Morgunblaðið - 04.10.2000, Page 20

Morgunblaðið - 04.10.2000, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sjávarútvegsráðherra segir koma til greina að breyta lögum um erlendar fjárfestingar Sj ávarútvegsfyrir- tækin þurfa að vera stærri og öflugri SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA segist fagna umræðu um hvort breyta eigi lögum um takmarkanir á eignaraðild erlendra aðila í íslensk- um sjávarútvegi enda eðlilegt að lagaumhverfi og reglugerðir af þessu tagi væru í sífelldri endur- skoðun. Þetta kom fram í erindi Árna Mathiesen, sjávarútvegsráð- herra, á fjölmennum fundi sem greiningardeild Kaupþings stóð fyr- ir í gær um stöðu og horfur í sjávar- útvegi. Árni sagði að nokkur umræða hafi átt sér stað að undanförnu um það hvort ástæða væri til þess að breyta lögum um takmörkun á eignaraðild erlendra aðila í íslenskum sjávarút- vegi. Litlar fjárfestingar erlendra aðila Staðreyndin væri hins vegar sú að samkvæmt þeim gögnum sem hann hefði aflað sér væri lítið um fjárfest- ingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi. Ráðherra sagðist ekki hafa orðið var við aukinn þrýsting erlendis frá um að aflétta þeim hömlum sem nú séu í gildi. Hann hefði hins vegar að undanförnu verið að velta fyrir sér þeirri spurningu hvort þær aðstæður hefðu nú skap- ast að rétt væri að gera breytingar á lögunum. Ráðherra sagði að grund- vallaratriðið í núgildandi lögum væri að íslensk sjávarútvegsfyiirtæki væru undir fullum yfirráðum ís- lenskra aðila. í þessu sambandi yrði að hafa það í huga hversu auðvelt er að nýta auðlindina í hafinu kringum Island án þess að menn þurfi nokk- um tíma að koma hér á land. Kemur til greina að endurskoða lögin Þá verði og að taka tillit til þess að samkvæmt núgildandi lögum sé það hlutfall sem erlendir aðilar geti eign- ast í íslenskum sjávarútvegsfyrir- tækjum ekki lágt. Það ætti að nægja fjárfestum sem vilji taka þátt í arð- sömum og traustum fyrirtækjum með það að markmiði að tryggja sér góða ávöxtun þótt það fullnægi ekki þeim fjárfestum sem vilji eignast áhrifahlut í fyrirtækjum og ákvarða stefnu þeirra. Ráðherra sagði eðli- legt að spyrja sig þeirrar spurningar hvort íslendingar þurfi erlenda fjár- festa til þess að nýta auðlindina. Að sínu mati sé ekki þörf á því. Sjávarútvegsráðherra tók hins vegar fram að íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki og fyrirtæki í stoðgreinum sjávarútvegs hafi verið að fjárfesta víða um heim og það hljóti að vera af hinu góða að samstarf innlendra og erlendra fyrirtækja skuli vera að færast í aukana. Það væri mikill akkur í því ef hægt væri að auðvelda sjávarútvegsfyrirtækjum að laða til sín erlent fjármagn og erlenda sam- starfsaðila til þess að fara í enn öfl- ugri útrás. Það sé í þessu samhengi sem komi til greina að endurskoða reglur um fjárfestingar erlendra að- ila í íslenskum sjávarútvegi. Rétt væri hins vegar að taka fram að hér væri um viðkvæmt og flókið mál að ræða vegna þess hversu mikilvægur sjávarútvegur væri í íslenska hag- kerfinu. Þvi væri nauðsynlegt að fara varlega og rétt væri að árétta að yfirráð yfir auðlindinni verði að vera í höndum íslendinga. Ekkert fyrirtæki farið