Morgunblaðið - 04.10.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 25
LISTIR
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Hálsmen úr silfri eftir Taru Harmaala.
Norrænt skart
HÖIVNUN
H a f n a r b o r g,
Hafnarfirði
SKARTGRIPASMÍÐI
TARUHARMAALA;
INNIPARNANEN;AGN-
IESZKA KNAP;
AULI LAITINEN og ÁSA
GUNNLAUGSDÓTTIR
Til 16. október. Opið miðvikudaga
til mánudaga frá kl. 12-18.
SKARTGRIPIR eru merkilegt
fyrirbæri, hlaðnir þeirri róman-
tísku áru sem gerir þá svo fjarlæga
og ósnertanlega, hversu nálægir
sem þeir eru. Það er ekki langt síð-
an undirritaður lenti í því að ganga
í halarófu um rammgerðustu sali
Tower-kastalans í Lundúnum og
skoða þar hin konunglegu djásn
sem þar eru geymd. Um leið flugu
um hugann allar þær rómantísku
glæpasögur þar sem fífldjarfir
þjófar fórna öllu til að komast yfir
hinn heimsfræga demant, Koh-i-
Nor, sem fannst á Indlandi og vó
heil 800 karöt. Nafn þessa þekkta
eðalsteins hljómar svo dulúðugt að
það er einna líkast því að það sé
runnið úr penna Edgar Allan Poe.
Þótt skartgripir norrænu hönn-
uðanna séu allt öðruvísi en djásn
Viktoríu heitinnar Englandsdrottn-
ingar fyndist manni ekki svo und-
arlegt að sjá litla skammbyssu
liggja í kössunum við hlið hálsfest-
anna. Tilfinningin frammi fyrir
hinum vel til fundnu kössum var
einna líkust því að maður væri
kominn í bankahólf einhvers sviss-
nesks banka þar sem auðmenn
geyma óskráð verðmæti. Það er
ekki hægt að neita því að lausn
hönnuðanna fímm er frábær. Það
kyndir undir ákveðinni spennu
þegar gestir þurfa að lyfta upp loki
tii að sjá hvaða skart það hýsir.
Það er ótalmargt vel heppnað á
þessari norrænu skartgiipasýn-
ingu, þar sem Finnar og Svíar
mæta eina íslendingnum, Ásu
Gunnlaugsdóttur. Smíðin er í háum
gæðaflokki og hugvitið í notkun
efniviðarins þroskað.
Enginn er beinlínis að reyna að
hrifsa til sín athyglina, aðeins tjá
næmt auga sitt fyrir einföldum og
snjöllum lausnum. Til marks um
ágæti gripanna á sýningunni er
einfaldleikinn sem ræður ríkjum
hjá öllum sýnendanna, og fínleg
vinnubrögð þeirra.
Þá er uppsetningin sláandi og
óvenjuleg. Hægt er að nálgast
gripina og snerta þá. í sumum til-
fellum er jafnvel hægt að ganga
svo langt að máta þessi djásn þótt
þau séu vel fest og illrænanleg.
Asa Gunnlaugsdóttir sómir sér vel
í þessum hópi látlausra skartgripa-
hönnuða. Hreinleiki verka hennar
fellur afbragðsvel að fágaðri heild-
inni þar sem allur efnislegur
subbuskapur og ofhlæði er víðs
fjarri. Agnieszka Knap sem talist
getur andstæða þessarar efnislegu
einföldunar með verkum sem búa
yfir miklu hugmyndaflugi í marg-
breytilegri notkun aðfanga úr nátt-
úrunni er þrátt fyrir allt fullkom-
lega laus við þunglamalega ofgnótt.
Inni Parnánen er seríalistinn í
hópnum með sláandi hugkvæmni í
mótun silfureininga, andstætt Taru
Harmaala sem notar silfrið til að
líkja eftir lífríkinu í fjörunni, og
Auli Laitinen sem nýtir sér marg-
breytilegan efnivið án þess að
missa verkið út í ofurflækjur.
Hvort sem sýningargestir eru sér-
fræðingar í hönnun skartgripa eða
einfaldir áhugamenn urn góða
smíði geta þeir ekki annað en haft
gott af þessari sýningu. Það er
ekki síst látleysið sem getur kennt
okkur sitthvað á borð við þann al-
mælta sannleik að efnisbruðl þjón-
ar sjaldnast nokkrum tilgangi.
Halldór Björn Runólfsson
Upplestur á
Súfístanum
UPPLE STRARDAGSKRÁIN
Ljáðu þeim eyra hefur göngu sína á
ný fimmtudaginn 5. október kl. 20 á
Súfistanum, bókakaffi í verslun
Máls og menningar, Laugavegi 18.
Dagskráin í vetur snýst að venju
um að kynna útgáfubækur ársins frá
Máli og menningu og Forlaginu og
nú hafa bækur frá Vöku-Helgafelli
bæst í hópinn. Lesið verður úr nýj-
um bókum á fímmtudagskvöldum til
að byrja með.
Fyrsti upplesturinn er Heimsbók-
menntakvöld. Þar les Ingibjörg
Haraldsdóttir úr þýðingu sinni á
Djöflunum eftir Dostojevskí og flyt-
ur nokkur formálsorð um höfundinn,
Árni Óskarsson les úr þýðingu sinni
á Aska Angelu eftir Frank McCourt,
Elísa Björg Þorsteinsdóttir les úr
þýðingu sinni á Bara sögur eftir In-
go Schulze og Hjalti Rögnvaldsson
leikari les úr þýðingu Sigurðar A.
