Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Myndir sem eiga erindi BÆKUR Ljósmyndir ÍSLAND í SJÓNMÁLI Franskir ljósmyndarar á Islandi 1845-1900, eftir Æsu Sigurjónsdótt- ur. Hönnun: Jón Ásgeir í Áðaldal. Prentun: Oddi hf. JPV forlag/Þjóð- minjasafn Islands. 136 bls. BÓKIN ísland í sjónmáli eftir Æsu Sigurjónsdóttur, þar sem birtar eru myndir franskra ljósmyndara frá Islandi á síðari hluta 19. aldar, og þar með fyrstu myndirnar sem hér voru teknar, er kærkomið timamótaverk og til þess fallið að blása lífi í rann- sóknir á íslenskri ljósmyndasögu. Ekki er nóg með að bókin sé lagleg og vel unnin, heldur eru rannsóknir höfundar á efninu framúrskarandi, textinn vandaður, og mikil verð- mæti fólgin í því að eiga margar þessara mynda á prenti. Æsa skiptir verkinu í sex efnis- kafla, eftir ljósmyndinni eða myndasyrpunum sem hún fjallar um hverju sinni, en myndirnar eru varðveittar í þremur frönskum söfnum og í Þjóðminjasafni Islands, sem reynist eiga tvær merkilegar franskar syrpur frá 19. öld. Stór hluti þessara mynda var grafinn og óskráður á frönskum söfnum, en af eljusemi dró Æsa þær fram í dags- ljósið og gerir hér grein fyrir þeim. Hver kafli hverfist um ákveðnar myndir og ljósmyndara því mynd- irnar voru teknar á ólíkum forsend- um og ljósmyndararnir höfðu ólík svið að bakgrunni, svo sem jarð- fræði, mannfræðirannsóknir og sjómælingar. Ljósmyndararnir áttu það sameiginlegt að vera allir sendir til landsins af frönskum yfir- völdum til að skrá upplýsingar og koma á framfæri þegar þeir sneru heim úr leiðöngrunum. Frakkar voru forystumenn í uppgötvun og rannsóknum á ljósmynduninni. Um aldir höfðu menn reynt að festa spegil- myndina en fyrstur til að leysa gát- una var J.N. Niépce (1765 - 1833), en samstarfsmaður hans, L.J.M. Daguerre (1787 -1851) varð fyrstur til að kynna uppgötvunina. Það var gert á fundi frönsku Vísinda- akademíunnar í ágúst 1839 og er upphaf ljósmyndunar miðað við það ártal. Aðferð Daguerres var allflók- in og hafði ýmsa annmarka, en varð samt strax gríðarlega vinsæl. Und- irbúa þurfti plöturnar sérstaklega fyrir hverja myndatöku og hver mynd var einstök, ekki var hægt að fjölfalda hana eða flytja yfir á papp- ír. Daguerretýpur eru silfraðar spegilmyndir og oft erfitt að rýna í þær, en engu að síður eru þetta oft á tíðum einhverjar fegurstu, og jafnframt skörpustu ljósmyndir sem fyrirfinnast. Eins og Æsa bendir á, þá er saga ljósmyndunar á íslandi á 19. öld lítt þekkt og brotakennd, rétt eins og ljósmyndasaga margra annarra landa. Markmið hennar með bók- inni sé að kynna ljósmyndir Frakka frá Islandi, setja myndir þeirra í samhengi við það sem var að gerast í ljósmyndun hverju sinni, og sýna fram á tengsl ljósmyndunar, vís- indarannsókna og atvinnulífs. Allt þetta gerir hún prýðisvel og pers- ónulega, safnar saman forvitnileg- um heimildum og bregður ljósi á það sem myndasmiðirnir eru að gera hverju sinni. Tímabilið sem hún fjallar um af- markast af heimildunum. Annars- vegar þeim daguerretýpum sem steindafræðingurinn Des Cloizeaux tók andlátsár Jónasar Hallgríms- sonar, 1845 - hann var á ferðinni aðeins sex árum eftir að ljósmyndin var kynnt opinberlega og þær tvær sem varðveist hafa eru fyrstu myndirnar sem vitað er til að tekn- ar hafi verið á landinu -, og hins vegar ljósmyndasyrpu