Morgunblaðið - 04.10.2000, Síða 21

Morgunblaðið - 04.10.2000, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 21 GoPro Group hlýtur alþjóðlegar viðurkenn- ingar frá IBM/Lotus ÍSLENSKA fyrirtækið GoPro Group hlaut í lok síðustu viku hin eft- irsóttu Lotus Beacon-verðlaun fyrir tvær hugbúnaðarlausnir ó alþjóðlegu hugbúnaðarsýningunni Lotusphere í Berlín, en hugbúnaðarlausnir upp- lýsingatæknifyrirtækjanna Hugvits hf. og SCIO AS, sem tilheyra GoPro Group, hafa undanfarið vakið veru- lega athygli á alþjóðamarkaði. Hugbúnaðarfyrirtæki hvaðanæva að tóku þátt í Lotusphere-sýningunni í Berlín og þar sóttust um fjögur þús- und evrópsk fyrirtæki eftir Beacon- verðlaunum í sex flokkum. Sýningin er haldin árlega af IBM og Lotus fyr- ir samstarfsfyrirtæki þeirra og við- skiptavini, en talið er að um 55 millj- ónir manna noti daglega hugbúnað og hópvinnukerfi IBM/Lotus. Hugvit hf. hlaut fyrst Lotus Beacon-verðlaun árið 1996 fyrir Go- Pro í flokknum „Greatest Impact on a Customer Business in Europe“, og árið 1998 hlaut fyrirtækið verðlaunin fyrir WebPagePro í flokknum „Best Web Business Solution". Á nýafstað- inni Lotusphere-hugbúnaðarsýningu í Berlín hlaut GoPro Group verðlaun fyrir bestu hugbúnaðarlausnina á sviði raírænna viðskipta og fyrir bestu farsímalausnina. Þannig hlaut Hugvit hf. verðlaun fyrir GoPro Case-hugbúnaðinn, en grundvöllur tilnefningarinnar var góður árangur Hugvits og ÁTVR við innleiðingu og aðlögun á GoPro-kerfunum. Hug- búnaðurinn var valinn af sérstakri dómnefnd sem besta lausnin fyrir rafræn viðskipti sem fram kom á ár- inu. SCIO A/S fékk verðlaun fyrir bestu farsímalausnina sem kom fram á árinu, en lausnin var hönnuð af SCIO A/S, sem er danskt systurfyr- irtæki Hugvits, ásamt Landssíman- um, Marel og verðbréfafyrirtækinu Aros Securites A/S, sem er dóttur- fyrirtæki danska bankans Unibank. Verðlaunin skipta miklu máli fyrir markaðssetningu Fyrr á þessu ári var eignarhald á nokkrum af stærstu upplýsinga- tæknifyrirtælgum landsins og tveim- ur dönskum hugbúnaðarfyrirtækjum sameinað undir nafni GoPro Group. Þessi fyrirtæki eru Hugvit hf., Þróun hf„ Þekking hf., Tristan ehf. og dönsku fyrirtækin SCIO A/S og F8- Data. Fyrirtækin verða öll starfrækt í óbreyttu formi og ekki sameinuð í eitt, en þau kappkosta að veita við- skiptavinum heÚsteyptar lausnir á sviði hugbúnaðar. Saman mynda þau öfluga heild sem ræður við stærstu verkefni á sviði upplýsingatækni, einni þeirri stærstu sinnar tegundar á Norðurlöndum. Heildarfjöldi allra starfsmanna fyrirtækjanna er um 280 og heildarvelta þeirra er á annan milljarð króna. Þá hefur verið til- Morgunblaðió/Ámi Sæberg Björn Ársæll Pétursson, framkvæmdastjóri GoPro Development, og Bjarni Sv. Guðmundsson, framkvæmdasljóri Hugvits hf. |H að flytja út íslenskt hugvit. Verðlaunaveit- ingin gerir okkur auð- veldara um vik og setur ákveðinn stimpil á fyr- iitækið og þá starfsemi sem ^er er re^*n> en ■ þessi verðlaun vekja Sí tn.inK mikla athygli er- lendis. Þetta hefur því mikil og góð áhrif fyrir okkur sem fslenskt hugbúnaðai'fyrirtæki ■ og útflytjanda hugvits. Það vill reyndar svo | skemmtilega til að þetta litla íslenska fyr- irtæki er nú orðið eitt stærsta samstarfsfyr- irtæki Lotus í Evrópu, og það er sérstaklega ánægjulegt að samstarf okkar við ís- lensk fyrirtæki og það hugvit sem upp úr því samstarfi sprettur er sí- fellt að skila okkur fram á við. Við er- um að starfa fyrir mörg stór erlend fyrirtæki, eins og til dæmis Atlas Copco og fleiri, og þannig höfum við komist á staði sem við hefðum aldrei komist á að öðru jöfnu,“ sagði Bjarni. Per Bendix Olsen tekur við Lotus Beacon-verð- launum GoPro Group úr hendi A1 Zollar, forstjóra Lotus Development Inc. kynnt að stjómir GoPro Group og Landsteina Intemational hf. hafi skrifað undir samkomulag um sam- einingu félaganna og munu hluthafar GoPro Group eignast 60% hlut í hinu sameinaða félagi. Bjarni Sv. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hugvits hf., sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vita til þess að annað fyrirtæki hefði fengið Lotus Beacon verðlaun jafn oft og Hugvit. Hann sagði þetta skipta miklu máli fyrir markaðssetningu hugbúnaðarlausna fyrirtækisins er- lendis og opna margar dyr í því sam- bandi. Að sögn Bjöms Ársæls Pétursson- ar, framkvæmdastjóra GoPro Devt - þróunarfyrirtækis GoPro Group, skipta verðlaunin miklu máli fyrir sölukerfi GoPro Group og ekki síst í því uppbyggingarstarfi sem fram- undan er á mörkuðum í erlendis. „Við erum að vinna mikið í markaðsstarfi erlendis og með sam- einingu við Landsteina erum við að sameina krafta okkar í útrásinni og byggja upp ákveðinn farveg til þess Stýrir starfsemi GoPro Group í Evrópu Hinn 1. ágúst síðastliðinn tók Per Bendix Olsen við starfi fram- kvæmdastjóra Evrópuhluta GoPro Group, en hann hefur starfað hjá IBM síðastliðin 16 ár. Frá 1996 var hann framkvæmdastjóri IBM á sviði rafrænna viðskipta og rafrænnar skjalastjómunar með ábyrgð á markaðssvæðinu Evrópa, Mið-Asía og Afríka. Að sögn Bjöms Ársæls Pétursson- ar verða fyrstu verkefni Per Bendix að þróa og stofna viðskiptasambönd á erlendum mörkuðum ásamt því að tryggja öflugan vöxt og uppbyggingu allra eininga GoPro Group. Kaupþmg gagnrýnir kynn- ingu fjárlagafrumvarpsins I MORGUNPUNKTUM Kaupþings í gær var gerð athugasemd við að fjárlögin skyldu á mánudag hafa verið kynnt fjölmiðlum áður en þau voru kynnt á Verðbréfaþingi íslands (VÞÍ): „Athygli vakti í gær að fjárlög- in komu fyrst fyrir sjónir markaðsað; ila á netmiðli kl. 16:00, um leið og VÞÍ lokaði. Býsna góð grein var gerð fyrir fjárlögunum af vefmiðlunum, enda höfðu þeir haft fjárlögin til skoðunar frá því að blaðamannafundi lauk, en hann hófst kl. 11:00 um morguninn. Það er áhugavert að stærsti einstaki útgefandi skráðra verðbréfa á mark- aði, ríkissjóður, skuli ekki lúta þeirri meginreglu útgefenda skráðra verð- bréfa hér á landi, að birta fyrst upp- lýsingar er kunna að hafa áhrif á mat fjárfesta og markaðsaðila á útgefanda eða verðbréfum hans í upplýsinga- kerfi VÞÍ.“ Birt fjölmiðlum fýrirfram í algerum trúnaði Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, segir að löng hefð sé fyrir því að greina fjölmiðlum frá efni fjárlagafrumvaipsins í trún- aði áður en það er lagt fram á Alþingi. Skilyrði sé að fjölmiðlar haldi algeran trúnað þar til frumvarpið verði lagt fram og segist Ámi ekki vita til ann- ars en sá trúnaður hafi ævinlega verið haldinn. Nú hafi ekkert birst í fjöl- miðlum um frumvarpið fyrr en eftir klukkan fjögur, en þá var frumvarpið lagt fram. „Þannig að við fáum ekki séð að þetta geti á nokkurn hátt talist athugavert gagnvart upplýsingum á VÞÍ. Þetta er nauðsynlegt í þágu upp- lýstrar umræðu um þetta mikilvæga frumvarp." Spurður að því hvort breytingar væru fyrirhugaðar sagði Árni svo ekki vera, hins vegar væri annað mál að sjálfsagt væri að senda VÞÍ framvegis fréttatilkynningar þegar þær væru gerðar opinberar. í sambandi við framlagningu fjárlaga- frumvarpsins sagði Ámi að einnig yrði þó að hafa í huga að lagaskylda sé að leggja fjárlagafiumvarpið fram í upphafi þings og að alkunna sé að það sé alltaf lagt fram á fyrsta degi. Cartíse Hamraborg 1 Lúxus Mossy Micro Verð kr. 9.990 Lúxus úlpur, ullarkápur,dragtir og dress Stæröir 36-52 Ótrúlegt verð Cartíse Nýjar sendingar Hamraborg 1, Garðarsbraut 15, Húsavík, sími 554 6996. sími 464 2450. AUICA VELGENGNI ÞÍNA? DALE CARNEGIE ' NÁMSKEIÐIÐ HJÁLPAR PÉR AÐ: ♦ VERÐA HÆFARI í STARFI ♦ FYLLAST ELDMÓÐI ♦ VERÐA BETRI í MANNLEGUM SAMSKIPTUM ♦ AUKA SJÁLFSTRAUSTIÐ ♦ VERÐA BETRI RÆÐUMAÐUR ♦ SETJA ÞÉR MARKMIÐ ♦ STJÓRNA ÁHYGGJUM OG KVÍÐA VERTU VELKOMINN Á KYNNINGARFUND SOGAVEGI FIMMTUDAG FJARFESTING I MENNTUN SICILAR ÞÉR ARÐI ÆVILANGTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.