði
veist með sama hætti gegn svört-
um eða gyðingum.
Doktor Lára hefur fengið
stuðning frá samtökum á borð
við Siðprúða meirihlutann (Mor-
al Majority) og Rabbínasamtök-
um Ameríku, en að minnsta kosti
einn leiðtogi þeirra hefur túlkað
Biblíuna með öfgakenndum
hætti, til dæmis í því skyni að
finna trúarlega réttlætingu á því
að myrða Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra Israels, sem síðar
var skotinn til bana.
Fyrirtækið Paramount hefur
ekki gefið nein merki um að þar
á bæ séu menn að hugsa um að
hætta við að framleiða fyrirhug-
aðan sjónvarpsþátt. Hjá Para-
mount er aðeins ítrekað að ekk-
ert verði sent út í þættinum, sem
geti kynt undir hatri á minni-
hlutahópum. Þá er ekki vitað til
þess að nein sjónvarpsstöð, sem
samþykkt hafði að sýna þáttinn,
hafi skipt um skoðun og má því
búast við að þátturinn nái til 97%
Bandaríkjamanna.
Talið er að um 18 milljónir
manna hlusti á þátt doktors Láru
í útvarpi á viku. Auglýsingum
hefur fækkað í þættinum frá því
herferðin hófst til að stöðva hana
og hún er farin að biðja hlustend-
ur sína að senda tölvupóst og
hringja í þau fyrirtæki, sem enn
auglýsa og færa þeim þakkir fyr-
ir. Þetta segja andstæðingar
hennar að sýni að þeir séu að ná
yfirhöndinni. Hún segir hins veg-
ar að um sé að ræða ofsóknir,
sem nú séu farnar að beinast
gegn fjölskyldu sinni.
Það er engin ný bóla að mál
sem þessi blossi upp þar sem
málfrelsi ræður ríkjum. Eitt er
að hvetja til ofbeldis, annað að
viðra skoðun sína. Það getur
vissulega komið einstaklingum í
koll að viðra ákveðnar skoðanir.
Það er hins vegar sjaldnast
vegna þess að dómstólar grípa í
taumana, heldur kemur þrýst-
ingurinn úr annarri átt. Hann er
efnahagslegur. Þeir hags-
munahópar sem sætta sig ekki
við að vera rægðir, taka til ráða á
borð við að beita fyrirtæki þrýst-
ingi til að þau styðji ekki viðkom-
andi aðila. í því stríði hafa þeir
oftar en ekki skoðanakannanir að
vopni. Til dæmis sýnir skoðana-
könnun sem Harris lét gera í júní
að 72% homma, lesbía og tvíkyn-
hneigðra vilji síður kaupa vörur
hjá fyrirtækjum, sem auglýsa í
þáttum þar sem viðhorf andvíg
hommum og lesbíum komi fram.
42% gagnkynhneigðra tóku í
sama streng. Þetta þykir bera
því vitni að neytendum sé ekki
sama hvernig fyrirtæki verji fé
til auglýsinga og stjórnendur
fyrirtækja ættu að skilja það.
Því má búast við að doktor
Lára hemji sig þegar í sjónvarpið
kemur og láti samkynhneigða í
friði. En það verður ekki vegna
kröfunnar um umburðarlyndi,
heldur mun máttur peninganna
ráða ferðinni, því ákveði þeir,
sem hingað til hafa gert doktor
Láru kleift að ná eyrum fjöldans
að halda að sér höndum verður
enginn eftir til að hlusta. Mál-
frelsi hennar verður eftir sem áð-
ur óskert, en hommar og lesbíur
munu hafa sýnt hvers þau eru
orðin megnug í Bandaríkjunum.
BJARNIINGIMAR
JÚLÍUSSON
+ Bjarni Ingimar
Júlíusson fæddist
á Skógum í Flókadal
13. september 1923
og fluttist að Leirá í
Borgarfírði 1924.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 16. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Júlíus
Bjarnason, bóndi á
Leirá, fæddur á
Hömrum í Lundar-
reykjadal, 30. júní
1889, d. 23. nóvem-
ber 1978 og Hallfríð-
ur Helgadóttir, kennari og hús-
móðir, fædd á Öskubrekku í
Amarfirði 4. desember 1888, d. 29.
október 1950. Bræður Bjarna eru:
Helgi Júlíusson úrsmiður, f. 20.
júní 1918, d. 27. september 1994,
maki Ilulda Jónsdóttir; Kristinn
Júlíusson bóndi, f. 27. febrúar
1921, maki Sigurást Indriðadóttir;
Þórður Júlíusson verkfræðingur,
f. 29. september 1928, d. 9. febrúar
1997, maki Karen Lövdahl.