sem liðsfor- inginn Petitejean tók sumarið 1893. Frásögnin af ferðum Des Cloizeaux er heillandi lesning, þar sem fléttað er saman upplýsingum um þennan steindafræðing sem komst til æðstu metorða á vísindasviðinu, textum úr dagbókum hans og út- skýringum á því hvað hann var að fást við. Hann var 28 ára gamall þegar hann var sendur til Islands vegna rannsókna á silfurbergi og var meðal annars vopnaður mynda- vél. Hann ljósmyndaði af vísinda- legri nákvæmni og fram kemur að hann eyddi a.m.k. sjö dögum í að ljósmynda í Reykjavík. Þær tvær myndir sem varðveist hafa sýna skipalægið og sum helstu hús bæj- arins. Des Cloizeaux bjó hjá Möller lyfsala að Thorvaldsen- stræti 6 og myndaði m.a. út um glugga hússins. Hann lýsir vinnunni í dagbók sinni, en 18. til 21. júní skrifar hann einungis: „Held áfram að daguerrótýpa." Nokkrum dögum síðar er lýsingin ítarlegri og okkur gefst færi á að fylgjast með tilurð elstu myndar- innar sem varðveist hefur frá Is- landi: „Fimmtudagur 26. júní. Ur- hellisrigning. Klukkan fjögur reyni ég að daguerrótýpa og þrátt fyrir úrkomuna næ ég mér til undrunar góðri mynd, á einni og hálfri mín- útu, sem tekin er frá einum af gluggum apóteks Möllers. Á mynd- inni sést hús Halldóru, hús dómara og tvö hús herra Knudtzons og horn af Latínuskólanum, í fjarska kofar sölufólksins. Torgið, alsett ávölum steinum, kom mjög vel út.“ Þessi ítarlega lýsing á vel við aðra myndina sem varðveist hefur í Par- ís. Hin myndin fellur að dagbókar- færslu degi síðar: „Ég tók tvær myndir af bænum og skipalæginu á 45 sek. Mjög skýrar og ég gaf Möll- er aðra.“ Þessar myndir eru á eng- an hátt best varðveittu eða skýr- ustu daguerretýpur sem til eru, en fyrir íslendinga eru þær ómetanleg heimild og dýrgripir sem marka upphaf ljósmyndunar á landinu. Annar kaflinn er skemmtilega sérkennilegur með umfjöll- un um þrjár myndir af Bjarna Jónssyni rektor, sem til eru á Mannfræðisafninu í París. Þar á bæ byrjuðu menn strax árið 1840 að safna myndum af fólki ólíkra þjóða, en ætlunin var að koma á fót safni ljósmynda sem gæfu upplýs- ingar um ólíka kynþætti mannsins og skyldi nýtast vísindamönnum sem gagnagrunnur. I hópi þessarra mynda eru þrjár af Bjarna Jóns- syni, sem síðar varð rektor Lat- ínuskólans í Reykjavík. Þær eru teknar með fimmtán ára millibili, en sú fyrsta, daguerretýpa frá 1845, mun vera elsta ljósmynd af nafngreindum íslendingi sem varð- veist hefur og tímasett verður með vissu. Bjarni ferðaðist mikið, á þeirra tíma mælikvarða, en í bréf- um hans minnist hann ekki á þessar myndatökur. Æsa fjallar hér mann- inn og samskipti hans við Frakka, sem og afstöðu Islendinga eins og Benedikts Gröndals til ljósmyndun- ar á upphafsárum hennar. Iþriðja kafla bókarinnar er fjall- að um ferð Jerome Napóleon prins til íslands árið 1856. Siglt var á keisaralegri skemmtisnekkju og í förinni bæði málari og ljós- myndari. Sá síðarnefndi var Louis Rousseau, en í Vísindaakademíunni voru miklar vonir bundnar við þann framtakssama Ijósmyndara. Því miður hefur einungis ein ljósmynd varðveist af þeim sem Rousseau tók í ferðinni en það er líka einstök mynd sem sýnir unga nafnlausa stúlku á peysufötum. Peysan er þröng, köflóttur silkiklútur bund- Houzé de l’Aulnoit. Þingeyri við Dýrafjörð, 1858. Þjdðminjasafn Islands. Bjami Jónsson, síðar