Morgunblaðið - 24.08.2000, Side 67

Morgunblaðið - 24.08.2000, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 67 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Vígsluaf- mæli Hofs- óskirkju KIRKJAN er oss kristnum móðir, kristinn sérhver er vor bróðir, Guðs og Krists vér erum ætt allir sem hún hefur fætt. (H. Hálfd.) Mánudaginn 28. ágúst eru liðin fjörutíu ár síðan Hofsóskirkja í Skagafírði var vígð. Kirkjubygging hófst hér 1953, en fyrsta skóflustunga var tekin af þá- verandi sóknarpresti, Ragnari Fjal- ari Lárussyni. Sóknin var stofnuð 1953, en söfnuðurinn var fyrir þann tíma hluti af Hofssókn og sótti kirkju að Hofi á Höfðaströnd. Það var af mikilli bjartsýni og dugnaði að þorpsbúar, hin nýja sókn, sem aðeins voru 300 að tölu, réðust í að byggja hús Guði til dýrðar. Lögð- ust þar allir á eitt af miklum eldhug, karlar og konur að leysa þetta verk af hendi og mikið var unnið í sjálfboða- vinnu. Handbærar krónur voru fáar, þegar framkvæmdir hófust, en húsið kostaði tilbúið 450.000 kr. Það hefur því verið stór stund þeg- ar verki var lokið og upp rann bjartur vígsludagur þ. 28. ágúst 1960. Kirkjan var vígð við hátíðlega at- höfn af hr. biskupi Sigurbimi Einars- syni. Þessum tímamótum, 40 ára far- sælli sögu kirkju og safnaðar hér á Hofsósi verður fagnað og minnst há- tíðlega á Hofsósi helgina 26.-27. ágúst. Laugardaginn 26. ágúst kl. 11 er öllum íbúum prestakallsins boðið að koma í Skógræktina fyrir ofan Siglu- fjarðarveginn austan við Hofsós og gróðursetja eitt tré fyrir hvert af- mælisár Hofsóskirkju og hverju bami að gróðursetja sitt eigið tré. Þar munum við einnig biðja fyrir kirkju og safnaðarlífi og syngja saman. Sunnudaginn 27. ágúst kl. 14, verð- ur haldin hátíðarmessa í Hofsós- kirkju, núverandi sóknarprestur, sr. Ragnheiður Jónsdóttir, og fyrrver- andi sóknarprestur, sr. Sigurpáll Óskarsson, þjóna fyrir altari. Organ- isti er Anna Kr. Jónsdóttir og kirkju- kór Hofsóskirkju syngur. Að messu lokinni býður sóknamefndin upp á kaffiveitingar í félagsheimilinu Höfðaborg. Með orðum Helga Hálfdanarsonar bjóðum við alla velkomna að fagna með okkur vígsluafmæli Hofsós- kirkju. Hún vill aðeins laða’ og leiða lýð, en ei með valdi neyða, þýður frelsi, boðar náð, birtir himneskt líknarráð. Sóknamefnd og söknarprestur Hofsóssóknar. Sumarnámskeið Dómkirkjunnar GUÐ fer ekki í sumarfrí. Þess vegna dettur bamastarf Dómkirkjunnar ekki niður á sumrin. Síðasta sumar- námskeið kirkjunnar verður dagana 28. ágúst til 1. sept. kl. 13-17. Síðan hefst bamastarf vetrarins um miðjan september í samstarfi við Vesturbæj- arskóla. Enn em nokkur pláss laus á síðasta sumamámskeiðið. Námskeið- ið er ætlað bömum á aldrinum 6-10 ára. Lagt hefur verið upp úr því að halda námskeiðsgjaldi í lágmarki. Gjaldið fyrh- vikuna er 1.500 kr., en þau böm sem sótt hafa barnastarf Dómkirkjunnar yfir veturinn greiða aðeins 1.000 kr. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir hefur umsjón með starf- inu ásamt Bolla Pétri Bollasyni, fræð- ara Dómkirkjunnar. Innritun er í síma 562-2755 og 869-5745. Fjölskylduhátíð á Brimilsvöllum FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ verður á Brimilsvöllum í gamla Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, sunnudaginn 27. ágúst kl. 17. Guðsþjónusta, leikir, söngur og grill! Við fögnum nýlokn- um endurbótum á Brimilsvallakirkju. Kirkjukór Ólafsvíkur syngur og fjölmargir aðstoða við guðsþjónust- una. Leikir, fjöldasöngur og grill- veisla að guðsþjónustu lokinni. Allir velkomnir. Sóknarprestur og sóknamefnd. Hallgrímskirkja. HádegLstónleik- ar kl. 12-12.30. Signý Sæmundsdótt- ir, sópran, og Douglas A. Brotchie, orgel. Háteigskirkja. Jesúsbæn kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með handaryfirlagningu og smurning. Hafn arfj arðark irkj a. Opið hús fyr- ir ung böm og foreldra þeirra kl. 10- 12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðis- stofnun Vestmannaeyja, setustofu 3. hæð. Heimsóknargestir hjartanlega velkomnir. Stafkirkjan verður opin og til sýnis sunnudaginn 27. ágúst frá kl. 14-15. Öllum velkomið að sjá og skoða á þessum tíma. ATVIMIMU- AUGLÝSINGAR Afgreiðsla í bakaríi Tvo starfskrafta vantar, annan fyrir hádegi og hinn eftir hádegi, og aðra hvora helgi, í bakarí okkar í Breiðholti. Ekki yngri en 25 ára. Upplýsingar í símum 557 7428 og 893 7370. TILKYNNINGAR Kaupi gamla muni s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir, málverk, silfur, jólaskeiðar og eldri húsgögn. Upplýsingar í síma 898 9475. Brennureið og töðugjöld Skagfirðinga Vindheimamelum 26. ágúst 2000 Dagskrá: 17.00 Fylkingar hestamanna safnast saman í Borgarey og gera klárt fyrir hópreiðina. 