Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 19
VIÐSKIPTI
Efasemdir um hag-
kvæmni útboðs á sjón-
varpsaug’lýsing’um RUV
SÓLVEIG Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
auglýsingastofa (SIA), sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að fyrstu við-
brögð sín við áætlunum Ríkisút-
varpsins að bjóða út leiknar
sjónvarpsauglýsingar væru þau að
sér þætti þetta afar einkennilegur
háttur á að selja auglýsingatíma.
Svona fyrirkomulag við sölu á
auglýsingatíma tíðkist hvergi í
heiminum og afar mörgum þáttum
sé ósvarað í sambandi við nánari
útfærslu á fyrirhuguðu útboði Rík-
isútvarpsins.
Gunnar Alexander Ólafsson,
auglýsingastjóri RÚV, segir að
Ríkisútvarpið hafi haft 446 milljón-
ir í nettótekjur af leiknum
sjónvarpsauglýsingum í fyrra. Að-
spurður segir Gunnar að eftir sé að
kynna nánari útfærslu á útboðinu
en það sé alveg ljóst að útboðsgögn
verði ákaflega vel skilgreind.
Auglýsingastofur ekki
líklegir kaupendur
Sólveig segist ekki geta séð
hvernig Ríkisútvarpið ætli sér að
tryggja upplýsingar um gæði þess
sem það hyggist bjóða út. Það sé
alveg ljóst að auglýsingastofur séu
ekki þeir aðilar sem séu líklegir
kaupendur í slíku útboði. Það geti
augljóslega komið hagsmuna-
árekstrar ef stofur kaupi auglýs-
ingatíma í stórum stíl. „Það er hlut-
verk auglýsingastofa,“ segir
Sólveig, „að kaupa auglýsingapláss
í fjölmiðlum eftir þörfum viðskipta-
vinanna hverju sinni. Auglýsinga-
stofa getur ekki á sama tíma verið
að selja fyrir eigin reikning pláss í
einhverjum einum miðli. Það er eitt
af inntökuskilyrðunum í Sambandi
íslenskra auglýsingastofa að
auglýsingastofa sé fjárhagslega
óháð viðskiptavinum og fjölmiðlum.
Þessi forsenda er algert lykilatriði í
faglegu auglýsingastarfi. Þótt
markaðsstjóri Ríkisútvarpsins hafi
haldið því fram að þetta útboð sé
upplagt fyrir auglýsingastofur þá
hlýtur það að stafa af því að hann
skilji ekki hlutverk auglýsinga-
stofa.“
Sólveig segir að það sé einnig
áhugavert að fá að vita þegar þar
að kemur hvaða takmarkanir aðrar
verði í útboðinu en að einn aðili
geti ekki keypt meira en 40% af
heildarauglýsingatíma, til dæmis
hvort Norðurljós eða Árvakur fái
að bjóða í auglýsingatíma
sjónvarpsins. Þá sé auðvitað mikil-
vægt að fá að vita við hvað
verðlagningin verði miðuð.
Hins vegar segist Sólveig ekki
geta séð fram á að Ríkisútvarpið
geti sparað neitt í rekstri með
þessu fyrirkomulagi. Það sé erfitt
að sjá á þessari stundu í hverju
hagræði Ríkisútvarpsins af útboð-
inu eigi að vera fólgið. Það geti
ekki verið fólgið í því að hægt sé að
fækka starfsmönnum mikið vegna
þess að það séu auglýsinga-
stofumar sem geri birtingaráætl-
anir fyrir viðskiptavini sína og
kaupi auglýsingar m.a. af Ríkisút-
varpinu fyrir viðskiptamenn sína og
virki þannig sem óbeinn söluaðili.
Eins megi benda á að með því að
stefna að því að hafa auglýsinga-
tíma jafnlanga alveg óháð árstíma
sé verið að líta algerlega fram hjá
þörfum markaðarins. Þetta beri
svolítinn keim af því að RÚV sé að
losa sig undan markaðslögmálunum
og henda áhættunni á einhverja
aðra. Ómögulegt sé að vita hverjir
það verði sem séu tilbúnir að taka
þá áhættu á sig að kaupa auglýs-
ingatíma í ríkissjónvarpinu heilt ár
fram í tímann án þess að vita
hvernig dagskráin verði og áhorf á
hana. Út frá sjónarhóli SÍA sé lyk-
ilatriðið þó það að augljóslega
kunni að koma til hagsmunaá-
rekstra ef þessi leið verði farin.
