Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 52
> 52 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
IF YOU LlVE ALONEIN TME PE5ERT
i EN0U6H.Y0U FINP V0UR5ELF
TALKIN6 TO R0CK5..
Efþúbýrðnógulengieinn Góðandag..
í eyðimörkinm, þá ferðu að Góðan dag..
tala við steina..
Þið eruð eflaust allir að
velta því fyrir ykkur hvers
vegna þið eruð hér í dag...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sölumeim
svartra skýrslna
Frá Sveinbirni Jónssyni:
NÝLEGA las ég bókina „Hið sanna
ástand heimsins" eftir danska tölfræði-
lektorinn Bjöm Lomborg sem Fiskifé-
lagsútgáfan kom á framfæri hérlendis.
Eg verð að viðurkenna að ég varð ákaf-
lega hrifínn af þeim vinnubrögðum sem
höfundurinn viðhefur og hversu
hreinskilnislega hann leggur spil sín á
borðið. Eg tók því fegins hendi það
tækifæri sem bauðst til að fá að hlýða á
umræður um efoi bókarinnar og varð
ekki fyrir vonbrigðum með framlag höf-
undarins til þess fondar. Það sama
verður ekki sagt um framlag þeirra Is-
lendinga sem samkvæmt auglýsingu
hefði mátt ætla að hefðu það hlutverk
að draga fram veikleikana í málflutn-
ingi höfundarins. Ég vil leyfa mér að ef-
ast um að þeir hafi allir haft fyrir því að
lesa bókina áður en þeir komu til fund-
arins sem er að sjálfsögðu rakinn dóna-
skapur, bæði við höfundinn og aðra
fundargesti, ef rétt er. Með einni und-
antekningu fannst mér að landar mínir
væru að reyna að forðast að ræða um
þau mál sem til umræðu voru, enda
ekki skrítið ef grunur minn um skort á
heimanámi á við rök að sfyðjast. Alda
Möller verður þó að fá að njóta sann-
mælis því hún hafði greinilega imdir-
búið sitt framlag tii fundarins vel. Hún
sýndi meðal annars súlurit sem sýnfr
hvemig mannleg þekking hefur farið
með afrakstur botnlægra fískistofoa
(groundfísh) undanfama áratugi, eða
frá því að vísindamenn og stjómmála-
menn tóku höndum saman um að
tryggja hagkvæma nýtingu þeirra í
kjölfar svartra skýrslna hinna fyrr-
nefndu. Þetta var að vísu örh'til útvíkk-
un á efoi bókarinnar en vel við hæfi í
landi þar sem vísindamenn fengu á sín-
um tíma tækifæri til að sanna kunnáttu
sína til að bjarga fiskistofoum og
tryggja hámarksafrakstur þeirra.
Framlag annarra til umræðunnar
náði ekki að festa rætur í huga mínum
þó ég telji mig hafa heyrt það og skilið.
Ég verð þó að viðurkenna að tillaga
ungs manns um að leysa meintan
mengunarvanda með kvótasetningu
kom mér á óvart, enda á ég alltaf jafo
erfitt með að trúa að hægt sé að með-
höndla frelsi í nokkurs konar pilluformi
og hef reyndar hvergi séð slíkan kúr
virka.
I bókinni „Hið sanna ástand heims-
ins“ koma fram ýmsar upplýsingar um
að þekking sé afbökuð og misnotuð til
framdráttar hinum ýmsu hagsmunum.
Þetta vissum við svo sem mörg fyrir en
ég hef ekld fyrr séð samantekin svo
mörg dæmi á einum stað. Ef höfundar
svartra skýrslna og dómsdagsspámenn
hafa ekki betri rök en fram komu á um-
ræddum fundi er kominn tími til að
minnka til muna áhrif þeirra.
Þekkingin er lífrænt fyrirbæri, ef
hún er meðhöndluð eins og vændiskona
líður ekki á löngu uns hrukkumar komk
í Ijós og það breytir engu um endanlega
niðurstöðu þótt nóg sé til af málningu.
Ég vil að lokum þakka bæði höftmd-
inum og hérlendum aðstandendum
bókarinnar og fundarins fyrir sitt fram-
lag og skora á alla þá sem áhuga hafa á
viðfangsefninu að lesa bókina.
SVEINBJÖRN JÓNSSON,
sjómaður.
Þakkir frá forstöðu-
manni Astjarnar
Frá Boga Péturssyni:
KÆRUvinir!
Nú þegar 54. starfsári Ástjamar er
lokið og ég hættur sem forstöðumaður
Astjamar er mér ljúft og skylt að
þakka þeim íjöl-
mörgu sem í ára-
raðir studdu við
bakið á mér, því án
þeirrar miklu
hjálpar hefði mér
aldrei teldst að
koma því í verk
sem áunnist hefur.
Ég þakka Drottni
sem gerði mig
sfyrkan í þessu
starfi, þegar ég ætlaði að hníga reisti
hann mig upp, þegar ég grét þerraði
hann tárin. Hann sendi engla sína til að
varðveita bömin og aila á Astjöm, þeg-
ar öll sund virtust lokuð, kom hjálp frá
Drottni, það sannaðLst margsinnis að
þeir sem vona á Drottinn fara einskis
góðsámis.
Það hefur verið mér ráðgáta að Guð
skyldi geta notað mig svo lengi í þessu
starfi. Það eina sem Guð væntir af okk-
ur er að við treystum honum.
Mér hefur lærst það að á Islandi er
mildð af góðu fólki. Keldhverfingar og
Öxfirðingar, ég gleymi ekld hjálpsemi
ykkar öll þessi ár. Færeyingar eiga líka
miklar þakkir skildar fyrir ómetanlega
hjálp í áraraðir. Það er ómetanlegt að
eiga slíka granna.
Ég vil ekki gleyma þeim mörgu fyr-
irtækjum sem lagt hafa okkur lið. Stór
systkinahópur okkar hjónanna og
bama þeirra var mjög virkur og oft
vorum við mörg að störfúm, ásamt vin-
um og vandamönnum. Þessum stund-
um gleymir maður ekki, þær eru dýr-
mætar í minningunni.
Stóri bamaskarinn, sem ég hef feng-
ið að kymiast, er dýrmæt eign í minn-
ingunni. Öll böm em góð, þau em bara
misjafnlega góð. Bömin mín, á meðan
ég hef rænu og líf mun ég minnast ykk-
ar allra í bænum mínum, sá sem á
svona marga bamavini eins og ég er
ríkur, mér þykir vænt um ykkur öll.
Það er von mín og bæn að Astjöm
megi um ókomna tíð veita mörgum
ungum sem eldri blessun, því þar er
Guð að verki. Oft hafa orán í Sálmi
68:20 blessað mig og hjálpað mér, en
þar stendun Lofaður sé Drottmn sem
ber oss dag eftir dag.
Innilegar þakkir til ykkar allra.
Næst Guði mínum þakka ég konunni
minni sem studdi mig með ráðum og
dáð og umbar mig þótt ég færi burtu öll
þessi sumur. Guð launi þér, elskan mín.
BOGIPÉTURSSON,
fyrrverandi forstöðumaður
áAstjöm.
Bogi
Pétursson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.