Morgunblaðið - 04.10.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 27
LISTIR
Bókasalur
Þjóðmenningarhúss
Zeno kort-
ið sýnt í
fyrsta sinn
hér á landi
OPNUÐ hefur verið í bókasal
Þjóðmenningarhússins sýning á
gömlum Islandskortum og erlend-
um ferðabókum frá íslandi frá
fyrri öldum. Sýningin, sem stend-
ur til loka októbermánaðar, var
sett upp í tilefni af þingi al-
þjóðasamtaka kortasafnara í
Reykjavík um siðustu helgi. Göm-
ul Islandskort getur einnig að líta
á fastasýningu í kortastofu Þjóð-
menningarhússins.
Meðal fágætra korta á sýning-
unni í bókasalnum er Zeno kortið
svonefnda frá 1558 sem um langt
skeið hafði mikil áhrif á gerð
landakorta af norðurslóðum. Fylg-
ir kortið lítilli ferðabók eftir fen-
eyskan höfund. Lengi stóðu deilur
um sannleiksgildi bókarinnar og
áreiðanleika kortsins, en nú er tal-
ið fullvíst að frásögn bókarinnar
sé uppspuni og kortið samsett úr
eldri kortum og að hluta til tilbún-
ingur. Það hefur ekki áður verið
til sýnis opinberlega hér á landi
en mynd af því er í Kortasögu fs-
lands I eftir Harald Sigurðsson.
Kortin og bækumar á sýning-
unni eru í eigu Seðlabanka fs-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ólafur Pálmason, forstöðumaður safnadeildar Seðlabankans, hafði veg
og vanda af uppsetningu sýningarinnar.
Eitt af elstu kortunum sem til sýnis eru í Þjóðmenningarhúsinu.
lands. Ólafur Pálmason, for-
stöðumaður safnadeildar
Seðlabankans hafði veg og vanda
af uppsetningu sýningarinnar.
Sýningar í Þjóðmenningarhús-
inu eru opnar alla daga frá kl. 11
til 17.
Oddur Björnsson
Kórsöngur í Ými
TOIVLIST
II1 j ó m d i s k a r
VOR 2000
Karlakór Reykjavíkur. Stjórnandi:
Friðrik S. Kristinsson. Einsöngur:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Björn
Björasson. Píanó: Anna Guðný Guð-
mundsdóttir. Upptaka og hljóð-
vinnsla: Halldór Víkingsson. Uppta-
kan fór fram á tónleikum í Ymi,
tónleikasal, dagana 6.-13. maí
2000. Framleiðsla: Tocano, Dan-
mörku. Útgefandi Karlakór
Reykjavíkur KKR001.
Á ÞESSUM hljómdiski höfum við
fyrstu vortónleika Karlakórs Reykja-
víkur í nýja tónleikahúsinu sínu. Og
eins og segir í bæklingi „er þess
freistað að koma til skila þeirri sér-
stöku stemmningu sem ævinlega
skapast milli áheyrenda og flytjenda í
tónleikasal. Einnig er gerð tilraun til
að koma hinum einstaka hljómi í Ymi,
Tónlistarhúsi Kaiiakórs Reykjavík-
ur, til skila í hljóðritun þessari". Allt
tekst þetta vel í lifandi flutningi kórs-
ins og einsöngvara. Söngskráin verð-
ur að teljast mjög hefðbundin, þó að
yngstu lögin hafi verið sérstaklega
samin fyrir kórinn á síðasta ári. Um
það bil helmingur laganna er alþekkt-
ur, gömul og góð lög, og svo algeng á
söngskrám karlakóra (þ.ám. Karla-
kórs Reykjavíkur) að maður gæti
haldið að þau væru ómissandi. Og
kannski eru þau það. Eg taldi ein sex
lög á þessum nýja diski sem er að
finna á fjögurra ára gömlum diski
sama kórs, Islands lag.
Sá „þjóðlegi" titill átti raunar vel
við efnisskrána (ísland! ísland! Eg vil
syngja!, Landið vort fagra, Islands
lag, Island ögrum skorið, Drauma-
landið, Island - svo má bæta við
tveimur á nýja diskinum: ísland far-
sælda frón og Yfir voru ættarlandi).
