Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ 58 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 Leikfélag íslands Hitum upp fýrír framhaldið "Á sama tíma síðar" Á sama tíma að ári er ein af vinsælustu sýningum seinni ára. Hún hlaut frábærar viðtökur ]afnt áhorfenda sem gagnrýnenda. Á næstunni frumsýnir Leikfélag íslands Á sama tíma síðar sem er sjálfstætt framhald eftir sama höfund. Þar verða að verki sömu leikarar og leikstjóri og færðu okkur fyrri sýninguna. Af því tilefni verður fyrri sýningin sýnd í örfá skipti til að hita upp fyrir framhaldið. Aðalhlutverk: Sigurður Sigurjónsson og Tinna Gunnlaugsdóttir Leikstjóri: Hallur Hetgason Höfundur: Bemard Slade Athugið aðeins örfáar sýningar! Miðapantanir sími 5 30 30 30 FÓLK í FRÉTTUM Hinn kornungi Craig David bjargar breskri sálartónlist Craig David: „Örlög mín eru að vera söngvari.“ Skyggnst inn í sálarlíf Craig David Þótt Bretar séu um margt leiðandi afl í dægurtónlistinni hafa þeir ekki riðið feitum hesti þegar sálartónlist er annars vegar. Nú er hinsvegar kominn fram á sjónarsviðið ungur drengur frá Southampton, Craig David að nafni, sem kann að breyta því. HINN nítján ára gamli Craig Dav- id er af mörgum talinn vera efni- legasti sálar/ÉnB-söngvari sem fram hefur komið í árafjöld. Jóm- frúarplatan hans Born to do it sem kom út í ágúst á þessu ári er nú þegar orðin þriðja söluhæsta plat- an í heimalandinu hans Bretlandi og tvær fyrstu smáskífurnar fóru rakleiðis á toppinn. Þess má geta að David er yngsti karlmannslista- maðurinn í sögu Bretlandseyja sem náð hefur þeim árangri og gagn- rýnendur þarlendis hafa lagst him- inlifandi að fótum David og eiga vart til orð yfir snilldarlega blöndu hans af ÉnB tónlist, breskri „gara- ge“-danstónlist og hágæðapoppi, kryddaðri ungæðislegri ástríðu hins unga manns sem á allt að vinna og engu að tapa. Southampton „Ég er fæddur í Southampton árið 1981,“ rifjar David upp. „Og hef búið þar hjá mömmu í 18 ár.“ Hann segir tónlistarástríðuna vera tilkomna vegna foreldra sinna. „Mamma var gríðarmikill aðdáandi Terence Trent D’Arby og pabbi átti slatta af reggíplötum. Þetta leiddi til þess að ég fór að hlusta á R’n’B og hip-hop sem varð síðan til þess að ég fór að hlusta á „gar- age“- og trommu- og bassatónlist. Pabbi var og í hljómsveitinni Eb- ony Rockers í gamla daga og það varð til þess að ég fór að læra á gítar á yngri árum.“ Á uppvaxtarárunum gegndi pabbi hans forstöðustarfi á hverfisskemmtistað. Hinn ungi David var því byrjaður að að fá nasaþefinn af klúbbamenningunni aðeins fjórtán ára að aldri. „Það fór alltaf svolítið í taugarnar á mér,“ minnist David. „Hversu lítil tengsl voru á milli plötusnúðanna og þess sem var að gerast á gólfinu. Þannig að kvöld eitt hljóp ég upp í búr og fór að spinna á hljóðnemann og peppa upp stemmninguna." Frægðarhjólin fóru að snúast hjá David er breska R’n’B sveitin Damage stóð fyrir lagasamkeppni árið 1997. Það lag sem myndi bera sigur úr býtum fengi þann heiður að fá að verma b-hliðina á næstu smáskífu sveitarinnar - ábreiðu yf- ir lag Eric Clapton „Wonderful Tonight". David gerði sér lítið fyr- ir, samdi lagið „ím ready“ á einum degi, sendi það inn samdægurs og sigraði. „Eftir þetta var mér boðið að vera með þátt á sjóræningjaútvarpsstöð og um það leyti kynntist ég Mark Hill úr Art- ful Dodger-genginu og við fórum að vinna saman að lagasmíðum,“ segir David. „Við þrykktum lagið „Rewind“ á plast og dreifðum því á milli klúbbanna og fyrr en varði var það komið í bullandi spilun á stóru útvarpsstöðvunum. Þegar það kom svo loksins út á almennum markaði stímdi það beint inn í ann- að sætið, lenti beint fyrir aftan Cliff Richard!" Fæddur til að gera það Næsta smáskífa, „Fill me in“, sem í þetta sinnið var einungis ánöfnuð Craig David, fór beinustu leið á toppinn. Ferillinn var nú kominn á fullt skrið. „Ég átti fullt í fangi með að trúa _þessu,“ segú- Craig af einlægni. „I kjölfarið fór maður að spila á 100.000 manna leikvöngum, gera myndbönd og hitta fræga fólkið. Það er vart hægt að lýsa þessu. Þetta er búið að vera þvilíka rennireiðin.“ Craig segir frá því er hann hitti Robbie Williams á einni af þessum sam- kundum og er sýnilega upp með sér. „Robbie kom að mér og sagði: „Craig, vanalega versla ég mér ekki smáskífur en ég keypti þína um daginn og finnst hún frábær!“ David segir að lokum að titill frumburðarins Born to do it, sé síð- ur en svo út í loftið. „Allir hafa sér- staka hæfileika til að gera eitthvað og mín örlög eru að vera söngvari og lagasmiður. Svo er þetta líka til- vitnun í uppháldskvikmyndina mína Willy Wonka og súkkulaði- verksmiðjan.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.