Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 19 VIÐSKIPTI Efasemdir um hag- kvæmni útboðs á sjón- varpsaug’lýsing’um RUV SÓLVEIG Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra auglýsingastofa (SIA), sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fyrstu við- brögð sín við áætlunum Ríkisút- varpsins að bjóða út leiknar sjónvarpsauglýsingar væru þau að sér þætti þetta afar einkennilegur háttur á að selja auglýsingatíma. Svona fyrirkomulag við sölu á auglýsingatíma tíðkist hvergi í heiminum og afar mörgum þáttum sé ósvarað í sambandi við nánari útfærslu á fyrirhuguðu útboði Rík- isútvarpsins. Gunnar Alexander Ólafsson, auglýsingastjóri RÚV, segir að Ríkisútvarpið hafi haft 446 milljón- ir í nettótekjur af leiknum sjónvarpsauglýsingum í fyrra. Að- spurður segir Gunnar að eftir sé að kynna nánari útfærslu á útboðinu en það sé alveg ljóst að útboðsgögn verði ákaflega vel skilgreind. Auglýsingastofur ekki líklegir kaupendur Sólveig segist ekki geta séð hvernig Ríkisútvarpið ætli sér að tryggja upplýsingar um gæði þess sem það hyggist bjóða út. Það sé alveg ljóst að auglýsingastofur séu ekki þeir aðilar sem séu líklegir kaupendur í slíku útboði. Það geti augljóslega komið hagsmuna- árekstrar ef stofur kaupi auglýs- ingatíma í stórum stíl. „Það er hlut- verk auglýsingastofa,“ segir Sólveig, „að kaupa auglýsingapláss í fjölmiðlum eftir þörfum viðskipta- vinanna hverju sinni. Auglýsinga- stofa getur ekki á sama tíma verið að selja fyrir eigin reikning pláss í einhverjum einum miðli. Það er eitt af inntökuskilyrðunum í Sambandi íslenskra auglýsingastofa að auglýsingastofa sé fjárhagslega óháð viðskiptavinum og fjölmiðlum. Þessi forsenda er algert lykilatriði í faglegu auglýsingastarfi. Þótt markaðsstjóri Ríkisútvarpsins hafi haldið því fram að þetta útboð sé upplagt fyrir auglýsingastofur þá hlýtur það að stafa af því að hann skilji ekki hlutverk auglýsinga- stofa.“ Sólveig segir að það sé einnig áhugavert að fá að vita þegar þar að kemur hvaða takmarkanir aðrar verði í útboðinu en að einn aðili geti ekki keypt meira en 40% af heildarauglýsingatíma, til dæmis hvort Norðurljós eða Árvakur fái að bjóða í auglýsingatíma sjónvarpsins. Þá sé auðvitað mikil- vægt að fá að vita við hvað verðlagningin verði miðuð. Hins vegar segist Sólveig ekki geta séð fram á að Ríkisútvarpið geti sparað neitt í rekstri með þessu fyrirkomulagi. Það sé erfitt að sjá á þessari stundu í hverju hagræði Ríkisútvarpsins af útboð- inu eigi að vera fólgið. Það geti ekki verið fólgið í því að hægt sé að fækka starfsmönnum mikið vegna þess að það séu auglýsinga- stofumar sem geri birtingaráætl- anir fyrir viðskiptavini sína og kaupi auglýsingar m.a. af Ríkisút- varpinu fyrir viðskiptamenn sína og virki þannig sem óbeinn söluaðili. Eins megi benda á að með því að stefna að því að hafa auglýsinga- tíma jafnlanga alveg óháð árstíma sé verið að líta algerlega fram hjá þörfum markaðarins. Þetta beri svolítinn keim af því að RÚV sé að losa sig undan markaðslögmálunum og henda áhættunni á einhverja aðra. Ómögulegt sé að vita hverjir það verði sem séu tilbúnir að taka þá áhættu á sig að kaupa auglýs- ingatíma í ríkissjónvarpinu heilt ár fram í tímann án þess að vita hvernig dagskráin verði og áhorf á hana. Út frá sjónarhóli SÍA sé lyk- ilatriðið þó það að augljóslega kunni að koma til hagsmunaá- rekstra ef þessi leið verði farin. Viss