Og við höfum hér fleiri fasta liði, svo
sem Sefur sól hjá ægi, Sjá dagar
koma, Nú hnígur sól og Brennið þið
vitar. Og allt er þetta gott og blessað
og mjög vel sungið (enda ættu þeir að
kunna þetta!) og skírskotar beint til
ættjarðarástarinnar í íslenskum
brjóstum. Sigrún Hjálmtýsdóttir er
hér (eins og á áðurnefndri plötu) með
glansandi einsöng í Draumalandinu,
Sjá dagar koma, íslands lagi, Ave
María (Kaldalóns) og Þig ég unga
(þjóðlag í útsetningu Jóns Asgeirs-
sonar), Vísum Islendinga og skond-
inni Vorvísu eftir Atla Heimi við texta
Jónasar Hallgrímssonar (sú seinni a
la Jón Þorláksson); einnig í lagi
Gunnars Þórðarsonar og loks í vel
þekktri „aríu“ úr Leðurblökunni, þar
sem hún er í S-inu sínu og endar fínan
konsert á viðeigandi nótum. Loks er
að geta Bjöms Bjömssonar, sem
syngur einsöng í mögnuðu lokaatriði
Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonai’
(söngur Þórs og kórs).
Bjöm hefur volduga bassarödd -
og góð lungu, sem kom fram í auka-
laginu (þau em reyndar sex) Hraust-
um mönnum. Auk Jóns Ásgeirssonar,
Atla Heimis og Gunnars Þórðarsonar
á Gunnar Reynir Sveinsson hér tvö
lög við texta Halldórs Laxness (Hald-
iðún Gróa hafi skó og Ríður, ríður
hofmann) og Páll P. Pálsson lag við
texta Þorsteins Valdimarssonar
(Blómseljan). Þessi söngskemmtun
er öllum til sóma. Karlakór Reykja-
víkur er mjög góður og „stabíll" kór
(ef einhver skyldi ekki vita það!) og
syngur margt virkilega fallega undir
sínum ágæta stjórnanda. Og þá er
bara að óska kórnum til hamingju
með konsertinn og tónleikahúsið sitt,
sem virðist standa undir væntingum.
Oddur Björnsson
Stjomjnarfélag
Istante
Hvað verður um mælistikur fjárfesta (DCF, ROI, EVA) í
nýju hagkerfi? Hefur ekki komið í Ijós að gömlu
mælistikurnar eru illa til þess fallnar að stýra stjórnendum
í síbreytilegu umhverfi þar sem óvissa ríkir og langur tími
líður þar til fyrirtæki skila arði?
Vandamálið er ekki að mælistikur séu úreltar, heldur
tengist því hvernig mælingarnar eru framkvæmdar. Nokkur
fyrirtæki hafa nú tekið upp aðferðir sem miða að því að
bæta við hinar hefðbundnu aðferðir tölfræðilegum líkönum
sem taka tillit til hagkerfisins, markaðsaðstæðum og
samkeppni.
Er skynsamlegt að tengja umbun stjórnenda við árangur
sem ræðst af aðstæðum á markaði fremur én verkum
þeirra?
Námsstefnan fjallar um takmarkanir hefðbundinna aðferða
við árangursmælingar og nýjar tölfræðilegar aðferðir sem
falla betur að hinu „nýja hagkerfi”.
Farið verður yfir nokkur dæmi um
gamlar og nýjar aðferðir.
Námsstefnan ætti að höfða til
allra fyrirtækja sem ætla að ná
árangri í því síbreytilega umhverfi
sem við lifum við.
