Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 76
76 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Islandsverk Þorvaldar Þorsteinssonar Island er land þitt Myndlist þarf ekki að vera hátíðleg og hún er ekki endilega best geymd inni á safni. Islandsverk Þorvaldar Þorsteinssonar er þrí- vítt, gert af holdi og blóði og það andar. Jóhanna K. Jdhannesdótt- ir sló á langlínuþráðinn til Þorvaldar, þar sem hann sat við skriftir á Amtsbókasafninu á Akureyri, til að heyra meira af þessu undri. Jiirgen Zimmermann á leiksviðinu íslandi. ALLIR VEL uppaldir bóka- ormar læra snemma á bams- ævinni að á bókasafni á að vera ÞÖGN. Myndlistarmaðurinn Þorvaldur er einn þessara orma, fullvaxinn þó, og því liggur honum lágt rómur. Hann þekkir líklega ónotatil- finninguna sem hringar um sig í maganum þegar bókasafns- vörðurinn ber fingur að vörum - og sussar. Þessa mánuðina er Þorvald- ur íklæddur rithöfundar- skikkjunni, bókasafnið er at- hvarf til skrifta og blaðsíðurnar fyllast jafnt og þétt af ævintýrum hins vængj- aða Blíðfinns. Skikkjan fer rithöfundinum vel en það er hins vegar ætlun blaðamanns að tala við mynd- listarmanninn um verkið sem hófst sem lítil hugmynd, vatt upp á sig og varð að heilu fýrir- tæki; Þorvaldur Þorsteinsson inc. „Eg fékk þessa hugmynd að efna til Islandskynningar með ^innifalinni samkeppni um ís- landsferð á samsýningunni Welcome to the Artworld sem efnt var til í Der Badische Kunstverein í Karlsruhe í september í fyrra. T0 liðs við mig fékk ég Reykjavík menningarborg 2000, ferðamálaráð, menntamálaráðu- neytið og heilan her fyrirtækja og að- ila í ferðaiðnaðinum með Samvinnu- ferðir-Landsýn í broddi fylkingar. Framkvæmdastjórn var hins vejgar í traustum höndum Helgu Brár Ama- dóttur, starfsmanns GSP almanna- tengsla. íslandskynningin fór svo fram á hefðbundnum kynningarbás þar sem lá fyrir efni frá öllum þessum aðilum; hótelum, veitingastöðum, hestaferða- og hvalaskoðunaifyrir- tækjum og svo framvegis og fram- vegis. Þetta var fyrri hluti verksins; draumurinn um Island, draumurinn um ferðina, ímyndin ísland. Til þess að gera hann áþreifanlegri voru þarna hlutir sem tengdust ferð vinn- ingshafans; koddinn sem hann myndi sofa á á Hótel Borg, handklæðið sem hann þurrkaði sér með í Bláa lóninu, diskana sem hann ætti eftir að borða af á Kaffi Karólínu og Naustinu.“ Samkeppnin um Islandsferðina vakti heilmikla athygli sýningargesta og voru þeir ótalmargir sem svöruðu einfaldri spumingu Þorvaldar í þeirri von að komast til íslands, íyr- irheitna landsins í norðri. „Á síðasta degi sýningarinnar dró fulltrúi íslensks hestabúgarðs í Þýskalandi vinningshafann op- inberlega úr bunkanum undir eftirliti fulltrúa borgarinnar. Sá reyndist vera Jitrgen nokk- ur Zimmermann sem bauð kærustu sinni Marion með í ferðina, en vinningurinn gilti fyrir tvo.Til undirbúnings vom þau hlaðin gjöfum, bókum um landið, derhúfum, pennum, snyrtivörum, frisbee-diskum og svo framvegis til að kynnast landi og þjóð,“ segir Þorvaldur og það er ekki laust við að blaðamaður heyri hann glotta yfir símalínuna. Island í huga þér hvar sem þú ferð Sjötta júní síðast liðinn lentu