Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ___________________________MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 41 MINNINGAR + Magnús Bakk- mann Andrésson fæddist á Bakka í Bjamarfirði í Strandasýslu 1. sept- ember 1918. Hann lést á hcimili sínu 19. september síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Júlíönu Guðmundsdóttur, f. 26. júní 1874, d. 2. september 1956 og Andrésar Jóhanns- sonar, bónda á Bakka og síðar á Gíslabala, f. 2. maf 1876, d. 27. september 1943. Júlíana og Andrés eignuðust átta böm auk Magnúsar og eru þau nú öll látin. Þau voru Ágústa Rósa sem lengst af bjó á Akranesi; Jón sem lést frumvaxta; Jóhann, bóndi á Gíslabala og á Bassastöð- um; Ólafur Jóhannes, sjómaður á ísafirði, fórst í róðri frá Isafirði 23 ára gamall; Sólmundur, bóndi á Gíslabala, lést 29 ára gamall; Rósa lést ung; Magnús Bakkmann eldri, lést ungur, og Vilborg á Gíslabala lést 23 ára gömul. Júlíana átti tvo drengi með fyrri manni sínum, Jóni Þorsteinssyni, er fórst í róðri frá Gjögri og em þeir báðir látnir. Þeir voru Sigurður, lést frum- vaxta, og Sigurður Árni, sjómað- ur á fsafirði og síðar í Hafnarfirði. Hinn 6. desember 1947 kvæntist Magnús Matthildi Júlíönu Sófus- Nú er hann afi líka farinn. Ekki hefði mér dottið það í hug fyrir fjór- um mánuðum þegar amma dó, að það væri svona stutt þangað til ég myndi fylgja afa til grafar. Hann átti svo margt eftir að gera og ætlaði sér norður í réttir daginn sem hann dó. Hann lifði fyrir það að komast norð- ur að hitta gömlu kunningjana til að rifja upp gömlu dagana. Við afi fór- um saman norður einu sinni í sumar og það er ólýsanlegt hvað það var gaman og er ég miklu fróðari um allt fyrir norðan eftir þessa ferð. Hann var öllum svo góður og þá sérstak- lega sínum nánastu. Alltaf þegar við komum til hans voru stelpurnar okk- ar aðalnúmerið og hann settist á gólfið til að spila við þær eða skoða bækur. En nú er enginn eftir á Suð- urgötunni, amma og afi bæði farin með svona stuttu millibili. Minn elskaði afi var öllum kær, og einstakur fjölskyldu-maður. Því minnast hans margir, fjær og nær, var maður svo hress og glaður. Eg man hversu hýr hann hélt mér í hönd, svo háttprúður laus við þvaður. Nú leiðir hann ömmu um iðgræn lönd, af ástvinum margblessaður. Hinsta kveðja. Bergný Dögg Sófusdóttir. dóttur, f. 26. ágúst 1928, d. 24. maí 2000. Þau eignuðust tvo syni: 1) Sófus, f. 8. mars 1956, kvænt- ur Gunnfríði Magn- úsdóttur, börn hans eru Bergný Dögg, sem á tvær dætur, Hafdísi Ósk og Guð- nýju Rós, Matthildur Kristín, Guðmundur Freyr og Stígur Berg. 2) Andrés, f. 20. nóvember 1958, kvæntur Súsönnu Emudóttur, börn hans eru Magnús Bakkmann, Jó- hannes og Júlíana Svanhvít. Magnús átti heima á Bakka til 1921 en flutti þá ásamt foreldrum sínum og systkinum að Gíslabala í Árneshreppi í Strandasýslu. Hann bjó ásamt Matthildi á Finnboga- stöðum í Árneshreppi og Drangs- nesi til 1969, en fluttu þá á Akra- nes þar sem þau bjuggu lengst af á Suðurgötu 121. Hann sat í stjórn verkalýðsfé- lags Kaldrananeshrepps í fimm- tán ár og var þar af formaður í níu ár. Hann starfaði einnig mikið fyrir Verkalýðsfélag Akraness. Magnús starfaði við vélgæslu hjá Þórði Óskarssyni frá því hann flutti á Akranes og fram á sjötugs- aldur. Magnús var jarðsunginn frá Akraneskirkju 25. september. míns og félaga Magnúsar Andrés- sonar. Hann talaði við mig daginn fyrir andlát sitt hress og glaður, sagðist vera að fara norður á Strandir með syni sínum. Hann ætlaði að hitta frændur og vini, fara í réttirnar. Taka þátt í gleðinni sem fylgir rétt- ardögum. Finna andblæ af sumrinu sem er að líða. Fara heim þangað sem hann átti æsku sína og mann- dómsár. Þetta var ferðin sem aldrei var farin. Kallið var komið. Hjartað var að gefast upp. Þó dauðann hafi borið svo brátt að, verðum við að geta unnt honum þess að fá að sofna í rúminu sínu heima og vakna ekki aftur til þessa lífs. En allir þeir sem áttu hann að sakna hans innilega. Magnús var góður maður. Ég veit ekki um neinn sem ekki bar hlýjan hug til hans. Frá því að þau hjónin Magnús og Matthildur Soffusdóttir fluttu á Akranes var hann verkamað- ur, lengst af á sama vinnustað hjá út- gerð Þórðar Óskarssonar. Þar var hann hvers manns hugljúfi, glettinn og gamansamur, vildi hag útgerðar- innar sem bestan, en fyrst og síðast var hann trúr sinni stétt. Hann var snemma kosinn til trúnaðarstarfa í Verkalýðsfélagi Akraness. Áður hafði hann verið í forystusveit Verkalýðsfélagsins á Drangsnesi á Ströndum. Magnús var félagsmálamaður í orðsins bestu merkingu. Tryggð sinni við Verkalýðsfélagið hélt hann fram á síðasta dag, mætti á alla fundi. Nú síðast fyrir nokkrum dög- um sátum við gamlingjarnir, fyrr- verandi forystumenn í Verkalýðsfé- lagínu, Herdís