Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Talsmenn verðbréfafyrirtækja
Selja lítið af
hlutabréfum fyr
ir erlenda aðila
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átakið kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Atak um að stöðva sölu
tóbaks til unglinga
FORSVARSMENN verðbréfafyiir-
tækjanna segja flestir að fyrirtækin
séu mjög lítið í því að selja hlutabréf
í eigu erlendra aðila. Pau leggja jafn-
frámt áherslu á að fyrirtækin fari að
lögum í þessu efni sem og öðrum.
I Morgunblaðinu í gær sagði ríkis-
skattstjóri að misbrestur hefði orðið
á því að verðbréfafyrirtækin hér á
landi hefðu staðið skil á 20% skatti af
söluhagnaði erlendra aðila í íslensk-
um hlutafélögum.
Sigurður B. _ Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri VÍB, sagðist ekki vita
til þess að VÍB hefði haft milligöngu
um sölu hlutabréfa fyrir erlendra að-
ila, án þess þó að hann gæti fullyrt
um einstök viðskipti. VIB væri ekki
með fjárvörslu fyrir nein erlend
eignarhaldsfélög í eigu Islendinga.
Hann sagði að starfsmönnum VIB
væri kunnugt um þetta ákvæði
skattalaga og færi eftir því eins og
öðrum lögum.
Selja skuldabréf fyrir
erlenda aðila
Þorsteinn Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarbankans
Verðbréfa hf., sagði að í Búnaðar-
bankanum færu menn að lögum í
þessu efni sem og öðrum. Hann
sagði að bankinn hefði verið mjög lít-
Viðbúnaður
vegna
kennsluvélar
TIL viðbúnaðar var gi-ipið
skömmu eftir hádegi í gær er
tilkynning barst frá kennslu-
flugvél í nágrenni Reykjavíkur
að ef til vill væri ekki allt með
felldu um borð.
Tveir menn voru um borð í
flugvélinni og tilkynntu þeir að
titringur væri í flugvélinni og
óskuðu eftir að koma þegar til
lendingar. Vegna hugsanlegrar
hættu var viðbúnaðarástandi
lýst yfir. Sjúkra- og slökkvi-
liðsbílar voru sendir á vettvang
en ekki kom til þess að notast
yrði við þá því flugvélin lenti
heilu og höldnu.
ið í að selja hlutabréf fyrir erlenda
aðila. Bankinn hefði hins vegar í
nokkrum mæli tekið að sér sölu
skuldabréfa fyrii' erlenda aðila.' í
þeim tilvikum befði verið sótt um til
ríkisskattstjóra sérstaka heimild til
að undanþiggja þá frá greiðslu fjár-
magnstekjuskatts. Sama ætti við um
einstaklinga sem ættu fjármagn á
bankareikningum hér á landi. Þeir
væru einnig undanþegnir greiðslu
fjármagnstekjuskatts.
Þorsteinn sagði að í þessu máli
væri að mörgu leyti eðlilegra að
skattlagningai'rétturinn væri í hönd-
um þess lands þar sem einstakling-
arnir eða félögin, sem í hlut ættu,
væru búsett. Flestir tvísköttunar-
samningar gerðu ráð fyrir því.
Aldrei reynt á túlkun
skattstjóra
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri
Landsbréfa, sagði að aðalástæða
þess að lítið hafi reynt á ákvæði í
skattalögum um skattlagningu er-
lendra aðila vegna hlutabréfavið-
skipta hér á landi, einfaldlega vera
þá að hingað til hafi áhugi útlendinga
á hlutabréfaviðskiptum hérlendis
verið hverfandi. Þar fyrir utan hafi
ríkisskattstjóri ekki gefið út neinar
leiðbeiningar um hvernig standa
skuli skil á sköttum erlendra aðila
sem stunda hlutabréfaviðskipti hér á
landi. Aldrei hefði reynt á túlkun
skattstjóra á ákvæðum tekjuskatts-
laga og laga um staðgreiðslu hvað
þetta varðar. Fjármálafyrirtækin
hefðu þess vegna ekkert fordæmi til
að vinna eftir. Sigurður Atli sagði að
auk þess væri þetta ákvæði skatta-
laga nokkuð erfitt í framkvæmd. Til
að hægt væri að reikna út skattstofn-
inn þyrfti kaupandi hlutabréfanna að
hafa upplýsingar um upphaflegt
kaupverð og þær upplýsingar lægju
alls ekki alltaf fyrir.
„Sjálfur tel ég að reyna eigi eftir
öllum mætti að auðvelda erlendum
aðilum sem mest að fjárfesta í ís-
lenskum verðbréfum, til að þróa og
styrkja íslenskan fjármagnsmarkað.
Skattalög eigi að sníða að því
markmiði,“ sagði Sigurður Atli.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf., vildi ekkert láta hafa
eftir sér um þetta mál.