Patrick Finegan er frumkvöðull í
notkun EVA greiningar við
árangursmat. Finegan er
framkvæmdastjóri Finegan and
Company og fyrrverandi
meðeigandi í Stern Stewart and Co. þar stjórnaði hann
fyrirtækja og markaðsþjónustu ásamt því að leiða
rannsóknir þeirra á sviði EVA greiningar. Finegan er með
o ði Stjórnunarfélags I
hélt hann fyrirlestur um Árangursmat í fyrirækjum, EVA
(Economic Value Added)
Skráning f síma: 533-4567 og stjornun@stjornun.is
Blásararnir
frá Bergvík
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs
GLERLIST SIGRÚN
EINARSDÓTTIR &
SÖREN S. LARSEN
Til 8. október. Opið þriðjudaga
til sunnudaga frá kl. 11-17.
GLERLIST á sér langa og lit-
ríka sögu eins og þeir þekkja sem
komið hafa tii staða þar sem gler-
blástur hefur verið stundaður
sem iðnaður mann fram af manni.
Þótt okkur sé varið sem öðrum,
að við kunnum vel að meta nytja-
hluti og skrautmuni úr gleri, þá
eru þeir ekki margir íslenskir
list- og handverksmenn sem hafa
lagt fyrir sig glerlist. í samburði
við leirlistina sem er mjög út-
breidd og ástunduð af fjölda ís-
lenskra listamanna á glerblástur
sér örstutta og knappa sögu.
Hjónin í Bergvík á Kjalarnesi,
þau Sigrún Einarsdóttir og Sören
S. Larsen, hafa stundað gler-
blástur í nær tvo áratugi með
miklum glæsibrag. Smám saman
hafa þau náð fullkomnu valdi á
miðlinum og skerpt list sína svo
að nær við liggur að verk þeirra
minni á skartgripi.
Þau Sigrún og Sören hafa ekki
sýnt opinberlega hér á landi síðan
1984, enda hafa þau helgað alla
krafta sína Gallerí Bergvík sem
þau reka í tengslum við verkstæði
sitt. Aftur á móti hafa þau sýnt af-
rakstur glerblástursins á megin-
landi Evrópu. Hér er því brotið
sextán ára hlé með sýningu sem
er í meira lagi fjölbreytt. Mest
ber á Himnastiga, stórri gler-
höggmynd sem teygir sig ská-
hallt til lofts. Á málmgrind - eins
konar stiga - er raðað risastór-
um, rauðbrúnum glerflögum. Frá
ákveðnu sjónarhorni líkist þessi
samsetning brjótsykurslituðum
sápukúlum eða lýrískri útgáfu af
Morgunblaðið/HalldórB. Runólfsaon
Himnastiginn setur óvæntan
svip á glerlistarsýningu þeirra
Sigrúnar Einarsdóttur og
Sörens S. Larsen.
höggmyndum Antons Pevsner og
Naums Gabo. Andspænis þessari
splundrun eru svo viðkvæmari
verk, litlar höggmyndir úr slíp-
uðu gleri og undurfögur flösku-
og vasasett í föllitum tónum.
Þessi ágæta sýning Sigrúnar og
Sören vekur áleitnar spurningar
um það hvers vegna ekki er miklu
meiri gróska í glerlist hér á landi
en raun ber vitni. Ekki vantar
fyrirmyndirnar. Sýning Berg-
víkurblásaranna er því til sönn-
unar.
Halldór Björn Runólfsson
Stökktu til
Kanarí
20. október
frá kr. 49.855
Nú seljum við síðustu sætin til Kanarí í október, en eyjarnar eru
langvinsælasti vetraráfangastaður okkar og þúsundir íslendinga
ferðast þangað á hverjum vetri til að njóta eins besta veðurfars
heimsins og stytta veturinn hér heima.
Þú bókar núna og tryggir þér sæti, og 3 dögum fyrir brottfor látum
við þig vita hvar þú gistir.
Verð frá kr.
49.855
Verð kr.
59.900
20.október, 32 nætur, m.v. hjón
með 2 börn. Skattar ekki inni-
faldir. Ferðir til og frá flugvelli
erlendis kr. 1600.
M.v. 2 í íbúð, 20.október,
flug og gisting.
Skattar kr. 2.490.- ekki inni-
faldir. Ferðir til og frá
flugvelli erlendis kr. 1600
HEIMSFERÐIR
Austurstraeti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is