rektor Latínuskólans í Reykjavík, 1845. Daguerrótýpa. Photothéque du musée de l’Homme, París. inn um hálsinn, hún er með rósótta svuntu og skotthúfu á höfði. Hönd stúlkunnar virðist þrútin af vinnu og hún horfir beint í linsuna, svip- brigðalaus, en augun einstaklega dapurleg; eins og lífsneistann vanti alveg í þau. Æsa segir í skýringum sínipn að ekki sé verið að taka portrettmynd af ákveðinni mann- eskju heldur mannfræðilega mynd, dæmigerða fyrir ákveðna mann- gerð eða kynþátt, en útkoman er ákaflega sláandi og sérstök. Hér er án efa komin einhver áhrifamesta ljósmynd sem tekin hefur verið af Islendingi; einstakt listaverk sem segir mikla sögu. Fyrir fimmtán árum keypti Þjóðminjasafnið níu ljós- myndir teknar á íslandi árið 1858 og fjallar fjórði kaflinn um til- urð þeirra. Þær voru teknar af liðs- foringjanum Houzé de l’Aulnoit, skipverja á eftirlitsskipi sem rannsakaði aðstæður í hafi og á landi og aðstoðaði sívaxandi fjölda franskra báta sem fiskuðu við Is- land. Myndirnar eru frá Reykjavík, Dýrafirði og Grundarfirði. Ljós- myndir af byggðinni í Kvosinni hafa strax orðið vinsælasta mynd- efnið hér á landi, eins og glögglega sést í þessari bók. En einkum eru myndirnar frá Þingeyri frá Dýra- Loius Rousseau. Óþekkt íslensk stúlka, 1856. Photothéque du musée de l’Homme, París. fjörð merkar, þar sem Æsa segir að hinn „blákaldi félagslegi raunveru- leiki sé í fyrsta sinn festur á mynd á Islandi.“ Hér er komin félagsleg heimildaljósmyndun, sem fljótlega varð sérstakt svið ljósmyndunar; á annarri myndinni sjást fiskihjallur og trönur með fiski; kona og ungir drengir húka undir vegg. Þá er at- hyglisverð mynd af kirkjustaðnum Setbergi, þar sem maður stendur undir timburvegg tjargaðrar kirkjunnar og reyfi liggja til þerris á háum grasi grónum leiðum. Þegar leið á 19. öldina urðu myndatökurnar viðráðanlegri og við förum að sjá meira af því sem kalla mætti skyndi- og tækifæris- myndir, og alls ekki síður athyglis- verðar. Læknirinn og náttúrufræð- ingurinn Henry Labonne kom tvisvar til íslands, árin 1886 og 87, og var ákafur áhugamaður um allt sem að íslandi sneri. Á ferðum sín- um myndaði hann skútur, landslag, bæi Og fólk; hann notaði myndavél- ina eins og ferðamenn samtímans og þótt þær 31 mynd sem birtar eru úr safni hans séu misgóðar, þá eru sumar mjög áhugaverðar, ekki síst þær sem sýna bóndabæi og fólk. Á einni hefur heimilisfólkið að Lofts- stöðum í Gaulverjabæjarsókn safn- ast saman til myndatöku við út- ><M-2000 Miðvikudagur 27. september LISTASAFN REYKJAVIKUR - HAFNAR- HÚS KL. 12 cafe9.net KinderCargo, verkstæði þarsem börn geta unnið efni og skrifast á við jafnaldra í hinum borgunum alla miö- vikudaga frá kl. 13-15. Verkefnid verður alla miðvikudaga í október. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - waþ.olis.is Spakstund í Kaffíleikhúsinu ganginn úr bænum. Fyrir framan það hanga vettlingar og sokkaplögg til þerris á girðingarplanka, en fólkið er í sínum bestu fötum, feim- ið og undirleitt. Tvær aðrar myndir sýna vinnukonur og heimasætur að Kalmanstungu, myndaðar í torf- rétt; komnar í sín bestu föt með brot í björtum svuntum horfa þær óvissum augum í glerið sem gleypti síðan augnablikið. í lokakafla bókarinnar eru birtar ljósmyndir liðsforingja á frönskum eftirlitsskipum, þeirra August