REYKJAVÍKURBORG, tóbaks-
varnarnefnd og Verzlunannannafé-
lag Reykjavíkur, VR, hafa hrundið
af stað átaki til að stöðva ólöglega
sölu tóbaks til barna og unglinga í
Reykjavík. Kannanir sýna að allt að
70% útsölustaða tóbaks selja börn-
um tóbak þrátt fyrir ákvæði tób-
aksvamarlaga um bann við sölu efn-
isins til einstaklinga yngri en 18 ára.
Atakinu „Seljum börnum ekki tób-
ak“ er ætlað að bregðast við vandan-
um með samstarfi við sölustaðina
sjálfa og stórauknu aðhaldi að þess-
um þætti í starfsemi þeirra.
Verslunarkeðjurnar 10-11, 11-11,
Hagkaup, Nettó, Nóatún og Ný-
kaup taka þátt í átakinu. Á næstu
vikum ætla starfsmenn og félagar
félagsmiðstöðva að kynna öðrum
sölustöðum tóbaks átakið og bjóða
þeim að taka þátt í því. Þeir sem
koma að átakinu á vegum Reykja-
víkurborgai' aðrir en Iþrótta- og
tómstundaráð era Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur og Samstarfsnefnd um
afbrota- og fíkniefnavarnir.
Viljayfírlýsing undirrituð
Sölustaðirnir er taka þátt undir-
rita svohljóðandi viljayfirlýsingu:
„Við undirrituð höfum tekið höndum
saman um að berjast gegn því að
ungt fólk eyðileggi líf sitt og heilsu
með tóbaksnotkun. Virðum lögin
sem banna sölu tóbaks til barna
undir 18 ára aldri.“ Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir skrifar undir yfirlýsing-
una fyrir hönd Reykjavíkurborgar.
Þorsteinn Njálsson, formaður
tóbaksvarnarnefndar, segir átakið
mikilvægan lið í því að breyta hugs-
anahættinum í þjóðfélaginu. „Við
verðum öll að taka afstöðu. Það er
ekki nóg að setja lög. Það sem er að
gerast með þessu átaki er að hér er
verið að skilgreina hvað við sættum
okkur við. Niðurstaðan er sú að við
sættum okkur ekki við að krakkar
og unglingar reyki,“ sagði hann.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, fagnar því að farið sé út í þetta
átak. „Eg vona að átakið veki menn
til umhugsunar um að fara eftir
þeim lögum og reglum sem í gildi
eru. Mjög mikilvægt er í þessu sam-
bandi að ljóst sé að sá sem afgreiðir
tóbak má ekki vera yngri en 18 ára,“
sagði hann en benti jafnframt á að
aðalábyrgðin lægi hjá þeim sem
reka fyrirtækið.
Hluti átaksins felur í sér að í vet-
ur verða allir útsölustaðir tóbaks í
Reykjavík heimsóttir í þrígang til að
kanna hvernig reglunum er fram-
fylgt. Starfsmenn félagsmiðstöðva
og unglingar frá félagsmiðstöðvun-
um ætla að kanna málið.
Eftirlit með útsölustöðum
Soffía Pálsdóttir, hjá Iþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkur, segir
að unglingarnir muni reyna að
kaupa tóbak á útsölustöðum og
þannig verði reynt í verki hvort lög-
um sé framfylgt. Hún ítrekar þó að
þetta verði gert með leyfi forráða-
manna. „Eg tel að þetta átak geti
stuðlað að viðhorfsbreytingu í þjóð-
félaginu. Mjög mikilvægt er að átak-
ið byrji á jákvæðu nótunum, líkt og
gert er nú,“ sagði hún.
Ef það kemur í ljós að útsölustað-
ir fylgi ekki reglum um sölu tóbaks
verður Heilbrigðiseftirliti Reykja-
víkur falið að fylgja málinu eftir með
formlegum hætti. Ólögleg sala tób-
aks getur leitt til áminningar og síð-
an banns við sölu tóbaks ef um
ítrekuð brot er að ræða. Niður-
stöður eftirlitsferðanna verða birtar
opinberlega og því verður auðvelt að
fylgjast með árangri átaksins.
Vinstrihreyfíngin - grænt framboð kynnir áherslur sínar vegna komandi þinghalds
Vilja aukaþing
um byggðamál
næsta sumar
VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð
leggur til að haldið verði sérstakt aukaþing
Alþingis um byggðamál með það í huga að
vinna að sáttum um byggðastefnu á íslandi
til framtíðar. Gerir flokkurinn það að tillögu
sinni að þetta aukaþing verði haldið sumarið
2001. Velferðarmál og umhverfismál ber
einnig hátt i málaskrá flokksins vegna kom-
andi þings og segir Ögmundur Jónasson,
þingflokksformaður VG, mótmælafund eldri
borgara fyrir framan Alþingishúsið á mánu-
dag til marks um mikilvægi þess að slegin
verði skjaldborg um velferðarþjóðfélagið.
