Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR IDAG Félag leiðsögumanna Segir reglur ailtof oft þverbrotnar FÉLAG leiðsögumanna hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Enn einu sinni stendur íslensk ferðaþjónusta frammi fyrir hörmu- legum slysum. Félag leiðsögu- manna lítur þróun ferðamála um þessar mundir mjög alvarlegum augum. Stjórn félagsins telur að nú dugi ekki annað en tala tæpi- tungulaust um það ófremdarástand og skammsýnissjónarmið sem víða einkenna þessa atvinnugrein. Allar reglur varðandi vinnutíma, ökurita, aðbúnað leiðsögumanna og bifreiðastjóra á gististöðum eru allt of oft þverbrotnar. Of margir bifreiðastjórar hunsa viðvörunar- skilti um ástand vega og bann við áfengisneyslu í starfi. Aldrei hafa fleiri réttindalausir „leiðsögu- menn“ farið um landið og á þessu sumri. Stjórnvöldum er í lófa lagið að setja reglur um að menntaðir leið- sögumenn skuli fylgja skipulögð- um hópum um ákveðin landssvæði. Þannig háttar til víða í Evrópu að erlendum „leiðsögumönnum“ er gert að greiða háar sektir ef þeir brjóta reglur um leiðsögu á ákveðnum svæðum. Islensk ferðaþjónusta á kost á vel menntuðum leiðsögumönnum frá Leiðsöguskóla íslands en velur að ráða til starfa Pétur og Pál af götunni til að fara vandasamar leiðir um landið. Stjórnvöld hafa ekki enn séð sóma sinn í að veita menntuðum leiðsögumönnum lög- vernduð starfsheiti þrátt fyrir að um menntun á háskólastigi sé að ræða. Félag leiðsögumanna mótmælir harðlega þeim ummælum Óla H. Þórðarsonar um að leiðsögumenn beiti bifreiðastjóra þrýstingi. Slíkur þrýstingur kemur frá við- komandi ferðaskrifstofum. En hvernig er eftirliti með öryggismálum háttað? Félaginu er fullkunnugt um að réttindalausir ökumenn stunda farþegaflutninga milli Keflavíkur og Reykjavíkur á grundvelli túlkunarklækja og út- úrsnúninga á lagasetningum. Einn- ig er ökuritaskífum stungið undir stól við eftirlit og nöfn á ökuritum fölsuð. Þeir leiðsögumenn sem hafa gert athugasemdir við slíka hluti hafa átt erfitt með að fá vinnu hjá ýmsum ferðaskrifstofum. Aldrei hafa fleiri erlendir ferða- menn farist í bflslysum á malar- vegum landsins. Fréttir af slysa- hættum á Islandi geta haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þróun ferðaþjónustu í landinu. Þær reglur sem settar hafa verið um akstur á þjóðvegum landsins ber að kynna rækilega fyrir þeim sem hingað koma. Slík upplýsingastarf- semi tíðkast á sambærilegum svæðum erlendis. Víða fá ferðamenn ekki aðgang að viðkvæmum og hættulegum svæðum nema í fylgd ábyrgra leið- sögumanna. Slík vinnubrögð er vert að íhuga víða hérlendis. Samtök ferðaþjónustunnar verða að taka félagsmönnum sínum tak ef eitthvað er meint með yfirlýs- ingum um þörf á góðri menntun leiðsögumanna. Það væri hörmu- legt ef þessi nýju samtök lippuðust niður og neituðu að horfast í augu við þann vanda sem ferðaþjónust- an á íslandi á við að glíma um þessar mundir. Félag leiðsögu- manna hefur ítrekað lýst fullum vilja sínum til að eiga um þau mál gott samstarf en betur má ef duga skal. I ljósi undanfarinnar slysaöldu íhugar stjórn félagsins að hefja innan tíðar dreifingu á rituðum upplýsingum til farþega um rétt- indalausa ökumenn og leiðsögu- menn til farþeganna. Slík dreifing á skriflegum upplýsingum getur vel komið til greina á almennum áningarstöðumenda ríkir prent- frelsi á íslandi. Ljóst er að eitthvað verður til bragðs að taka. Ekki verður setið undir ábyrgðarlausum yfirlýsing- um framkvæmdastjóra Úmferðar- ráðs umað slys séu náttúrulögmál sem ekki verði við ráðið og lýsir einungis ráðaleysi Umferðarráðs sjálfs.