að nálgast þakið í aflaheímildum Sjávarútvegsráðherra sagði að undanfarið hefði hann oft verið spurður hvort ekki væri rétt að breyta reglum um hámark á sameig- inlegri aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila. Þau rök hafi verið færð fram að hámarkið hafi hugsan- lega haft áhrif á yfirstandandi sam- runaferli í íslenskum sjávarútvegi á þann hátt að það hafi komið í veg fyrir aukinn samruna fyrirtækja í greininni. Ráðherra tók fram að ekkert fyrirtæki í greininni virðist vera farið að nálgast það þak sem sett hefði verið. Stærsta einstaka fé- lagið sé með um 6,22% af áflaheim- ildum. Á Alþingi hafi verið pólitísk samstaða um það að margir aðilar kæmu að nýtingu auðlindarinnar og hámarksreglur bæri að skoða í því ljósi. Auðlindanefnd hafi hins vegar bent á að forsendur hafi breyst þar sem öll stærstu félögin séu orðin al- menningshlutafélög og að fjöldi hluthafa og dreifing eignaraðildar innan þeirra skipti ekki minna máli þegar haft er í huga að sem flestir landsmenn hafi hagsmuni af nýtingu auðlindarinnar. Endurskoðunar- nefnd hafi nú tekið við skýrslu auðlindanéfndar og tillagna frá henni sé að vænta fyrir lok þessa árs og þá einnig um reglur um hámark í aflaheimildum. Verði gerðar tillögur um breytingar megi vænta þess að þær verði gerðar í samhengi við breytingar á fiskveiðistjórnunarlög- gjöfinni. Sjávarútvegur of tengdur byggðasjónarmiðum í erindi Róbert Sighvatssonar, stjórnarformanns SH, kom fram að helstu veikleikar í sjávarútvegi væru meðal annars að hann væri enn of tengdur byggðasjónarmiðum. Stað- reyndin væri hins vegar sú að kvótar hefðu ekki flust til Reykjavíkur heldur á milli landsbyggðarsvæða; kvótinn leiti einfaldlega þangað þar sem arðsemin er mest og það sé af hinu góða. Þá benti Róbert á að áhrif sjómanna væru of sterk og nauðsyn- legt væri að ná fram breytingum, þeirra hluti af launakökunni væri orðinn of stór. Róbert taldi einnig skorta verulega á faglega umræðu um sjávarútveginn, alltof algengt væri að fjallað væri um greinina á neikvæðan hátt og slagorð á borð við sægreifa og kvótabrask yfirgnæfðu skynsamlega umræðu. Að sínu mati væru fyrirtækin þvert á móti of lítil og að það stæði greininni fyrir þrif- um. Langflest þeirra væru með veltu á bilinu þrjá til fimm milljarða og það væri hreinleg of lítið. Að mati Róberts er hræðsla við stórfyrirtæki í sjávarútvegi ástæðulaus eryíáh' mætti til að mynda benda á að út> gerð á Nýja-Sjálandi, sem menn bæru sig gjarna saman við, væri að mestu í höndum aðeins tveggja stórra fyrirtækja. Því væri nauðsyn- legt að breyta reglum um aflahá- mark svo hagræða megi enn frekar í greininni. Þá gagnrýndi Róbert stjórnvöld fyrir þá óvissu sem sjáv- arútvegsfyrirtækin búi við, það sé algert skilyrði að greinin búi við svipuð starfsskilyrði og önnur fyrir- tæki og geti markað stefnu fram í tímann. Losa þarf um hömlur á erlendri fjárfestingu og í aflahlutdeild Takmarkanir á fjárfestingum er- lendra aðila geri það einnig að verk- um að sjávarútvegsfyrirtækin geti ekki sótt jafnmikið fjármagn erlend- is eins og æskiiegt væri og nauðsyn- legt væri að losa um þær hömlur svo greinin nái að vaxa og skila viðun- andi arði. Tækifærin