Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
i
j'
í
ERLENDAR FJARFESTINGAR
Það fer vel á því að Guðfaðirinn setírsjálfur endapunktinn
á fiskveiðistjórnunarósKapnaðinn.
77% hlynnt hvalveiðum
NÆRFELLT 77% íslendinga
eru hlynntir því að hefja hval-
veiðar á íslandi og 60% vilja
hefja hvalveiðarnar strax á
þessu ári, ef marka má skoðana-
könnun Gallups sem gerð var
síðari hluta ágústmánaðar og í
byrjun september.
I könnuninni kom fram að 11%
voru andvíg hvalveiðum Islend-
inga og 13% reyndust hvorki
fylgjandi né andvígir þeim.
Fleiri karlar en konur voru
fylgjandi hvalveiðum, eða 84%
karla en tæp 70% kvenna. Stuðn-
ingurinn virtist vera þverpóli-
tískur, því ekki var marktækur
munur á milli stuðningsmanna
flokkanna í þessum efnum.
35% telja það skaðlegt
með einhverjum hætti
Þá telja næstum 35% það vera
skaðlegt fyrir okkur með ein-
hverjum hætti að veiða hval, 6%
telja að það myndi skaða við-
skipti okkar erlendis, 6% að það
myndi skaða ferðamannaiðnað-
inn hérlendis og 23% að það
myndi skaða hvort tveggja. Á
hinn bóginn telja 65% að það
myndi ekki hafa nein skaðleg
áhrif fyrir okkur að hefja hval-
veiðar.
Könnunin fór fram 22. ágúst
til 12. september. Úrtakið var
1.149 manns af landinu öllu á al-
drinum 18-75 ára og svöruðu
rúmlega 70%.
Sveigjanleiki á vinnustöðum
Hið gullna
jafnvægi
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
IÐ GULLNA jafn-
vægi“ er heiti ráð-
stefnu ESB-verk-
efnis sem fjallað verður um
á ráðstefnu sem Reykja-
víkurborg stendur fyrir í
samstarfi við Gallup og
hefst á föstudag. Þema
verkefnisins er sveigjan-
leiki á vinnustöðum og
samræming starfs og
einkalífs. Forseti íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson,
er verndari verkefnisins.
Gylfi Dalmann Aðalsteins-
son ráðgjafi hjá Gallup
verður fundarstjóri á ráð-
stefnunni. Hann var spurð-
ur um markmið hennar.
„Hið gullna jafnvægi er
samstarfsverkefni Reykja-
víkurborgar og Gallup,
sem er styrkt af Evrópu-
sambandinu. Verkefnið fer fram í
fjórum löndum samtímis, Bret-
landi, Grikklandi, Þýskalandi og
í slandi. Tuttugu og fimm fyrirtæki
frá hverju landi taka þátt í að prófa
ítarlegt leiðbeiningarefni sem ætl-
að er smáum og meðalstórum fyr-
irtækjum sem vilja samræma starf
og einkalíf og bæta þannig nýtingu
mannauðsins og skapa eftirsókn-
arverðan vinnustað."
-Hvað felst nánar til tekið í
þessu verkefni?
„Það er mikilvægt fyrir fyrir-
tæki framtíðarinnar að hafa á að
skipa öflugu starfsfólki. í framtíð-
inni mun samkeppni um hæft
vinnuafl aukast til muna og fyrir-
tæki þurfa að leita ýmissa leiða til
þess að gera vinnustaðinn aðlað-
andi og tryggja hollustu starfs-
manna sinna. Með þátttöku í verk-
efninu fá fyrirtæki hagnýtar
leiðbeiningar til þess að koma á
auknum sveigjanleika, nýta betur
mannauðinn, auka starfsánægju á
vinnustað, ná betri árangri og
halda hæfu starfsfólki, minnka
starfsmannaveltu og öðlast þekk-
ingu á breyttu umhverfi vinnu-
markaðarins."
- Hvað fá fyrirtækin út úr þátt-
töku sinni?
„Fyrirtækin fá sérstakt leið-
beiningarefni sem samið er af
breskum vinnumarkaðsfræðing-
um en er staðfært og aðlagað ís-
lenskum aðstæðum. Ennfremm-
munu íyrirtækin njóta handleiðslu
reyndra ráðgjafa Gallup auk þess
sem þátttakendur í verkefninu
munu hittast í fjórum vinnustofum
þar sem farið er ítarlega í leiðbein-
ingarverkefnið með hliðsjón af að-
stæðum hvers fyrirtækis fyrir sig.