“ Bifreiðastjórafélagið Sleipnir Oskað eftir rannsókn á or- sökum rútuslysa BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGIÐ Sleipnir hefur sent frá sér ályktun vegna rútuslysanna að undanförnu þar sem fram kem- ur að félagið muni óska eftir að fram fari ítarleg rannsókn á þessum slysum svo leiða megi í ljós hverjar orsakirnar eru. „Félaginu er kunnugt um að vinnu- og hvíldartímareglur bif- reiðastjóra hafa ítrekað verið þverbrotnar á undanförnum ár- um en þó keyrði um þverbak á þessu ári. Félagið hefur bent yfirvöldum á meint brot en þeim ábendingum virðist lítið sem ekkert hafa verið sinnt,“ segir m.a. í ályktun Sleipnis. Þar er því einnig haldið fram að eftirlit sé lítið sem ekkert og umhugsunarvert sé hvort óeðli- legu vinnuálagi sé um að kenna í einhverjum tilfellum. „Það er kunnara en frá þurfi að segja að eigendur, „stjórnendur“, rútu- fyrirtækja og aðrir verkfalls- brjótar unnu myrkranna á milli þær tæplega sex vikur sem verkfall Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis stóð og brutu gróflega reglugerð um aksturs- og hvíld- artíma bifreiðastjóra,“ segir í ályktuninni. „Síðan verkfalli lauk hefur verið gífurlegt álag á bifreiðast- jórum og er ljóst að fjölmargir þeirra væru þegar búnir að glata ökuréttindum sínum hefði reglum verið framfylgt. Laun bifreiðastjóra eru lág og þurfa þeir að vinna langan vinnudag til að hafa mannsæmandi tekjur." VELVAKMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hvar er nú þjóðarstoltið? ÞRIÐJUDAGINN 22. ágúst birtist í Velvakanda grein frá Ingibjörgu, þar sem hún ræðir um hugsan- lega sölu á Valhöll á Þing- völlum. Ég vil þakka henni fyrir tilraunina til að opna augu ráðamanna og allra sem gætu haft áhrif á þessa skelfilegu ákvörðun (og aðrar, sem gætu komið í kjölfarið) um að selja út- lendingum náttúruperlur á Islandi. Hvar er nú þjóðarstoltið? Hvar ertu nú, Ómar minn Ragnarsson, sem hefur verið manna ötulastur við að kynna þjóðinni hörmu- legar afleiðingar virkjana á hálendinu og sýnt okkur fram á hvernig dýrmætir staðir kynnu að glatast. Vona ég að hægt sé að finna einstaklinga og samtök sem vinna gegn þeirri áráttu að gera hvað sem er íyrir pen- inga, selja sál sína og mann- orð. Komið nú til hjálpar. Ég vil einnig þakka gott bréf frá Önnu Ringsted í sama dagblaði, undir yfir- skriftinni „Ég átti einu sinni fimm böm á lífi...“, en hún er ein þeirra sem starf- ar í baráttuhópi gegn um- ferðarslysum. Hvet ég alla ökumenn til að lesa grein hennar. Svo þakka ég Velvak- anda fyrir að gefa okkur rúm í dálkum sínum, því ekki er víða að finna vett- vang fyrir skoðanir hins al- menna borgara. María K. Einarsdóttir. Orlygshöfn í Vesturbæjarlauginni EFTIR gagngerar breyt- ingar í Vesturbæjarlaug- inni þökkum við morgun- menn í Vesturbæjar- lauginni fyrir þær allar saman. Nú er komið stórt eimbað, nýir útiklefar og sturtur. En sérstaklega viljum við þakka forráða- mönnum Vesturbæjarlaug- arinnar, Óla forstjóra, Steinunni borgarfulltrúa og starfsmönnum ÍTR fyrir það að nú er kominn enn einn pottur við Vesturbæj- arlaugina þar sem gerlegt er að rabba saman án þess að verða fyrir ónæði af sterkustu bunu í öllum laugum bæjarins, þar sem margir lúnir í herðum og hálsi fá nudd á sína sáru vöðva. Var upphafsmaður að komu þessa potts Örlygur Hálfdánarson bókabóndi og þar sem menn telja sig vera komna í örugga höfn með að geta haft næði og nota- legheit þá hafa menn nefnt þennan pott „Örlygshöfn". Hvetjum við sem flesta til þess að líta i Vesturbæj- arlaugina og prófa herleg- heitin til þess að þessar framkvæmdir