þau skötuhjú á Keflavíkurflug- velli í vandlega upprenndum úlpum „afar vönduðum sem vom merktar nafni verksins og sérhönnuðu lógói, Island das Land der gewinners, Island land sigurvegarans“. Þar með var ævintýrareisan hafin. Víkingamir Rassipramp (al- ias Ragnar Kjartansson) og Frosti Friðriksson vora ráðnir starfsmenn heimsóknai-innar og sinntu þeim starfa samviskusamlega og af öllu hjarta sem fulltráar listamannsins á íslenskri grandu. Þeir fylgdu í þaula ferðabæklingnum Reisen Sie Gratis Nach Island sem hafði verið hannað- ur fyrir sýninguna og dreift um Karlsrahe. Bæklinginn prýddu ljós- myndir Ragnars Th. Sigurðssonar ásamt lýsingu á vinningsferðinni. Ferðir Júrgens og Marion ræstu í gang seinni hluta verksins „þau sjálf og myndirnar sem þau taka í ferða- Ný sýning í galleríi oneoone Morgunblaðið/Jim Smart Elín við verk þeirra Ulfs í gaileríi oneoone. Samsíða SÍÐASTA laugardag opnuðu Úlfrn- Shaka og Elín Hansdóttir sýninguna Samsíða í Gallerí oneoone, Laugavegi 48b. Þetta er síðasta sýningin í núver- andi húsakynnum gallerísins, því áætlað er að það flytji sig um set á nýjan stað og má búast við að ein- hverjar áherslubreytingar verði í stefnu og rekstri þess. Úlfur og Elín eru bæði nemendur í ■'“> Listaháskóla íslands og er sýningin sú fyrsta sem þau vinna saman. Þau hafa umtumað rýminu með vegg sem er á miðju gólfi en við það verður til langur mjór gangur þar sem þau koma sýningunni fyrir. Dúkkur og krakkar „Verkið samanstendur af Ijós- myndum og texta sem era í samsíða/ parallel-línu á veggnum, hvert á móti öðra, snertast aldrei og maður fær tilfinningu fyrir því að þær fari inní vegginn og séu að einhverju leyti óendanlegar,“ segir EUn um ástæð- una fyrir því að rýminu var umturn- að. „Þetta era tvær mismunandi tegundir af ljósmyndum sem við sýn- um. Svart/hvítar portret-myndir af litlum krökkum og svo litmyndir af dúkkum. Myndimar af krökkunum var ég búinn að eyða miklum tíma í, ná karakter krakkanna, augn-kont- akt og svoleiðis, þannig að þau eru mjög miklar persónur. Dúkkumynd- imar era algjör andstæða, teknar mjög hratt með flassi þanng að and- litin verða mjög óraunveruleg. Þetta era tveir ólíkir pólar. Þessi tvö mis- munandi andlit era samt nátengd og þau fylgjast að allt lífið. Krökkum era líka gefnar dúkkur til að kenna þeim á lífið, dúkkuma era „steríótýpur“ á meðan krakkarnir era „orginal“.“ Textinn spilar líka stóran þátt í verk- inu en hann rennur eftir veggnum og er að einhveiju leyti skiljanlegur en líka mjög óskiljanlegur en mynd og texti era eitt og sama óaðskiljanlega verkið. „Textinn er um þá karakter- eiginleika sem er grunnurinn að pers- ónuleika fólks. Þetta era einhvers konar hugsanir sem ég steypti saman í setningar eða setningarbrot og er grunnurinn að þeim byggður á pers- ónuleikakenningum Jungs um upp- byggingu hugans. í þeim kenningum skiptir hann persónuleikanum að ein- hveiju leyti í fjóra þætti; í fyrsta lagi hugsun og tilfinningar sem að honum finnst vera rökræni þátturinn í pers- ónuleika fólks. A móti kemur skynjun og innsæi sem era huglægu þættirn- ir,“ segir Úlfur. „Þetta er grannurinn að öllum hugmyndum og skilgrein- ingum á persónuleika fólks.