Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Myndir sem
eiga erindi
BÆKUR
Ljósmyndir
ÍSLAND í SJÓNMÁLI
Franskir ljósmyndarar á Islandi
1845-1900, eftir Æsu Sigurjónsdótt-
ur. Hönnun: Jón Ásgeir í Áðaldal.
Prentun: Oddi hf. JPV forlag/Þjóð-
minjasafn Islands. 136 bls.
BÓKIN ísland í sjónmáli eftir
Æsu Sigurjónsdóttur, þar
sem birtar eru myndir
franskra ljósmyndara frá Islandi á
síðari hluta 19. aldar, og þar með
fyrstu myndirnar sem hér voru
teknar, er kærkomið timamótaverk
og til þess fallið að blása lífi í rann-
sóknir á íslenskri ljósmyndasögu.
Ekki er nóg með að bókin sé lagleg
og vel unnin, heldur eru rannsóknir
höfundar á efninu framúrskarandi,
textinn vandaður, og mikil verð-
mæti fólgin í því að eiga margar
þessara mynda á prenti.
Æsa skiptir verkinu í sex efnis-
kafla, eftir ljósmyndinni eða
myndasyrpunum sem hún fjallar
um hverju sinni, en myndirnar eru
varðveittar í þremur frönskum
söfnum og í Þjóðminjasafni Islands,
sem reynist eiga tvær merkilegar
franskar syrpur frá 19. öld. Stór
hluti þessara mynda var grafinn og
óskráður á frönskum söfnum, en af
eljusemi dró Æsa þær fram í dags-
ljósið og gerir hér grein fyrir þeim.
Hver kafli hverfist um ákveðnar
myndir og ljósmyndara því mynd-
irnar voru teknar á ólíkum forsend-
um og ljósmyndararnir höfðu ólík
svið að bakgrunni, svo sem jarð-
fræði, mannfræðirannsóknir og
sjómælingar. Ljósmyndararnir
áttu það sameiginlegt að vera allir
sendir til landsins af frönskum yfir-
völdum til að skrá upplýsingar og
koma á framfæri þegar þeir sneru
heim úr leiðöngrunum.
Frakkar voru forystumenn í
uppgötvun og rannsóknum á
ljósmynduninni. Um aldir
höfðu menn reynt að festa spegil-
myndina en fyrstur til að leysa gát-
una var J.N. Niépce (1765 - 1833),
en samstarfsmaður hans, L.J.M.
Daguerre (1787 -1851) varð fyrstur
til að kynna uppgötvunina. Það var
gert á fundi frönsku Vísinda-
akademíunnar í ágúst 1839 og er
upphaf ljósmyndunar miðað við það
ártal. Aðferð Daguerres var allflók-
in og hafði ýmsa annmarka, en varð
samt strax gríðarlega vinsæl. Und-
irbúa þurfti plöturnar sérstaklega
fyrir hverja myndatöku og hver
mynd var einstök, ekki var hægt að
fjölfalda hana eða flytja yfir á papp-
ír. Daguerretýpur eru silfraðar
spegilmyndir og oft erfitt að rýna í
þær, en engu að síður eru þetta oft
á tíðum einhverjar fegurstu, og
jafnframt skörpustu ljósmyndir
sem fyrirfinnast.
Eins og Æsa bendir á, þá er saga
ljósmyndunar á íslandi á 19. öld lítt
þekkt og brotakennd, rétt eins og
ljósmyndasaga margra annarra
landa. Markmið hennar með bók-
inni sé að kynna ljósmyndir Frakka
frá Islandi, setja myndir þeirra í
samhengi við það sem var að gerast
í ljósmyndun hverju sinni, og sýna
fram á tengsl ljósmyndunar, vís-
indarannsókna og atvinnulífs. Allt
þetta gerir hún prýðisvel og pers-
ónulega, safnar saman forvitnileg-
um heimildum og bregður ljósi á
það sem myndasmiðirnir eru að
gera hverju sinni.
Tímabilið sem hún fjallar um af-
markast af heimildunum. Annars-
vegar þeim daguerretýpum sem
steindafræðingurinn Des Cloizeaux
tók andlátsár Jónasar Hallgríms-
sonar, 1845 - hann var á ferðinni
aðeins sex árum eftir að ljósmyndin
var kynnt opinberlega og þær tvær
sem varðveist hafa eru fyrstu
myndirnar sem vitað er til að tekn-
ar hafi verið á landinu -, og hins
vegar ljósmyndasyrpu sem liðsfor-
inginn Petitejean tók sumarið 1893.