nýtist sem flestum. Morgunpottormarnir Jón, Ólafur, Örlygur, Helga, Pétur, Bragi, Vigfús og Þórarinn. Samkeppnisráð FYRIRSPURN til sam- keppnisráðs. Er löglegt að Stöð 2 sýni leik úr enska boltanum á laugardögum en Sýn er með einkarétt á enska boltanum og á þá ekki að sýna sama leikinn á Sýn. Þarna er í rauninni verið að þvinga menn til að vera líka með Stöð 2. Ingi Steinn Sólon. Kerið hættulegt FYRIR stuttu fór ég með bamabarn mitt austur í Grímsnes og í leiðinni að skoða Kerið. Þegar við komum á staðinn hljóp barnið frá mér í áttina að Kerinu en mér tókst að ná því áður en illa fór. Ástæða þess að ég skrifa þetta er að það er engin girðing í kringum Kerið, ekkert sem hindrar að fólk - eða börn geti dottið þarna niður. Hvernig væri að byrgja brunninn áður en bamið dettur ofan í? María Eiríksdóttir. Samtök gegn fátækt ÞAÐ hringdi til mín ein- stæð móðir grátandi. Hún er með þrjú börn á fram- færi og er láglaunamann- eskja. Henni fannst sárt að geta ekki Iifað af launum sínum og eiga hvorki fyrir mat né lyfjum fyrir börnin sín. Ástandið er víða slæmt núna þrátt fyrir endalaust tal um góðæri. Það hafa það margir gott og allt gott um það að segja en því miður em alltof margir sem lifa hér við hungurmörk og sjá ekki út úr augum fyrir skuldafeni. Hvers vegna að þola þetta ástand? Því ekki að stofna samtök gegn fá- tækt á íslandi. Ég hef áhuga á því og fleiri sem ég hef rætt við og langar okk- ur til að komast í samband við fleira fólk sem hefur einnig áhuga á svona sam- tökum. Sigrún f síma 698-5998. Tapaó/fundið Nike-taska týndist á þjóðhátíð BLÁ Nike-taska með grænni flíspeysu í týndist á þjóðhátíð um verslunar- mannahelgina. Skilvís finn- andi hringi í síma 869-0478. Silfurlitað hjól týndist PROSTYLE silfurlitað hjól týndist frá Stóragerði 8 sl. mánaðamót. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 553-2307. Karlmannsúr í óskilum KARLMANNSÚR fannst í Stóragerði. Upplýsingar í síma 568-1392. Gleraugu týndust í Smáranum GLERAUGU týndust í Smáranum í Kópavogi ná- lægt Lækjasmára. Skilvis finnandi hafi samband í síma 554-3331. Svartur bakpoki týndist SVARTUR lítill Karrimor- bakpoki týndist á menning- amótt, h'klega í námunda við Ingólfsstræti. Finnandi vinsamlega hafi samband í síma 899-3060. Fundarlaun. Kvenmannsgleraugu týndust TVÖFÖLD kvenmanns- gleraugu týndust á menn- inganótt, hklega á Kaffi- setrinu eða á leiðinni þaðan að Snorrabraut um Auðar- stræti. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553-5205. Blá húfa týndist BLÁ húfa með perlum í týndist á menningarnótt líklega á bílastæðinu við Landspítalann eða á leið- inni niður í bæ. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 554-4689. Gleraugu týndust GLERAUGU með lituðum glerjum í svartri umfjörð í grænum poka merkt Bússý týndust sl. fostudag 18. ágúst á bílastæði við Heið- mörk eða á bílastæði við Grettisgötu. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 552-9630. Fundarlaun. Dýrahald Grábröndótt læða í óskilum LÍITIL læða sennilega 5-6 mánaða er í óskilum í Dal- seh. Hún er grábröndótt með hvítt á kviði og loppum og gulum blettum hér og þar. Vinstri vangi gulur. Hún var með bleika hálsól en ómerkt. Upplýsingar í síma 557-3461 og í Kattholti í síma 567-2909. Grár fress týndist 5-6 MÁNAÐA fress, grár á baki og hvítur á kvið, með gráan flekk yfir öðru auga og þrjár hvítar skellur á baki, týndist 15. ágúst frá Sjafnargötu. