Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ
64
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
KIRKJUSTARF
MESSUR
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Safnaðarstarf
Kvöldvaka
í Fríkirkjunni
í Hafnarfírði
KVÖLDVÖKUR voru haldnar í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði eitt
sunnudagskvöld í mánuði síðasta
vetur og nutu mikilla vinsælda. Á
þessum kvöldvökum var létt dag-
skrá í tali og tónum og góðir gestir
komu í heimsókn. Fyrsta kvöld-
vakan á þessu hausti verður haldin
nk. sunnudagskvöld og hefst kl. 20.
Það er Örn Arnarson, tónlistar-
^maður og söngvari, sem stjórnar
söng og tónlist ásamt góðum hópi
tónlistarfólks en á hverri kvöld-
vöku er reynt að kynna nýja
söngva.
Yfirskrift kvöldvökunnar að
þessu sinni er „Haustlitir í Hafn-
arfirði" og er henni ætlað að
minna okkur á að haustið getur
verið fallegur og góður tími.
Sérstakur gestur kvöldvökunnar
að þessu sinni er Jóhann Guðni
Reynisson, upplýsingastjóri Hafn-
arfjarðarbæjar og ljóðskáld, og
mun hann lesa okkur nokkur ljóða
sinna og fjalla um tilurð þeirra. Þá
verður einnig annar upplestur og
bænastund.
Það eru allir velkomnir á þessar
"*kvöldvökur Fríkirkjunnar.
Litlir læri-
sveinar
Landakirkju
BARNAKÓRINN Litlir lærisvein-
ar Landakirkju í Eyjum hefur
vetrarstarfið mánudaginn 4. sept-
ember með foreldrafundi í safnað-
arheimilinu kl. 18. Á þennan fund
iíru foreldrar nýrra kórféíaga vel-
komnir og líka þeir foreldrar sem
vilja kynná sér málin. Innritun
nýrra kórfélaga fer fram fimmtu-
daginn 7. september kl. 16. Litlir
lærisveinar hafa sungið við Landa-
kirkju og víðar á liðnum árum en
stofnandi kórsins var Helga Jóns-
dóttir. Stjórnendur þeirra, Guðrún
Ilelga Bjarnadóttir og Ósvaldur
Freyr Guðjónsson, eru með marg-
ar góðar hugmyndir fyrir vetrar-
starfið. Kórinn kemur fram í
barnaguðsþjónustum af og til i
vetur, syngur í þjóðlagamessum og
almennri guðsþjónustu, en auk
þess kemur kórinn fram við ýmis
tækifæri í bæjarfélaginu. Kórfé-
lagar læra mikið af líflegum söngv-
um til að gleðja aðra og lofa Guð.
Æfingarnar hefjast föstudaginn 8.
september eins og auglýst er í
blöðum.
Sr. Kristján Björnsson.
Vörðufell
á Skeiðum -
Fjallræðuferð
FYRIRHUGUÐ er fjallræðuferð á
Vörðufell, laugardaginn 2. septem-
ber. Þetta mun verða 11. fjall-
ræðuferðin sem farin er í
Stóra-Núpsprestakalli frá því að
fyrsta ferðin var farin í fyrrasum-
ar. Þar sem fjallið er aðeins eitt á
Skeiðum verður skundað aftur og
enn á ný á Vörðufell en önnur leið
verður fyrir valinu en síðasta sum-
ar. Nú liggur leiðin um Úlfsgil að
vestanverðu en Úlfsgil er vestan
við Birnustaði.
Athygli fólks er vakin á þessum
fjallræðuferðum. í fjallræðuferð er
fjallræða Jesú Krists lesin í nokkr-
um köflum milli þess sem gengið
er. Þess vegna eru þessir göngu-
túrar einstakir um margt og vel
þess virði að leyfa sér að njóta
þeirra forréttinda að ganga á fjall-
ið með Kristi og hinum sem taka
þátt. Lagt verður af stað kl. 13.30.
Hallgrímskirkja. Hádegistón-
leikar kl. 12-12.30. Hörður Askels-
son leikur á orgel.
Fríkirkjan Vegurinn: Vetrar-
starfið hafið. Fjölskyldusamkoma
kl. 11. Brauðsbrotning. Samkoma
kl. 20. Ragna Þorvaldsdóttir
prédikar. Brauðsbrotning. Allir
hjartanlega velkomnir.
KEFAS. Laugard.: Samköma kl.
