Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Æfíngamyndband Bush fyrir kappræður við Gore sent til demókrata Hver sendi pakka og af hvaða hvötum? BLÓMASKEIÐ samsæriskenninga- smiða er runnið upp í Bandaríkjun- um, ef það hefur þá einhvern tímann liðið undir lok. Andstæðar fylkingar, demókratar og repúblikanar með forsetaframbjóðendur sína í farar- broddi, keppast við að sverja af sér vitneskju um hver sendi pakka frá Austin í Texas 11. september sl. Pakkinn hafnaði á borði eins helsta samstarfsmanns A1 Gore í Washing- ton tveimur dögum síðar. I umræddum pakka var mynd- band sem starfsmenn í herbúðum George W. Bush höfðu tekið af hon- um þegar hann var að æfa sig fyrir væntanlegar kappræður við AI Gore. Myndbandið var að sjálfsögðu ein- göngu ætlað honum og ráðgjöfum hans, svo að þeir mættu betur átta sig á hvar ríkisstjórinn gæti bætt sig, hvaða málefni honum færi best að ræða, hvenær hann skyldi leggja áherslu á orð sín með handahreyf- ingum, hvenær brosa, hvenær snúa sér til áhorfenda í sal o.s.frv. Tilhugs- unin um slíkt myndband í höndum andstæðinganna, þremur vikum fyrir fyrstu kappræðurnar, hlýtur að vera ægileg. Til að bæta gráu ofan á svart fylgdi myndbandinu samantekt á blöðum, þar sem tíundað var hvernig Bush ætlaði að sauma að Gore í kapp- ræðunum. Loks var svo í pakkanum að finna prent- aðan miða, þar sem sagði: „Héma er efni sem gæti nýst þér. Ég hringi eftir nokkra daga tO að kanna hvort þú þarfnast ein- hvers frekar." Engin und- irskrift var á miðanum, en orðalagið bendir til þess að sendandi telji móttak- anda vita hver hann er, eða þá að miðinn á að gefa slíkt samband í skyn. Myndband eða buxur? Pakkinn var sendur til Tom Downey, sem er ráð- gjafi Gore og hafði m.a. Þrátt fyrir margar fréttir um meintar buxnasendingar hefur hvergi komið fram hvort leitað hefur verið eftir staðfestingu GAP á buxnaviðskiptunum. Forstjóri FBI rannsakar Böndin berast eftir sem áður að hinni þrítugu Yvette Lozano og þeir sem telja hana líklegasta sökudólg- inn benda á að hún hafi starfað í ára- tug fyrir demókrata og meðal annars sótt stjórnmálaskóla flokksins. Hún er heldur ekki ein um störf fyrir þann flokk því Mark McKinnon var nefnilega lengstum fjölmiðlaráðgjafi demókrata, til dæmis vann hann fyr- ir Ann Richards þegar hún náði kjöri sem ríkisstjóri í Texas og Yvette starfaði einnig fyrir hana. Arið 1994 náði George W. Bush embætti ríkis- stjóra af Richards, en McKinnon hef- ur starfað fyrir Bush frá 1998. Repúblikanar segjast treysta honum fyllilega og hið sama gildi um Yvette sem sé McKinnon svo nákomin að hún sé nánast önnur móðir bamanna hans eftir að hafa setið yfir þeim marga kvöldstund. A það hefur líka verið bent að Yvette hafi ekki það pólitíska nef sem þurfi til að átta sig á því hve þýð- ingarmikið myndbandið gæti verið í höndum andstæðinganna, hvað þá að hún hafi haft vit á að senda það beint til Tom Downey. Þeir sem þessu halda fram virðast því ekki telja að konan hafi lært mikið í stjórnmála- skólanum forðum daga því það virð- hugsanlega um að ræða stuld frá starfsemi sem nýtur styrkja aliíkis- stjórnarinnar þar sem alríkisstjómin leggúr fram fé í kosningasjóði fram- bjóðenda. Síðasti liðurinn þykir að vísu hæpinn því að lögin gera ráð fyr- ir að hið stolna þurfi að vera 5 þús- und dollara virði (um 400 þús. kr.) til að alríkislögreglan ómaki sig við rannsókn. Það gæti reynst þrautin þyngri að meta pakkann góða svo til fjár. Var njósnamálið bara grín? Demókratar hafa frá upphafi hald- ið því fram að þeir hafi ekkert um myndbandið vitað fyri' en pakkinn birtist á skrifborði Downey. Þeir urðu því skiljanlega lítið kátir þegar skýrt var frá því á ABC-sjónvarps- stöðinni að einn starfsmanna á kosn- ingaskrifstofu Gore hefði sagt kunn- ingja sínum að demókratar væm með njósnara í röðum repúblikana. Starfsmaðurinn, Michael Doyne, sagði þetta í spjalli við gamlan