Eftirlifandi eigin-
konu sinni Áslaugu
Stefánsdóttur, f. 27.
nóvember 1929 í
Reykjavík, kvæntist
Bjarni 17. desember
1955. Foreldrar henn-
ar voru Stefán Ingi-
mar Dagfinnsson
skipstjóri, f. 10. júlí
1895, d. 31. ágúst 1959
og Júm'ana Stefáns-
dóttir húsmóðir, f. 14.
júnf 1891, d. 5. októ-
ber 1982. Böm Bjarna
og Áslaugar eru: 1)
Júlíus framkvæmda-
stjóri, f. 19. mars 1956, maki Auð-
ur Rafnsdóttir. Börn þeirra eru
Bjarni Ingimar og Árni. 2) Stefán
Ingimar fjármálastjóri, f. 4. des-
ember 1959, maki Steinunn Ás-
mundsdóttir. Barn þeirra er Ás-
laug Ragna. Einnig á Stefán
dótturina Kristínu Maríu. 3) Rann-
veig Júníana leikskólakennari, f.
27. júlí 1961, maki Lárus V. Val-
bergsson. Börn þeirra em Áslaug
Lára og Katrín Júníana. 4) Bjarni
Þegar ég læt hugann reika og end-
urminningarnar um Bjarna fara að
streyma fram kemur mér óhjá-
kvæmilega fyrst í huga eyrin undir
Laxfossi. Á þeim seiðmagnaða veiði-
stað hitti ég Bjarna fyrst. Hann var
þar mættur ásamt Ándrési veiðifé-
laga sínum og þeir áttu að deila
Laxfosssvæðinu með okkur Ola
frænda. Þeir tóku okkur einstaklega
vel og buðu okkur að velja veiðistað.
Ennþá man ég vel sögur hans og
leiðsögnina um ána. Á þeirri stundu
renndi ég ekki grun í að Bjarni ætti
eftir að verða tengdafaðir minn.
Bjarni var gæddur hinni góðu
veiðináttúru í ríkum mæli. Hann var
mikill laxveiðimaður og var um
margra ára skeið eigandi og leigu-
taki að mörgum vatnasvæðum. Ymis
kennileiti í laxveiðiám hafa verið við
hann kennd eins og Bjarnaklettur í
Norðurá. Ég varð þeirra gæfu að-
njótandi að fá að njóta samvista við
hann í mörgum veiðiferðum og ég
mun alltaf minnast með ánægju
þeirra stunda sem ég sat með honum
á árbakkanum og hlustaði á góðar
veiðisögur. Ég mun sjálfsagt alltaf
sakna þess að hafa ekki fengið tæki-
færi til að fara með honum í Laxá í
Leirársveit og njóta þar leiðsagnar
hans og sagnagleði. Bjarni ólst upp í
Leirársveitinni og þótt hann veldi
sér lífsstarf í höfuðborginni lét hann
sér alltaf annt um heimasveit sína.
Hann og bræður hans tóku sig til
dæmis saman um að gefa hökul til
kirkjunnar á Leirá. I huga mínum er
minnisstæð helgi yfir þeirri stundu
sem þeir komu saman við messu í
litlu kirkjunni til að afhenda hökul-
inn.
En samræður okkar voru ekki
bundnar við veiðisögur. Þau ár sem
við þekktumst ræddi Bjarni oft við
mig um tilgang lífsins og merkingu
dauðans.Vitanlega fengust engin
svör, en Bjarni var ávallt sannfærð-
ur um að líf okkar hér væri aðeins
stuttur kafli á langri leið og andinn
leitaði á æðri stig þegar jarðvistin
tæki enda. En öll lifum við í verkum
okkar og störfum og þannig verður
varanlegasta minningin.
Bjarni var mikill gæfumaður í
einkalífi og kvæntist glæsilegri og
góðri konu, Áslaugu Stefánsdóttur.