14. Ræðumaður: Björg R. Páls-
dóttir. Þri.: Brauðsbrotning og
bænastund kl. 20.30. Mið.: Sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30.
Föstud.: Bænastund unga fólksins
kl. 19.30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. Sunnu-
dagaskóli kl. 11.
Guðspjall dagsins:
Faríseinn og tollheimtu-
maðurinn.
(Lúk. 18.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti: Bjarni Jónatans-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Fé-
lagar úr Dómkórnum syngja. Organ-
isti: Marteinn H. Friöriksson. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Félagar úr Dómkórnum syngja. Org-
anisti: Marteinn H. Friöriksson. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Prestur: sr. Kjartan
Örn Sigurbjörnsson. Organisti:
Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Kirkjukór Grensás-
kirkju syngur. Organisti: Árni Arin-
bjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Félagar úr Mótettukór syngja. Org-
anisti: Hörður Áskelsson. Sr. Sig-
urður Pálsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Marfa Ágústsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti: Douglas A. Brotchie. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Þóra
Einarsdóttir syngur. Prestur: sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti: Jón
Stefánsson. Kaffisopi eftir messu.
Athugið að safnaðarstarfiö hefst að
nýju í vikunni.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugar-
neskirkju syngur undir stjórn Gunn-
ars Gunnarssonar. Hrund Þórarins-
dóttir stýrir sunnudagaskólanum
ásamt sínu fólki og sr. Bjarni Karls-
son þjónar. Messa kl. 13 í dagvist-
arsalnum Hátúni 12. Þorvaldur Hall-
dórsson og Margrét Scheving
syngja. Guðrún K. Þórsdóttir djákni
þjónar ásamt sr. Bjarna Karlssyni
og hópi sjálfboöaliöa.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Ferm-
ingarbörn af sumarnámskeiði
ganga til altaris ásamt foreldrum.
Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Frank M.
Halldórssyni.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur: sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organleikari: Pavel
Smid. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Vegna seink-
unar framkvæmda við kirkjuna fell-
ur guösþjónusta niður í dag. Næsta
messa verður 10. september.
Prestarnir.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur: Sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son. Organisti: Kjartan Sigurjóns-
son. Kór Digraneskirkju, A-hópur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11 (Ath. br. messu-
tíma). Prestur: Sr. Hreinn Hjartar-
son. Organisti: Lenka Matéová. Kór
Fella- og Hólakirkju syngur. Prest-
arnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur: sr. Sigurður
Arnarson þjónar fyrir altari. Helga
Sturludóttir guðfræöingur predikar.
Kór Grafarvogskirkju syngur. Organ-
isti: Höróur Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Hjörtur Hjartarson þjónar. Félagar
úr kór kirkjunnar syngja og stjórna
safnaöarsöng. Organisti: Jón Ólafur
Sigurðsson. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriöjudag kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Sóknarprestur
verður í supiarleyfi frá 3. ágúst til 7.
september. Guðsþjón'ustur og bæn-
astundlr falla niöur 'þann ’tíma en
kirkjan verður opin og kirkjuvörður
tll staðar. Sóknarprestur Digranes-
prestakalls annast þjónustu í Kárs-
nesprestakalli í sumarleyfi sóknar-
prests. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir syngur
einsöng. Organisti er Gróa Hreins-
dóttir. Sóknarprestur.
KIRKJUSTARF ALDRAÐRA: Sam
kirkjuleg guösþjónusta fyrir aldraða
verður haldin í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu miðvikudaginn 6. septem-
ber kl. 14. Vörður Traustason, for-
stööumaöur í Fíladelfíu, stjórnar.
Sr. Guömundur Þorsteinsson dómp-
rðfastur prédikar. Ritningarlestra
lesa fulltrúarfrá Fríkirkjunni, Óháða
söfnuðinum og Aðventistum. Kór
aldraöra á Vesturgötu stýrir söng
undir stjórn Sigurbjargar Hólm-
grímsdóttur. Organisti: Daníel Jón-
asson. Kaffiveitingar í safnaðarsal
eftir guðsþjónustuna. Allir velkomn-
ir og takið með ykkur gesti: Guðs-
þjónustan er samstarfsverkefni
kristnihátíðarnefndar Reykjavíkur-
prófastsdæma, Hvítasunnusafnað-
arins, ellimálaráðs Reykjavíkurpróf-
astsdæma, Fríkirkjunnar í
Reykjavík, Óháða safnaðarins, Aö-
ventistasafnaðarins, íslensku
Kristskirkjunnar, Kefas - kristins
samfélags og Frelsisins.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta kl. 11. Heilög
kvöldmáltíð. Samkoma kl. 20. Stutt
ávörp, lofgjörð og fyrirbænir. Allir
hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Dalvegi 24, Kóp.: Sam-
koma kl. 14 í dag, laugardag.