skólafélaga sinn hinn 30. ágúst sl. og endur- tók það í tölvupósti 11. september. Einhvern veg- inn rataði þetta í fréttir eftir að pakkamálið komst í hámæli. Starfsmaðurinn neitaði íyrst öllu en sagði svo að þetta hefði hann bara sagt í gríni. Hann neitar líka að þekkja nokk- uð til Yvette Lozano. Á síðustu dögum hefúr rannsókn FBI beinst að flestum þeim sem nærri myndbandinu komu. Downey, sem sagðist varia hafa litið á ljósritin sem fylgdu pakkanum, sagðist þó muna eftir að hafa séð að þar væri Bush ráðlagt að snúa tilvísun í rithöf- undinn Mark Twain upp á Gore. Bush myndi þá segja eitthvað á þá leið að ef fólki leiddist Gore ætti það bara að bíða í nokkrar mínútur, hann myndi breytast. I liós hefur komið að ist hverju barni augljóst hvað leki af þessu tagi getur gert mikinn skaða, ekki bara vegna þess að Gore gæti varist miklu betur í kappræðunum, heldur ekki síður vegna þess að repúblikanar hafa orðið að athlægi fyrir að gæta ekki betur að póli- tískum fjöreggjum sínum. FBI hefur tekið fingrafór Yvette en varar þó við að dregnar séu of miklar ályktanir af því þótt fingraför hennar greinist á pakkanum því hún hafi getað handleikið hann á skrif- stofunni án þess að gera sér grein fyrir hvað í honum leyndist. Þá hefur verið lagt hald á tölvuna hennar, en hún var reyndar ekki ein um að nota þá tölvu á skrifstofunni. Eftir frumrannsókn málsins til- kynnti FBI að ákveðið hefði verið að hefja formlega rannsókn. Til marks um hve alvarlega málið er tekið má benda á að Louis J. Freeh, sjálfur forstjóri alríkislögreglunnar, hefúr fullvissað Bush og liðsmenn hans um að hann muni hafa umsjón með rann- sókninni. FBI er nokkur vandi á höndum, því pakkasendingin gefur ekki aug- ljóst tilefni til þess að sú stofnun taki að sér rannsókn málsins. Eftir leit í lagabálkum var gefin út tilkynning um að rannsóknin væri á vegum FBI af þremur ástæðum. I fyrsta lagi vegna þess að um meint póstsvik væri að ræða, í öðru lagi hefði meint- ur sökudólgur, Yvette Lozano, hugs- anlega skrökvað að alríkislögreglu- mönnum og slík framkoma væri brot á alríkislögum og í þriðja lagi væri Hver sendi myndband af kappræðuæfing- um George W. Bush til samstarfsmanns keppinautsins, A1 Gore? Er demókratískur njósnari í herbúðum repúblikana eða voru repúblikanar að reyna að leiða demókrata í gildru? Var konan sem starfar hjá fjöl- miðlaráðgjafa Bush að póstleggja buxur yfírmanns síns, eða var innihald pakkans þetta alræmda myndband? Ragnhildur Sverrisdóttir segir ýmsar samsæris- kenningar á lofti í Bandaríkjunum og að mörgum sé skemmt. Þó ekki forseta- frambjóðendunum. AP Myndband, þar sem George W. Bush sést æfa sig fyrir sjónvarpskappræður, barst á skrifstofu demókrata og er málið nú til rannsóknar hjá FBI. Hér er Bush hins vegar á kosningafundi. tekið virkan þátt í að æfa varaforset- ann fyrir kappræðurnar með því að leika hlutverk Bush. Downey segir að hann hafi ekki þurft að sjá nema örstuttan bút úr myndbandinu til að átta sig á því hvað þar var á ferðinni. Hann hafi talið augljóst að verið væri að leiða hann í gildru og hann hafi því ekki skoðað efnið frekar, heldur tal- að við lögfræðing sinn og sá haft samband við alríkislögregluna, FBI. Fljótlega kom í ljós að pakkinn hafði verið sendur með hraðsendingu frá pósthúsi í Austin í Texas. Lög- reglan lagðist yfir upptökur eftirlits- myndavéla pósthússins og sá að Yvette Lozano var meðal þeirra sem póstlögðu pakka þennan dag. Yvette þessi starfar á skrifstofu Mark McKinnon, sem er fjölmiðlai'áðgjafi Bush. Eintök af æfingamyndbandinu var að finna í ríkisstjórabústaðnum, í höfuðstöðvum kosningabaráttu Bush í Austin og á skrifstofu McKinnon. Yvette og yfirmaður hennar bera hins vegar bæði að pakkinn sem hún setti í póst þennan dag hafi verið buxur sem McKinnon keypti frá GAP-verslunarkeðjunni, hann hafi viljað fá annan lit og þess vegna sent þær til