Magnússonar á Æskumynd lista-
mannsins eftir James Joyce.
L E T T A I K |»stu
“NSSVEIFUI SfiKð
DÖGUHt um he|g'na
557 7700
Áhugahópur
um almenna
dansþátttöku
á íslandi
hringdu
ssun
Barn»P°
■ Netfang: kod@simnet.is
Heimasiða: www.simnet.is/kod
Frjálst er í fjallasal
MYIVDLIST -----------------
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Einhyrningar er meðal margra ágætra verka Þorbjargar
Höskuldsdóttur í Hafnarborg.
II a f n a r b o r g,
Hafnarfirði
MÁLVERK & VATNS-
LITAMYNDIR
ÞORBJÖRG
HÖSKULDSDÓTTIR
Til 16. október. Opið miðviku-
daga til mánudaga frá kl. 12-18.
ÞORBJÖRG Höskuldsdóttir
heldur áfram að mála fjallasali
með vel lögðum gólfflísum eða
teppum sem hverfa inn í kletta-
veggina. Hún er eins og endur-
reisnarmaður sem reisir sér
hurðarás um öxl í tilraunum sín-
um til að færa fjarvíddina yfir í
hina náttúrulegu vídd eins og
menningin gæti haldið ótrauð á
vit öræfanna sem partur af sköp-
unarverki þar sem eining ríkir
milli ósættanlegra andstæðna.
Frá Uccello til Leonardo ligg-
ur beinn vegur tilrauna til að
sætta myndsvið og bakgrunn, oft
með heillandi árangri en óneitan-
lega afar misjöfnum. Reyndar
var Leonardo eins og framleng-
ing af Uccello.
Teikningar hans af drekanum í
helgisögninni um heilagan Georg
eru náskyldar hjádýri hins síðar-
nefnda í málverki hans af heilög-
um Georg og drekanum. En það
er ekki bara í þessari ímynduðu
líffræði sem þeir mætast, Leon-
ardo og Uccello, heldur er slétt-
an framan við fjöllin þeirra líkari
stofugólfi en venjulegu láglendi.
En þetta eru smámunir við
hliðina á öllum mistækum til-
raunum þeirra til að koma eðli-
legu skipulagi á forgi-unn og
bakgrunn verka sinna. Það er
eins og fantasían taki völdin af
þessum vísindadýrkendum ein-
mitt þegar þeir hamast hvað
mest við að hamra saman vídd-
irnar tvær í verkum sínum, hið
menningarlega stofugólf og há-
lendið aftan við það. Einmitt
vegna þess að hinum annars
ágætu meisturum tókst ekki að
mægja hinar ólíku víddir sem þá
dreymdi um að sætta í myndum
sínum verða teikningar þeirra
svo óendanlega hrífandi. Draum-
urinn um fullkomnun steytti á
skeri raunhæfisins og því standa
verkin hálfköruð eins og loft-
kastalar á raunverulegum
grunni.
Löngu síðar bættist þessum
draumhugulu meisturum liðsauki
í legíó symbólskra listamanna
sem dreymdi svo hátimbraða
drauma að hvert málverk þeirra
á fætur öðru varð að hreinni
martröð óendanlegrar ófull-
komnunar.
Þar var Gustave Moreau í far-
arbroddi, um hvern impressjón-
istinn Edgar Degas sagði að
hlyti að hafa oltið um koll í úra-
og skartgripaverslun.
Einmitt á þessari aldalöngu og
endalausu ófullkomnun draums-
ins um fullkomleika byggir Þor-
björg heillandi veröld sína.
Frjálst er í fjallasal, sagði Kjar-
val og fékk sér leigara út í
hraunið. Þorbjörg er hans eini
lærlingur og eini íslenski lista-
maðurinn sem ég þekki sem
sprettur úr sama farvegi og
hann.
Þar með er ekki sagt að þau
Þorbjörg og Kjarval séu eins því
reyndar eru þau harla ólík. En
draumar þeirra eru hinir sömu
eins og ástralski possummála-
rinn Tjakkamarra hefði orðað
það. Þau virðast nefnilega bæði
þekkja staðina þar sem bleiku og
fjólubláu hrossin dreymir. Það er
ekki svo lítið þegar öll kurl koma
til grafar. Og annað eiga þau
Þorbjörg, Kjarval, Moreau,
Leonardo og Uccello sameigin-
legt. Þau ná sérstaklega miklu
flugi þegar þau gera sem minnst
en gefa sem mest í skyn.
Halldór Björn Runólfsson
r
Kynning í Lyfju Lágmúla
Therapeutica heilsukoddinn verður kynntur í Lyfju Lágmúla í dag og á morgun
frá kl. 11 til 17. Therapeutica heilsukoddinn tryggir að efri hryggur, háls og hnakki
fái réttar svefnstellingar. Therapeutica heilsukoddinn dregur úr hrotum og
honum fylgir 5 ára ábyrgð.
Therapeutica heilsukoddinn er eini heilsukoddinn á íslandi sem tryggingafélagið
SJÓVA-ALMENNAR auglýsir í forvarnarhandbók sinni og mælir með.
Eb LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Lágmúla 5
I Guðmundsson
HEILDVERSLUN
Lágmúla 7 • Sími; 568 1900
Tölvur og tækni á Netinu
fg>mbl.is