hætta á verðfalii sjónvarpsauglýsinga Hilmar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri sjónvarps Norður- ljósa, segir að enn sé mörgum spumingum ósvarað og að menn muni meta stöðuna betur þegar út- boðslýsing hafi verið lögð fram. Ríkisútvarpið hljóti að hafa reiknað dæmið á sínum forsendum þannig að það telji sig geta aukið tekjur eða lækkað kostnað en sjálfur eigi hann erfitt með að sjá fram á það. Ríkisútvarpið selji þegar til fárra aðila í miklu magni og þessir aðilar muni væntanlega vilja fá mikinn af- slátt fyrir þá áhættu að kaupa auglýsingar fyrirfram. Þá vakni einnig sú spurning þegar auglýs- ingar RÚV verði til sölu á eftir- markaði hvort það geti orðið til þess að verðfella miðilinn til lengri tíma ef einstakir aðilar á markaðn- um sitji uppi með birgðir sem þeir geti ekki selt. Þá sé einnig erfitt að sjá hverning RÚV geti lækkað kostnað þar sem það muni halda áfram að reka auglýsingadeild fyrir útvarp og að einhverju leyti fyrir sjónvarp auk þess sem því fylgi töluverð vinna að halda utan um þau 90% sem selja á fyrirfram í út- boði. ísleifur Þórhallsson, markaðs- og dagskrárstjóri hjá Skjá 1, segir að útboð á auglýsingum hjá ríkissjónv- arpinu hafi í sjálfu sér engin áhrif á stefnu Skjás 1. A Skjá 1 muni menn halda áfram að selja auglýs- ingar með líkum hætti og verið hef- ur og styrkja stöðu Skjás 1 á auglýsingamarkaðnum enn frekar. Skjár 1 haldi sig við fasta taxta og ekki standi til að breyta- því. Sjö fyrirtæki vilja faglegri vinnubrögð Stofna birtingarhús auglýsinga SLATURFELAG Suðurlands, Vffll- fell, IslenskAmeríska, Innnes, Landssiminn, Sól-Víking og Hekla hafa ákveðið að vinna að stofnun birtingarhúss auglýsinga. Töluverð umræða hefur verið að undanförnu um birtingarkostnað auglýsinga og nýtingu þess fjármagns sem varið er til auglýsinga og má minna á fjölsóttan fund ÍMARK fyrr í þess- um mánuði um auglýsingabirting- ar. Fyrirtækin sjö munu gera nán- ari grein fyrir áætlunum si'nuin í dag, miðvikudag og halda síðan fleiri kynningarfundi í framhaldi þar af. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er meginástæðan fyrir samvinnu þessara fyrirtækja um stofnun sérstaks birtingarhúss áhugi þeirra á aukinni fagmennsku í birtingu auglýsinga en þeim hefur þótt nokkuð skorta á það hjá auglýsingastofunum. Óánægja með umboðslaun Faglegi þátturinn, aðgengi að gögnum um notkun fjölmiðla vegur þyngst í ákvörðun fyrirtækjanna og hafa þau unnið um allangt skeið að undirbúningi þess. Þá er og fullvíst að innheimta svokallaðra um- boðslauna sem oft eru um 15% hafi haft veruleg áhrif á ákvörðun fyrir- tækjanna. Birtingarhús eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í að ákveða hvar og hvenær á að birta auglýsingu til þess að ná tilteknum árangri með sem minnstum tilkostnaði. Ekki liggur fyrir hvort þessi fyr- irtækjahópur hyggst bjóða í leiknar sjónvarpsauglýsingar Ríkisút- varpsins en ljóst er að mikil spenna er hlaupin í auglýsingamarkaðinn. Gera má ráð fyrir að fyrirtækin sjö telji sig geta náð mun meira út úr þeim fjármunum, sem þau verja til auglýsinga, með samvinnu sín á milli en giska má á að heildarveltan á íslenska auglýsingamarkaðinum losi fimm milljarða króna á ári. eaanesti bíllinn...feröalagið...f]allahjólið...hljómtækin...tölvan...og allt hitt...tryggóu þitt hjá TM TRYGGINGAMIÐSTOÐIN www.tmhf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.