fyrirtækisins. Samsæris- kenningasmiðir segja buxnasöguna ótrúverðuga þar sem GAP-buxur af þessu tagi kosti aðeins um 20 dollara, eða um 1.600 krónur, og varla fari nokkur maður að greiða 800 króna póstburðargjald undir 1.600 króna buxur, sérstaklega ekki þegar haft er í huga að ein verslana GAP er ör- skammt frá skrifstofu McKinnon. blaðið, sem þessi hugmynd að brand- ara var rituð á, var ekki hluti af upp- haflega blaðabunkanum með leið- beiningum til Bush, heldur var það lagt fram á fámennum fundi helstu ráðgjafa forsetaframbjóðandans. Hugsanlega hefur einhver þeirra stungið því blaði inn í möppuna sína og allur bunkinn svo verið ljósritað- ur. Rannsókin á dularfullu pakka- sendingunni heldur áfram og enn er óvíst hvort kappræður frambjóðend- anna ná að vekja jafnmikla athygli og æfingamyndband Bush sem hefur þó aldrei komið fyrir sjónir almennings. Talsmenn demókrata reyna að sann- færa fólk um að þeir hafi hvergi nærri málinu komið, sendandinn sé óvildarmaður repúblikana án þess þó að vera á mála hjá demókrötum. Hugsanlega hafi repúblikanar sjálfir sent pakkann í þeirri von að geta síð- ar bent á að demókratar hefðu hann undir höndum og rýrt þannig orð- spor þeirra. Slík áform hefðu hins vegar ónýst þegar Downey kallaði á lögreglu. Repúblikanar segja þetta fárán- legt, þeir myndu aldrei senda helstu leyndarmál til demókrata til að reyna að klekkja á þeim. Slíkt yrði allt of dýrkeypt. Þarna hafi einhver óvildarmaður þeirra verið á ferðinni, e.t.v. á mála hjá demókrötum. Þá sé hugsanlegt að farið hafi verið inn á skrifstofur McKinnon til að ná í myndbandið, hann sé t.d. til húsa í sömu byggingu og auglýsingastofa sem vinnur bæði fyrir repúblikana og demókrata. Togari ferst við Irland AÐ minnsta kosti fjórir sjó- menn fórust og allt að ellefu var saknað eftir að spænski togarinn Arosa sökk undan vesturströnd Irlands í gær. Einum var bjargað og var ástand hans alvarlegt, að sögn írsku strandgæslunnar. Franskur togari sökk á sömu slóðum á sunnudag og þremur var þá bjargað en átta eru tald- ir af. Forsætis- ráðherra Taívans seg- ir af sér TANG Fei, forsætisráðherra Taívans, sagði af sér í gær og bar við bágri heilsu. Stjórn- málaskýrendur leiddu þó get- um að því að ástæðan væri í raun ágreiningur forsætisráð- herrans og forsetans, Chen Shui-bian, um umdeilda bygg- ingu bandarísks kjarnorkuvers í landinu. Chen hét því í kosn- ingabaráttunni fyrr á þessu ári að falla frá áformum um bygg- ingu versins, en Kuomintang, flokkur Tangs, vill standa við þau. 452 ólöglegir innflytjendur gómaðir LÖGREGLAN á Spáni hand- tók í gær 452 Afríkumenn, sem reynt höfðu að smygla sér inn í landið, en þetta er stærsti hóp- ur ólöglegra innflytjenda sem hún hefur gómað á einum degi. Fólkið var flest frá Marokkó, en það hafði siglt yfir Gíbralt- arsund á litlum bátum. Flestir voru handteknir þar sem þeir ráfuðu um á strönd nálægt bænum Tarifa, en aðrir voru stöðvaðir á bátum skammt undan ströndinni. Það sem af er þessu ári hefur spænska lögreglan handtekið yfir 10.500 ólöglega innflytjendur, en það eru nærri því helmingi fleiri en gómaðir voru á öllu síðasta ári. 8.000 ára illýrískar minjar ILLÝRÍSKAR minjar, sem ná allt aftur til 6.000 f.Kr. og fund- ust fyrir skömmu, gætu varpað ljósi á daglegt líf og trúarhug- myndir íbúa á Balkanskaga á síðustu 8.000 árum, að því er fornleifafræðingar skýrðu frá í gær. Fomleifauppgröftur á Peljesac-skaga í Króatíu hefur meðal annars leitt í ljós 50 metra langan helli, þar sem tal- ið er að helgiathafnir illýrískra hermanna hafi farið fram. Svo virðist sem dropasteinssúla í hellinum hafi verið tignuð sem frjósemistákn, og skreytt keramikílát gefa vísbendingar um lifnaðarhætti Illýra á tím- um Alexanders mikla. Þó illýr- ískar minjar hafi fundist á nokkrum stöðum á Balkan- skaga er lítið vitað um daglegt líf þeirra og hugmyndaheim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.