Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 61
Siðmennt og kristni
PAÐ eru býsna
margir sem hafa kvatt
sér hljóðs vegna
kristnihátíðar á Þing-
völlum í sumar.
Upphaflegt tilefni
þessarar umræðu var
tilkostnaður vegna
þessarar hátíðar og
þarf engan að undra
þótt fólk hafi skoðanir
á slíku enda um skatt-
fé almennings að ræða.
Það vekur hins veg-
ar talsverða undrun að
sumir skuli þurfa að
nota þessi hátíðahöld
til þess að gera lítið úr
hlutverki kirkjunnar og stöðu henn-
ar í samfélaginu. Einstaka ganga
jafnvel enn lengra og gera lítið úr
því fólki sem notfærir sér þjónustu
kirkjunnar.
Jórunn Sörensen kennari skrifar
grein í Morgunblaðið 15. ágúst og
gerir að umfjöllunarefni grein sem
dr. Pétur Pétursson prófessor skrif-
aði í Morgunblaðið 20. júlí þar sem
hann fjallaði um þá staðreynd að ís-
lenska þjóðin leitar til kirkju sinnar
„bæði sem heild og sem einstakling-
ar - á hátíðum, á gleðistundum og
eins þegar sorg og áföll steðja að.“
Jórunn er augljóslega ósátt við
þessa fullyrðingu dr. Péturs.
Hún viðurkennir reyndar að það
sé rétt að fólk láti sldra og ferma
börnin sín og jarða sína nánustu.
Hún segir hins vegar: „en það er
mín skoðun að það séu langt frá því
allir sem gera það af fúsum og
frjálsum vilja.“ Þetta er sannarlega
athyglisverð skoðun ekki síst í ljósi
þess að höfundur er kennari og
hlýtur því að bera einhverja ábyrgð
á fáfræði þeirrar þjóðar sem lætur
kirkjuna plata sig til þess að blessa
börn og brúðhjón.
í framhaldi af þessum dómi yfir
þjóðinni lofsyngur Jórunn samtökin
Siðmennt og bendir á að þau bjóði
upp á samskonar þjónustu og kirkj-
an, t.d. borgaralega fermingu. Hún
fer fallegum orðum um undirbúning
þeirrar athafnar en finnur þó aftur
tilefni til þess að hnýta í kirkjuna er
hún segir um borgaralega ferm-
ingu: „Mikil fjölgun hefur orðið í
þátttöku þrátt fyrir andstöðu
kirkjunnar manna sem hafa ekki
linnt látum í að reyna að sannfæra
fólk um að kirkjan ein eigi rétt á því
að búa til athöfn sem markar tíma-
mót milli bernsku og fullorðinsára
einstaklings." Sá sem þessar línur
ritar minnist þess eins að kirkjunn-
ar menn hafi gert athugasemdir við
það að Siðmennt skyldi nota orðið
„í'erming“ í þessu samhengi og bent
á þá ríku hefð sem er á bak við
Einar Eyjólfsson
þetta orð. Hafi kirkjan
eða einhverjir kirkj-
unnar menn reynt að
sannfæra fólk um
einkarétt á athöfn sem
markar framangreind
tímamót bið ég Jór-
unni að vísa mér á slík-
ar yfirlýsingar.
Hvað málefni kirkj-
unnar varðar verður
Jórunn Sörensen að
halda sig við stað-
reyndir og bíta í það
súra epli að meginhluti
þjóðarinnar tilheyrir
um þessar mundir
kristinni kirkju og
sækir þangað veigamikla þjónustu.
Að lýsa því yfir að fólk geri þetta
sökum fákunnáttu er einstæð yfir-
lýsing um andlegt ásigkomulag
þjóðarinnar á þessari upplýsinga-
öld.
Um leið og ég geri þessar athuga-
semdh' við grein Jórunnar vil ég
taka það fram að ég ber fulla virð-
ingu fyrir félaginu Siðmennt og skil
vel að fólk sem er utan kirkju og
trúfélaga vilji finna farveg fyrir
borgaralegar athafnir og skapa
þeim fallega umgjörð. Ég óska þeim
öllum góðs sem þangað leita enda
veit ég að þar er margt vandað og
gott fólk að finna.
Ég tel það hins vegar mikilvægt
að þeir sem vilja kynna þessi sam-
tök eins og Jórunn gerir í sinni
grein leitist við að sýna lífsskoðun-
um annarra virðingu. Hvað myndi
Jórunn segja ef ég leyfði mér að
fullyrða að það góða fólk sem leitar
til Siðmenntar kæmi þangað ein-
faldlega á röngum forsendum?
Jú, ég þykist vita að hún myndi
mótmæla því eindregið og eflaust
bera mig þeim sökum að ég væri að
gera lítið úr þessu fólki.
Um kirkjuna virðist hins vegar
gegna öðru máli. Það má vega að
því fólki sem henni tilheyrir en færa
því þó til bóta að það viti ekki betur.