Frásögnin af ferðum Des Cloizeaux
er heillandi lesning, þar sem fléttað
er saman upplýsingum um þennan
steindafræðing sem komst til
æðstu metorða á vísindasviðinu,
textum úr dagbókum hans og út-
skýringum á því hvað hann var að
fást við. Hann var 28 ára gamall
þegar hann var sendur til Islands
vegna rannsókna á silfurbergi og
var meðal annars vopnaður mynda-
vél. Hann ljósmyndaði af vísinda-
legri nákvæmni og fram kemur að
hann eyddi a.m.k. sjö dögum í að
ljósmynda í Reykjavík. Þær tvær
myndir sem varðveist hafa sýna
skipalægið og sum helstu hús bæj-
arins.
Des Cloizeaux bjó hjá Möller
lyfsala að Thorvaldsen-
stræti 6 og myndaði m.a. út
um glugga hússins. Hann lýsir
vinnunni í dagbók sinni, en 18. til
21. júní skrifar hann einungis:
„Held áfram að daguerrótýpa."
Nokkrum dögum síðar er lýsingin
ítarlegri og okkur gefst færi á að
fylgjast með tilurð elstu myndar-
innar sem varðveist hefur frá Is-
landi: „Fimmtudagur 26. júní. Ur-
hellisrigning. Klukkan fjögur reyni
ég að daguerrótýpa og þrátt fyrir
úrkomuna næ ég mér til undrunar
góðri mynd, á einni og hálfri mín-
útu, sem tekin er frá einum af
gluggum apóteks Möllers. Á mynd-
inni sést hús Halldóru, hús dómara
og tvö hús herra Knudtzons og
horn af Latínuskólanum, í fjarska
kofar sölufólksins. Torgið, alsett
ávölum steinum, kom mjög vel út.“
Þessi ítarlega lýsing á vel við aðra
myndina sem varðveist hefur í Par-
ís. Hin myndin fellur að dagbókar-
færslu degi síðar: „Ég tók tvær
myndir af bænum og skipalæginu á
45 sek. Mjög skýrar og ég gaf Möll-
er aðra.“ Þessar myndir eru á eng-
an hátt best varðveittu eða skýr-
ustu daguerretýpur sem til eru, en
fyrir íslendinga eru þær ómetanleg
heimild og dýrgripir sem marka
upphaf ljósmyndunar á landinu.
Annar kaflinn er skemmtilega
sérkennilegur með umfjöll-
un um þrjár myndir af
Bjarna Jónssyni rektor, sem til eru
á Mannfræðisafninu í París. Þar á
bæ byrjuðu menn strax árið 1840
að safna myndum af fólki ólíkra
þjóða, en ætlunin var að koma á fót
safni ljósmynda sem gæfu upplýs-
ingar um ólíka kynþætti mannsins
og skyldi nýtast vísindamönnum
sem gagnagrunnur. I hópi þessarra
mynda eru þrjár af Bjarna Jóns-
syni, sem síðar varð rektor Lat-
ínuskólans í Reykjavík. Þær eru
teknar með fimmtán ára millibili,
en sú fyrsta, daguerretýpa frá
1845, mun vera elsta ljósmynd af
nafngreindum íslendingi sem varð-
veist hefur og tímasett verður með
vissu. Bjarni ferðaðist mikið, á
þeirra tíma mælikvarða, en í bréf-
um hans minnist hann ekki á þessar
myndatökur. Æsa fjallar hér mann-
inn og samskipti hans við Frakka,
sem og afstöðu Islendinga eins og
Benedikts Gröndals til ljósmyndun-
ar á upphafsárum hennar.
Iþriðja kafla bókarinnar er fjall-
að um ferð Jerome Napóleon
prins til íslands árið 1856. Siglt
var á keisaralegri skemmtisnekkju
og í förinni bæði málari og ljós-
myndari. Sá síðarnefndi var Louis
Rousseau, en í Vísindaakademíunni
voru miklar vonir bundnar við þann
framtakssama Ijósmyndara. Því
miður hefur einungis ein ljósmynd
varðveist af þeim sem Rousseau
tók í ferðinni en það er líka einstök
mynd sem sýnir unga nafnlausa
stúlku á peysufötum. Peysan er
þröng, köflóttur silkiklútur bund-
Houzé de l’Aulnoit. Þingeyri við Dýrafjörð, 1858. Þjdðminjasafn Islands.
