Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
Leikfélag íslands
Hitum upp fýrír framhaldið "Á sama tíma síðar"
Á sama tíma að ári er ein af vinsælustu sýningum seinni ára. Hún hlaut
frábærar viðtökur ]afnt áhorfenda sem gagnrýnenda. Á næstunni frumsýnir
Leikfélag íslands Á sama tíma síðar sem er sjálfstætt framhald eftir sama
höfund. Þar verða að verki sömu leikarar og leikstjóri og færðu okkur fyrri
sýninguna.
Af því tilefni verður fyrri sýningin sýnd í örfá skipti til að hita upp
fyrir framhaldið.
Aðalhlutverk: Sigurður Sigurjónsson og Tinna Gunnlaugsdóttir
Leikstjóri: Hallur Hetgason
Höfundur: Bemard Slade
Athugið aðeins örfáar sýningar!
Miðapantanir sími 5 30 30 30
FÓLK í FRÉTTUM
Hinn kornungi Craig
David bjargar
breskri sálartónlist
Craig David: „Örlög mín eru að vera söngvari.“
Skyggnst inn
í sálarlíf
Craig David
Þótt Bretar séu um margt leiðandi afl í
dægurtónlistinni hafa þeir ekki riðið feitum
hesti þegar sálartónlist er annars vegar. Nú
er hinsvegar kominn fram á sjónarsviðið
ungur drengur frá Southampton, Craig
David að nafni, sem kann að breyta því.
HINN nítján ára gamli Craig Dav-
id er af mörgum talinn vera efni-
legasti sálar/ÉnB-söngvari sem
fram hefur komið í árafjöld. Jóm-
frúarplatan hans Born to do it sem
kom út í ágúst á þessu ári er nú
þegar orðin þriðja söluhæsta plat-
an í heimalandinu hans Bretlandi
og tvær fyrstu smáskífurnar fóru
rakleiðis á toppinn. Þess má geta
að David er yngsti karlmannslista-
maðurinn í sögu Bretlandseyja sem
náð hefur þeim árangri og gagn-
rýnendur þarlendis hafa lagst him-
inlifandi að fótum David og eiga
vart til orð yfir snilldarlega blöndu
hans af ÉnB tónlist, breskri „gara-
ge“-danstónlist og hágæðapoppi,
kryddaðri ungæðislegri ástríðu
hins unga manns sem á allt að
vinna og engu að tapa.
Southampton
„Ég er fæddur í Southampton
árið 1981,“ rifjar David upp. „Og
hef búið þar hjá mömmu í 18 ár.“
Hann segir tónlistarástríðuna vera
tilkomna vegna foreldra sinna.
„Mamma var gríðarmikill aðdáandi
Terence Trent D’Arby og pabbi
átti slatta af reggíplötum. Þetta
leiddi til þess að ég fór að hlusta á
R’n’B og hip-hop sem varð síðan til
þess að ég fór að hlusta á „gar-
age“- og trommu- og bassatónlist.
Pabbi var og í hljómsveitinni Eb-
ony Rockers í gamla daga og það
varð til þess að ég fór að læra á
gítar á yngri árum.“
Á uppvaxtarárunum gegndi
pabbi hans forstöðustarfi á
hverfisskemmtistað. Hinn ungi
David var því byrjaður að að fá
nasaþefinn af klúbbamenningunni
aðeins fjórtán ára að aldri. „Það fór
alltaf svolítið í taugarnar á mér,“
minnist David. „Hversu lítil tengsl
voru á milli plötusnúðanna og þess
sem var að gerast á gólfinu. Þannig
að kvöld eitt hljóp ég upp í búr og
fór að spinna á hljóðnemann og
peppa upp stemmninguna."
Frægðarhjólin fóru að snúast hjá
David er breska R’n’B sveitin
Damage stóð fyrir lagasamkeppni
árið 1997. Það lag sem myndi bera
sigur úr býtum fengi þann heiður
að fá að verma b-hliðina á næstu
smáskífu sveitarinnar - ábreiðu yf-
ir lag Eric Clapton „Wonderful
Tonight". David gerði sér lítið fyr-
ir, samdi lagið „ím ready“ á einum
degi, sendi það inn samdægurs og
sigraði. „Eftir þetta var mér boðið
að vera með þátt á
sjóræningjaútvarpsstöð og um það
leyti kynntist ég Mark Hill úr Art-
ful Dodger-genginu og við fórum
að vinna saman að lagasmíðum,“
segir David. „Við þrykktum lagið
„Rewind“ á plast og dreifðum því á
milli klúbbanna og fyrr en varði
var það komið í bullandi spilun á
stóru útvarpsstöðvunum. Þegar
það kom svo loksins út á almennum
markaði stímdi það beint inn í ann-
að sætið, lenti beint fyrir aftan
Cliff Richard!"
Fæddur til að gera það
Næsta smáskífa, „Fill me in“,
sem í þetta sinnið var einungis
ánöfnuð Craig David, fór beinustu
leið á toppinn. Ferillinn var nú
kominn á fullt skrið. „Ég átti fullt í
fangi með að trúa _þessu,“ segú-
Craig af einlægni. „I kjölfarið fór
maður að spila á 100.000 manna
leikvöngum, gera myndbönd og
hitta fræga fólkið. Það er vart
hægt að lýsa þessu. Þetta er búið
að vera þvilíka rennireiðin.“ Craig
segir frá því er hann hitti Robbie
Williams á einni af þessum sam-
kundum og er sýnilega upp með
sér. „Robbie kom að mér og sagði:
„Craig, vanalega versla ég mér
ekki smáskífur en ég keypti þína
um daginn og finnst hún frábær!“
David segir að lokum að titill
frumburðarins Born to do it, sé síð-
ur en svo út í loftið. „Allir hafa sér-
staka hæfileika til að gera eitthvað
og mín örlög eru að vera söngvari
og lagasmiður. Svo er þetta líka til-
vitnun í uppháldskvikmyndina
mína Willy Wonka og súkkulaði-
verksmiðjan.“