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi sam- band í síma 561-9184 eða 560-2172. Högni í óskilum GRÁBRÖNDÓTTUR högni fannst sunnudaginn 13. ágúst í porti á Rauðar- árstíg. Upplýsingar í síma 698-4529. Víkverji skrifar... VÍKVERJI las með athygli frétt sem birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku um afkomu Kaupþings á fyrri hluta ársins. Vöxtur og af- koma þess fyrirtækis virðist vera ævintýri líkastur, ekki síst þegar borið er saman við afkomu annarra fyrirtækja í sömu grein á fyrri hluta þessa árs. Kaupþing jók hagnað sinn um 153% milli ára, hreinar rekstrar- tekjur meira en tvöfölduðust og ávöxtun eigin fjár fyrirtækisins var 54,7% en eignirnar jukust um 72% frá síðustu áramótum. Heildareign- irnar eru nú 40,8 milljarðar króna. Því er Víkverji að tíunda þessar tölur að hann hefur gefið aíkomu- tölum fyrirtækisins sérstakan gaum undanfarin ár eða síðan Sig- urður Einarsson forstjóri, þá nýt- ekinn við starfi, gaf yfirlýsingar um hugmyndir sínar um þróun fyrir- tækisins næstu ár á ráðstefnu sem haldin var hérlendis. Þar lýsti hinn ungi forstjóri því yfir að hann stefndi að því að efnahagsreikning- ur Kaupþings næði 40 milljörðum króna árið 2003. Á þessum tíma voru eignir fyrirtækisins nálægt 8 milljörðum og Víkverja þótti það hraustlega mælt að ætla sér að fimmfalda þá stærð á svo skömm- um tíma. Én nú sér Víkverji ekki betur en það sé komið á daginn að markmiðið, sem honum þótti svo háleitt, hafi náðst rúmlega tveimur árum á undan áætlun. XXX ILÍTILLI frétt í Morgunblaðinu á sunnudag var greint frá því að manni, sem fór með tölvu í viðgerð til tölvuumboðs í Reykjavík, hafi staðið til boða að greiða 6.400 kr. aukalega til að komast hjá því að þurfa að bíða í viku eftir að fá gert við tölvuna sína. Væri fjárhæðin greidd fékkst tölvan samdægurs úr viðgerð en annars þurfti að bíða í viku. Víkverja finnst fróðlegt að velta því fyrir sér hver þróunin geti orðið feti þjónustufyrirtæki í fleiri grein- um í fótspor tölvuumboðanna að þessu leyti. Þá má t.d. búast við því að bíleig- endur þurfi ekki lengur að bíða í daga eða vikur eftir verkstæðis- plássi heldur geti tekið upp veskið og keypt sig fram fyrir röðina. Þá líta bifvélavirkjarnir upp úr vélar- hlífum bílanna sem eru í venjulegu röðinni og snúa sér að því að gera við bíl þess sem bauð betur. Hinir bíða bara þangað til ekki er arð- bærari verkefni að hafa. Eins má ímynda sér að rakarar þrói þjónustu sína í þá átt að þeir, sem vilja fá bókaðan fyrirfram ákveðinn tíma, þurfi að borga meira en hinir sem eru tilbúnir að sitja um skeið á biðstofunni og bíða eftir því að rakarinn eigi ekki völ á betur borgandi viðskiptavinum til að klippa. Hvernig mætti nýta þessa aðferð til að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri hins opinbera og bæta nýt- ingu skattpeninganna? Sjá menn fyrir sér að heilbrigðisþjónustan dragi lærdóm af fordæmi tölvufyr- irtækjanna? Víkverji er t.d. ekki í vafa um að margir þeirra, sem nú þurfa að bíða árum saman eftir ým- iss konar skurðaðgerðum, tækju því fegins hendi að geta keypt sig fram yfir biðlistana og komist strax á skurðarborðið. Hinir bíða þá eftir „dauðu tímunum" sem myndast á skurðstofunni þangað til næsti full- borgandi sjúklingur birtist. Biðtími þeirra, sem ekki borga, lengist væntanlega eitthvað en er nokkuð við því að segja þegar haft er í huga að tekjurnar aukast, fram- leiðni starfsfólks eykst og afkoman af rekstrinum verður betri en ella? Víkverji fær ekki varist tilhugs- uninni um að í þessari litlu frétt í sunnudagsblaðinu hans hafi leynst merkilegar upplýsingar um þróun samfélagsins og hún vakti hann til umhugsunar um verðmætamat og tíðaranda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.