Bjami Jónsson, síðar rektor
Latínuskólans í Reykjavík, 1845.
Daguerrótýpa. Photothéque du
musée de l’Homme, París.
inn um hálsinn, hún er með rósótta
svuntu og skotthúfu á höfði. Hönd
stúlkunnar virðist þrútin af vinnu
og hún horfir beint í linsuna, svip-
brigðalaus, en augun einstaklega
dapurleg; eins og lífsneistann vanti
alveg í þau. Æsa segir í skýringum
sínipn að ekki sé verið að taka
portrettmynd af ákveðinni mann-
eskju heldur mannfræðilega mynd,
dæmigerða fyrir ákveðna mann-
gerð eða kynþátt, en útkoman er
ákaflega sláandi og sérstök. Hér er
án efa komin einhver áhrifamesta
ljósmynd sem tekin hefur verið af
Islendingi; einstakt listaverk sem
segir mikla sögu.
Fyrir fimmtán árum keypti
Þjóðminjasafnið níu ljós-
myndir teknar á íslandi árið
1858 og fjallar fjórði kaflinn um til-
urð þeirra. Þær voru teknar af liðs-
foringjanum Houzé de l’Aulnoit,
skipverja á eftirlitsskipi sem
rannsakaði aðstæður í hafi og á
landi og aðstoðaði sívaxandi fjölda
franskra báta sem fiskuðu við Is-
land. Myndirnar eru frá Reykjavík,
Dýrafirði og Grundarfirði. Ljós-
myndir af byggðinni í Kvosinni
hafa strax orðið vinsælasta mynd-
efnið hér á landi, eins og glögglega
sést í þessari bók. En einkum eru
myndirnar frá Þingeyri frá Dýra-
Loius Rousseau. Óþekkt íslensk
stúlka, 1856. Photothéque du
musée de l’Homme, París.
fjörð merkar, þar sem Æsa segir að
hinn „blákaldi félagslegi raunveru-
leiki sé í fyrsta sinn festur á mynd á
Islandi.“ Hér er komin félagsleg
heimildaljósmyndun, sem fljótlega
varð sérstakt svið ljósmyndunar; á
annarri myndinni sjást fiskihjallur
og trönur með fiski; kona og ungir
drengir húka undir vegg. Þá er at-
hyglisverð mynd af kirkjustaðnum
Setbergi, þar sem maður stendur
undir timburvegg tjargaðrar
kirkjunnar og reyfi liggja til þerris
á háum grasi grónum leiðum.
Þegar leið á 19. öldina urðu
myndatökurnar viðráðanlegri og
við förum að sjá meira af því sem
kalla mætti skyndi- og tækifæris-
myndir, og alls ekki síður athyglis-
verðar. Læknirinn og náttúrufræð-
ingurinn Henry Labonne kom
tvisvar til íslands, árin 1886 og 87,
og var ákafur áhugamaður um allt
sem að íslandi sneri. Á ferðum sín-
um myndaði hann skútur, landslag,
bæi Og fólk; hann notaði myndavél-
ina eins og ferðamenn samtímans
og þótt þær 31 mynd sem birtar eru
úr safni hans séu misgóðar, þá eru
sumar mjög áhugaverðar, ekki síst
þær sem sýna bóndabæi og fólk. Á
einni hefur heimilisfólkið að Lofts-
stöðum í Gaulverjabæjarsókn safn-
ast saman til myndatöku við út-
><M-2000
Miðvikudagur 27. september
LISTASAFN REYKJAVIKUR - HAFNAR-
HÚS KL. 12
cafe9.net
KinderCargo, verkstæði þarsem
börn geta unnið efni og skrifast á við
jafnaldra í hinum borgunum alla miö-
vikudaga frá kl. 13-15.
Verkefnid verður alla miðvikudaga í
október.
www.cafe9.net
www.reykjavik2000.is - waþ.olis.is
Spakstund í Kaffíleikhúsinu
ganginn úr bænum. Fyrir framan
það hanga vettlingar og sokkaplögg
til þerris á girðingarplanka, en
fólkið er í sínum bestu fötum, feim-
ið og undirleitt. Tvær aðrar myndir
sýna vinnukonur og heimasætur að
Kalmanstungu, myndaðar í torf-
rétt; komnar í sín bestu föt með
brot í björtum svuntum horfa þær
óvissum augum í glerið sem gleypti
síðan augnablikið.
