Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
:
FRÉTTIR
Bilun í hreyfli hjá þotu Atlanta
Tuttugu tíma
seinkun á flugi
Litli hrúturinn Veturliði með frúnni í Tunguseli, Bjarneyju Hermundardóttur, og sonarsyni hjónanna
í Tunguseli, Marinó Níelsi Ævarssyni.
Sauðburður í október
Þórshöfn. Morgunblaðið.
VORIÐ er almennt tfminn sem
tengdur er sauðburði en undan-
tekningin sannar regluna því vetur-
gömul ær eignaðist myndarlegan
lambhrút fyrstu vikuna í október.
Lambinu bar hún á heimatúninu
við Tungusel öllum að óvörum og
bar litli hrúturinn öll einkenni og
litarhátt forustuhrútsins á bænum,
svo lauslætisböndin bárust ótvírætt
að honum, að sögn Tungusels-
bænda. Forustuhrútur þessi fer sín-
ar eigin leiðir í þessu sem öðru og
mun vera kostaskepna, upphaflega
fenginn frá „hobbýbónda" á Þórs-
höfn.
Lambhrúturinn fékk nafnið Vet-
urliði og heilsast honum vel en
hann er kominn í fjárhús í Tungu-
seli til vetrardvalar ásamt móður
sinni.
HELDUR teygðist úr ferðalagi
þeirra 430 farþega sem koma áttu
heim til íslands með Boeing 747-
200 farþegaþotu Atlanta frá Búda-
pest klukkan hálfellefu á sunnu-
dagskvöld.
Farþegarnir, sem staddir voru í
Búdapest á vegum Samvinnuferða/
Landsýnar, sátu þar fastir vegna
vandkvæða sem urðu í tengslum
við hreyfilsskipti á þotunni sem
flytja átti fólkið heim. Magnús
Gylfi Thorstenn, forstjóri Atlanta,
sagði Morgunblaðinu að farið hefði
verið með vélina, sem flutti farþeg-
ana út á föstudag, til Madrid á
Spáni þar sem skipt var um hreyfil
í vélinni. Nýi hreyfillinn hafði áður
verið yfirfarinn og gerður upp af
Rolls Royce-verksmiðjunum sem
ábyrgðust hann. Þegar flugvélin
fór svo frá Spáni á sunnudags-
morgun til að sækja farþegana
kom fram ofhitnum í þeim hreyfli
sem skipt hafði verið um.
Leikskólar óstarfhæfir
Vélinni var samstundis snúið aft-
ur til Madrid og reynt að gera við
hreyfilinn en í annarri tilraun kom
sama vandamál aftur fram. Þegar
svo var komið var flugvélinni snúið
í annað sinn til Spánar og farþeg-
arnir í Búdapest skráðir inn á hótel
yfir nóttina.
Seinkunin olli m.a. því að tveir
leikskólar á vegum Félagsstofnun-
ar stúdenta voru nær óstarfhæfir í
gær þar sem flestallir leikskóla-
kennarar skólanna voru saman í
Búdapest.
Loks var gert við hreyfilinn og
vélinni flogið áfallalaust frá Madrid
til Búdapest. Farþegarnir lentu
svo á Keflavíkurflugvelli laust fyrir
klukkan sjö í gærkvöld eftir
tuttugu klukkustunda seinkun.
------^4-*-----
Treg
rjúpnaveiði
víðast hvar
RJÚPNAVEIÐI er frekar treg um
allt land. Fyrsti veiðidagur var 15.
október síðastliðinn.
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags íslands, segir að
slæmt veður hafi sett strik í reikn-
inginn og víðast hvar hafi verið lítill
snjór. Fuglinn virðist vera nijög
dreifður. Fréttir hafi þó borist af
þokkalegri veiði fyrir austan og
fregnir höfðu einnig borist af veiði-
mönnum á hálendinu sem höfðu veitt
sæmilega. Sigmar segir að menn hafi
víða séð töluvert af fuglum en rjúpan
hafi verið stygg.
Fundur bankaráðs
Búnaðarbankans
Afgreiðslu
frestað þar
til í da g
BANKARÁÐ Búnaðarbanka
íslands frestaði í gær af-
greiðslu á tilmælum ríkisstjórn-
arinnar um að Landsbanki Is-
lands og Búnaðarbankinn hefji
viðræður um samruna
Pálmi Jónsson, formaður
bankaráðs Búnaðarbankans,
varðist allra frétta en sagði að
fréttatilkynning yrði gefin út
eftir fund ráðsins fyrir hádegi í
dag.
DeCode undir
20 dali á hlut
DECODE geneties, móðurfélag ís-
lenskrar erfðagreiningar, fór í gær í
fyrsta sinn frá útboði félagsins und-
ir 20 dali á hlut á Nasdaq markaðn-
um í Bandaríkjunum. Lokagengi
var 19,625, sem er 6,55% lækkun
frá fyrra degi er lokagengi var 21.
