Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 23
Afkoma
Norsk
Hydro í
samræmi
við vænt-
ingar
Ósló. Morgunblaðið.
Aíkoma Norsk Hydro á þriðja fjórð-
ungi ársins er í samræmi við vænting-
ar, að því er fram kemur í Dagens
næringsliv. Hagnaður Hydro nam 3,9
milljörðum norskra króna eftir skatt
á þriðja ársfjórðungi og samsvarar
það 35 milljörðum íslenskra króna.
Hagnaðurinn samsvarar 14,9
króna hagnaði á hlut. Hagnaður af
sölu eigna nemur þar af 6,1 krónu. A
sama tíma í fyrra nam hagnaður af
rekstri Hydro 600 miiljónum norskra
króna eða 5,4 milljörðum íslenskra
króna og er því um veruleg umskipti
að ræða.
Heildarhagnaður íyrirtækisins
nam 8,3 milljörðum norskra króna
eða um 75 milljörðum íslenskra
króna. Hátt olíuverð hefur góð áhrif á
afkomu Hydro en hagnaður af olíu-
hluta íyrirtækisins er 77% af heildar-
hagnaði fyrirtækisins á þriðja árs-
fjórðungi. Upphæðin er 5,8 milljarðar
norskra króna en á sama tíma í fyrra
var hagnaður af oliuhlutanum 1,9
milijarðar norskra króna.
Til viðbótar við aukinn hagnað
vegna hærra olíuverðs, hefur rekstur
Hydro verið endurskipulagður og að-
halds gætt í rekstri, og er það ástæða
betri afkomu fyrirtækisins, að sögn
Egil Myklebust, forstjóra Norsk
Hydro, í fréttatilkynningu.
Aukinn hagnaður af
álframleiðslu
Þrjú helstu starfssvið Norsk
Hydro eru olíuiðnaður, áburðarfram-
leiðsla og léttmálmsiðnaður, þ.e.
magnesíum- og álframleiðsla. Heild-
arhagnaður af léttmálmavinnslu
Hydro á þriðja ársfjórðungi var 995
milljónir norskra króna, miðað við
738 milljónir á sama tíma í fyrra.
Meiri sala vegur upp á móti lægra
verði.
Kostnaður Hydro við endumýjun
og uppbyggingu á álveri fyrirtækisins
í Sunndal í Noregi nam 6 milljörðum
norskra króna á þriðja ársfjórðungi,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. Á næstu fjórum árum mun
Hydro fjárfesta í endurbótum og
stækkun á álverinu í Sunndal og í til-
kynningunni er fullyrt að þetta álver
verði að lokum stærsta og nútímaleg-
asta álver Evrópu með árlega fram-
leiðslugetu upp á 321 þúsund tonn.
Hagnaður af áburðarframleiðsl-
unni nam 221 miHjón norskra króna
en tap var upp á 441 milljón á þriðja
fjórðungi síðasta árs.
Borgar fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra 250 milljónir
Norsk Hydro var meira í fréttum í
gær þar sem greint var frá því að fyr-
irtækið hefði borgað fyrrverandi
framkvæmdastjóra Saga Petroleum í
Bretlandi 27 milljónir norskra króna,
245 milljónir íslenskra, áður en dóms-
úrskurður yrði kveðinn upp. Norsk
Hydro yfirtók Saga Petroleum á síð-
asta ári og þar með gamlar syndir
fyrirtækisins, að því er segir í Aften-
posten. Saga Petroleum bauð Micha-
el Bourgeois að fara snemma á eftir-
laun eftir að Bourgeois hafði kvartað
yfir því að öll samskipti innan fyrir-
tækisins færu fram á norsku, en
Bourgeois kom frá Santa Fe sem
Saga Petroleum hafði áður tekið yfir.
Bourgeois kærði að lokum Saga Petr-
oleum fyrir kynþáttamisrétti, þar
sem hann talaði ekki tungumálið gæti
hann ekki tekið þátt í umræðum á
mánaðarlegum fundum yfirstjómar-
innar. Málið hefúr verið fyrir bresk-
um dómstólum í tvö ár en Norsk
Hydro hefur nú lokið því með
greiðslu fyrrgreindrar upphæðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, og Stefán Pálsson,
aðalbankastjóri Búnaðarbankans, á hluthafafundi bankans í gær.
Búnaðarbankinn
Hlutafé aukið um
250 milljónir króna
HLUTHAFAFUNDUR Búnaðar-
banka Islands hf. samþykkti í gær
samhljóða að auka hlutafé bankans
um 250 milljónir króna, eða úr 4,10
milljörðum króna í 4,35 milijarða
króna. Ef miðað er við stöðu hlut-
hafaskrár síðasta föstudag eru
28.568 hluthafar í bankanum, en
mætt var fyrir 17 hluthafa á fundinn.
Þessir 17 hluthafar eru fulltrúar
77,07% atkvæða og er ríkið lang-
stærsti hluthafinn með 72,56% hluta-
fjár.
Fram kom í máli Pálma Jónsson-
ar, formanns bankaráðs Búnaðar-
bankans, að ástæða hlutafjáraukn-
ingarinnar sé sú að Búnaðarbankinn
er að stofna banka í Lúxemborg og
að bankinn hafi nú þegar fullnýtt það
eigið fé sem hann hafi til ráðstöfunar.
Pálmi sagði á fundinum að banka-
ráðið teldi tímabært að hefja alþjóða-
væðingu bankans og að stofnun
banka í Lúxemborg væri fyrsta
alvöruskrefið sem tekið væri í þeim
tilgangi. Sagði hann að allur undir-
búningur að stofnun bankans í Lúx-
emborg gengi samkvæmt áætlun.
Gagnagrunnur Microsoft eða Orade
Markaðsmál Epiphany eða Orade
Sala Siebel eða Orade
Netverslun IBM eða Orade
Innkaup Commerce one eða Orade
Framleiðsla SAP eða Orade
Dreifing i2 eða Orade
Ffármál SAP eða Orade
Starfsmannastjórnun PeopieSoft eða Oracle
Stuðningur Clarify eða Orade
www.teymi.is
Oracle £-businesssuite
Fáðu þér heildar-
lausn frá Orade
Eða reyndu að púsla saman
10 ólíkum kerfum
(engar leiðbeiningar
innifaldar)
Þitt er valið
TEYMI
Sími 550 2500®
www.teymi.isE