í lokakafla bókarinnar eru birtar
ljósmyndir liðsforingja á frönskum
eftirlitsskipum, þeirra August
Gratzl, Henri Gaston Lancelin og
André Petitjan. Um borð í skipun-
um virðast myndatökur hafa verið
notaðar til vísindalegrar skráning-
ar, en þegar liðsforingjarnir
brugðu sér í land, hafa þeir tekið
myndavélarnar með sér og haldið
skráningunni áfram. Tvær myndir
Gratzls minna á mannfræðimyndir
fyrri leiðangra, en þær sýna prúð-
búnar dætur fyrirmanna Reykja-
víkur. Lancelin á myndir af
snæbörðu landi eins og það blasir
við utan af hafi og húsum í Reykja-
vík, auk merkilega einfaldrar
skyndimyndar af franska grafreitn-
um í Reykjavík, þar sem látlausir
trékrossar og trérammar standa
innan hlaðins grjótveggjar.
Petitjean hefur tekið áhrifa-
mestu ljósmyndir þremenning-
anna. Á einni er sérlega kempuleg
áhöfn franskrar duggu og fleiri
sýna skipin og lífið um borð. Prent
mynda hans eru greinilega allnokk-
uð skemmd, en myndirnar oft á tíð-
um glettilega góðar og athyglis-
verðar, eins og mynd af myllunni
við Bankastræti, hversdagsleg
götumynd af Laugavegi og mynd af
húsi ungfrú Ástríðar Pétursson við
Hverfisgötu. Áhrifamesta mynd
Petitjeans lýkur síðan bókinni á til-
hlýðilegan hátt, þar sést fólk ganga
frá messu í Dómkikjunni árið 1893.
Allhvass vindur tekur í síð pilsin og
í fjarska virðist danski fáninn
hanga í lausu lofti.
Æsa Sigurjónsdóttir á hrós
skilið fyrir að safna þess-
um myndum saman, búa
þær til prentunar og fyrir að koma
rannsóknum sínum til skila í vönd-
uðm og forvitnilegum textanum. Að
sama skapi ber að lofa útgefendur,
Þjóðminjasafn íslands og JPV-For-
lag fyrir að standa svo myndarlega
að útgáfu bókarinnar, og stuðla
þannig að útgáfu vandaðra og
merka ljósmynda og rannsókna á
ljósmyndasögu.
Island í sjónmáli er stílhrein bók,
í hefðbundnum anda ljósmynda-
bóka í stóru broti þar sem reynt er
að láta ljósmyndirnar njóta sín eins
vel og hægt er. Textinn er á ís-
lensku og frönsku og helst hægt að
finna að skáletursgerðinni sem er
ekki nógu læsileg. Prentunin er
ágætlega af hendi leyst, myndirnar
nokkuð brúnar, en það getur hæft
gömlum myndum sem þessum;
sögulegum myndum sem eiga svo
sannarlega erindi við þjóðina.
Einar Falur Ingólfsson
FJÓRÐA Spakstund vetrarins verð-
ur haldin í Kaffileikhúsinu í Hlað-
varpanum í kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 20.
Þar mun Sölvi Björn Sigurðarson
flytja erindi um skáldsagnahefðina
og höfundinn.
Spakstundir eru haldnar hvert
miðvikudagskvöld í Kaffileikhúsinu í
boði Soffíu, félags heimspekinema
við HÍ. Aðgangur er ókeypis og allt
áhugafólk um heimspeki og hugvís-
indi velkomið.
Nýjar bækur
• Út er komin á vegum Há-
sk óln ú tgáfu nmir fjórða út-
gáfa af Orðgnótt eftir Guð-
mund B. Arnkelsson.
Orðgnótt byggist á ensk-ís-
ienskum orðaiista, einkennist
af tiltölulega ítarlegum orð-
skýringum og mörgum milli-
vísunum.
I fjórðu útgáfu hefur verið
fjölgað orðskýringum og
myndum og íslensk-enskum
orðalista bætt við. Orðgnótt
hentar þeim sem lesa enskan
texta í sálfræði og aðferða-
fræði. Hún hefur notið mikilla
vinsælda meðal háskólanema.
Bókin hentar einnig kennurum
sem leita íslenskra heita á er-
lendum fræðiorðum og öðrum
sem lesa eða rita texta á sviði
sálarfræði eða aðferðafræði.
Bókin er 192 bls. kilja með
um 3.800 erlend fræðiheiti, 680
orðskýringar og 40 myndir.
Leiðbeinandi verð erkr. 1.436.