Þau bjuggu sér og börnum sínum
heimili á Hagamel 30 og fyrir tæpum
tveimur áratugum komu þau sér upp
sumarbústað í Vaðneslandi, sem
fljótlega varð eins og þeirra annað
heimili. Þá hófst í raun nýr kafli í lífi
Bjarna. Eftir það voru fáir eða engir
veiðitúrar, engar utanlandsferðir, en
stefnan alltaf tekin austur í Álfhól í
Vaðneslandi þegar færi gafst. Bjarni
virtist una sér best þar fyrir austan,
einn eða með fjölskyldunni hvort
sem var vetur, sumar vor eða haust
og enginn vissi hvað hann brallaði
með hinum álfunum. Fyrir tæpum
fjórum árum veiktist Bjarni illilega
og um tíma hugðu læknar honum
ekki líf. Baráttuviljinn var þó óbug-
aður og hann stóð upp úr þeim veik-
indum eftir endurhæfingu. Áfallið
hafði þó skilið eftir sitt mark, með
því að taka allan mátt úr hægri hend-
inni svo hann varð að heilsa fólki með
þeirri vinstri. Sem lof um gildi gleð-
innar í lífinu rétti ég honum þó hægri
höndina þegar ég heilsaði honum
nýkomnum heim af sjúkrahúsinu.
Þaðan í frá heilsaði Bjarni mér alltaf
með hægri hendi. En þrátt fyrir að
baráttuviljinn hafi verið óbilandi,
jafnvel löngu eftir að allt þrek var
þrotið, var síðasti kaflinn lengri og
erfiðari en búist var við.
Fjölskyldan átti því Iáni að fagna
að þróa dýpri og nánari tengsl eftir
því sem á leið og meiri tími var til
samvista. Bjarni naut ástríkis og
umhyggju af hálfu barna sinna og ef-
laust hefur sá kærleikur sem hann
var umlukinn gert honum ellina betri
en annars hefði orðið. Bjarni gat
lengst af verið heima hjá sér á Haga-
mel, en þurfti síðustu árin mikinn
stuðning. Þar fann hann sig best og
þar átti hann í Áslaugu konu sinni
þann bakhjarl sem aldrei brást. í
veikindum sínum naut hann ástar,
umhyggju og umönnunai- Áslaugar
sem hugsaði um hann og gætti hans
af óvenjulegu innsæi og kærleik.
Ætla mætti að hún skynjaði líðan
hans og tilfinningar af sívakandi eðl-
ishvöt sem alltaf var til staðar jafnt á
nóttu sem degi. Síðustu vikuna var
hann á hjartadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, deild 7A, þar sem hann
dó að morgni 16. ágúst sl. Fjölskyld-
an er þakklát öllum þeim sem lið-
sinntu honum í veikindum hans.
Bjarni er farinn þá leið sem bíður
okkar allra, en minningin um afa
mun lifa. Hann er farinn á undan
götuna sem við öll munum fylgja.
Við minnumst hans með orðum
Einars Ben, er hann segir:
Af eilífðarljósi bjarma ber
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
móti öllum oss faðminn breiðir.
Ég mun minnast Bjarna sem heil-
steypts manns sem gott er að hafa
þekkt. Hann gaf mikið af sér til
þeirra sem hann umgekkst og skildi
eftir góðar minningar handa okkur
sem eftir sitjum.
Lárus Valbergsson.
I dag kveð ég tengdaföður minn,
Bjarna Júlíusson, eftir löng og
slröng veikindi. Ég hitti tengdaföður
minn fyrst á gamlárskvöld árið 1968
en þá vorum við Guðrún Hallfríður,
dóttir hans, farin að vera saman.
Guðrún Hallfríður var alin upp hjá
móður sinni og stjúpföður þannig að
yfirleitt var farið í heimsókn á tylli-
dögum á Hagamelinn til Bjarna og
Áslaugar.
Þórður verkfræðingur, f. 11. apríl
1969, maki Vala Ingimarsddttir. 5)
Fyrir hjónaband átti Bjarni dótt-
urina Guðrúnu Hallfríði listakonu,
f. 21. apríl 1949, maki Edward
Kiernan. Börn þeirra eru: Sigurð-
ur, Sverrir og Guðmundur. 6)
Einnig á Bjarni sljúpdóttur, Hildi
Sveinsdóttur félagsráðgjafa, dótt-
ur Áslaugar, f. 7. janúar 1949,
maki Helgi Viborg. Börn þeirra
eru Eva Bryndís, Ásthildur og
Þóra Björg.