Fulltrúar þingflokks VG kynntu helstu
áherslur sínar vegna komandi þinghalds á
fréttamannafundi í Alþingishúsinu í gær.
Lögðu þeir sérstaka áherslu á þingsályktun-
artillögu flokksins um aukaþing Alþingis um
byggðamál en þar er lagt til að Alþingi haldi
sumarþing sumarið 2001 þar sem eingöngu
verði fjallað um framtíðarþróun byggðar í
landinu. Verði í framhaldi af því mótuð
markviss byggðastefna til næstu tveggja
áratuga.
Tillaga VG gerir ráð fyrir að í tengslum
við byggðaþingið verði haldin almenn
byggðaráðstefna með aðild sveitarstjórna,
helstu stofnana sveitarfélaga og hins opin-
bera sem hafa með byggðamál að gera, fé-
lagasamtaka og einstaklinga. „Þetta er
nýmæli," sagði Ogmundur. „Hún er til þess
fallin, að okkar dómi, að skapa þá þjóðarsátt
sem við teljum að allir stjórnmálaflokkar
vilji í reynd ná um þetta mál. Það hafa verið
lagðar fram fjölmargar tillögur og þingmál á
undangengnum þingum sem snerta byggða-
málin og við teljum að með þessu móti verði
hægt að fara rækilega yfir þau og tína úr
þeim það sem nýtilegt er, fá yfirsýn á málið
og móta á grundvelli þess stefnu.“
Eyjabakkar verðl lýstir
Ramsar-svæði
Á þingmálalista VG eru nokkur ný mál en
jafnframt önnur sem þingmenn hyggjast
endurflytja frá fyrri þingum. Kom fram í
máli Þuríðar Backman í gær að áfram yrði
lögð áhersla á að efla velferðarkerfið og
styrkja það í þágu samfélagsins alls. Mun
því verða endurflutt ítarleg tillaga þar að
lútandi sem lögð var fram á síðasta þingi.
Ennfremur hyggjast vinstri grænir leggja
fram þingsályktunartillögu um að komið
verði í veg fyrir uppsagnir eða mismunun í
starfi vegna aldurs og gengið verður eftir
því að skipuð verði nefnd til að fjalla um
hlutverk opinberra aðila í samræmi við
þingsályktunartillögu VG sem samþykkt var
undir lok síðasta þings.
Kolbrún Halldórsdóttir sagði að vinstri
grænir myndu vitaskuld halda sínu striki í
umhverfismálum, en þau eru annar burðar-
ásanna í stefnu flokksins. Gat hún þess að
nú stæði fyrir dyrum að berjast fyrir því að
fá væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð skil-
greindan stærri en jökulhettuna eina og sér.
Vinstri grænir munu einnig endurflytja
tillögu um stofnun Snæfellsþjóðgarðs og síð-
an greindi Kolbrún frá því að flokkurinn
hygðist leggja til að Eyjabakkar yrðu lýstir
Ramsai’-svæði. „Eins og við vitum hefur
náttúran alþjóðlegt verndargildi og eins og
kom fram í umræðunum um Fljótsdals-
virkjun á þinginu í fyrra uppfylla Eyjabakk-
ar öll skilyrði til þess að geta talist Ramsar-
svæði,“ sagði hún.
Vestur-Oræfi verði ekki aðeins
metin sem virkjunarkostur
Vinstri grænir hyggjast áfram láta til sín
taka í sambandi við Kyoto-samninginn um
loftslagsbreytingar og Kolbrún sagði einnig
að flokkurinn myndi leggja fram fyrirspurn
til umhverfisráðherra varðandi mat á um-
hverfisáhrifum þjóðgarðs á Vestur-Öræfum,
þ.e. svæðinu þar sem nú er gert ráð fyrir að
Kárahnjúkavirkjun rísi. „Við teljum það afar
mikilvægt að samhliða því að landið verði
metið sem virkjunarkostur verði mat á um-
hverfisáhrifum þjóðgarðs lagt fram til sam-
anburðar." Kolbrún sagði stóriðjumálin
reyndar vera kapítula út af fyrir sig. Vilja
vinstri grænir að það verði skoðað út frá
hagrænu sjónarmiði hvernig náttúran og
náttúruvernd getur í sjálfri sér skapað tæki-
færi, m.a. í tengslum við ferðaþjónustu.
Ögmundur sagði að síðustu að VG legði
áherslu á sjálfstæða utanríkis- og frið-
arstefnu. I Ijósi þess yrði lögð fram þings-
ályktunartillaga um endurskoðun viðskipta-
banns á írak og stefna Islands í al-
þjóðasamskiptum verður einnig til um-
fjöllunar á fyrstu dögum þingsins að frum-
kvæði VG.