Gratzl, Henri Gaston Lancelin og André Petitjan. Um borð í skipun- um virðast myndatökur hafa verið notaðar til vísindalegrar skráning- ar, en þegar liðsforingjarnir brugðu sér í land, hafa þeir tekið myndavélarnar með sér og haldið skráningunni áfram. Tvær myndir Gratzls minna á mannfræðimyndir fyrri leiðangra, en þær sýna prúð- búnar dætur fyrirmanna Reykja- víkur. Lancelin á myndir af snæbörðu landi eins og það blasir við utan af hafi og húsum í Reykja- vík, auk merkilega einfaldrar skyndimyndar af franska grafreitn- um í Reykjavík, þar sem látlausir trékrossar og trérammar standa innan hlaðins grjótveggjar. Petitjean hefur tekið áhrifa- mestu ljósmyndir þremenning- anna. Á einni er sérlega kempuleg áhöfn franskrar duggu og fleiri sýna skipin og lífið um borð. Prent mynda hans eru greinilega allnokk- uð skemmd, en myndirnar oft á tíð- um glettilega góðar og athyglis- verðar, eins og mynd af myllunni við Bankastræti, hversdagsleg götumynd af Laugavegi og mynd af húsi ungfrú Ástríðar Pétursson við Hverfisgötu. Áhrifamesta mynd Petitjeans lýkur síðan bókinni á til- hlýðilegan hátt, þar sést fólk ganga frá messu í Dómkikjunni árið 1893. Allhvass vindur tekur í síð pilsin og í fjarska virðist danski fáninn hanga í lausu lofti. Æsa Sigurjónsdóttir á hrós skilið fyrir að safna þess- um myndum saman, búa þær til prentunar og fyrir að koma rannsóknum sínum til skila í vönd- uðm og forvitnilegum textanum. Að sama skapi ber að lofa útgefendur, Þjóðminjasafn íslands og JPV-For- lag fyrir að standa svo myndarlega að útgáfu bókarinnar, og stuðla þannig að útgáfu vandaðra og merka ljósmynda og rannsókna á ljósmyndasögu. Island í sjónmáli er stílhrein bók, í hefðbundnum anda ljósmynda- bóka í stóru broti þar sem reynt er að láta ljósmyndirnar njóta sín eins vel og hægt er. Textinn er á ís- lensku og frönsku og helst hægt að finna að skáletursgerðinni sem er ekki nógu læsileg. Prentunin er ágætlega af hendi leyst, myndirnar nokkuð brúnar, en það getur hæft gömlum myndum sem þessum; sögulegum myndum sem eiga svo sannarlega erindi við þjóðina. Einar Falur Ingólfsson FJÓRÐA Spakstund vetrarins verð- ur haldin í Kaffileikhúsinu í Hlað- varpanum í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20. Þar mun Sölvi Björn Sigurðarson flytja erindi um skáldsagnahefðina og höfundinn. Spakstundir eru haldnar hvert miðvikudagskvöld í Kaffileikhúsinu í boði Soffíu, félags heimspekinema við HÍ. Aðgangur er ókeypis og allt áhugafólk um heimspeki og hugvís- indi velkomið. Nýjar bækur • Út er komin á vegum Há- sk óln ú tgáfu nmir fjórða út- gáfa af Orðgnótt eftir Guð- mund B. Arnkelsson. Orðgnótt byggist á ensk-ís- ienskum orðaiista, einkennist af tiltölulega ítarlegum orð- skýringum og mörgum milli- vísunum. I fjórðu útgáfu hefur verið fjölgað orðskýringum og myndum og íslensk-enskum orðalista bætt við. Orðgnótt hentar þeim sem lesa enskan texta í sálfræði og aðferða- fræði. Hún hefur notið mikilla vinsælda meðal háskólanema. Bókin hentar einnig kennurum sem leita íslenskra heita á er- lendum fræðiorðum og öðrum sem lesa eða rita texta á sviði sálarfræði eða aðferðafræði. Bókin er 192 bls. kilja með um 3.800 erlend fræðiheiti, 680 orðskýringar og 40 myndir. Leiðbeinandi verð erkr. 1.436.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.