fælust í því að sameina enn frekar í sjávarútvegi, fá inn erlenda fjárfestingu og skapa þannig grundvöll fyrir sterk fyrir- tæki sem gætu ráðið við frekari út- rás. Þá væri greinilega möguleiki á því að gera ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð í sjávarútvegi enda væru sjávarútvegsfyrirtæki óvíða skráð á markaði líkt og hér tíðkast. Þá væri það verkefni stjórnvalda að skapa skýra stefnu til langs tíma þar sem sömu leikreglurnar giltu fyrir alla í sjávarútvegi. Kvótaþak þegar orðið vandamál Brynjólfur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Granda, fjallaði um verðþróun sjávarafurða og helstu breytingar á framboðshliðinni og um sterkari stöðu stórmarkaða í inn- kaupum á fiski. Að mati Brynjólfs eru ekki miklar líkur á því að raun- verð sjávarafurða muni hækka frá því sem nú er og því sé aukin þörf á hagkvæmni í framleiðslu. Til þess þurfi sjávarútvegsfyrirtækin að verða stærri og öflugri, aflétta þurfi kvótaþaki enda væri það ljóst að það kæmi í veg fyrir frekari samruna fyrirtækja auk þess sem fyrirtæki væru farin að nálgast hámark í ein- stökum fisktegundum, þannig ætti Grandi nú 17% í karfa og væri kom- inn fast að þakinu sem væri 20% og Grandi gæti augljóslega ekki farið út í samrunaviðræður við hin stærri fyairtæki þótt það gæti verið skyn- samegt. ^ Skapa þarf skilyrði fyrir vexti í greininni Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur- éyringa, benti á að fækkað hefði í togaraflotanum um sextán skip á síðustu tveimur árum og þeir væru nú 86 talsins. Á sama tíma hefði smærri bátum fjölgað verulega og að það væri vafasöm þróun. Að mati Guðbrands er líklegt að samanburð- ur við önnur fyrirtæki á hlutabréfa- markaði með tilkomu Norex muni reynast íslenskum sjávarútvegsfyr- irtækjum erfiður og hætt við að þau reynist dýr fjárfesting. Þær aðgerðir sem Guðbrandur telur að þurfi að grípa til eru einkum fólgnar í því að stjórnvöld taki af þakið um hámarksafla í einstökum tegundum og eins í heildaraflaheim- ildum. Sem dæmi mætti nefna að ef algert hrun yrði í loðnuveiðum gæti ÚA allt í einu lent í þeirri stöðu að vera komið yfir leyfileg mörk í heild- arkvóta. Nauðsynlegt væri að stækka sjávarútvegsfyrirtækin. Það væri sá þröskuldur sem komi í veg fyrir útrás íslenskra sjávarútvegs- fyrirtækja og alþjóðavæðingu þeirra. Þá þurfi og að aflétta öllum takmöfkunum á framsali aflaheim- ilda líkt og auðlindanefnd hafi lagt til og jafnframt að nema burt takmark- anir á fjárfestingum erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi. Þetta séu meginskilyrðin fyrir því að skapa sjávarútveginum á íslandi frekari vaxtarmöguleika og sóknarfæri. íslandssimi og TeleTænasten hefja fjarskiptarekstur í Færeyjum Útrás fyrir- tækisins hafín ÍSLANDSSÍMI og færeyska fjar- skiptafyrirtækið TeleTænasten til- kynntu í gær um stofnun nýs fjar- skiptafyrirtækis í Færeyjum, TeleF. Fyrirtækið, sem er í jafnri eigu Islandssíma og TeleTænasten, mun bjóða upp á talsímaþjónustu í Fær- eyjum, millilandasímtöl, netþjónustu og gagnaflutninga. Þjónustan hefst á þessu ári og er stefnt að útvíkkun á starfseminni innan tíðar, þar með töldum rekstri á GSM-þjónustu. Greint var frá stofnun fyrirtækisins á blaðamannafundi sem fyrirtækin héldu í Norðurlandahúsinu í Fær- eyjum í gær og við sama tækifæri var jafnframt skrifað undir sam- komulag við alþjóðafyrirtækið Er- iesson um kaup á tækjabúnaði til rekstrarins. Þar er um að ræ.