Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 53
FRÉTTIR
Málstofa í
Miðstöð
nýbúa
MÁLSTOFA verður haldin í Mið-
stöð nýbúa við Skeljanes fimmtudag-
inn 5. október kl. 20. Umfjöllunar-
efnið að þessu sinni er staða íslands í
málefnum innflytjenda og flóttafólks
í alþjóðasamhengi.
Fjallað verður um þá alþjóða-
samninga sem Island er aðili að er
lúta að réttindum flóttafólks og til
vamar kynþáttamisrétti. Einnig
verður fjallað um hvernig íslensk
stjórnvöld hafa framfylgt skyldum
sínum samkvæmt þessum samning-
um.
Stjórnandi málstofunnar verður
Bjarney Friðriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu íslands. Málstofan er öllum op-
in og eru allir sem áhuga hafa á að
kynna sér málefnið hvattir til að
mæta.
Fyrsta fartölvu-
tryggingin
NÝLEGA var gefin út hjá Sjóvá-
Almennum tryggingum hf. fyrsta
sérhæfða fartölvuvátryggingin,
en það var Óðinn Valdimarsson
háskólanemi sem tók við henni.
Tilurð tryggingarinnar má
rekja til samstarfs Nýherja hf. og
Sjóvár-Almennra vegna mikillar
fartölvuvæðingar hjá háskólum
og framhaldsskólum.
Hefur þessi aukna fartölvu-
*
Islenska dys-
lexíufélagið í
nýtt húsnæði
ÍSLENSKA dyslexíufélagið, sem
verið hefur til húsa á Ránargötu 18 í
húsakynnum Skógræktarfélags ís-
lands, er nú að flytja starfsemi sína
til Heimilis og skóla á Laugavegi 7 í
Reykjavík.
Vegna þeirra aðstöðubreytinga
verður aðalfundi íslenska dyslexíu-
félagsins, sem vera átti 4. október,
frestað um óákveðinn tíma.
----------------
♦ ♦ ♦
LEIÐRETT
Stjarna féll út
Vegna mistaka við vinnslu blaðs-
ins féll út stjarna í dómi um kvik-
myndina „The Straight Story“ í
blaðinu í gær. Hún átti að fá þrjár og
hálfa stjörnu. Myndin er sýnd á
Kvikmyndahátíð í Reykjavík. Beðist
er velvirðingar á þessu.
Rangt föðurnafn
í minningargrein
í formála minningargreina um
Gunnar Gunnarsson frá Syðra-Vall-
holti í Skagafirði sem birtist laugar-
daginn 30. september var rangt farið
með föðurnafn móður Gunnars,
Ragnhildar, hún var sögð Erlings-
dóttir en hið rétta er Erlendsdóttir.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
notkun kallað á sérhæfðar trygg-
ingar, enda oft um mjög dýrar
tölvur að ræða, segir í fréttatil-
kynningu. Það voru Björn G.
Birgisson sölustjóri fartölva hjá
Nýherja og Sigfríð Eik Arnar-
dóttir ráðgjafi hjá Sjóvá-
Almennum sem afhentu Óðni
vátryggingarskírteini nr. 1, en
við þetta tækifæri voru vátrygg-
ingartakanum færðar gjafir.
Ný samtök
stofnuð
UNDIRBÚNINGSHÓPUR um
stofnun samtakanna Ilollvinir
Reykjavíkurflugvallai- heldur kynn-
ingarfund á Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 5. október kl. 18.
>vAllir þeir sem hafa áhuga á mál-
efnum flugvallarins, endurbyggingu
og endurbótum eru hvattir til að
mæta,“ segir í fréttatilkynningu frá
undirbúningshópi.
Fyrirlestur
um uppruna
Islendinga
AGNAR Helgason, mann-
fræðingur hjá Islenskri erfða-
greiningu, flytur fyrirlestur
miðvikudaginn 4. október sem
hann nefnir: Nýjar niður-
stöður um uppruna Islend-
inga. Fyrri rannsóknir á upp-
runa íslendinga sem byggst
hafa á blóðflokkum og öðrum
ensímum blóðvökvans hafa
gefið mjög breytilegar niður-
stöður þar sem framlag nor-
ræns fólks í landnámshópnum
hefur verið áætlað á bilinu 2-
86%.