Kh'kjan kann að liggja vel við
höggi eftir hátíðahöld sumarsins en
Stretchbuxur
St. 38-50 - Frábært úrval
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Kirkjan
Megínhluti þjóðarinnar
tilheyrir um þessar
mundir kristinni kirkju,
segir Einar Eyjdifsson,
og sækir þangað veiga-
mikla þjónustu.
gleymum því ekki að kirkjan er ekki
aðeins stofnun, hún er söfnuður
samtímafólks sem vill láta gott af
sér leiða rétt eins og sá hópur sem
finnur sig innan vébanda Siðmennt-
ar eða annarra félaga. Þess vegna
vil ég segja við Jórunni: Þú skalt
skamma okkur klerkana eins og þig
lystir en persónulega vil biðja þig að
sýna foreldrum þeiiTa 80 barna sem
ég skíri á hverju ári aðeins meiri
virðingu, að ekki sé minnst á þann
stóra hóp glaðværra ungmenna sem
sækir fermingarfræðslu.
Ef Jórunn telur sig vera að kynna
gott málefni ætti hún ekki að þurfa
að gera hlut annarra smáan til þess
að hampa sínum málstað. Góður
málstaður kynnir sig sjálfur og það
er einmitt aðalástæðan fyrir því að
boðskapur kirkjunnar lifir enn í dag
þrátt fyrir misbresti okkar prest-
anna og það ytra skipulag sem
kirkjan býr við og hlýtur alltaf að
vera umdeilt.
Umræðan um tilkostnað vegna
hátíðahaldanna og eins umræðan
um samband ríkis og kirkju á sann-
arlega fullan rétt á sér. Það er hins
vegar ástæðulaust að blanda inn í
þessa umræðu einkaskoðunum um
þekkingarleysi þeirra sem láta
kirkjuna blessa stóra sem smáa
áfanga á lífsleiðinni.
Það stækkar enginn við það að
beita slíkum málflutningi.
Eitt er víst að ég trúi því ekki að
siðmennt þjóðarinnar sé á svo lágu
stigi sem lesa má út úr grein Jór-
unnar að þorri landsmanna láti okk-
ur presta skíra og ferma börnin sín
og jarða sína nánustu af því að þeir
vita ekki að annað sé í boði.
Ástæðan fyrir þessum athuga-
semdum mínum er sú að ég tel mér
skylt að svara þegar því er lýst yfir
í blöðum að stór hluti þess fólks sem
ég leitast við að þjóna á degi hverj-
um leiti til mín vegna þess að það
þekki ekki til Siðmenntar eða þess
sem þau ágætu samtök hafa upp á
að bjóða.
Sjálfur er ég fullviss um að þeir
sem kirkjunni tilheyra séu sæmi-
lega skýrir í kollinum og þeir sem
þekkja okkur Islendinga vita vel að
við látum ekki svo auðveldlega að
stjóm.
Þess vegna hef ég ekki minnstu
efasemdir um það t.d. að sá þorri ís-
lenskra foreldra sem biður um bæn
og blessun kirkjunnar við skírn
bama sinna viti hvað þeir eru að
biðja um.
Að lokum vil ég svo vitna til orða
Jórunnar Sörensen og spyrja hvort
fólk trúi virkilega eftirfarandi full-
yrðingu hennar: „Kirkjan er búin að
einoka persónulegar athafnir fólks á
þann hátt að flestum dettur ekkert
annað í hug og telja jafnvel að það
varði við lög að brjóta þessar hefð-
ir.“
Höfundur er prestur Fríkirkjunnar
í Hafnarfírði.
2
m
'8W
f
EUREKA Á ÍSLANDI
Kynningarfundur að Hótel Loftleiðum 25. ágúst 2 0 0 0
Eureka er samstarf fyrirtækja um hátæknirannsóknir í Evrópu.
Kynnt er starfsemi Eureka á íslandi og í Evrópu. Dæmi um Eureka verkeíni með íslenskri aðild:
Flaga hf • Stjörnu-Oddi hf • Máki hf
9:00 Fundur settur. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkv.stj. RANNIS
9:15 EUREKA 2000 plus - Revitalisation and the Opportunities for SMEs
Mike Curtis, Eureka secretariat Brussels
10:15 Kaffi
10:30 Þátttaka íslands í Eureka - Hvemig tek ég þátt í Eureka verkefni?
Snœbjörn Kristjánsson, landsfulltrúi Eureka á Islandi (NPC)
Hvað fœ ég út úr þessu? • Afhverju samvinna? • Reynsla af Eureka verkefni:
11:00 X! 1960 AQUA-MÁKIH, Máki hf. Guðmundur Örn Ingólfsson.framkv.stj.
11:151! 2329 MicroSleep, Flaga hf. Helgi Kristbjarnarson, framkvstj.
11:30 Z! 2326 GPSFISH, Stjömu-Oddi hf. Sigmar Guðbjörnsson, framkv.stj.
11:45 Fyrirspumir og umræður
12:00 Lok
Fundarstjóri: Hjördís Hendriksdóttir, forstöðumaður alþjóðasviðs RANNÍS.
Skráning: Ragnhildur hjá RANNIS rannis@rannis.is
RAIVIUIS
HREYSTI
airlift™
SKÓLABAKPOKAR
Byltingarkennd nýjung í bakpokum, loftpúðar á
axlahöldum, minnka álag á axlir og bak.
a axlir
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
----- Skeifunni 19 - S. 568 1717 -----
Nanoq Kringlunni - Sportver, Akureyri - Sportlíf, Selfossi - Fjölsport, Hafnarfiröi
ir