Að lokum er helsti ávinningurinn
fyrir fyrirtæki að ná samkeppnis-
forskoti þar sem þekking, tryggð,
framlag starfsmanna og fjöl-
skylduvæn starfsmannastefna eru
lykill að árangri.“
- Hvað verður helst á dagskrá
ráðstefnunnar?
„Yfirskrift ráðstefnunnar er
Samkeppnisforskot með auknum
sveigjanleika. Á ráðstefnunni
verður meðal annars fjallað um
sveigjanleika á vinnustöðum í
Evrópu og Bandaríkj-
unum, fjallað verður
um jafnvægi milli
einkalífs og starfs með
tilliti til reynslu Royal
Borough of Kingston
upon Thames, sem er
sveitarfélag í Lundún-
um og átti frumkvæðið
að þessu verkefni. Á
ráðstefnunni verður
kynnt ný rannsókn Gallup á reyk-
vískum vinnumarkaði þar sem
reynt verður að svara spuming-
unni hvort sveigjanleiki fyrirtækja
hafi áhrif á lífsgæði. En fyrstu nið-
urstöður benda til þess að það séu
► Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
fæddist í Reykjavík 6. maí 1964.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1984 og BA-prófi í stjórnmála-
fræði 1993. MA-prófi í vinnu-
markaðsfræðum lauk hann frá
Warwick-háskóla 1995. Hann
hefur starfað sem ráðgjafi hjá
Hagvangi, fræðslustjóri hjá VR
og stjómunarráðgjafi hjá Gallup,
en því starfi gegriir hann í dag og
er auk þess lektor við viðskipta-
og hagfræðideild HÍ. Hann er
kvæntur Magneu Davíðsdóttur
bókasafnsfræðingi og eiga þau
þrjú börn.
einkum þrír þættir sem skapi
vandamál við samhæfingu starfs
og einkalífs: vinnutími, álag í starfi
og hlutverk einstaklingsins innan
fjölskyldunnar og sú ábyrgð sem
hann ber gagnvart henni. Með
meiri fjölskylduábyrgð upplifa ein-
staklingar aukið ójafnvægi og
togstreitu á milli vinnu og einka-
lífs. Ennfremur munu íslenskir
stjórnendur ræða um efni eins og
einkalíf og stjórnunarábyrgð,
hveijir hagnast og tapa á fjöl-
skylduvænleika og fulltrúar frá
Motorola munu fræða okkur um
fjölskylduvæna starfsmanna-
stefnu hjá fyrirtækinu.“
- Hvað með framhaldið?
„Að lokinni þessari ráðstefnu
verður auglýst eftir þátttakendum
í verkefnið. Jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar hefur ákveðið
að einskorða þátttökufyrirtæki
ekki eingöngu við borgarstofnanir,
heldur gefst reykvískum fyrir-
tækjum kostur á þátttöku. Stefnt
er að því að velja þátttökufyrir-
tæki 24. október, en umsóknar-
frestur rennur út 13. október
næstkomandi."
-Hafa fleiri verkefni af þessu
tagi staðið til boða á íslandi?
„Nei, þetta áhugaverða verk-
efni er hið fyrsta sinnar tegundar
hér á landi og víst er að margvís-
legra upplýsinga um íslenskan
vinnumarkað verður aflað innan
vébanda þess. Stjómendur fyrir-
tækja, starfsmannastjórar, aðilar
vinnumarkaðarins og
fleiri munu hafa gagn
af ráðstefnunni. Auk
þess mun þetta verk-
efni og boðskapur þess
berast út i samfélagið
öllum til gagns. Verk-
efnið kallar á nýja
hugsun og hugarfars-
breytingu hjá öllum að-
ilum. Við getum reikn-
með að innleiðing
samþættingar starfs og einkalífs
geti tekið nokkurn tíma en ein-
hvers staðar verður að byrja þá
þróun, sem þegar er hafin erlend-
is og er að hefjast hér á landi.“
Vinnutímí,
álag í starfi
og hlutverk
og ábyrgð inn-
an fjölskyld-
unnar helstu
álagsþættir
að