ða sím- stöð og síma- og netlausnir. Hafist verður handa við uppsetningu á bún- aðinum á næstu dögum. Veltan á færeyska fjarskipta- markaðnum um tveir milljarðar I tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að samstarf TeleF við Islands- síma lágmarki fjárfestingu TeleF í tækjabúnaði og að heildarfjárfesting fyrirtækisins verði undir 10 milljón- um danskra króna, eða undir 95 milljónum íslenskra króna. Þá segir í tilkynningunni að TeleF sé fyrsta fjarskiptafyrirtækið í einkaeigu í Færeyjum til þess að veita almenna alhliða fjarskiptaþjónustu. Til þessa hafi TeleTænasten rekið takmark- aða fjarskiptaþjónustu en færeyski Landssímin hafi verið markaðsráð- andi. TeleF muni fyrst og fremst ein- blína á að veita færeyskum heimilum og fyrirtækjum betri þjónustu en staðið hefur til boða fram að þessu. Jafnframt sé búist við að með til- komu nýs fyrirtækis lækki verð á fjarskiptaþjónustu í Færeyjum. Fram kemur í tilkynningunni að lyk- ilmenn hafi þegar verið ráðnir til nýja fyrirtækisins. Þeir komi víða að en hafi mikla starfsreynslu úr fjar- skiptageiranum í Færeyjum og Dan- mörku. Samkvæmt tilkynningu fyrirtækj- anna nam velta færeyska fjarskipta- markaðarins tæpum 220 milljónum danskra króna á síðasta ári, sem svarar til um 2ja milljarða íslenskra króna, og jókst hún um 20% frá árinu áður. Stærsti hluti vaxtarins er á farsímasviði og netþjónustu. Framkvæmdastjóri TeleF er Billy Hansen. Hann sagði á fundinum í Færeyjum í gær að fyrirtækið stefndi að því að ná 10-15% mark- aðshlutdeild á færeyska fjarskipta- markaðnum eftir eitt ár. Möguleikar fyrirtækisins á að ná því markmiði væru góðir því einungis um 25% Færeyinga eigi og noti farsíma í dag. Færeyjar geta fært Íslandssíma góða reynslu Fram kom í máli Eyþórs Arnalds, framkvæmdastjóra Islandssíma, að útrás Íslandssíma væri hafin með stofnun TeleF. Færeyjar væru góð- ur staður til að byrja á og þar gæti Islandssími fengið góða reynslu í hvernig það sé að starfa með heima- aðilum erlendis. „Þá fæst með þessu einnig betri nýting á fjárfestingum fyrirtækisins. Íslandssími er einn af eigendum Cantat-3 sæstrengsins sem liggur frá Norður-Ameríku, um ísland, Færeyjar og austur um haf til Bretlands. Það þarf því ekkert að gera nema tengja Færeyjar við strenginn,“ sagði Eyþór. TeleTænasten var stofnað fyrr á þessu ári og er í jafnri eigu fær- eyskra einstaklinga og íslenska fyr- irtækisins Radíómiðunar. Það hefur sérhæft sig í gervihnattaþjónustu við fiskiskip og útgerðir en yfirtók á þessu ári millilandasímaþjónustu sem starfrækt hefur verið í Færeyj- um um árabil. Stjórnai-menn í TeleF eru fimm, þrír frá TeleTænasten og tveir frá Islandssíma. Michale Jackson, for- maður stjómar TeleF, sagði í Fær- eyjum í gær að stefnt væri að skrán- ingu TeleF á hlutabréfamarkað fljótlega. Fyrirtækið yrði þá fyrsta færeyska fjarskiptafyrirtækið á þeim markaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.