Ólafsdóttir, Garðar Halldórsson og undirrituð, ásamt með Magnúsi, á miklum átakafundi innan félagsins sem stóð í rúma fimm klukkutíma. Engu okkar datt í hug að fara fyrr en í fundarlok og síst honum. I þau ferðalög sem Verkalýðsfé- lagið býður öldnum félögum sínum var Magnús alltaf með og hafði mjög gaman af. Ég hygg að þau, ásamt ferðum á Strandir, hafi verið einu ferðalögin sem Magnús fór í um langan aldur og hlakkaði alltaf jafn mikið til þeirra. Næst hittumst við Magnús í Fé- lagi eldri borgara á Akranesi. Þau ár sem ég hefi verið þar formaður var hann mér mikil hjálparhella. Hann opnaði oft fyrir mig skrifstofuna og var þar til taks ef ég þurfti að vera annarstaðar, eða til að koma af stað spilamennsku þar eða inni á Höfða. Hann hafði mjög gaman af að spila brids. Við vorum spilafélagar í mörg ár. Hann var slyngur spilamaður, en varkár eins og í öllu öðru. Alltaf skyldi hann vera tilbúinn til að standa upp ef einhver var stakur og alltaf var sama viðkvæðið: „Það er allt í lagi með mig, ég verð með næst.“ ÓIl lyndiseinkunn hans var, bæði í stóru og smáu, að hugsa fyrst og fremst um aðra, hjálpa öðrum, gleðja aðra. Síðast kom að sjálfum sér. Hann var mikill fjölskyldumaður og frændrækinn og það voru þau hjón bæði. Það var því mikið skarð fyrir skildi, þegar Matthildur kona hans dó fyrir nokkrum mánuðum. Hún var mikil félagsmálakona og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Magnús saknaði konu sinnar mikið og ég held að hann hafi oft fundið til einmanakenndar. Vonandi hefur hann fundið Möttu sína aftur. Það er mikill missir að þeim hjón- um. Þó allra mestur fyrir syni þeirra, tengdadætur og öll barnabörnin og langömmu og -afabörnin. Ég sendi þeim mínar innilegustu samúðar- kveðjur og bið guð að blessa þau öll. Kæran vin og félaga kveð ég með blessun og þakklæti. Bjarnfríður Leósdóttir. Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Marmari Granít Blágrýli Gabbró MAGNÚS BAKKMANN ANDRÉSSON Hve nær sem kallið kemur, kaupir sig enginn frí. Þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (H.P.) MOSAIK Líparíi Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Ég fann til sárrar hryggðar þegar mér barst fregnin um andlát vinar Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri 1 ISfiÉ) blómaverkstæói I | JpINNAfe | Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, simi 551 9090. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan ........ sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKjUGARÐANNA EHF. + Ástkær unnusti minn, sonur, bróðir og mágur, GUNNAR BACHMANN SIGURÐSSON, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést fimmtudaginn 14. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Helena Christina Vroegop, Sigurður Guðmundsson, Geirlaug Jónsdóttir, Birgir Sigurðsson, Sólveig Bjarnþórsdóttir. + Elskulegur faðir okkar, HALLDÓR MAGNÚSSON bifreiðarstjóri Borgarbraut 65, Borgarnesi, sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness föstu- daginn 22. september verður jarðsunginn frá Borganeskirkju laugardaginn 30. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þóra Halldórsdóttir, Jónasína Halldórsdóttir. + Elskulegur bróðir okkar, KONRÁÐ BERGÞÓRSSON, Nökkvavogi 1, lést að morgni mánudagsins 25. september á hjartadeild Landspítalans. Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 29. september kl. 13.30. Systkini hins látna. + Hjartkær föðurbróðir minn, HELGI GUÐLAUGSSON, Hamrahlíð 17, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 25. september. Guðlaugur Rúnar Guðmundsson. + Ástkær dóttir okkar, móðir og systir, SIGRÚN ARNARDÓTTIR, Æsufelli 2, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 21. september, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 29. september og hefst athöfnin kl. 13.30. Skúli Guðmundsson, Björg Guðnadóttir, Lilja Björg Sigurjónsdóttir, Elvar Skúli Sigurjónsson, Ingibjörg Karen Sigurjónsdóttir, Daníel Aron Sigurjónsson, Alexandra Mist Birgisdóttir, Álfheiður Arnardóttir, Stefán Þór Bjarnason, Guðni Þór Skúlason, Sigurbjörg Ámundadóttir, Ragnheiður Linda Skúladóttir. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug, við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, fósturföður, tengdaföður og afa, BALDVINS H.G. NJÁLSSONAR, Garði. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á Landspitalanum við Hringbraut. Þorbjörg Bergsdóttir, Bergþór Baldvinsson, Bryndís Arnþórsdóttir, Baldvin Þór Bergþórsson, Birna Dögg Bergþórsdóttir, Þorbjörg Bergþórsdóttir, Málfríður Baldvinsdóttir, Ingibergur Þorgeirsson, Theodór Ingibergsson, Sóley Björg Ingibergsdóttir, Bergur Þór Eggertsson, Þórhildur Eva Jónsdóttir, Berglín Sólbrá Bergsdóttir. t:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.