18.00 Hestar og menn koma í skipulagðri hóp- reið inn á Vindheimamela. Setningarathöfn. Verðlaunaafhending til ræktunarmanna og íþróttamanna ársins. 19.00 Skemmtidagskrá: Skemmtiatriði fyrir börn, leikir, eldgleypir o.fl. Dekkjarall. Þingmannareið, þingmenn kjördæmisins reyna fyrir sér í töltkeppni. Kappreiðar í þrautabraut. 21.30 Kveikt í brennu og efnt til fjöldasöngs. Kvöldvaka til kl. 1.00. 1.00 Formlegri skemmtun lokið. Miðaverð á hátíðina er kr. 1.500 fyrir 12 ára og eldri. Miðar eru seldir í upplýsingamiðstöð ferða- manna í Varmahlíð, Hestinum á Sauðár- króki, Hestabúðinni á Akureyri og í Töltheimum í Reykjavík. Allir eru velkomnir og þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hópreiðinni er bent á að hafa samband við Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Varmahlíð fyrir nánari upplýsing- ar. BORGARBYGGÐ Auglýsing Bæjarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017 samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin felst í að þjóðvegur 1 verði áfram í núverandi vegastæði milli Hrafnakletts og Ólafsvíkurvegar í stað fyrirhugaðrar færslu á þessum vegarkafla til vesturs. Breytingin verðurtil sýnis á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 11 —13 frá 24. ágúst nk. til 15. september nk. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við ofangreinda breytingu eigi síðar en 15. september nk. Skila skal athugasemdum til Bæjarskrifstofu Borgarbyggðar. Hversá er gerir ekki athugasemd við ofangreinda breyt- ingu á aðalskipulagi fyrir 15. september nk. telst samþykkur henni. Borgarnesi 15. ágúst 2000 Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar. ÝMISLEGT Frímerki — uppboð Thomas Höiland Auktioner a/s í Kaupmannahöfn er stærsta fyrirtækið á Norð- urlöndum með uppboð á frímerkjum og öðru skyldu efni. Starfsmenn fyrirtækisins verða á íslandi laugar- daginn 26. ágúst nk. til að skoða efni fyrir næsta uppboð, sem verður í nóvember. Leitað er eftir frímerkjum, heilum söfnum og lagerum, en mestur áhugi er þó á frímerktum umslögum og póstkortum frá því fyrir 1950. Áhugi erlendis á íslensku frímerkjaefni er mikill um þessar mundir. Þeir sem áhuga hafa á að sýna og selja frí- merkjaefni geta hitt starfsmenn fyrirtækisins á Hótel Esju laugardaginn 26. ágúst á milli kl. 10 og 12, eða eftir nánara samkomulagi á öðrum tíma. Frekari upplýsingar gefur Össur Kristinsson í símum 555 4991 eða 698 4991. Thomas Höiland Auktioner a/s, Frydendalsvej 27, DK-1809 Frederiksberg C Tel: 45 33862424 - Fax: 45 33862425. BÁTAR SKIP Hraðfiskibátar óskast Við óskum eftir að kaupa hraðfiskibáta af gerð- unum: Gáska, Sóma, Víkingi, Cleopötru o.s.frv. Bátarnir kaupast án kvóta og veðileyfa til útflutnings. Staðgreiðsluviðskipti. Áhugasamir hafi samband við: Bátasolan fa. Hr. Sámal J. Joensen Sundsvegur11, FO 100 Tórshavn, Færeyjar. FUMDIR/ MANIMFAGMAÐUR Aðalfundur Hótels ísafjarðar hf. fyrir árið 1999 verður haldinn á Hótel ísafirði föstudaginn 8. september 2000 kl. 16.00. Dagskrá samkvæmt samþykktum félags- ins: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. SMÁAUGLÝSINGAR KENNSLA Guðspeki- samtökin í Reykjavík Nýja Avalon miðstöðin Con Xanthos frá Ástralíu heldur tvo fyrirlestra um Heims- myndunarfræði - Cosmogony föstudaginn 25. ágúst og mánu- daginn 28. ágúst kl. 20.00. Con fjallar um heimsmyndunar- fræði út frá sjónarhóli guðspek- innar og verður efnið þýtt á íslensku. Fyrirlestrarnir verða haldnir í húsnæði Nýju Avalon miðstöðvarinnar að Hverfisgötu 105, 2. hæð, sími 562 4464. Aðgangseyrir er 500 kr. FÉLAGSLÍF Hjálpræðis- herinn Kirfcjustrsti 2 í kvöld kl. 20.30. Lofgjörðar- samkoma í umsjón majóranna Turid og Knut Gamst. Allir eru hjartanlega vel- komnir. fíímhjQlp Almenn samkoma í Þribúðum, Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00. Vitnisburðir. Ræðumaður: Guðmundur Sigurðsson, Vitan- um, sjómannatrúboði. Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. www.samhjalp.is. Afmælishelgi í Básum 25.— 27. ágúst Mætið og fagnið 25 ára afmæli Útivistar. Helgarferð með brottför föstud. kl. 20 og dagsferð á laugardegin- um kl. 9.00. Góð dagskrá, hag- stætt verð. Pantið strax. Fimmvörðuhálsganga 26.-27. ágúst. Útivist er ferðafélag fyrir alla ald- urshópa! Sjá heimasíðu: utivist.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.