Bjarni útskrifaðist frá Reyk-
holtsskóla og fór þaðan í Iðnskól-
ann á Akranesi og útskrifaðist sem
vélstjóri frá Vélskólanum í Reykja-
vík árið 1949. Bjarni var vélstjóri á
ms. Foldinni sumarið 1949, vél-
stjóri hjá Eimskipafélagi Islands
til 1956, en starfaði síðan hjá Olíu-
félaginu til 1958. Bjarni starfrækti
einnig vélsmiðjuna Járn árin
1958-1959. Hann stofnaði Stillingu
hf. ásamt fleirum árið 1960 og
starfaði þar óslitið til 1997 en lét
þá af störfum sökum veikinda.
Bjarni starfaði að ýmsum félags-
málum, var félagi í Oddfellowregl-
unni í Reykjavík og sat um árabil í
stjórnum BM Vallár hf. og Iðn-
garða hf.
Útför Bjarna verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Bjarni verkaði frá fyrstu tíð á mig
sem traustur og hjartahlýr fjöl-
skyldumaður sem þó var frekar
hlédrægur en það bætti eiginkona
hans, Aslaug, upp á þann hátt sem
henni er einni lagið. Þá varð mér
fljótt Ijóst að þau hjónin voru mjög
samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir
hendur.
Þegar við síðan fluttum til Sví-
þjóðar, þar sem ég var í sérnámi,
rofnuðu tengslin um tíma en árin úti
urðu níu. Eldri drengh-nir okkar
tóku upp tengslin þegar þeir dvöldu
á íslandi eitt sumar. Einkum varð
góður vinskapur milli elsta sonar
okkar, Sigurðar Hrafns, og yngsta
sonar Bjarna og Áslaugar, Bjama
Þórðar, en þeir voru fæddir sama ár.
Þegar kom að vali á háskólanámi
völdu þeir báðir verkfræðina og
skruppu þeir þá oft í hádeginu á
Hagamelinn.
Síðustu árin voru mjög erfið fyrir
tengdaföður minn eftir að hann lam-
aðist og missti málið að mestu leyti.
Vegna viljastyrks haps og stórkost-
legrar jákvæðni Áslaugar, sem
studdi hann með ráðum og dáð allan
tímann, tókst honum að komast heim
aftur af sjúkrastofnun. Áslaug á að-
dáun okkar allra sem fylgdust með
þeirri hlýju og alúð sem hún sýndi og
hún hjúkraði eiginmanni sínum til
hins síðasta. Þegar Bjarni svo veikt-
ist skyndilega nú fyrir stuttu og var
fluttur helsjúkur á sjúkrahús kom
það flestum okkar í opna skjöldu hve
stutt var eftir.
Ég veit að tengdafaðir minn var
sáttur við að yfirgefa þetta líf, þar
sem ástand hans passaði ekki inn í
lífsmynstur hans. Hann var þakklát-
ur eiginkonu sinni íyrir að geta dval-
ið heima. Hann var stoltur af öllum
börnunum, barnabörnunum og
barnabarnabarninu og fylgdist mjög
vel með öllu sem þau tóku sér fyrir
hendur, bæði í námi, starfi og leik.
Ég veit að vel verður tekið á móti
tengdaföður mínum af tveimur
bræðrum hans og öðrum nánum vin-
um sem á undan voru gengnir. Elsku
Áslaug og böm, megi Guð styrkja
ykkur í sorg ykkar. Ég mun ávallt
minnast Bjama með hlýju og virð-
ingu.
Edward Kieman.
í dag kveð ég tengdaföður minn
Bjarna Ingimar Júlíusson með miklu
þakklæti fyrir okkar kynni og hans
miklu umhyggju sem hann sýndi
okkur. Þær minningar sem á mig
leita á þessari kveðjustund eru
margar en efst í huganum er leiðar-
ljósið sem hann var okkur unga fólk-
inu í fjölskyldunni.
Bjarni hafði ekki mörg orð um
hlutina en veganestið skilaði sér.
Hann kvatti okkur til hreinskilni og
heiðarleika, tryggðar og gæsku og
umfram allt að bera ábyrgð á eigin
lífi. Á viðkvæmum tíma sagði hann