“ Sýningin er opin frá 10:00 til 18:00 á opnunartíma oneoone verslunar- innar og stendur til 31. september. Listamaðurinn hitti viðfangsefni sín óvænt á Iestarstöðinni í Karlsruhe. laginu, en þessi hluti framkvæmdar- innar er í raun aðalverkið“. Gríðarleg vinna hefur auðsjáan- lega verið lögð í alla undirbúnings- vinnu og ótal margir fengnir til að leggja hönd á plóg að sannri fyrir- mynd verkalýðsins. „Það era ýmsar leiðir til að nálgast verkið, sú augljósasta kannski þessar vangaveltur um ímyndina, drauminn og veraleikann. Hin hefðbundna ím- ynd landsins er sannreynd í verkinu en það hefur einmitt verið mín helsta skemmtun undanfarin ár að láta ekki bara myndimar tala heldur fram- kvæmdina, gjöminginn sjálfan. Þetta er spurning um vald myndlistar- mannsins, mig langaði að sjá eitthvað gerast, fá einhverja tvo vegfarendur úr hversdeginum í Karlsrahe til að fara til Islands og fá sjálfiu’ smá útrás fyrir guðskomplexinn. Að þessu leyti er verkið svolítið líkt leikhúsi því það er ekki aðeins verið að sýna handritið heldur er farið alla leið og verkið sett á svið. Ferðin var því eins og leiksýn- ing sett upp á risastóra sviði þar sem Júrgen og Marion vora leikendur að fylgja lauslegu handriti frá mér,“ seg- ir Þorvaldur, hneppir að sér höfund- arskikkjunni, brosir til bókasafns- varðarins og verður aftur allsráðandi einræðisherra í landi Blíðfinns sem svarar líka gælunafninu Bóbó. Morgunblaðið/Asdís Bee Spider verður að verki í gallenl Nema hvað? út vikuna. Fiskabúr gallerís Nema hvað! Bee Spiders að verki HLJÓMSVEITIN Bee Spiders mun hafa gallerí Nema hvað! til afnota þessa vikuna í fiskabúrinu. Sveitin byrjar að vinna í dag, fimmtudag, og getur fólk komið og litið inn alveg út vikuna. Markmið fiskabúrsins er að ná fram gagnvirkri sýningarstarf- semi og því er ungum listamönn- um boðið galleríið til afnota í eina viku í senn til æfinga eða vinnslu verka sinna. Hugmyndin er sú að í stað þess að sýna loka- útkomu verka, eins og venjan er í galleríum, er tilgangurinn sýna vinnuna sjálfa eða sköpunina. Bee Spiders mun samkvæmt leik- reglum gallerísins vinna verk sitt á staðnum þannig að þeir sem eiga leið hjá geta fylgst með sköpun verksins. Svo verður lokaútkoman kynnt á laugardaginn og er öllum boðið á opnun þá um kvöldið. Slappað af á Nýlistasafninu ÞAÐ verður ýmislegt að gerast í Hangsinu á Nýlistasafninu í kvöld. Einhverjir óvæntir munu koma og snúa skífum og hver veit nema Jó- ní Jóns mæti með skærin og bjóði uppá hárgreiðsluhornið. Fleiri óvæntir atburðir munu örugglega eiga sér stað og allir eru velkomn- ir í safnið til 23:00 í kvöld. Hangsið er hluti af sýningunni Grasrót 2000 sem er samsýning 10 ungra listamanna. Hangsið er hugsað fyrir fólk til að slappa af; gera það sem það gerir venjulega ekki á myndlistarsýningum þ.e. að slaka á og láta sér líða vel. Hangsið er opið á opnunartíma Nýlistasafns- ins sem er þriðjudaga til sunnu- daga frá 14:00-18:00 en á fimmtu- dögum og laugardögum er það opið lengur eða til 23:00 og er þá boðið uppá mismunandi dagskrá.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.