Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 55 I DAG BRIDS liinsjón riuilmundur l'áll Amarson Öryggisspilamennska er góðra gjalda verð þegar henni verður við komið, en auldð öryggi í einum lit má ekld greiða með því að taka áhættu í öðrum lit. Þú ert í suður: Austur gefur; NS á hættu. Norður * K1073 . 10986 * Q6 * AD4 Suður * G84 v - * ÁK98742 * 1098 Vcstur Norður Austur Suður llauf 3 tíglar Dobl* Pass Pass Pass * Sektartilboð Vestur kemur út með lauftvist, sem er annaðhvort blankur eða frá þrílit. Þú set- ur lítið úr borði og það kostar austur kónginn. Góð tíðindi. Austur spiiar nú hjarta og þú trompar. Hvernig viltu nú halda áfram? Þetta h'tur vel út og eina taphættan er sú að gefa tvo slagi á tromp. Til að bregðast við þeii-ri hættu er freistandi að spila smáum tígli að gos- anum, því þannig má ráða við DlOxx í vestur. Dæmigerð öiyggisspilamennska, sem er þó engan veginn örugg þegar betur er að gáð: Norður *■ K1073 v 10985 * Q6 * AD4 Vestur ♦ 96 v ÁDG62 ♦ D103 ♦ G52 Austur * ÁD52 v K743 * 5 * K763 Suður * G84 * - ♦ ÁK98742 +1098 Vestur mun taka slaginn með drottningu og skipta yfir í spaða. Austur fær á ÁD og gefur makker sínum stungu. Þetta væru grátleg örlög og alveg óþörf ef suður hirðir um að hugsa um spihð í heild. Það er nefnilega útilokað að vestur sé með íjórlit í tígh. Ástæðan er þessi: Austur hefur greinilega opnað á laufi með kónginn fjórða. Ef hann væri með eyðu í tígli ætti hann níu spil í háhtunum og þar með a.m.k. fimmlit í spaða eða hjarta. Sem geng- ur ekki upp, því þá hefði hann opnað á hálit. Áustur á því minnst einspil í tígh og þess vegna er alveg óhætt að ieggjaniður ÁK. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara íyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reylqavík Arnað heilla Ljósmynd: Nína BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 3. júní sl. í Háteigs- khkju af sr. Jónu Hrönn Bolladóttur María Bjarna- dóttir og Daði Már Ingva- son. Ljósmynd: Nína BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 22. júlí í Dóm- kirkjunni af sr. Pálma Matthíassyni Sólbjörg Harðardóttir og Þór Klausen. SKAK IJmsjún llelgi Áss (Irélarsson Hvítur á leik. Staðan kom upp á Norð- urlandamóti taflfélaga sem haldið var á Netinu fyrir skömmu. Finninn Jyrki Kytoniemi (2293) hafði hvitt gegn Norðmanninum Stig Gabrielsen (2303). 29. Rxc6! Með þessu hryn- ur svarta staðan til grunna. Framhaldið varð: 29...HÍ8 30. exd5 Rd8 31.Rxd8 Hxd8 32.c4 He8 33.Rc3 Bc8 34.Re4 f5 35.gxf5 gxf5 36.Rd6 og hvítur vann örugglega nokkru síðar. Unglingaflokkur haust- móts Taflfélags Reykjavík- ur haldið 7. og 14. október næstkomandi. Báða dagana hefst taflið klukkan 14.00 að félagsheimili T.R. Alþjóðlegt stærðfræðiár I síðustu viku var Dagur stærðfræðinnar. Þá lögðu skólar landsins sérstaka áhersu á stærðfræði. Þema dagsins var rúmfræði. Fréttir af deginum munu birtast á heimasíðu Alþjóða stærðfræðiársins http://wmy.khi.is/ Þraut 20 Ef meðaltal af sjö ólíkum náttúrlegum tölum er 7. Hvað getur hæsta talan mögulega verið há? Svar við þraut 19. Hér eru 3 vefslóðir fyrir þá sem vilja spreyta sig á stærðfræði- þrautum. http://www.ismennt.is/vefir/heilabrot/ httpy/syrpa.khi.is/~stae/krakkar.htm http://www.raunvis.hi.is/~stak/ LJOÐABROT KONAN, SEM KYNDIR OFNINN MINN Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér. Ég veit, að þessi kona er vinafá og snauð af veraldlegum auð, að launin, sem hún fær, eru last og daglegt brauð. En oftast er það sá, sem allir kvelja og smá, sem mesta mildi á. - Fáir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja þá. Davíð Stefánsson. Þann 27. ágúst sl. birtist á þessum stað ljóðið Skagafjörður undir röngu höfundanafni, en þar áttiað standa að Ijóðið væri eftir Unu Sigríði Ásmundsdóttur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. STJORNUSPA eftir Franoes Ilrake VOG Afmælisb arn dagsins: Þú hefur einstakt lag á að koma skoðunum þínum á framfæri en átt það til að fylgja mál- stað þínum fullfast eftir. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það getur verið erfitt að eiga að vera öllum gott for- dæmi. Það gerir þó ekkert til þótt þú dettir lítillega út úr rullunni annað slagið. Naut (20. apríl - 20. maí) Það getur verið erfitt að sjá fyrir allar afleiðingar gjörða sinna en afsökun er það varla svo þú skalt ekkert gera að óathuguðu máli. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) AA Einhverjir eru að skemmta sér á þinn kostnað. Láttu það lönd og leið því þú átt ekkert undir þeim um fram- gang þinna mála. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Svo kann að fara að ein- hverjir misskilji viðbrögð þín en það verður þá bara að hafa það. Þú getur ekki ann- að en brugðist hart við hlut- um sem ógna þér og þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það er ekki hægt að áfellast þig fyrir að taka hlutina al- varlega þegar framtíð fyrir- tækisins er í hættu. Leggðu þig allan fram. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <SÍL Hafir þú ekki gaman að hlutnum skaltu láta hann vera. En það er mikil kúnst að sjá alltaf skemmtilegu hliðina á öllum málum. Vog rnr (23. sept. - 22. okt.) Þótt fjöiskyldusamkvæmi virðist vera hin besta hug- mynd skaltu fara þér hægt þessa dagana. Það má alltaf finna annan tíma til mann- fagnaða. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Farðu þér hægt í að segja öðrum allan hug þinn því slíka hreinskilni þola engir nema sannir vinir. Stutt ferðalag yrði þér til góðs. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) AO Lánið mun ieika við þig ef þú ert maður til þess að grípa tækifærið þegar það gefst. Að hika er sama og að tapa svo þú mátt hvergi slá af. Steingeit (22. des. -19. janúar) Þótt þér sé sýndur ýmis sómi skaltu varast að láta velgengnina stíga þér til höfuðs. Þér mun veitast undralétt að klára hlutina. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) CS& Ef þú leggur þig allan fram munt þú hljóta umbun erfið- is þíns. Sláðu hvergi af því það verður áiitið veikleika- merki sem kemur þér í koll. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Allt getur gerst þegar góðir vinir gera sér glaðan dag. En öllu gamni fylgir nokkur alvara svo þú skait ekki horfa framhjá afleiðingum gjörða þinna. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MATHYS Vatnsvörn MURFILL á útveggi Lokar sprungum ARVIK ÁRMÚLA1 • S[MI 568 7222 • FAX 568 7295 Granvillé Málmlakk Ryðvamarlausn ARVIK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 Stretsbuxur, Kvenbómullar- síðar og kvarf, blússur kr. 4.498. kr. 3.498. '||b|BÚÐIN I Garðatorgi, sími 565 6550. EIGNAMIÐLLNIN —.„--------,------Þorfeifur Sl.Goimundsson,B.St., sölom.,Gu(Smundur Sigurjónsson fð. Stefón Hrafn Stefónsson tögfr., sölum., óskor R. HorSarson, sölumoður, Kiorlan r, símovarslo og öflun siqala. Sími 5«8 9090 - Fax 588 9095 • SÍA.nmila 21 Mikil sala - vantar eignir. Vegna mikillar sölu undanfariðvantar okkur flestar stærðir og gerðir eigna, bæði íbúðar- ogatvinnuhúsnæði, á söluskrá. Um þessar mundir er verð fasteigna hátt ogsterkar greiðslur í boði. Nokkur einbýlishús óskast til kaups. Flest einbýlishús á söluskrá okkar hafa selst á síðustu vikum. Enn eru þó allmargir kaupendur á kaupendaskrá. í mörgum tilvikum er um staðgreiðsiu aðræða. Sérhæð óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm sérhæð ívestur- borginni eða Þingholtunum. Sterkar greiðslur í boði. Sérhæð í Rvík.óskast - eða hæð og ris. Höfum kaupanda að 120-160 fm sérhæð í Rvík. Hæð og ris kemur einnig vel til greina. Traustur greiðslur í boði. íbúð viðSkúlagötu, Kirkjusand eða Neðstaleiti óskast. Traustur kaupandi óskar eftir3ja-4ra herb. 80-120 fm íbúð á ofangreindum svæðum. Staðgreiðsla íboði. íbúð í Mosfellsbæ óskast. Traustur kaupandi hefur beðið okkur aðútvega 3ja herb. íbúð í Mosfellsbæ til kaups. íbúð í vesturborginnióskast. Sfðumúll - lager- og þjónustupláss í sérflokkl. Vorum að fávið Síðumúlann glæsilegt atvinnuhúsnæði á götuhæð (bakhús). Húsið er u.þ.b.605 fm, steinsteypt og byggt árið 1987. Húsið erflísalagt að utan og meðfernum innkeyrsludyrum og góðri lofthæð. Afstúkaðar skrifsto- fur.kaffistofur o.fl. Malbikuð lóð. Möguleiki að skipta í ca 400 og 200 fmeiningar. Laust um áramót. Nánari uppl. veitir Stefán Hrafn. V. 51,0m. 9752
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.