Viss hætta á verðfalii
sjónvarpsauglýsinga
Hilmar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarps Norður-
ljósa, segir að enn sé mörgum
spumingum ósvarað og að menn
muni meta stöðuna betur þegar út-
boðslýsing hafi verið lögð fram.
Ríkisútvarpið hljóti að hafa reiknað
dæmið á sínum forsendum þannig
að það telji sig geta aukið tekjur
eða lækkað kostnað en sjálfur eigi
hann erfitt með að sjá fram á það.
Ríkisútvarpið selji þegar til fárra
aðila í miklu magni og þessir aðilar
muni væntanlega vilja fá mikinn af-
slátt fyrir þá áhættu að kaupa
auglýsingar fyrirfram. Þá vakni
einnig sú spurning þegar auglýs-
ingar RÚV verði til sölu á eftir-
markaði hvort það geti orðið til
þess að verðfella miðilinn til lengri
tíma ef einstakir aðilar á markaðn-
um sitji uppi með birgðir sem þeir
geti ekki selt. Þá sé einnig erfitt að
sjá hverning RÚV geti lækkað
kostnað þar sem það muni halda
áfram að reka auglýsingadeild fyrir
útvarp og að einhverju leyti fyrir
sjónvarp auk þess sem því fylgi
töluverð vinna að halda utan um
þau 90% sem selja á fyrirfram í út-
boði.
ísleifur Þórhallsson, markaðs- og
dagskrárstjóri hjá Skjá 1, segir að
útboð á auglýsingum hjá ríkissjónv-
arpinu hafi í sjálfu sér engin áhrif á
stefnu Skjás 1. A Skjá 1 muni
menn halda áfram að selja auglýs-
ingar með líkum hætti og verið hef-
ur og styrkja stöðu Skjás 1 á
auglýsingamarkaðnum enn frekar.
Skjár 1 haldi sig við fasta taxta og
ekki standi til að breyta- því.
Sjö fyrirtæki vilja faglegri vinnubrögð
Stofna birtingarhús auglýsinga
SLATURFELAG Suðurlands, Vffll-
fell, IslenskAmeríska, Innnes,
Landssiminn, Sól-Víking og Hekla
hafa ákveðið að vinna að stofnun
birtingarhúss auglýsinga. Töluverð
umræða hefur verið að undanförnu
um birtingarkostnað auglýsinga og
nýtingu þess fjármagns sem varið
er til auglýsinga og má minna á
fjölsóttan fund ÍMARK fyrr í þess-
um mánuði um auglýsingabirting-
ar. Fyrirtækin sjö munu gera nán-
ari grein fyrir áætlunum si'nuin í
dag, miðvikudag og halda síðan
fleiri kynningarfundi í framhaldi
þar af.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er meginástæðan fyrir
samvinnu þessara fyrirtækja um
stofnun sérstaks birtingarhúss
áhugi þeirra á aukinni fagmennsku
í birtingu auglýsinga en þeim hefur
þótt nokkuð skorta á það hjá
auglýsingastofunum.
Óánægja með
umboðslaun
Faglegi þátturinn, aðgengi að
gögnum um notkun fjölmiðla vegur
þyngst í ákvörðun fyrirtækjanna og
hafa þau unnið um allangt skeið að
undirbúningi þess. Þá er og fullvíst
að innheimta svokallaðra um-
boðslauna sem oft eru um 15% hafi
haft veruleg áhrif á ákvörðun fyrir-
tækjanna.
Birtingarhús eru fyrirtæki sem
sérhæfa sig í að ákveða hvar og
hvenær á að birta auglýsingu til
þess að ná tilteknum árangri með
sem minnstum tilkostnaði.
Ekki liggur fyrir hvort þessi fyr-
irtækjahópur hyggst bjóða í leiknar
sjónvarpsauglýsingar Ríkisút-
varpsins en ljóst er að mikil spenna
er hlaupin í auglýsingamarkaðinn.
Gera má ráð fyrir að fyrirtækin
sjö telji sig geta náð mun meira út
úr þeim fjármunum, sem þau verja
til auglýsinga, með samvinnu sín á
milli en giska má á að heildarveltan
á íslenska auglýsingamarkaðinum
losi fimm milljarða króna á ári.
eaanesti
bíllinn...feröalagið...f]allahjólið...hljómtækin...tölvan...og allt hitt...tryggóu þitt hjá TM
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN
www.tmhf.is