Ræðumaður Björg R. Pálsdóttir.
BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma kl.
11. í dag sér Steinþór Þóröarson
um predikun og Bjarni Sigurðsson
um biblíufræðslu. Á laugardögum
starfa barna- og unglingadeildir. All-
ir hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Samkoma kl. 20.
Predikun orðsins og mikil lofgjörð
ogtilbeiðsla. Allir velkomnir.
VEGURINN: Fjölskyldusamkoma kl.
11. Brauösbrotning. Samkoma kl.
20. Ragna Þorvaldsdóttir prédikar.
Allir hjartaniega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 19.30 bænastund. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma í umsjón kafteins
Miriam Óskarsdóttur og Evu Nord-
sten frá Svíþjóö.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess-
ur sunnudaga kl. 10.30 og 14.
Messa kl. 18 á ensku. Laugardaga
og virka daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirdl: Messa
sunnudag kl. 10.30. Messa virka
daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Skólavegi 38. Messa sunnudag kl.
14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag
kl. 17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 15.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Kl. 11 messa og skírn. Kaleikur frá
kristnihátíöinni á Þingvöllum notað-
ur viö útdeilinguna. „Þingvallahóp-
urinn“, þau sem voru á Þingvöllum
1. og 2. júlt sl., sérstaklega velkom-
in. Lagt á ráðin um myndakvöld.
Nýtt hljómborð tekið í notkun en
það er gjöf frá Kvenfélagi Landa-
kirkju. Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 11. Þema: Hin auö-
mýkta kirkja. Organisti: Natalía
Chow. Prestur: sr. Þórhallur Heimis-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 11. Kór Víóistaðakirkju syngur.
Organisti: Úlrik Ólason. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kvöld
vaka f kirkjunni kl. 20. Fjölbreytt
dagskrá í tali og tónum. Örn Arnar-
son og hjómsveit stýra tónlist og
söng. Jóhann Guðni Reynisson,
upplýsingastjóri Hafnarfjarðarbæj-
ar, les úr Ijóðum sínum. Samver-
unni lýkur með bænastund. Einar
Eyjólfsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
dagsins er f Garðakirkju kl. 14.
Aksturfrá Kirkjulundi kl. 13.30.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Kirkjukórinn stýrir almennum
safnaðarsöng. Organisti: Jóhann
Baldvinsson. Rúta fer frá Kirkju-
lundi kl. 13.30 og frá Hleinum kl.
13.40. Allir velkomnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Fjölskyldug-
uðsþjónusta kl. 11. Álftanesskóli
settur í athöfninni. Álftaneskórinn
stýrir söngnum undir stjórn organ-
istans, Jóhanns Baldvinssonar. For-
eldrar eru hvattir til að mæta með
börnum sínum.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta í kirkjunni eöa Kapellu vonar-
innar kl. 11 árd. Kór Keflavíkur-
kirkju stýrir söng. Organisti: Einar
Örn Einarsson. Sjá vefrit Keflavíkur-
kirkju: keflavikurkirkja.is
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.
Morgunbænir þriðjudaga til föstu-
daga kl. 10. Foreldramorgnar mið-
vikudaga kl. 11. Septembertónleik-
ar þriðjudag 5. sept. kl. 20.30.
Hörður Áskelsson. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa:
Kvöldmessa nk. sunnudag kl. 21.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum:
Kvöldguðsþjónusta verður í Ólafs-
vallakirkju sunnudagskvöldið 3.
september nk. kl. 21.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Guðsþjónusta kl. 13 við upphaf hér-
aðsfundar Rangárvallaprófasts-
dæmis. Nýr organisti, Magnús
Ragnarsson, tekur til starfa. Sókn-
arprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Prestur: sr. Krist-
inn Á. Friöfinnsson. Börn úr Suzuki-
tónlistarskólanum leika á hljóöfæri.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Ath. breyttan messutíma í
september. Sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
11. Kyrröarstund á mánudag 4-
sept. kl. 18. Sóknarprestur.