Nasdaq-vísitalan lækkaði í gær um
0,80%, en Dow Jones og helstu
evrópsku vísitölurnar hækkuðu.
Útboðsgengi DeCode var 18 dalir
á hlut, en hæst fóru bréfin í 31,5.
Viðskiptaráðherra skilar skýrslu um siðareglur í viðskiptum á fjármagnsmarkaði
Fjármálafyrirtæki telja sig
uppfylla alþjóðlegar reglur
FJARMALAFYRIRTÆKI telja almennt að
þau uppfylli siðareglur um heiðarlega og eðli-
lega viðskiptahætti að því er kemur fram í
skýrslu, sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi.
Alþingi samþykkti í maí þingsályktun þar
sem viðskiptaráðherra var falið að kanna hvort
stofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði hefðu
sett sér siðareglur í samræmi við tilmæli fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 1977
um siðareglur Evrópubandalaganna um við-
skipti með framseljanleg verðbréf og almennt
viðurkenndar meginreglur Alþjóðasambands
kauphalla um viðskiptahætti með verðbréf frá
1992 og var svars krafist í upphafi haustþings.
í skýrslu ráðherra segir að fjármálafyrir-
tækjunum hafi verið sent bréf þar sem sérstak-
lega eru tiltekin sex helstu atriði tilmæla ESB.
I svörum þeirra hafi komið fram að þau telji að
þau uppfylli bæði tilmæli ESB og Alþjóðasam-
bands kauphalla.
Fyrirkomulag siðareglna
með ýmsum hætti
I svari Búnaðarbanka íslands segir að hann
hafi ekki sett sér sérstakar siðareglur eða aðrar
reglur um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti,
en hafi á hinn bóginn haft að leiðarljósi að
starfa í samræmi við þær siðareglur, sem Verð-
bréfaþing íslands hafi sent þingaðilum.
I bréfi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
segir að það sé mat sparisjóðsins að verklags-
reglur Verðbréfaþingsins samkvæmt lögum um
verðbréfaviðskipti auk sérstakra reglna
SPRON frá því í febrúar á þessu ári auk ann-
arra starfs- og áhættureglna SPRON nái yfir
efni tilmæla ESB og meginreglna Alþjóðasam-
bands kauphalla.
Landsbréf svöruðu því til að fyrirtækið hefði
ekki sérstakar siðareglur en starfsmenn undir-
rituðu verklagsreglur þar sem væru ákvæði,
sem féllu undir siðareglur.
Landsbanki íslands sagði að siðareglur hefðu
um langt skeið gilt fyrir allt starfsfólk og hefðu
þær síðast verið endurskoðaðar 1999. Þar væri
brýnt fyrir fólki að fara að lögum og reglum og
bera ávallt hag viðskiptavinarins fyrir brjósti.
Segir í skýrslunni að í svari Landsbankans hafi
komið fram að reglur bankans væru ekki samd-
ar beinlínis með tilmæli framkvæmdastjórnar
ESB og Alþjóðasambands kauphalla í huga, en
við samanburð yrði ekki annað séð en að í
reglum bankans væri tekið á öllum þeim atrið-
um, sem kveðið væri á um í tilmælunum.
I svarbréfi Íslandsbanka-FBA sagði að í siða-
reglum íslandsbanka væri fjallað um samskipti
starfsmanna bankans við viðskiptamenn al-
mennt, meðferð trúnaðarupplýsinga, gjafir til
starfsmanna, boðsferðir, vinnu utan bankans og
fleira þess háttar. Innan FBA væru í gildi ýms-
ar starfsreglur efnislega sambærilegar við siða-
reglur Islandsbanka og væri nú langt komið að
samræma reglur bankanna tveggja eftir sam-
einingu þeirra.
Ekki bárust svör frá öllum
I bréfi frá Kaupþingi segir að í þeim reglum,
sem fyrirtækið hafi sett sér, sé vikið að ýmsum
siðferðilegum markmiðum þar sem Ieitast sé við
að tryggja jafnræði, góða viðskiptahætti, upp-
lýsingagjöf, viðskipti með verðbréf fyrir eigin
reikning, viðskipti starfsmanna og fleira. Þá séu
í lögum, reglugerðum og reglum, sem gildi um
verðbréfaviðskipti, ýmis ákvæði, sem feli í sér
siðareglur eða vísi til siðferðilegra mælikvarða.
Svör bárust einnig frá Sparisjóði Hafnar-
fjarðar, Sparisjóðabanka íslands, MP-Verðbréf-
um og Burnham International.
Svör bárust ekki frá Sparisjóði vélstjóra,
Fijálsa fjárfestingarbankanum, íslenskum
verðbréfum og Verðbréfastofunni.