í erindi sínu mun Agnar
reyna að skýra út hvers
vegna gömlu blóðflokkagögn-
in gefa svo misvísandi niður-
stöður og kynna niðurstöður
úr nýlegri rannsókn á upp-
runa íslenzkra landnáms-
kvenna, sem benda til þess að
meirihluti landnámskvenna
hafi rakið kvenleggi sína til
Bretlandseyja. Loks verða
kynntar glænýjar niðurstöður
um uppruna landnámsmanna
sem benda til þess að yfir-
gnæfandi meirihluti !and-
námsmanna hafi rakið karl-
leggi sína til Norðurlanda.
Fyrirlesturinn verður haldinn
í Lögbergi, stofu 101, og hefst
hann kl. 20.
Fundur um
erlendar fjár-
festingar í
sjávarútvegi
SAMBAND ungi-a framsóknar-
manna heldur fund fimmtudaginn 5.
október kl. 17 á Kaffi Reykjavík. Yf-
irskrift fundarins verður „A að leyfa
erlendar fjárfestingar í íslenskum
sjávarútvegi?“
Framsögumenn verða Einar K.
Guðfinnsson, foiTnaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis, Róbert
Guðfinnsson, stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
og Esther Finnbogadóttir frá grein-
ingardeild Kaupþings. Fundarstjóri
verður Snæþór Halldórsson, vai-a-
formaður SUF.
------¥++-------
Námskeið
um iktsýki
HJÁ Gigtarfélagi íslands er ac
hefjast nýtt námskeið um iktsýki
Um er að ræða þriggja kvölda nám-
skeið dagana 9., 16. og 23 október og
byijar það alla dagana kl. 20.
Á námskeiðinu verður farið í þi
þætti sem tengjast því að lifa mec
iktsýki. Áhersla verður lögð á ac
fræðslu um sjúkdóminn, einkenn
hans og áhrif á daglegt líf. Einnif
verður fjallað um þjálfun, meðferð
slökun og hjálpartæki. Meðferð ikt-
sýki beinist fyrst og fremst að því ac
draga úr einkennum hennar. Aul
lyfjameðferðar skipa sjúkraþjálfur
og iðjuþjálfun mikilvægan sess í allr
meðferð við iktsýki. Með sjúkra-
þjálfun má m.a. bæta vöðvastyrk o£
draga úr verkjum. Iðjuþjálfar gegnt
lykilhlutverki við kennslu liðverndai
og útvegun margs konar hjálpar-
tækja.
Leiðbeinendur á námskeiðini
verða Jónína Björg Guðmundsdóttii
og Svala Björgvinsdóttir félagsráð-
gjafar, Ai-nór Víkingsson gigtarsér-
fræðingur, Anna Ólöf Sveinbjörns-
dóttir iðjuþjálfi og Unnur Pét-
ursdóttir sjúkraþjálfari. Á skrifstofi
félagsins er hægt að skrá sig og fi
upplýsingar um verð.
Einkatímar • sími 694 5494 •Námskeið
Næsta námskeið hefst 12. okt.
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðmn.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Frá og með 1. apríl 2001 mun
verslunin hætta að selja
matar- og kaffistell
Þeir viðskiptavinir, sem vilja láta taka frá
leirtau fyrir sig, eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband sem fyrst.
%istan LAURA ASHLEY
I Tinmvpm QO c/mi áááá
Laugavegi 99, sími 551 6646.
ma sSSa
Ný sending Jakkar, vesti, buxur síðar og stuttar, pils og peysur Hiá Svönu Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 & lau. frá kl. 10-14. t ^
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
£ Vandað
hlaupahjól úr áli
kr. 5.500
Sendum í póstkröfu
kays
Verslun Kays listans
Austurhrauni 3 Gbæ/Hfj.
v. Reykjanes/Breiðholtsbraut
JLBM
B.MAGWÚSSOW HF.
S. 555 2866